EDAM námskeið - Fyrir einhverfa unglinga
Fyrir hönd velferðarsviðs Hveragerðisbæjar er vakin athygli á að opið er fyrir skráningu á EDAM námskeið geðheilsumiðstöðvar barna - ATHUGIÐ námskeiðið er fyrir unglinga á aldrinum 13-16 ára sem upplifa sig einhverf og formlegrar greiningar er ekki krafist fyrir skráningu.
Nánari upplýsingar má finna hér - EDAM námskeið - Fyrir einhverfa unglinga | Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Markhópur:
Unglingar á aldrinum 13-16 ára sem upplifa sig einhverf. Athugið að formlegrar greiningar er ekki krafist.
Markmið:
Tilgangur námskeiðisins er að kenna unglingum færniþætti byggða á díalektískri atferlismeðferð (DAM) og aðstoða unglinga að vera sátt við eigin hugsanir og hegðun. Helsta áherslan verður á það sem unglingurinn sjálfur hefur stjórn á. Meðal þess sem verður farið yfir er tilfinninga- og orkustjórn, skynúrvinnsla og núvitund, streituþol, að finna milliveginn og aukinn sjálfsskilningur.
Fyrirkomulag:
Hvert námskeið er í heildina 18 klukkustundir sem skiptist í 12 skipti, 1,5 klst í senn. Athugið að námskeiðið er staðnámskeið, hópurinn hittist tvisvar í viku kl.15:00 – 16:30 á Geðheilsumiðstöð barna, Vegmúla 3, 108 Reykjavík.
Rík áhersla er lögð á virka þátttöku og heimaverkefni hjá unglingunum. Foreldrar mæta í 3 tíma á námskeiðinu en unglingar mæta í alla tíma.
Hver áfangi námskeiðisins byggir á því sem á undan er gengið og því mikilvægt að gera ráðstafanir til að unglingar geti sótt alla tímana.
Leiðbeinendur:
Leiðbeinendur hverju sinni eru tveir til þrír fagaðilar sem er sérfróðir um einhverfu og skyldar raskanir og hafa staðgóða reynslu af vinnu með unglingum og foreldrum.
Rannsókn:
Unnið er að því að árangursmeta EDAM námskeiðið í samstarfi við Háskólann í Reykjavík. Þátttakendur sem skrá sig á námskeið býðst að taka þátt í rannsókninni, en það er ekki skilyrði fyrir þátttöku á námskeiði