Fara í efni

Velferðar- og fræðslunefnd

15. fundur 15. september 2026 kl. 16:00 - 17:20 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • María Rún Þorsteinsdóttir formaður
  • Tómas Kristjánsson varaformaður
  • Jónas Guðnason aðalmaður
  • Hekla Björt Birkisdóttir aðalmaður
  • Sæbjörg Lára Másdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Erna Harðar Solveigardóttir sviðstjóri velferðarsviðs
Fundargerð ritaði: Erna Harðar Solveigardóttir Sviðsstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
Formaður velferðar- og fræðslunefndar, María Rún Þorsteinsdóttir, setur fundinn og stjórnar honum. Hún leitar eftir athugasemdum við fundarboð en engar koma fram.

1.Starfsáætlun velferðarnefndar

2410095

Starfsáætlun velferðar- fræðslunefndar 2025-2026 lögð til kynningar.
Velferðarnefnd þakkar Ernu fyrir góða kynningu á starfssviði Velferðasviðs og yfirferð á starfsáætlun.

2.Erindisbréf Velferðar og fræðslunefndar

2310027

Erindisbréf lagt fram til kynningar.
Erindisbréf lagt fram til kynningar.

3.Reglugerð um breytta ábyrgðarskiptingu í málefnum barna með fjölþættan vanda

2606147

Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga, móttekið 23. júní 2026, var lagt fram til kynningar í bæjarráði Hveragerðisbæjar. Í bréfinu er vakin athygli á reglugerð nr. 700/2026 um málsmeðferð vegna vistunar barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins, sem að mati Sambands íslenskra sveitarfélaga gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025.



Sviðstjóri velferðarsviðs leggur fram mat á stöðunni.
Velferðar- og fræðslunefnd þakkar sviðsstjóra velferðarsviðs fyrir greinargott minnisblað og mat á áhrifum reglugerðar nr. 700/2026 á Hveragerðisbæ.
Nefndin tekur undir þær áhyggjur sem fram koma af mögulegum áhrifum reglugerðarinnar til framtíðar, einkum ef framkvæmd hennar leiðir til þess að börn með umfangsmiklar og flóknar stuðningsþarfir falli utan þeirra ríkisúrræða sem samkomulag ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 gerði ráð fyrir.
Nefndin telur mikilvægt að fylgst verði áfram með framkvæmd reglugerðarinnar og þróun einstakra mála og að fagleg og fjárhagsleg áhrif á Hveragerðisbæ verði metin sérstaklega ef upp koma ný mál þar sem þörf er á umfangsmikilli sérhæfðri þjónustu.

Nefndin samþykkir að fylgja málinu áfram eftir í samræmi við niðurstöður minnisblaðsins.

4.Tekju- og eignamörk félagslegs húsnæðis minnisblað

2609084

Sviðsstjóri velferðarsviðs leggur fram tillögu að uppfærslu á tekju-og eignamörkum félagslegs húsnæðis.

Hefur ekki tekið breytingum síðan 2023 og því komið að uppfærslu.
Velferðar- og fræðslunefnd þakkar sviðsstjóra velferðarsviðs og félagsráðgjafa fyrir greinargott minnisblað og yfirferð á tekju- og eignamörkum vegna úthlutunar félagslegs leiguhúsnæðis.
Nefndin tekur undir að tímabært sé að endurskoða mörkin, enda hafa orðið verulegar breytingar á verðlagi, launum og framfærslukostnaði frá síðustu uppfærslu árið 2023. Nefndin telur mikilvægt að tekju- og eignamörk taki mið af breyttum aðstæðum og endurspegli með skýrum hætti stöðu umsækjenda á hverjum tíma.
Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu að uppfærslu tekju- og eignamarka félagslegs húsnæðis og felur sviðsstjóra velferðarsviðs að fylgja málinu eftir.

5.Farsældarráð á Suðurlandi

2510056

Fundargerðir farsældarráðs lagðar til kynningar.
Velferðarnefnd hefur kynnt sér fundargerðir Farsældarráðs Suðurlands og fagnar þeirri vinnu sem þar er unnin við að efla samstarf og samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna á Suðurlandi.
Nefndin telur mikilvægt að við mótun aðgerðaráætlunar verði sérstaklega horft til stöðu barna og ungmenna í einstökum sveitarfélögum og að greint verði hvaða áskoranir þarfnast sérstakrar áherslu. Þá vekur nefndin athygli á þeim atriðum sem fram koma í fundargerðum ráðsins varðandi líðan stúlkna, stafrænt ofbeldi, aðgengi að sérfræðiþjónustu, samfellu í þjónustu við flutning úr grunnskóla í framhaldsskóla og mikilvægi þess að virkja íþróttahreyfinguna betur í þágu farsældar barna.
Velferðarnefnd telur mikilvægt að áfram verði fylgst með þessari vinnu og að niðurstöður hennar verði nýttar við þróun þjónustu fyrir börn og ungmenni í Hveragerði.
Fundargerðin upp lesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 17:20.

Getum við bætt efni síðunnar?