Fara í efni

Velferðar- og fræðslunefnd

14. fundur 05. maí 2026 kl. 17:00 - 18:30 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Sandra Sigurðardóttir formaður
  • Sæbjörg Lára Másdóttir varaformaður
  • Kristján Sigurmundsson aðalmaður
  • Kristinn Ólafsson aðalmaður
  • Margrét Harpa Garðarsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Erna Harðar Solveigardóttir Deildarstjóri velferðarsviðs
Fundargerð ritaði: Erna Harðar Solveigardóttir Sviðstjóri velferðarsviðs
Dagskrá

1.Minnisblað um hækkun fjárhagsaðstoðar 2026

2604108

Erna sviðstjóri velferðarsviðs leggur fram tillögu um hækkun fjárhagsaðstoðar 2026.
Nefndin samþykkir fyrir sitt leyti hækkun á fjárhagsaðstoð.

2.Tölulegar upplýsingar Velferðarsvið

2604166

Erna sviðstjóri velferðarsviðs kynnir stöðu sviðsins.
Velferðar og fræðslunefnd þakkar sviðstjóra velferðarsviðs fyrir upplýsandi og góða kynningu.

Ánægjulegt er að sjá þau mikilvægu skref sem stigin hafa verið í velferðarmálum á yfirstandandi kjörtímabili. Sú markvissa áhersla sem lögð hefur verið á málaflokkinn hefur skilað sér með beinum hætti til íbúa í formi aukinnar þjónustu og fjölbreyttari úrræða.


Það er fagnaðarefni að sjá þessa forgangsröðun raungerast í bættri velferð íbúa, enda er öflug velferðarþjónusta einn af hornsteinum farsæls samfélags.

Fundi slitið - kl. 18:30.

Getum við bætt efni síðunnar?