Skólanefnd
Dagskrá
1.Starfsáætlun Bungubrekku 2026-2027
2609112
Liljar Mar Pétursson forstöðumaður kynnir starfsáætlun fyrir frístundamiðstöðina Bungubrekku.
Skólanefnd staðfestir áætlunina og þakkar Liljari Mar Péturssyni fyrir góða kynningu á því starfi sem framundan er í frístundamiðstöðinni Bungubrekku
2.Starfsáætlun leikskólinn Undraland 2026-2027
2609107
Anna Erla Valdismarsdóttir leikskólastjóri leikskólans Undralands kynnir starfsáætlun leikskólans Undralands.
Skólanefnd staðfestir áætlunina og þakkar Önnur Erlu Valdimarsdóttur fyrir góða kynningu á starfsáætlun leikskólans Undralands.
3.Starfsáætlun leikskólans Óskalands 2026-2027
2609106
Gunnvör Kolbeinsdóttir leikskólastjóri Óskalands kynnir starfsáætlun leikskólans Óskalands.
Skólanefnd staðfestir áætlunina og þakkar Gunnvöru Kolbeinsdóttur fyrir góða kynningu á starfsáætlun leikskólans Undralands.
4.Skólanámskrá Óskaland
2609094
Gunnvör Kolbeinsdóttir leikskólastjóri leikskólans Óskalands kynnir skólanámskrá leikskólans Óskalands.
Skólanefnd staðfestir áætlunina og þakkar Gunnvöru Kolbeinsdóttur leikskólastjóra fyrir kynningu á skólanámskrá leikskólans Óskalands.
5.Breytingar á starfsemi eldhúsi leikskólaeldhúsa
2606027
Elfa Birkisdóttir sviðsstjóri mennta-menningar og lýðheilsusviðs fer yfir nýlega auglýsingu um matráð leikskólanna og hugmyndir um breytingu á starfsemi leikskólanna í Hveragerði.
Lögð fram til kynningar breyting á starfsemi eldhúsi leikskólaeldhúsa felur í sér að ráða inn matráð sem mun leiða starf í eldhúsum beggja leikskólanna. Framreiðslueldhús verður í Undralandi eins og verið hefur mun matráður einnig hafa umsjón með eldhúsi leikskólans Óskalands. Markmiðið er að horfa til þess að hægt sé að auka gæði og skilvirkni gagnvart þeim verkefnum sem tilheyra mötuneyti leikskólaeldhúsanna.
Dagný Sigurbjörnsdóttir kemur inn á fundinn.
Liljar Mar fer út af fundinum.
6.Skólaþjónusta Hveragerðisbæjar
2605005
Elfa Birkisdóttir sviðsstjóri mennta-, menningar og lýðheilsusviðs kynnir skólaþjónustu Hveragerðisbæjar.
Skólanefnd þakkar Elfu Birkisdóttur sviðsstjóra fyrir góða kynningu á starfsemi skólaþjónustu Hveragerðisbæjar.
Gunnvör fer út af fundinum.
7.Starfsáætlun GÍH 2026-2027
2609105
Sævar Þór Helgason skólastjóri Grunnskólans í Hveragerði kynnir starfsáætlun skólans.
Skólanefnd staðfestir áætlunina og þakkar Svævari Þór Helgasyni skólastjóra fyrir góða kynningu á starfsáætlun Grunnskólans í Hveragerði.
8.Íslenska æskulýðsrannsóknin
2609109
Niðurstöður Íslensku æsklulýðsrannsóknarinnar fyrir Hveragerði lagðar fram til kynningar fyrir skólanefnd.
Niðurstöðurnar fyrir Grunnskólann í Hveragerði sýna margt jákvætt, meðal annars sterk félagsleg tengsl nemenda, góðan stuðning foreldra, góða þátttöku í íþróttum og jákvæð viðhorf til skólans. Líðan nemenda í kennslustundum og sérstaklega í frímínútum er almennt góð. Þrátt fyrir það er sérstök ástæða er til að huga að andlegri líðan nemenda, svefni og þreytu, auk þess að halda áfram öflugu starfi gegn einelti. Þá eru vísbendingar um að margir nemendur upplifi hávaða í skólanum sem gefur tilefni til að huga að vinnuumhverfinu, m.a. að hljóðvist í húsnæði skólans. Einnig þarf að styrkja rödd nemenda í skólastarfinu og huga að eflingu lesturs.
Skólanefnd leggur áherslu á að niðurstöðurnar verði nýttar markvisst til áframhaldandi þróunar skólastarfsins. Sérstaklega verði horft til vellíðunar og geðheilsu, öruggs og jákvæðs skólaumhverfis, nemendalýðræðis og læsis. Mikilvægt er að fylgja niðurstöðunum eftir með því að setja skýr markmið og leggja reglulegu mat á árangur.
Skólastjórnendur, forstöðumaður frístundamiðstöðvar, sviðsstjórar, velferðarnefnd og ungmennaráð eru hvött til að rýna niðurstöðurnar vel og vinna að umbótum í samstarfi við m.a. nemendur, foreldra og starfsfólk. Óskað er eftir minnisblaði um þá vinnu á fundi skólanefndar í lok skólaársins.
Skólanefnd leggur áherslu á að niðurstöðurnar verði nýttar markvisst til áframhaldandi þróunar skólastarfsins. Sérstaklega verði horft til vellíðunar og geðheilsu, öruggs og jákvæðs skólaumhverfis, nemendalýðræðis og læsis. Mikilvægt er að fylgja niðurstöðunum eftir með því að setja skýr markmið og leggja reglulegu mat á árangur.
Skólastjórnendur, forstöðumaður frístundamiðstöðvar, sviðsstjórar, velferðarnefnd og ungmennaráð eru hvött til að rýna niðurstöðurnar vel og vinna að umbótum í samstarfi við m.a. nemendur, foreldra og starfsfólk. Óskað er eftir minnisblaði um þá vinnu á fundi skólanefndar í lok skólaársins.
9.PISA 2025
2609110
Niðurstöður PISA lagðar fram til kynningar fyrir skólanefnd.
Niðurstöður PISA 2025 gefa tilefni til að horfa á uppbyggilegan hátt á þróun grunnskólastarfs hér á landi. Leggja þarf áherslu á læsi, stærðfræðilæsi, styrkingu snemmtæks stuðnings og að veita stuðning við nám hvers nemanda í góðu samstarfi heimila og skóla. Jafnframt þarf að standa vörð um vellíðan, félagsleg tengsl og jákvætt námsumhverfi nemenda. Mikilvægt er að mennta- og barnamálaráðuneytið veiti sveitarfélögum viðeigandi stuðning til að efla skólakerfið og er skólanefnd tilbúin til samstarfs um umbætur enda næst góður árangur í skólastarfi fyrst og fremst með víðtæku samstarfi. Langt er til að niðurstöður PISA verði einn af þeim þáttum sem hafðir verða til hliðsjónar við stefnumótun Hveragerðisbæjar í skólamálum.
Fundi slitið - kl. 17:25.
Getum við bætt efni síðunnar?