Velferðar- og fræðslunefnd
Dagskrá
1.Beiðni frá Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings um samstarf í barnavernd
2510067
Beiðni frá Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings um samstarf í barnavernd.
Velferðar- og fræðslunefnd þakkar erindið og sýndan áhuga á samstarfi í barnaverndarþjónustu. Nefndin vísar erindinu til frekari skoðunar og afgreiðslu hjá bæjarráði.
2.Minnisblað velferðarsviðs vegna hækkunar á upphæð greiðslu til stuðningsfjölskyldna
2601102
Velferðarþjónusta Hveragerðis leggur til að greiðslur til stuðningsfjölskyldna í málefnum fatlaðra verði hækkaðar í samræmi við gjaldskrá Bergrisans.
Velferðar- og fræðslunefnd leggur til að bæjarstjórn samþykki uppfærða gjaldskrá til stuðningsfjölskyldna.
3.Minnisblað velferðarsviðs vegna álagsgjalds fyrir stuðningsfjölskyldu
2601101
Velferðarþjónusta Hveragerðis leggur til að bæta við möguleika á álagsgjaldi fyrir stuðningsfjölskyldur í barnavernd og félagsþjónustu sbr. önnur sveitarfélög eins og Norðurþing og Reykjavíkurborg.
Velferðar- og fræðslunefnd leggur til að bæjarstjórn samþykki að bæta við álagsgjaldi á greiðslu til stuðningsfjölskyldna líkt og fram kemur í minnisblaði félagsráðgjafa til samræmis við önnur sveitarfélög.
Fundi slitið - kl. 18:36.
Getum við bætt efni síðunnar?