Fara í efni

Velferðar- og fræðslunefnd

13. fundur 18. febrúar 2026 kl. 18:00 - 19:57 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Sandra Sigurðardóttir formaður
  • Sæbjörg Lára Másdóttir varaformaður
  • Kristinn Ólafsson aðalmaður
  • Margrét Harpa Garðarsdóttir aðalmaður
  • Viðar Pétur Styrkársson varamaður
Starfsmenn
  • Erna Harðar Solveigardóttir Deildarstjóri velferðarsviðs
Fundargerð ritaði: Erna Harðar Solveigardóttir deildarstjóri velferðarsviðs
Dagskrá
Sameiginlegur fundur fulltrúa Velferðar- og fræðslunefndar Hveragerðisbæjar með Samráðshóp um málefni fatlaðs fólks í Hveragerði, skv. 6. gr. erindisbréfs Velferðar-og fræðslunefndar segir m.a.: "Í störfum sínum skal nefndin hafa gott samráð við aðrar fagnefndir sveitarfélagsins. Formaður nefndar ber ábyrgð á því að samvinna sé á milli nefnda þegar það á við"

Fulltrúar Velferðar- og fræðslunefndar þakka kærlega fyrir sameiginlegan fund með fulltrúum Samráðshóps um málefni fatlaðs fólks í Hveragerði, Valkyrju Sigrúnu Sigurðardóttur, Hörpu Björnsdóttur, Sigurði Bjarna Jónssyni, Sveini Friðrikssyni, Margréti Svanborgu Árnadóttur og starfsmanni Samráðshóps Nínu Kjartansdóttur.

1.Kynning á skýrslu um starfsemi Samráðshóps um málefni fatlaðs fólks í Hveragerði

2602052

Kynning á skýrslu um starfsemi Samráðshóps um málefni fatlaðs fólks í Hveragerði
Velferðar- og fræðslunefnd þakkar Valkyrju Sigrúnu Sigurðardóttur, formanni samráðshóps, kærlega fyrir góða kynningu á starfsemi samráðshópsins og upplýsingum um þau mikilvægu málefni sem nefndin hefur tekið fyrir á fundum sínum frá því að hann tók til starfa haustið 2024. Nefndin þakkar jafnframt samráðshópnum kærlega fyrir góða vinnu og hvetur samráðshópinn áfram til góðra verka.

2.Mat á stoð og stuðningsþjónstu

2505022

Elfa Birkisdóttir sviðstjóri Fræðslu- Mennta- menningar og lýðheilsusvið kynnir niðurstöður úttektar á stoð- og stuðningsþjónustu í Hveragerði sem var framkvæmd árið 2025.
Velferðar- og fræðslunefnd þakkar Elfu, sviðstjóra Mennta- menningar og lýðheilsusviðs fyrir yfirferð á niðustöðum úttektar á stoð og stuðningsþjónustu Hveragerðisbæjar.
Í kynningunni var farið yfir markmið og umfang úttektarinnar, helstu niðurstöður, greint frá styrkleika- og umbótatækifærum sem og tillögum að næstu skrefum.

Sandra Sigurðardóttir vék af fundinum kl: 19:10.
Fundargerð lesin upp og hún samþykkt.

Fundi slitið - kl. 19:57.

Getum við bætt efni síðunnar?