Fara í efni

Skipulags- og umhverfisnefnd

34. fundur 22. september 2026 kl. 17:00 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Arnar Hannes Halldórsson formaður
  • Sigurður Einar Guðjónsson varaformaður
  • Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir aðalmaður
  • Einar Alexander Haraldsson aðalmaður
  • Hjalti Helgason varamaður
Starfsmenn
  • Jón Friðrik Matthíasson byggingarfulltrúi
  • Hildur Gunnarsdóttir skipulagsfulltrúi
  • Höskuldur Þorbjarnarson Umhverfisfulltrúi
Fundargerð ritaði: Hildur Gunnarsdóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá
Arnar setti fund og leitaði eftir athugasemdum við fundarboð sem komu ekki.

1.Gróðurmörk ÍB4

2502001

Arna Mathiesen frá April arkitektum kynnir hugmyndir að deiliskipulagi fyrir ÍB4 Gróðurmörk.
Til kynningar.

2.Erindisbréf skipulags- og umhverfisnefndar

2410170

Gildandi erindisbréf skipulags- og umhverfisnefndar lagt fram til kynningar í upphafi nýs kjörtímabils fyrir nýja nefnd.
Til kynningar. Nefndin felur skipulagsfulltrúa að kanna hvort unnt sé að breyta tímamörkum í erindisbréfi nefndarinnar.

3.fundadagatal skipulags- og umhverfisnefndar 2026-2027

2609030

Lagt er fram fundadagatal bæjarstjórnar, bæjarráðs og fastanefnda Hveragerðisbæjar.
Til kynningar.

4.Heiðmörk 30-36, Grundarreitur - nýtt deiliskipulag

2510173

Lögð er fram eftir auglýsingu tillaga að deiliskipulagi Heiðmarkar 30-36, Grundarreitar dags. 27.1.26 með áorðnum breytingum og umsögn skipulagsfulltrúa vegna innkominna athugasemda dags. 15.september 2026.

Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 9. apríl 2026 að auglýsa deiliskipulag Grundarreitar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagstillagan var auglýst frá 22. apríl til 3. júní 2026. Alls bárust sex umsagnir frá eftirtöldum aðilum: Brunavarnir Árnessýslu, Veitur, Rarik, Míla, Minjastofnun Íslands og athugasemd með undirskriftalista 243 manna.

Skipulags- og umhverfisnefnd frestaði málinu á síðasta fundi og bókaði að nefndin "telur mikilvægt að farið verði yfir þær athugasemdir sem borist hafa á auglýsingartíma og metið hvort tilefni sé til breytinga á tillögunni með hliðsjón af þeim sjónarmiðum sem þar koma fram. Mikilvægt er að málsmeðferðin tryggi að öll málefnaleg sjónarmið, þar á meðal framkomnar athugasemdir íbúa, geti haft raunverulegt vægi við endanlega afgreiðslu tillögunnar.

Við þá vinnu verði sérstaklega horft til umfangs uppbyggingarinnar, samspils hennar við aðliggjandi byggð, ásýndar svæðisins og áhrifa á umferð og umferðaröryggi. Nefndin telur mikilvægt að leitað verði leiða til að samræma sem best sjónarmið íbúa, stefnu aðalskipulags og forsendur uppbyggingar á reitnum.

Afgreiðslu málsins er því frestað. Skipulags- og umhverfisnefnd felur formanni skipulags- og umhverfisnefndar og skipulagsfulltrúa, í samráði við viðeigandi hagaðila að vinna áfram að mögulegum breytingum á tillögunni og leggja fram mat á því hvernig hægt sé að samræma betur sjónarmið íbúa, stefnu aðalskipulags, hagsmuni sveitarfélagsins og forsendur uppbyggingaraðila."

Búið er að breyta tillögu að deiliskipulagi til að koma til móts við innkomnar athugasemdir. Breytingarnar eru eftirfarandi: Íbúðum fækkar úr 80 í 74. Hús næst Bláskógum (reitur A4) og Litlumörk (reitur B5) voru lækkuð um eina hæð. Eru 1 hæð á nýjum uppdrætti, byggingarreitur lengdist og 16 bílastæði detta út. Þakform á húsum á reit A3 og B3 var breytt í flöt þök, voru áður mænisþök. Byggingarreitur B2 breyttist, er 10 íbúðareitur en var áður 8 íbúða. Bygginarreitir í garðrými verða tveir, einn á hvorri lóð. Voru áður þrír.
Nefndin leggur til við bæjarstjórn að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Heiðmarkar 30-36, Grundarreitar, að nýju í samræmi við 1. mgr. 41. gr skipulagslaga nr. 123/2010.

5.Lækjarbrún - fyrirspurn um uppbyggingu

2609016

Lögð er fram fyrirspurn um fjölgun raðhúsaíbúða við Lækjarbrún um 4 íbúðir í 47 íbúðir. Fjölgun um 1 bílastæði á íbúð í bílskúr fyrir nýjar íbúðir = 4 ný bílastæði.

Íbúðasvæði ÍB12 í aðalskipulagi. Í gildi er deiliskipulag Grænumerkur 10 sem samþykkt var þann 18.12.2003. Þar var gert ráð fyrir raðhúsum við Lækjarbrún en á umræddu svæði var ekki skipulögð byggð en gert ráð fyrir grasi og runnum.

Raðhús fyrirspurnartillögu eru sambærileg raðhúsum sem fyrir eru. Tillaga sýnir hóflega þéttingu sem færi vel í umhverfi sínu. Gera þarf breytingu á deiliskipulagi ef taka á jákvætt í erindi.

Nefndin tekur jákvætt í fyrirspurn um fjölgun íbúða við Lækjarbrún. Breytingin krefst deiliskipulagsbreytingar og gerður er fyrirvari um að lóðarhafi verði með í ráðum við umsókn um slíkt.

6.Hlíðarhagi - umsókn um breytingu á deiliskipulagi

2609029

Sótt er um breytingu á deiliskipulagi Hlíðarhaga vegna fjölgunar íbúða úr 45 í 55 á Hlíðarhaga. Gert er ráð fyrir óbreyttu nýtingarhlutfalli lóða ofanjarðar 0,45 og ekki er um að ræða fjölgun bílastæða. Íbúðaþéttleiki verður 42 íb/ha.

Hlíðarhagi er í aðalskipulagi íbúðasvæði ÍB5: Lágreist byggð fjölbýlis- og raðhúsa á 1- 2 hæðum. Leiðbeinandi nýtingarhlutfall fyrir deiliskipulag 0,4-0,65 og íbúðaþéttleiki 35 íb/ha. Í gildi er deiliskipulag fyrir Hlíðarhaga sem síðast var samþykkt í mars 2023. Búið er að samþykkja aðalteikningar af íbúðum í fjölbýlishúsum sem eru tveggja og þriggja herbergja íbúðir, tæplega 70 m2 tveggja herbergja og 76-85 m2 þriggja herbergja íbúðir. Íbúðirnar eru allar með aðkomu að utan eða frá svalagangi og eru því með gluggahliðar á tvo eða þrjá vegu. Fyrirkomulag íbúðanna í útliti og grunnmynd sýnir vel hannaðar rúmgóðar íbúðir sem munu sóma sér vel í umhverfi sínu. Breyttar grunnmyndir sýna íbúðastærðir tveggja herbergja íbúða um 60 m2 og þriggja herbergja um 70 m2.

Breyta þyrfti aðalskipulagi til þess að hækka heimilaðan fjölda íbúða á hektara og breyta deiliskipulagi m.t.t. fjölda íbúða og bílastæðaviðmiða ef tak ætti vel í umsóknina.

Nefndin leggur til við bæjarstjórn að hafna erindinu þar sem það rúmast ekki innan gildandi aðalskipulags og að skipulagsfulltrúa verði falið að leiðbeina umsækjanda um áframhaldið.

7.Laufskógar 32 - sorpílát og innkeyrsla

2607049

Eigandi að Laufskógum 32 lýsir því að raunveruleg aðkoma að húsi hans er frá Klettahlíð og bílastæði, aðalinngangur og öll almenn umferð að eigninni eru Klettahlíðarmegin. Engin bílastæði né nokkur aðkoma að húsinu frá Laufskógum og sorpílát hússins eru staðsett þeim megin, á landi sveitarfélagsins. Þetta veldur reglulega ruglingi, meðal annars hjá póstburðarfólki, gestum og öðrum þjónustuaðilum, þar sem skráð heimilisfang og raunveruleg aðkoma að húsinu fara ekki saman.

Óskað ef eftir því að kannað verði hvort hægt sé: Að byggja ný sorpílát á bæjarlandi, eða að færa sorpílátin að Klettahlíð, nær bílastæði og aðalinngangi hússins, og/eða að breyta eða skýra opinbera aðkomuskráningu eignarinnar þannig að fram komi að aðalinngangur og aðkoma séu frá Klettahlíð, eða, ef það er mögulegt, að breyta heimilisfangi eignarinnar þannig að það samræmist raunverulegri aðkomu.
Nefndin bendir umsækjanda á að flytja sorpílát inn á lóðina og af bæjarlandi. Nefndin gerir ekki athugasemdir við að sorpílát verði færð að Klettahlíð.

8.Framtíð sameiginlegra verkefna sveitarfélaga

2608036

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands sendi erindi til Hveragerðisbæjar þar sem vakin er athygli á að með flutningi eftirlitsverkefna til ríkisins frá og með næstu áramótum verður veruleg breyting á starfsemi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Þótt lögbundið eftirlit flytjist að stórum hluta frá sveitarfélögunum verða áfram fjölmörg verkefni og ákvarðanir á þeirra ábyrgð þar sem þörf er á staðbundinni þekkingu á umhverfis- og innviðamálum.

Heilbrigðiseftirlitið leggur fram meðfylgjandi gögn sem umræðugrundvöll. Þau fela ekki í sér endanlegar tillögur heldur eiga að auðvelda sveitarstjórnum að meta mismunandi valkosti og hvaða sameiginlegu verkefni gætu verið raunhæf.
Til kynningar. Gert er ráð fyrir að erindið fái efnislega meðferð í bæjarstjórn.

9.Hraðahindrun í Heiðmörk

2608044

Ábending um hraðakstur í Heiðmörk og óskað er eftir úrbótum.
Nefndin fagnar erindinu og felur umhverfisfulltrúa að koma með tillögur til úrbóta og kostnaðarmat á næsta fund með áherslu á lausnir sem unnt verður að framkvæma í haust eða í vor. Nefndin vísar jafnframt í afgreiðslu eldri erinda frá 32. fundi nefndarinnar og leggur til að vísa málinu jafnframt til tækni- og umhverfissviðs til heildstæðrar skoðunar um hvernig hægt sé að vinna gegn hraðakstri í bænum.

10.Hraðakstur Dynskógar

2608041

Ábending um hraðakstur í Dynskógum og óskað er eftir úrbótum.
Nefndin fagnar erindinu og felur umhverfisfulltrúa að koma með tillögur til úrbóta og kostnaðarmat á næsta fund með áherslu á lausnir sem unnt verður að framkvæma í haust eða í vor. Nefndin vísar jafnframt í afgreiðslu eldri erinda frá 32. fundi nefndarinnar og leggur til að vísa málinu jafnframt til tækni- og umhverfissviðs til heildstæðrar skoðunar um hvernig hægt sé að vinna gegn hraðakstri í bænum.

11.Ábending um hraðakstur í Klettahlíð

2609008

Ábending um hraðakstur í Klettahlíð og óskað er eftir úrbótum.
Nefndin fagnar erindinu og felur umhverfisfulltrúa að koma með tillögur til úrbóta og kostnaðarmat á næsta fund með áherslu á lausnir sem unnt verður að framkvæma í haust eða í vor. Nefndin vísar jafnframt í afgreiðslu eldri erinda frá 32. fundi nefndarinnar og leggur til að vísa málinu jafnframt til tækni- og umhverfissviðs til heildstæðrar skoðunar um hvernig hægt sé að vinna gegn hraðakstri í bænum.

12.Ábending um hraðakstur í Bláskógum

2609035

Ábending um hraðakstur í Bláskógum og óskað er eftir úrbótum.
Nefndin fagnar erindinu og felur umhverfisfulltrúa að koma með tillögur til úrbóta og kostnaðarmat á næsta fund með áherslu á lausnir sem unnt verður að framkvæma í haust eða í vor. Nefndin vísar jafnframt í afgreiðslu eldri erinda frá 32. fundi nefndarinnar og leggur til að vísa málinu jafnframt til tækni- og umhverfissviðs til heildstæðrar skoðunar um hvernig hægt sé að vinna gegn hraðakstri í bænum.

13.Beiðni um tilfærslu strætóstoppistöðvar við Aldinmörk 2

2608010

F.h. húsfélagins að Aldinmörk 2 er óskað eftir að strætóstoppistöð verði færð fjær húsinu. Lagt er til að færa stöð vestar á eða við lóð opinberra stofnana eins og leikfélagsins eða listasafns Árnesinga.
Nefndin þakkar fyrirspurnina en bendir á að gildandi aðalskipulag leggur til að strætóstöð verði færð austar á Austurmörk og ný stöð sett upp á Breiðumörk. Ekki stendur til að fara í bráðabirgðalausnir þangað til að endanleg tilfærsla á sér stað. Nefndin hvetur bæjarstjórn til þess að beita sér með virkum hætti við Vegagerðina um almenningssamgöngur í bænum.

14.Yfirlit um húsnæðis- og skipulagsmál Hveragerðisbæjar

2605097

Lagt er fram yfirlit frá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun vegna stöðu

húsnæðisuppbyggingar í sveitarfélaginu og verkefna sveitarstjórnar á sviði húsnæðis- og skipulagsmála.

Í bréfinu er meðal annars fjallað um niðurstöður árlegrar samantektar HMS á húsnæðisáætlunum sveitarfélaga, stöðu íbúðauppbyggingar og lóðaúthlutunar, auk þess sem vakin er athygli á þeim verkefnum sem nýkjörnar sveitarstjórnir standa frammi fyrir að loknum sveitarstjórnarkosningum. Þar á meðal er vísað til skyldu sveitarstjórna til að meta hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulag og, eftir

atvikum, svæðisskipulag í ljósi landskipulagsstefnu og annarra stefnumarkandi forsendna.

Til kynningar.

15.Kynning til sveitarfélaga sem eru ekki aðilar að samtökunum

2609006

Lagt er fram bréf frá Samtökum orkusveitarfélaga ásamt fylgigögnum. Samtökin eru samstarfsvettvangur sveitarfélaga sem hafa beina hagsmuni af nýtingu orkuauðlinda, uppbyggingu og rekstri orkuvera og áhrifum orkuvinnslu á nærsamfélög. Sveitarfélög sem hafa innan sinna marka, starfandi orkuver eða virkjanir sem nýta vatnsafl, vindorku eða jarðhita til raforkuframleiðslu, slíkar virkjanir í umsóknarferli, í byggingu, í undirbúningi eða skilgreinda orkukosti í nýtingarflokki eða biðflokki rammaáætlunar eða í aðalskipulagi geta gerst aðilar að samtökunum.

Sveitarstjórnir sem telja að sveitarfélag þeirra kunni að uppfylla þessi skilyrði eru hvattar til að kynna sér starfsemi Samtaka orkusveitarfélaga og skoða hvort rétt sé að sækja um aðild að samtökunum.
Til kynningar. Nefndin hvetur bæjarstjórn til nánari skoðunar á hvort hagsmunum Hveragerðisbæjar sé betur borgið með aðild að samtökunum eða án.

16.Hvatning um að taka afstöðu til loðdýraræktar í aðalskipulagi

2609005

Lagt fram formlegt erindi frá Samtökum um dýravelferð þar sem hvatt er til að skoða þá leið sem Norðurþing hefur farið varðandi stefnu um loðdýrarækt í aðalskipulagi. Óskað er eftir því að erindinu verði komið til viðeigandi aðila innan sveitarfélagsins, svo sem borgar/bæja/sveitarstjórnar eða skipulagsnefndar.
Til kynningar.

17.Lagaleg staða og ábyrgð sveitarfélaga í skipulagsmálum vegna uppbyggingar á svæðum með þekkta náttúruvá

2509084

Lagt er fram að nýju bréf frá Náttúruhamfaratryggingu Íslands dags. 10. september 2025 um áhrif 16. gr. laga nr. 55/1992 ef byggingar eru reistar á svæðum sem fyrir fram er vitað að eru sérlega næm fyrir náttúruhamförum sem eru bótaskyldar hjá NTÍ.

NTÍ beinir sjónum sínum að vaxandi tjónum á nýlegum mannvirkjum á þekktum flóðasvæðum og talsverðrar umræðu um enn frekari framkvæmdir á slíkum svæðum. Með þessu bréfi er áréttuð lagaleg staða og ábyrgð sveitarfélaga í skipulagsmálum og réttur almennings

til skýrra upplýsinga um takmarkanir á vátryggingarvernd og bótarétti skv. 16. gr. laga nr. 55/1992 þegar byggt er á svæðum með fyrir fram þekkta náttúruvá.
Til kynningar.

18.Samgönguvika 2026

2605110

Lagt er fram bréf frá Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu þar sem sveitarfélög eru hvött til að taka virkan þátt í samgönguviku 2026. Hveragerðisbær tók þátt með hvatningu til bæjarbúa á heimasíðu bæjarins og með hjólastrætó á bíllausa deginum þar sem um 200 hjólarar hjóluðu sem leið lá í grunnskólann.
Nefndin fagnar góðri þátttöku á hjólastrætóviðburði dagsins í Hveragerði.

19.Uppsetning á hleðslustöð í Birkimörk

2609038

Lagt er fram bréf frá eiganda í Birkimörk 5 þar sem óskað er eftir að koma upp rafhleðslustöð á bílastæðum á bæjarlandi við raðhús við Birkimörk. Meðfylgjandi er samþykki meðlóðarhafa á Birkimörk 1.
Nefndin telur ákjósanlegt að hleðslustöðvum sé ekki fyrirkomið á bæjarlandi og felur skipulagsfulltrúa að leiðbeina umsækjanda um mögulegar útfærslur á úrlausn bílastæðamála á svæðinu.

20.Bréf frá eigendum að Heiðmörk 68 a-d - stígur á baklóðum

2603221

Innkomið bréf frá eigendum að Heiðmörk 68a-d lagt fram þar sem farið er fram á við bæjarfélagið að stígur á baklóðum raðhúsaíbúða verði gerður að bæjarlandi með tilheyrandi ábyrgð bæjarins á rekstri og þjónustu við stíginn.

Málið var lagt fram til umræðu á fundi nefndarinna þann 23. júní s.l. og afgreiðslu frestað.
Máli frestað. Vettvangsskoðun fyrirhuguð.

21.Laufskógar 7 - Umfangsflokkur 2

2609122

Lögð er fram byggingarleyfisumsókn fyrir viðbyggingu til ákvörðunar um grenndarkynningu.
Nefndin leggur til að grenndarkynna byggingarleyfisumsóknina fyrir Laufskógum 5, 6, 8 og 9 og Dynskógum 6 og 8.

22.Sunnumörk 6 - Umfangsflokkur 1

2608054

Lögð er fram byggingarleyfisumsókn fyrir stækkun skiltis og lýsingu við Sunnumörk 6 sem er innan gildandi deiliskipulags fyrir Austurmörk, Sunnumörk, Breiðumörk og Grænumörk sem samþykkt var fyrst árið 1997. Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á deiliskipulaginu síðan. Árið 2007 var gerð breyting fyrir umrædda lóð þegar byggingareit var skipt upp og heimiluð var uppsetning olíustöðvar austan megin á lóð. Núverandi skilti er sýnt á grunnmynd deiliskipulags en er utan byggingareitar. Heildardeiliskipulag svæðisins var samþykkt í bæjarstjórn 14. desember 2017. Engin ákvæði um skilti eru í gildandi deiliskipulagi.

Skipulagsreglugerð gefur með grein 5.8.4. sveitarstjórn heimild til að samþykkja

byggingarleyfisumsóknir með óverulegum frávikum frá deiliskipulagi þegar metið er að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Að lokinni samþykkt sveitarstjórnar getur byggingarfulltrúi afgreitt byggingarleyfið eða skipulagsfulltrúi framkvæmdaleyfið. Frávik skv. framangreindu eru bundin viðkomandi leyfi og verða ekki sjálfkrafa hluti skipulagsskilmála.

Nefndin leggur til við bæjarstjórn að heimila óverulegt frávik frá deiliskipulagi skv. gr. 5.8.4. í skipulagsreglugerð þar sem hagsmunir nágranna skerðast í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Fundargerð upplesin og samþykkt.

Fundi slitið.

Getum við bætt efni síðunnar?