Deiliskipulag Grundarreitar - Heiðmörk 30-36
Á fundi bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar þann 1. október s.l. samþykkti bæjarstjórn að auglýsa að nýju tillögu að deiliskipulagi Heiðmarkar 30-36, Grundarreitar, í samræmi við 1. mgr. 41. gr skipulagslaga nr. 123/2010. Upphaflegri deiliskipulagstillögu hefur verið breytt til þess að koma til móts við innkomnar athugasemdir. Breytingarnar eru eftirfarandi: Íbúðum fækkar úr 80 í 74. Hús næst Bláskógum (reitur A4) og Litlumörk (reitur B5) voru lækkuð um eina hæð og eru 1. hæð á nýjum uppdrætti, byggingarreitur lengdist og 16 bílastæði falla út. Þakform á húsum á reit A3 og B3 var breytt í flöt þök, voru áður mænisþök. Byggingarreitur B2 breyttist og er 10 íbúðareitur en var áður 8 íbúða. Byggingarreitir í garðrými verða tveir, einn á hvorri lóð en áður voru þeir þrír. Málið var tekið fyrir í skipulags- og umhverfisnefnd þann 22. september 2026 þar sem nefndin lagði til við bæjarstjórn að endurauglýsa deiliskipulagstillöguna. Fyrra mál var með málsnr. 0481/2026.
Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera skriflega athugasemd á Skipulagsgátt, skipulagsgatt.is, málsnr. 1145/2026, í síðasta lagi þann 13. nóvember 2026.
Allar fyrirspurnir skulu berast á netfangið hildur@hveragerdi.is
Skipulagsfulltrúi Hveragerðisbæjar
Sjá fylgigögn hér:
Deiliskipulag 1
Deiliskipulag 2
Deiliskipulag 3
Greinagerð