Skólanefnd
Dagskrá
1.Starfsáætlun skólanefndar 2026-2027
2608091
Starfsáætlun skólanefndar 2026-2027 lögð fram til samþykktar.
Skólanefnd samþykkir starfsáætlun skólanefndar 2026-2027.
2.Erindisbréf skólanefndar 2026
2608133
Þorsteinn Hjartarson formaður skólanefndar kynnir erindisbréf skólanefndar sem er í gildi.
Erindisbréf lagt fram til kynningar.
3.Kynning fyrir skólanefnd.
2608127
Þorsteinn Hjartarsson formaður skólanefndar kynnir fyrir skólanefnd hlutverk, ábyrgð og skyldur skólanefndar.
Skólanefnd þakkar Þorsteini Hjartarsyni formanni skólanefndar fyrir kynningu á hlutverkum og ábyrgð og skyldum skólanefndar. Skólanefnd leggur til að skólanefndarfundir verði haldnir að jafnaði þriðja fimmtudag hvers mánaðar kl. 15:00.
4.Málefnasamningur D-lista og S-lista kjörtímabilið 2026-2030
2606034
Þorsteinn Hjartarson formaður skólanefndar kynnir helstu þætti í málefnasamningi D- lista og S- lista fyrir kjörtímabilið 2026-2030.
Málefnasamningur D-lista og S-lista lagður fram til kynningar.
5.Umbótaáætlun vegna ytra mats á leikskólanum Undraland
2608112
Anna Erla Valdimarsdóttir leikskólastjóri leikskólans Undralands kynnir umbótaáætlun vegna ytra mats á leikskólanum Undralandi.
Skólanefnd þakkar Önnu Erlu fyrir kynningu á umbótaáætlun vegna ytra mats á leikskólanum Undralandi. Eftirfylgni mennta- og barnamálaráðuneytis með umbótum í kjölfar úttektar er hér með lokið.
6.Stoð og stuðningsþjónuusta GÍH - næstu skref
2605007
Sævar Þór Helgason skólastjóri Grunnskólans í Hveragerði og Elfa Birkisdóttir sviðsstjóri fara yfir næstu skref varðandi þróun á stoð- og stuðningsþjónustu innan Grunnskólans í Hveragerði.
Skólanefnd þakkar Sævari Þór Helgasyni og Elfu Birkisdóttur fyrir kynningu á stöðu þróunar stoð- og stuðningsþjónustu í Grunnskólanum í Hveragerði. Þjónustan og úrræðin voru byggð upp í kjölfar mats á stoð- og stuðningsþjónustu sem unnið var á síðasta skólaári og í kjölfar synjunar um skólavist í Setrinu fyrir nemendur með lögheimli í Hveragerði. Kostnaði við uppbyggingu úrræðanna verður mætt af deild 04240 lykill 4360 og af deild 04230 lykil 9990 í núverandi fjárhagsáætlun. Skólanefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja úrræðin sem verið er að byggja upp í Grunnskólanum í Hveragerði.
Gunnvör Kolbeinsdóttir víkur af fundi. María Rún Þorsteinsdóttir víkur af fundi.
7.Fræðsludagurinn 14. ágúst 2026
2608090
Elfa Birkisdóttir sviðsstjóri fer yfir dagskrá fræðsludagsins sem fram fór 14. ágúst 2026.
Skólanefnd þakkar Elfu Birkisdóttur sviðsstjóra fyrir kynningu á dagskrá fræðsludagsins. Skólanefnd vill einnig koma á framfæri þökkum til þeirra sem stóðu að skipulagningu og undirbúningi á fræðsludegi Hveragerðisbæjar.
8.Bið eftir frumgreiningu og samþykktri þjónustu
2607091
Elfa Birkisdóttir sviðsstjóri kynnir bréf og svar við spurningum umboðsmanns barna um stöðu á bið eftir þjónustu í frumgreiningu og einnig stöðu á bið eftir samþættri þjónustu í þágu farsældar barna.
Bréfið lagt fram til kynningar og einnig svar sviðsstjóra mennta-, menningar og lýðheilsusviðs. Skólanefnd þakkar fyrir upplýsingar um stöðu á bið eftir frumgreiningu og stöðu á bið eftir samþættri þjónustu í þágu farsældar barna. Skólanefnd fagnar hvernig tekist hefur til í málaflokknum.
9.Vinnuhópur Öruggara Suðurlands
2608113
Lagt fram til kynningar skýrsla og bréf til bæjarstjóra frá vinnuhópi Öruggara Suðurlands um úti- og bæjarhátíðir á Suðurlandi þar sem greint er frá skipulagi og lagðar fram tillögur um framkvæmd að forvörnum.
Skólanefnd fagnar þeirri skýrslu sem unnin hefur verið af vinnuhópi Öruggara Suðurlands. Skólanefnd leggur til við bæjarstjórn að við skipulag bæjarhátíða á vegum Hveragerðisbæjar verði horft til og innleiddir verkferlar sem miða að því að efla forvarnir og vinna úrbótatillögur í anda þess sem vinnuhópur Öruggara Suðurlands leggur til. Skólanefnd vill gjarnan taka málið upp aftur og koma að þessu mikilvæga forvarnarstarfi.
Dagný víkur af fundi áður en fundi lýkur. Brynja Hrafnkelsdóttir varamaður kemur á fundinn í stað Dagnýjar.
Fundi slitið - kl. 16:22.
Getum við bætt efni síðunnar?