Fara í efni

17. júní 2026

Dagskráin er klár fyrir 17. júní 2026 í Hveragerði. Hátíðardagskráin verður á sínum stað í Lystigarðinum Fossflöt klukkan 14 en þangað streyma bæjarbúar í skrúðgöngu sem á upphaf sitt á tveimur stöðum í bænum. 

Í tilefni af 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar í ár þá verður opnuð ný sýning í Laugaskarði um sögu sundlaugarinnar. Einnig verður Sundlaugarsprell í Laugaskarði í anda fyrri tíma. Í lok hátíðardagskrár í Lystigarðinum verður boðið upp á 8 metra afmælisköku og loks verður Handverk og hugvit með skemmtilegan viðburð sem heitir Krummagull en hann verður útskýrður nánar í dagskrá hátíðarinnar. 

Gleðjumst saman á þjóðhátíðardeginum okkar og tökum þátt í dagskránni.

Hlekkur á dagskrána í PDF er hér.

17. júní 2026


Síðast breytt: 10. júní 2026
Getum við bætt efni síðunnar?