Fara í efni

Bókasafnið í Hveragerði auglýsir eftir sumarstarfsmanni

Bókasafnið í Hveragerði auglýsir eftir sumarstarfsmanni.
Starfið felst í afgreiðslu og upplýsingagjöf til lánþega, þrifum og frágangi á safnkosti, aðstoð við viðburði og fleira tilfallandi.
Vinnutími er ýmist til 17 eða 18:30 virka daga og annan hvern laugardag. Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri.

Krafist er ríkrar þjónustulundar, góðrar hæfni í mannlegum samskiptum, góðrar tölvukunnáttu, stundvísi og jákvæðni. Íslenskukunnátta er nauðsynleg.

Áhugasamir geta skilað umsókn í gegnum Íbúagátt Hveragerðisbæjar eða með tölvupósti í netfangið eddahrund@hveragerdi.is


Síðast breytt: 25. apríl 2025
Getum við bætt efni síðunnar?