Skólanefnd
Dagskrá
1.Breytingar á námsmati við lok grunnskóla
2610168
Lagt er fyrir innsent erindi stjórnarráðsins - Breytingar á námsmati við lok grunnskóla. https://www.stjornarradid.is/frettir/grein/2026-10-01-breytingar-a-namsmati-vid-lok-grunnskola/
2.Fjárhagsáætlun 2027_Grunnskólinn í Hveragerði
2610163
Sævar Þór Helgason skólastjóri kynnir forsendur fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.
Skólanefnd þakkar fyrir kynningu skólastjóra og upplýsandi minnisblað. Skólastjóri hefur þegar fundað með bæjarstjóra, sviðsstjóra og formanni skólanefndar til að ræða betur það sem þar kemur fram. Samhljómur var um mikilvægi þess að stilla vel saman strengi og móta sameiginlega sýn í skóla- og frístundamálum Hveragerðis. Svör við spurningum í minnisblaðinu munu að einhverju leyti koma fram í þriggja ára fjárhagsáætlun sem unnið er að, enda er mikilvægt að bæjaryfirvöld og stjórnendur séu í reglulegu samtali um þarfir stofnana bæjarins. Það á ekki síst við um mótun tímaáætlunar en þannig er hægt að tryggja að verkefni séu í réttri forgangsröðun og nýting fjármagns sé sem best.
3.Fjárhagsáætlun 2027_Leikskólinn Óskaland
2610164
Gunnvör Kolbeinsdóttir leikskólaskólastjóri kynnir forsendur fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.
Skólanefnd þakkar fyrir kynningu leikskólastjóra.
Skólanefnd leggur til að óskir er snerta meðal annars ungbarnasvæði skólans verði teknar til frekari skoðunar og nauðsynlegar endurbætur verði gerðar sem taka mið af þörfum yngstu barnanna.
Skólanefnd leggur til að óskir er snerta meðal annars ungbarnasvæði skólans verði teknar til frekari skoðunar og nauðsynlegar endurbætur verði gerðar sem taka mið af þörfum yngstu barnanna.
4.Fjárhagsáætlun 2027_Leikskólinn Undraland
2610165
Anna Erla Valdimarsdóttir leikskólastjóri kynnir forsendur fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.
Skólanefnd þakkar fyrir kynningu leikskólastjóra.
5.Fjárhagsáætlun 2027_Frístundamiðstöðin Bungubrekka
2610166
Liljar Mar Pétursson forstöðumaður frístundamiðstöðvarinnar Bungubrekku kynnir forsendur fjárhagsáætlunar 2027.
Skólanefnd þakkar forstöðumanni frístundamála kynninguna og upplýsandi minnisblað. Nefndin tekur undir þau orð að ekki sé eingöngu horft til húsnæðisþarfar leikskóla og grunnskóla þegar unnið er að framtíðaruppbyggingu sveitarfélagsins. Frístundaheimilið þarf svo sannarlega að vera hluti af þeirri heildarmynd.
6.Fjárhagsáætlun 2027_Skólaþjónusta
2610167
Elfa Birkisdóttir sviðstjóri kynnir forsendur fjárhagsáætlunnar fyrir árið 2027.
Skólanefnd þakkar fyrir kynningu sviðsstjóra. Rekstrarforsendur eru að mestu óbreyttar en stöðugildum fjölgað úr 3,6 í 4,3. Þessi ósk um fjölgun stöðugilda kemur fram í kjölfar þarfagreiningar og reynslunnar, en nú eru þrjú ár liðin síðan Hveragerðisbær stofnaði eigin skólaþjónustu. Áður var hún hluti af byggðasamlaginu skóla- og velferðarþjónusta Árnesþings. Brýnt er að huga að aðstöðu og húsnæðismálum skólaþjónustunnar.
7.Íslenska æskulýðsrannsóknin
2609109
Formaður skólanefndar fer yfir næstu skref í vinnu með teymi ÍÆ og R&G.
Í framhaldi af bókunum skólanefndar, 17. september sl., og bæjarstjórnar frá 1. október hefur sviðsstjóri mennta-, menningar- og lýðheilsusviðs sett sig í samband við stjórnendur Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar (ÍÆ) og Rannsóknar og greiningar (R&G) til að ræða frekari kynningu á niðurstöðum og hvernig best sé að standa að greiningar- og stefnumótunarvinnu út frá þessum gögnum. Stjórnendur ÍÆ og R&G tóku erindinu vel og ef af verður bætist Hveragerði í hóp nokkurra sveitarfélaga sem eru að vinna með þeim. Á Suðurnesjum er til að mynda verið að vinna með sveitarfélögum og íþróttahreyfingunni að þróunarverkefni sem miðar að aukinni þátttöku í íþróttum og tómstundum. Næsta skref hér í Hveragerði verður á þá leið að formaður skólanefndar og sviðsstjóri funda með stjórnendum ÍÆ og R&G um það hvernig ferlið gæti orðið ásamt mögulegum kostnaði.
Fundi slitið - kl. 17:00.
Getum við bætt efni síðunnar?
Nefndin styður markmið um skýrara og samræmdara námsmat en leggur áherslu á að breyting á einkunnakvarða tryggir ekki ein og sér að markmiðin nái fram að ganga né að jafnræði nemenda milli skóla náist fram. Tryggja þarf skýrar og samræmdar lýsingar á þrepum talnakvarðans, tengsl þeirra við hæfniviðmið aðalnámskrár og leiðbeiningar um gerð vitnisburðar. Þá kallar þessi breyting á góða upplýsingagjöf til alls skólasamfélagsins. Námsmat þarf áfram að byggjast á heildstæðu faglegu mati kennara, fjölbreyttum matsgögnum og að matið styðji alltaf við nám nemenda.
Þegar unnið er að slíkum breytingum á aðalnámskrá grunnskóla þarf að tryggja virkt samráð við skólasamfélagið, góðan undirbúningstíma og fjármagnaða ráðgjöf. Jafnframt þarf að leggja mat á áhrif breytinganna og nýta niðurstöður til áframhaldandi þróunar námsmats í samhengi við aðalnámskrá, námsefni og kennsluhætti. Það er mat skólanefndar að of stuttur tími til innleiðingar sé ætlaður í þetta stóra breytingaverkefni sem kallar m.a. á endurskoðun skólanámskrár Grunnskólans í Hveragerði fyrir 10. janúar 2027.