Skipulags- og umhverfisnefnd
Dagskrá
Arnar setti fund og leitaði eftir athugasemdum við fundargerð. Engar athugasemdir voru gerðar.
1.Framkvæmdaleyfi - Þorlákshafnarlína 2 (TO2)
2611247
Lögð er fram umsókn Landsnets um framkvæmdaleyfi fyrir Þorlákshafnarlínu 2, ásamt fylgiskjölum dags. 3. nóvember 2026. Fylgiskjöl eru um áhrifamat vatnshlota, greinargerð með framkvæmdaleyfisumsókn, fornleifaskráning vegna tveggja jarðstrengja, leyfi vegna þverunar Varmár og ákvörðun um matsskyldu.
Framkvæmdin sem sótt er um er vegna lagningu 132 kV jarðstrengs frá Hveragerði að Þorlákshöfn. Strengurinn er í heildina rúmlega 21 km langur og liggur á tæplega 2 km kafla innan sveitarfélagamarka Hveragerðisbæjar. Tilgangur með þessari aðgerð er að auka flutningsgetu til Þorlákshafnar þar sem aukin þörf er og núverandi línur munu fyrirsjáanlega ekki anna aukningu í nánustu framtíð.
Óskað er eftir að málsmeðferð vegna umsóknar um framkvæmdaleyfi geti hafist sem fyrst, þannig að hægt verði að veita leyfið samhliða því að yfirstandandi skipulagsmál klárast.

Nefndin leggur til að fresta afgreiðslu þangað til öll gögn og leyfi liggja fyrir.
2.Gönguleið og áningarstaðir við Varmá - framkvæmdaleyfi
2610212
Lagt er fram til kynningar framkvæmdaleyfi vegna gönguleiðar og áningarstaða við Varmá sem samþykkt var í bæjarstjórn þann 5. nóvember 2026 með fylgigögnum.
Fyrirhuguð framkvæmd er á bæjarlandi Hveragerðisbæjar og felst í lagningu 1,5m breiðs göngustígs og þriggja áningarstaða við Varmá norðan listigarðsins í Fossflöt og áleiðis upp með ánni að Baulufossi. Samanlögð lengd göngustígs er 850 m og samanlögð stærð áningarstaða í formi timburpalla sem að hluta til verða með bekkjum er 112 m2. Stígar og pallar eru grundaðir með stálskrúfum en annars byggðir upp með timbri en stálristum þar sem álag vegna árinnar er meira.
Framkvæmd er í samræmi við gildandi deiliskipulag Varmár sem samþykkt var 12. maí 2021 í bæjarstjórn og tók gildi með birtingu í B-deild 19. júlí 2021. Framkvæmdin er sömuleiðis í samræmi við hönnun Þráins Haukssonar landslagsarkitekts hjá Landslagi. Sótt var um styrk til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða í október s.l. fyrir framkvæmd sem myndi hefjast á næsta ári.

Til kynningar.
3.Hönnunarverðlaun viðbyggingar Óskalands
2609065
Viðbyggingin við leikskólann Óskaland var tilnefnd til Hönnnunarverðlauna Íslands 2026 í flokknum staður. Óskaland var ein þriggja tilnefndra bygginga og eina skólabyggingin sem hefur verið tilnefnd til verðlaunanna frá upphafi. Fjölbýlishúsið á Frakkastíg 1 hlaut verðlaunin.
Miðstöð hönnunar og arkitektúrs fjallar um málið á heimasíðu sinni: „Að mati dómnefndar skapar hönnun Óskalands hlýlega og efnisríka heild þar sem náttúrulegur viður, hófstillt litanotkun, hljóðdempandi fletir og sérhannaðar innréttingar vinna saman. Hönnun og landslag styðja hvort annað án þess að yfirgnæfa upplifunina, styrkurinn liggur í fjölbreytileika rýmanna og útisvæðisins og þeim möguleikum sem þau skilja eftir fyrir börnin sjálf.“
Hönnunarverðlaun Íslands varpa ljósi á mikilvægi og gæði hönnunar og arkitektúrs á Íslandi með áherslu á áhrif þeirra á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni fyrir samfélagið allt.

Til kynningar. Nefndin fagnar góðum árangri og góðri samvinnu við arkitekta verkefnisins. Einnig tekur hún undir orð Hönnunarmiðstöðvar um mikilvægi gæða hönnunar og arkitektúrs á Íslandi með áherslu á lífsgæði, verðmætasköpun og sjálfbærni fyrir samfélagið allt.
4.Mengun í Varmá
2602033
Lagt er fram bréf sem barst frá Náttúruverndarstofnun dags. 6. febrúar 2026 vegna ábendingar frá formanni Veiðifélags Varmár og Þorleifslækjar um skólpmengun frá Hveragerðisbæ og klórmengun frá sundlaug bæjarins. Formaður veiðifélagsins bendir á í erindi sínu að Varmá og nágrenni árinnar stafi ógn af þessari mengun og að umrætt svæði sé á náttúruminjaskrá. Beinir formaðurinn því erindi sínu til Náttúruverndarstofnunar sem hefur yfirumsjón með náttúruverndarsvæðum og ber ábyrgð með eftirliti með þeim.
Umhverfisfulltrúi fór yfir stöðu mála varðandi úrbætur sem hafa ýmist verið gerðar eða eru á döfinni. Nefndin felur honum að svara erindi Náttúruverndarstofnunar.
5.Deiliskipulagsbreyting hesthúsahverfis á Vorsabæjarvöllum vegna stækkunar hesthúsahverfis og golfvallar
2401118
Lögð er fram deiliskipulagsbreyting hesthúsahverfis á Vorsabæjarvöllum vegna stækkunar hesthúsahverfis og golfvallar sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar þann 2. júlí 2026 eftir athugasemd HMS, umsögn HMS við deiliskipulagsbreytingunni og umsögn skipulagsfulltrúa vegna athugasemda HMS.
Með umsögn HMS dags. 9. október 2026 gerir stofnunin ekki athugasemd við að sveitarstjórn birti auglýsingu um samþykkt deiliskipulagsbreytingarinnar í B-deild Stjórnartíðinda þegar brugðist hefur verið við ábendingum um að setja skilmála um heimilað byggingarmagn fram með skýrari hætti og þarf umfjöllun um áhrif á ásýnd í umhverfisskýrslu að taka mið af því. Æskilegt er einnig að orðalag í almennum skilmálum varðandi til dæmis gróðurfar og útfærslu landmótunar sé skýrara.
Brugðist hefur verið við athugasemdum HMS og greingargerð deiliskipulags breytt.

Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja deiliskipulagsbreytinguna með áorðnum breytingum eftir athugasemdir HMS í samræmi við 1. mgr. 42. gr skipulagslaga nr. 123/2010.
6.Heiðmörk 30-36, Grundarreitur - nýtt deiliskipulag
2510173
Lögð er fram eftir auglýsingu deiliskipulagstillaga Grundarreitar á Heiðmörk 30-36 ásamt umsögn skipulagsfulltrúa vegna innkominna athugasemda dags. 13. nóvember 2026.
Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 1. október 2026 að endurauglýsa deiliskipulag Grundarreitar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eftir að gerðar voru breytingar á fyrri tillögu að auglýstu deiliskipulagi. Deiliskipulagssvæðið er íbúðasvæði í gildandi aðalskipulagi um 1,15 ha að flatarmáli, nýtingarhlutfall er 0,5 og gert var ráð fyrir allt að 74 íbúðum af mismunandi stærð. Þá er heimild er til niðurrifs núverandi bygginga.
Deiliskipulagstillagan var auglýst frá 2. október til 13. nóvember 2026 á Skipulagsgátt. Haldinn var íbúafundur í grunnskólanum þann 26. október s.l. Um 30 manns mættu á kynningarfundinn þar sem tillaga og helstu breytingar voru kynntar. Alls bárust í Skipulagsgátt fimm umsagnir frá eftirtöldum aðilum: Brunavarnir Árnessýslu, Veitum, Mílu, Ingibjörgu Sigmundsdóttur með undirskriftalista 31 næstu nágranna reitarins.

Nefndin frestar málinu og felur skipulagsfulltrúa í samvinnu við bæjarstjóra að vinna málið áfram.
7.Endurskoðun deiliskipulags við Varmá frá Lystigarðinum Fossflöt og norður fyrir Friðarstaði
2611005
Eftirtalin skjöl eru lögð fram:
Minnisblað Ingimars Guðmundssonar, bæjarstjóra, dags. 2. nóvember 2026.
Deiliskipulag við Varmá í Hveragerði.
Greinargerð deiliskipulags við Varmá í Hveragerði.
Skýringaruppdráttur deiliskipulags við Varmá í Hveragerði.
Í minnisblaði bæjarstjóra er m.a. gerð tillaga um að bæjarstjórn ákveði að hefja endurskoðun á fyrirliggjandi deiliskipulagi við Varmá í Hveragerði í ljósi þess að engin uppbygging hefur hafist á svæðinu þrátt fyrir að lóðir séu byggingarhæfar.
Bæjarstjórn tók málið fyrir á fundi sínum þann 5. nóvember s.l. þar sem eftirfarandi var bókað:
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum að hafin verði vinna við endurskoðun deiliskipulags við Varmá með áherslu á svæðið við Álfafell og Álfaklett.
Markmið endurskoðunar er að skapa betri forsendur fyrir uppbyggingu, auka sveigjanleika skipulagsins og meta möguleika á fjölgun íbúða í samræmi við gildandi aðalskipulag. Málinu er vísað til skipulags- og umhverfisnefndar til frekari vinnslu.

Nefndin felur skipulagsfulltrúa að láta vinna breytingu á deiliskipulagi í samræmi við minnisblað bæjarstjóra.
8.Minnisblað um helstu skipulagsverkefni 2026
2611006
Lagt er fram til kynningar minnisblað skipulagsfulltrúa um helstu skipulagsverkefni árið 2026 sem unnið var fyrir bæjarstjóra.
Til kynningar.
9.Vatnaáætlun
2607042
Lagt er fram bréf frá Umhverfis- og orkustofnun, móttekið 28. október 2026, þar sem óskað er eftir athugasemdum fyrir 20 nóvember svo hægt sé að taka mið af þeim við mótun aðgerðaáætlunar vatnaáætlun 2028-2033.
Nefndin felur umhverfisfulltrúa að fara yfir bréfið og senda athugasemdir Hveragerðisbæjar ef þær eru einhverjar.
10.Kvörtun vegna Heiðarbrúnar 44
2610237
Lagt er fram bréf frá Jóhanni Bergmann Guðmundssyni, dags. 29. október 2026. Í bréfinu leggur hann fram formlega kvörtun vegna bílhræja og fleira í Heiðarbrún 44.
Nefndin felur umhverfisfulltrúa að svara erindinu og senda erindi til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands og fara fram á að hugsanlegir mengunarvaldar verði fjarlægðir af lóðinni.
11.Ábending um hlið v. hættu á Valsheiði-Kambalandi
2611221
Lagt er fram bréf frá Bryndísi Valdimarsdóttur, dags. 6. nóvember 2026. Segir hún að setja verði hlið fyrir hjólandi við endann á Valsheiðinni á leið niður úr Kambalandi (eins og er nálægt Óskalandi) og að bregðast þurfi við áður en illa fer.
Nefndin þakkar ábendinguna. Biðskylda er á gatnamótunum, hámarkshraði 30 km/klst. og merkt gangbraut. Ökumenn þurfa alltaf að sýna aðgát, sérstaklega í íbúðahverfum og mikilvægt er að óvarðir vegfarendur noti endurskinsmerki. Nefndin felur umhverfisfulltrúa að kanna möguleika á að setja upp viðvörunarskilti.
12.Bréf frá eigendum að Heiðmörk 68 a-d - stígur á baklóðum
2603221
Lagt er fram bréf frá eigindum Heiðmerkur 68 a-d þar sem farið er fram á við bæjarfélagið að stígur á baklóðum raðhúsaíbúða verði gerður að bæjarlandi með tilheyrandi ábyrgð bæjarins á rekstri og þjónustu við stíginn.
Málið var lagt fram til umræðu á fundi nefndarinna þann 23. júní og 22. september s.l. þar sem afgreiðslu frestað vegna fyrirhugaðrar vettvangskoðunar. Vettvangsskoðun fór fram 17. nóvember 2026.

Nefndin hefur tekið málið til vandlegrar skoðunar og meirihluti nefndarinnar leggur til við bæjarstjórn að hafna erindinu. Fulltrúi Okkar Hveragerðis situr hjá við afgreiðslu málsins.
Fundargerð upplesin og samþykkt.
Fundi slitið - kl. 19:00.
Getum við bætt efni síðunnar?