Fara í efni

Velferðar- og fræðslunefnd

10. fundur 03. júní 2025 kl. 17:00 - 17:54 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Sandra Sigurðardóttir formaður
  • Kristján Sigurmundsson aðalmaður
  • Kristinn Ólafsson aðalmaður
  • Alda Pálsdóttir aðalmaður
  • Hanna Einarsdóttir varamaður
    Aðalmaður: Sæbjörg Lára Másdóttir
Starfsmenn
  • Erna Harðar Solveigardóttir Deildarstjóri velferðarsviðs
Fundargerð ritaði: Erna Harðar Solveigardóttir deildarstjóri velferðarsviðs
Dagskrá

1.Sértæk stuðningsþjónusta

2505131

Kolbrún Tanja forstöðumaður stuðningsþjónustu kynnir fyrirhugaðar breytingar á fyrirkomulagi stuðningsþjónustu sveitarfélagsins, í samræmi við markmið laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991.
Velferðar- og fræðslunefnd þakkar Kolbrúnu fyrir kynninguna á fyrirhuguðum breytingum stuðningsþjónustu.

2.Gott að eldast - verklag

2408504

Kolbrún Tanja forstöðumaður stuðningsþjónustu kynnir fyrirhugaðar breytingar á fyrirkomulagi stuðningsþjónustu sveitarfélagsins fyrir 60 ára og eldri, í samræmi við markmið laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991.
Velferðar- og fræðslunefnd þakkar Kolbrúnu fyrir kynninguna á verklagi verkefnisins Gott að eldast og fyrirhuguðum breytingum. Velferðar- og fræðslunefnd fagnar samstarfinu og að verkefnið sé komið vel á veg.

3.Þjónusta við börn með fjölþættan vanda

2505147

Minnisblað deildarstjóra velferðarþjónustu Hveragerðisbæjar um færslu ábyrgðar á þjónustu við börn með fjölþættan vanda.
Velferðar- og fræðslunefnd þakkar fyrir upplýsingar á stöðu þjónustu við börn með fjölþættan vanda.

Fundi slitið - kl. 17:54.

Getum við bætt efni síðunnar?