Fara í efni

Velferðar- og fræðslunefnd

16. fundur 03. nóvember 2026 kl. 17:00 - 19:45 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • María Rún Þorsteinsdóttir formaður
  • Tómas Kristjánsson varaformaður
  • Jónas Guðnason aðalmaður
  • Hekla Björt Birkisdóttir aðalmaður
  • Sæbjörg Lára Másdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Erna Harðar Solveigardóttir Deildarstjóri velferðarsviðs
Fundargerð ritaði: Erna Harðar Solveigardóttir Sviðsstjóri velferðarsviðs
Dagskrá

1.Gjaldskrár

2610229

Sviðsstjóri velferðarsviðs leggur fram tillögu að breytingu gjaldskrár heimastuðnings 60.
Velferðarnefnd þakkar sviðsstjóra Velferðasviðs fyrir kynninguna og yfirferð á tillögu að breytingu á gjaldskrá Heimastuðnings 60 plús .
Velferðarnefnd leggur til við bæjarstjórn að skoða að hækka gjaldskrá heimilisþrifa Heimastuðnings 60 umfram þau 2,5% sem lagt eru til en um 2.5% á aðra þjónustu. Nefndin telur mikilvægt að gjaldskráin verði færð nær því sem tíðkast hjá öðrum sveitarfélögum og endurspegli betur almenna gjaldtöku. Þar sem látið hefur verið hjá líða að uppfæra gjaldskrá í takt við gjaldskrá annarra sveitarfélaga er mikilvægt að ráðast í raunhæfa leiðréttingu á gjöldunum og færa þau í eðlilegra horf, enda er 2,5% hækkun ekki nægileg til þess að ná því markmiði.


2.Gott að eldast

2610230

Erna Harðar Solveigardóttir sviðsstjóri velferðarsviðs og Kolbrún Tanja mannauðsfulltrúi og fyrrum forstöðumaður stuðningsþjónustu kynna þróunarverkefnið Gott að eldast og nýlegar skipulagsbreytingar.
Velferðarnefnd þakkar fyrir góða og upplýsandi kynningu á verkefninu Gott að eldast.
Nefndin fagnar þeirri vinnu sem hefur verið unnin við þróun verkefnisins og þeim framförum sem orðið hafa í samþættingu þjónustu við eldra fólk. Nefndin telur mikilvægt að efla þverfaglegt samstarf, bæta samfellu í þjónustu og tryggja að þjónustan taki mið af þörfum hvers og eins. Slík samþætting skapar jafnframt betri forsendur til að bregðast fyrr við breyttum þörfum og styðja eldra fólk til sjálfstæðrar búsetu sem lengst.
Nefndin telur mikilvægt að byggja áfram á þeirri reynslu og þekkingu sem hefur skapast í verkefninu og halda áfram að þróa þjónustuna með hagsmuni eldra fólks að leiðarljósi. Nefndin harmar að erindi vegna fullrar samþættingar hafi ekki verið borið undir nefndina áður en ákvörðun var tekin.

3.Tekjumörk sérstaks húnsæðisstuðnings

2610245

Sviðsstjóri velferðarsviðs leggur fram tillögu að uppfærðum tekjumörkum sérstaks húsnæðisstuðnings.
Velferðarnefnd þakkar fyrir kynningu á tillögu að uppfærslu tekjumarka sérstaks húsnæðisstuðnings.
Nefndin tekur jákvætt í fyrirhugaða uppfærslu og telur mikilvægt að tekjumörk stuðningsins séu endurskoðuð reglulega og taki mið af þróun samfélagsins og þeim viðmiðum sem önnur sveitarfélög setja sér. Nefndin leggur því til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi tillögu að uppfærslu tekjumarka um 3,9%.

4.Enduskoðun matsviðmiða vegna félagslegs leiguhúsnæðis

2610244

Sviðsstjóri velferðarsviðs leggur fram tillögu að endurskoðun matsviðmiða vegna félagslegs leiguhúsnæðis.
Velferðarnefnd þakkar fyrir yfirferð á fyrirhugaðri endurskoðun matsviðmiða vegna félagslegs leiguhúsnæðis.
Nefndin tekur jákvætt í fyrirhugaðar breytingar og telur mikilvægt að matsviðmið séu skýr, gagnsæ og byggi á málefnalegum forsendum. Við mat á umsóknum um félagslegt leiguhúsnæði þarf að horfa til aðstæðna hvers umsækjanda, þar á meðal félagslegra og fjárhagslegra aðstæðna og húsnæðisþarfar.
Nefndin telur sérstaklega jákvætt að lagt sé til að fella brott skilyrði um 12 mánaða lágmarksbúsetu í sveitarfélaginu og meta þess í stað búsetulengd sem einn þátt í heildarmati umsókna. Með þeirri breytingu er dregið úr hættu á að einstaklingar í brýnni húsnæðisþörf séu útilokaðir frá því að sækja um vegna búsetutíma, en jafnframt er áfram tekið mið af tengslum umsækjenda við sveitarfélagið.
Nefndin leggur áherslu á að matskerfið stuðli að sanngjarnri og einstaklingsmiðaðri forgangsröðun þar sem þau sem eru í mestri þörf fyrir félagslegt leiguhúsnæði njóti viðeigandi forgangs. Mikilvægt er að vægi einstakra matsþátta endurspegli raunverulega þörf umsækjenda og að viðmið séu þannig úr garði gerð að þau styðji við markmið félagslegs leiguhúsnæðis.
Nefndin telur jafnframt mikilvægt að fylgst verði með framkvæmd og reynslu af nýjum matsviðmiðum og þau endurskoðuð eftir þörfum til að tryggja að þau þjóni áfram tilgangi sínum.

5.Beiðni frá Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings um samstarf í barnavernd

2610246

Sviðsstjóri velferðarsviðs kynnir beiðni Árnsesþings um samstarf í barnaverndarþjónustu við Hveragerði og Ölfus.
Velferðarnefnd þakkar Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs. fyrir erindið. Sambærileg beiðni barst sveitarfélaginu árið 2025 og var henni þá hafnað að svo stöddu, meðal annars með hliðsjón af uppbyggingu barnaverndarþjónustu sveitarfélagsins.
Að svo stöddu telur velferðarnefnd ekki forsendur til að verða við erindinu. Nefndin telur hins vegar mikilvægt að fara yfir reynslu af núverandi fyrirkomulagi barnaverndarþjónustu, meta hvernig samstarf við Sveitarfélagið Ölfus hefur reynst og rýna mögulegar leiðir til að tryggja áfram öfluga og sjálfbæra þjónustu til framtíðar. Slík yfirferð er jafnframt tímabær í upphafi nýs kjörtímabils með nýkjörnum sveitarstjórnarmönnum, nýrri nefndaskipan og breytingum á skipulagi sveitarfélagsins.
Velferðarnefnd felur formanni nefndarinnar, sviðsstjóra velferðarsviðs og bæjarstjóra að vinna málið áfram. Jafnframt leggur nefndin til að málið verði tekið til umfjöllunar í bæjarráði.

6.Kynning fjáhagsáætlunar

2610247

Sviðsstjóri velferðarsviðs kynnir fjárhagsáætlun fyrir 2027.
Velferðarnefnd þakkar sviðsstjóra Velferðarsviðs fyrir kynningu á fjárhagsáætlun sviðsins.
Nefndin leggur áherslu á mikilvægi þess að tekið verði fullt tillit til fjárþarfa og óska sviðsins við gerð fjárhagsáætlunar. Jafnframt er mikilvægt að horft verði til þess að sviðið fékk ekki nauðsynlegar auknar fjárheimildir á síðasta ári, þrátt fyrir auknar þarfir og kröfur um þjónustu. Tryggja þarf að fjárheimildir endurspegli raunverulegt umfang verkefna og þær skyldur sem sviðið ber ábyrgð á.

Fundi slitið - kl. 19:45.

Getum við bætt efni síðunnar?