Fara í efni

Félagsráðgjafi velferðarsviðs Hveragerðisbæjar​

Hveragerðisbær óskar eftir að ráða metnaðarfullan félagsráðgjafa til starfa á velferðarsviði sveitarfélagsins.​

Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf sem felur í sér félagslega ráðgjöf, mat á þjónustuþörf, úrlausn flókinna mála og samhæfingu þjónustuúrræða. Á velferðarsviði er lögð áhersla á náið faglegt samstarf, þverfaglega teymisvinnu og samræmda og vandaða þjónustu við íbúa.​

Helstu verkefni og ábyrgð​

  • Félagsleg ráðgjöf og stuðningur við einstaklinga og fjölskyldur.​
  • Greining og mat á félagslegum aðstæðum og þjónustuþörf.​
  • Móttaka, mat og úrvinnsla umsókna um fjárhagsaðstoð, félagslegt húsnæði, sérstakan húsnæðisstuðning og önnur þjónustuúrræði.​
  • Gerð, samhæfing og eftirfylgni einstaklingsbundinna þjónustuáætlana.​
  • Faglegur undirbúningur mála og þátttaka á þverfaglegum fagfundum.​
  • Samstarf við aðra félagsráðgjafa, stofnanir og þjónustuaðila.​
  • Fagleg skráning, skjalfesting og meðferð upplýsinga.​
  • Sinnir málstjórn á öðru stigi á grundvelli farsældarlaga.​

Menntunar- og hæfniskröfur​

  • Háskólamenntun í félagsráðgjöf og gilt starfsleyfi sem félagsráðgjafi á Íslandi.​
  • Hæfni til sjálfstæðrar faglegrar greiningar og úrlausnar flókinna mála.​
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.​
  • Frumkvæði, sjálfstæði og góð skipulagshæfni.​
  • Hæfni til að vinna undir álagi og takast á við krefjandi aðstæður.​
  • Vönduð og nákvæm vinnubrögð.​
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.​
  • Góð almenn tölvukunnátta.​

Æskileg viðbótarhæfni​

  • Reynsla af félagslegri ráðgjöf og málavinnslu innan félagsþjónustu sveitarfélaga.​
  • Þekking á lögum og reglum um félagsþjónustu sveitarfélaga og opinbera stjórnsýslu​
  • Reynsla af þverfaglegu samstarfi og gerð þjónustuáætlana.​
  • Þekking og reynsla af notkun OneCRM skjalavörslukerfis.​
  • Þekking og reynsla af notkun Business Central (BC) fjárhagskerfis.​

     

    Nánari upplýsingar​

    Um er að ræða 80% starf á velferðarsviði Hveragerðisbæjar. Umsóknarfrestur er til og með 30.11.2026. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Með umsókn skal skila ferilskrá, kynningarbréfi og upplýsingum um meðmælendur.​

    Umsóknum skal skila rafrænt í gegnum íbúagátt Hveragerðisbæjar.​

    Starfsstöð: Velferðarsvið Hveragerðisbæjar.​

    Ráðning er ótímabundin.​

    Laun og starfskjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi aðildarfélags BHM.​

    Nánari upplýsingar veitir Erna H. Solveigardóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Hveragerðisbæjar í síma 483-4000 eða með tölvupósti: erna@hveragerdi.is.​

    Hveragerðisbær hvetur öll áhugasöm sem uppfylla hæfniskröfur til að sækja um starfið. Athygli er vakin á að upplýsingar um nöfn og starfsheiti umsækjenda geta verið afhentar samkvæmt upplýsingalögum.​


Síðast breytt: 13. nóvember 2026
Getum við bætt efni síðunnar?