Fara í efni

Árleg hundahreinsun

Photo by Joe Caione on Unsplash…
Photo by Joe Caione on Unsplash

ÁRLEG HUNDAHREINSUN

Af því sögðu viljum við minna á árlega hundahreinsun fer fram í Áhaldahúsi bæjarins, Austurmörk 20, fimmtudaginn 3. desember n.k. kl. 17:00 - 19:00.

Eigendum óskráðra hunda gefst kostur á að skrá og greiða hundaleyfisgjald á staðnum. ATH. posi á staðnum!

Eigendur hunda sem ekki hafa verið bólusettir eru varaðir við að láta þá ganga saman við aðra hunda og bent á að gæta þess sérstaklega þegar þeir mæta til hreinsunar.

Hundaeigendur sem vilja láta bólusetja hundana sína verða að greiða fyrir það sérstaklega.

Að gefnu tilefni skal bent á að samkvæmt 9. grein samþykktar um hundahald í Hveragerði mega hundar aldrei ganga lausir á almannafæri, heldur vera í fylgd með manni, sem hefur fullt vald yfir honum.

Lausagöngu hunda skal tilkynna til Kristjáns Jónssonar, dýraeftirlitsmanns, í síma 822-2299.

Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar


Síðast breytt: 27. nóvember 2026
Getum við bætt efni síðunnar?