Ungmennaráð
Dagskrá
1.Ósk um aukið fjármagn til ungmennaráðs
2603201
Ungmennaráð óskar eftir að fá aukið fjármagn fyrir ungmennaráð.
2.Ósk um þátttöku í undirbúningi fyrir hátíðir bæjarins
2603200
Ungmennaráð óskar eftir þátttöku í undirbúningi fyrir hátíðir bæjarins.
Rætt var mögulega nálgun ungmennaráðs að hátíðum bæjarins. Ungmennaráð óskar eftir því að fá að vera hluti af skipulagningu hátíða og vera með í skipulagningu frá upphafi.
Ungmennaráðið skorar á menningar-, atvinnu og markaðsnefnd að skipuleggja ungmennaball á blómstrandi dögum og er spennt fyrir því að taka þátt í skipulagningu.
Ræddar voru hugmyndir af mismunandi hátíðum sem ungmennaráð er spennt fyrir því að taka þátt í.
Ungmennaráðið skorar á menningar-, atvinnu og markaðsnefnd að skipuleggja ungmennaball á blómstrandi dögum og er spennt fyrir því að taka þátt í skipulagningu.
Ræddar voru hugmyndir af mismunandi hátíðum sem ungmennaráð er spennt fyrir því að taka þátt í.
3.Seta fulltrúa ungmennaráðs í fastanefndum Hveragerðisbæjar
2603199
Í íþrótta- og frístundastefnu Hveragerðisbæjar er þess getið að ungmennaráð eigi kost á að hafa áhrif á umhverfi sitt m.a. með þátttöku í starfi nefnda bæjarins. Ungamennaráð óskar eftir þátttöku í starfi nefnda bæjarins samanber ofangreindi stefnu Hveragerðisbæjar.
Ungmennaráðið fór yfir Íþrótta- og frístundastefna Hveragerðisbæjar og finnst spennandi að fá tækifæri til þess að sitja í fastanefndum bæjarins.
Ungmennaráðið skorar á bæjarstjórn að skoða möguleikann á þessu.
Ungmennaráðið skorar á bæjarstjórn að skoða möguleikann á þessu.
4.Erasmusferð Ungmennaráðs
2603198
Fjallað um fyrirhugaða kynningarferð Ungmennráðs erlendis til að skoða starfsemi sambærilegra ungmennaráða erlendis.
Ungmennaráðið fór yfir stöðuna á fyrirhugaðri Erasmus ferð.
5.Áskorun ungmennaráðs vegna opnunartíma í sundlauginni Laugaskarði
2511111
Lagt fram til kynningar
Ungmennaráð þakkar kærlega fyrir skjót viðbrögð bæjarins við ósk um aukin opnunartíma sundlaugarinnar. Ungmennaráðið kann virkilega að meta það að hlustað sé á raddir unga fólksins og vonast eftir farsælu samstarfi í komandi framtíð.
6.Áskorun ungmennaráðs vegna ruslatunna í bænum
2511112
Lagt fram til kynningar
Ungmennaráð þakkar kærlega fyrir skjót viðbrögð bæjarins við óskum um fleiri ruslatunnum. Ungmennaráðið kann virkilega að meta það að hlustað sé á raddir unga fólksins og vonast eftir farsælu samstarfi í komandi framtíð.
7.Stafræn staða, stefna og aðgerðaráætlun
2504138
Kynnt er þjónustustefna og staða stafrænna mála hjá Hveragerðisbæ
Ungmennaráð þakkar Röðli fyrir heimsóknina og kynninguna á þjónustustefnu Hveragerðisbæjar og stöðu á stafrænum verkefnum.
Fundi slitið - kl. 18:35.
Getum við bætt efni síðunnar?
Aukið fjármagn verði nýtt í til dæmis:
Bæta við tveimur aðalmönnum og hafa fimm í heildina
Bæta við þremur fundum og hafa sex fundi í heildina á ári. Þessa fundi væri hægt að nota í ferðalög í önnur ungmennaráð.
Þess að auki óskar ungmennaráð eftir því að lagt verði meira fjármagn í ungmennahúsopnanir og kostnað vegna þess, meðal annars til dæmis starfsmanns. Ungmennaráð óskar eftir því að heildarupphæð fyrir ungmennahúsopnanir verði 750.000 krónur á ári.