Fara í efni

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

15. fundur 23. september 2026 kl. 17:00 - 19:00 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Sigurður Bjarni Jónsson aðalmaður
  • Harpa Björnsdóttir aðalmaður
  • Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir aðalmaður
  • Valkyrja Sigrún Sigurðardóttir aðalmaður
  • Sveinn Friðriksson aðalmaður
Starfsmenn
  • Nína Kjartansdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði: Nína Kjartansdóttir Ráðgjafaþroskaþjálfi
Dagskrá
Starfsmaður samráðshóps, Nína Kjartansdóttir, setur fundinn og stjórnar honum þar til formaður hefur verið kjörinn. Hún leitar eftir athugasemdum við fundarboð en engar koma fram.

1.Skipan fulltrúa í samráðshópi málefna fatlaðs fólks 2026-2027

2609069

Farið yfir skipan fulltrúa samráðshóps um málefni fatlaðs fólks í Hveragerðis fyrir starfsárið 2026-2027.

Það vantar að skipa þriðja fulltrúa aðalmanns ÖBÍ og þrjá varamenn.

Formaður og varaformaður samráðshóps kosnir á fundi.



Skipan aðalmanna:

Valkyrja Sigrún Sigurðardóttir, fulltrúi ÖBÍ

Sveinn Friðriksson, fulltrúi ÖBÍ

Harpa Björnsdóttir, fulltrúi S lista

Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir, fulltrúi O lista

Sigurður Bjarni Jónsson, fulltrúi D lista



Skipan varamanna:

Unnur Þormóðsdóttir, fulltrúi D lista

Tómas Kristjánsson, fulltrúi S lista

Brynja Sif Sigurjónsdóttir, fulltrúi O lista
Eftirfarandi skjöl voru lögð fram:

Tölvupóstur dags. 15.09.2026 - Vöntun á fulltrúum ÖBÍ í samráðshóp fatlaðs fólks í Hveragerði.pdf

Tölvupóstur dags. 22.09.2026 - Ósk um tilnefningu fulltrúa ÖBÍ í samráðshóp fatlaðs fólks í Hveragerði

Samráðshópur býður nýskipaða fulltrúa innilega velkomna til starfa.

Samráðshópur kaus Valkyrju Sigrúnu Sigurðardóttur fulltrúa hagsmunasamtaka fatlaðs fólks í Hveragerði, sem formann og Sigurð Bjarna Jónsson fulltrúa D sem varaformann.

Starfsmaður samráðshóppsins, Nína Kjartansdóttir hefur nú þegar sent beiðni um tilnefningu fulltrúa í samráðshópinn til ÖBÍ.
Samráðshópur leggur í hendur starfsmanns, að senda einnig beiðni um tilnefningu fulltrúa í samráðshópinn til eftirfarandi hagsmunasamtaka:

Landssamtakanna Þroskahjálpar
Átaks, félags fólks með þroskahömlun
Sjálfsbjargar, landssambands hreyfihamlaðra
Einhverfusamtakanna
Umhyggja, félag langveikra barna
Félags heyrnarlausra
Blindrafélagsins

Markmiðið er að tryggja fjölbreytta og breiða aðkomu hagsmunasamtaka fatlaðs fólks að starfi samráðshópsins og styrkja þannig samráð, notendarödd og þátttöku fatlaðs fólks í málefnum sveitarfélagsins.

Einnig felur samráðshópur starfsmanni að auglýsa eftir fulltrúum hagsmunasamtaka fatlaðs fólks á heimasíðu Hveragerðisbæjar.

2.Fundardagatal og starfsáætlun samráðshóps 2026-2027

2609070

Fundartagatal og tillaga að dagskrá og umfjöllunarefni í starfsáætlun samráðshóps fyrir starfsárið 2026-2027 yfirfarin.
Eftirfarandi skjöl voru lögð fram:

Fundadagatal Hveragerðisbæjar 2026-2027 (1).pdf, ódagsett

Starfsáætlun Samráðshóps 2026-2027.pdf, ódagsett

Lagt fram til kynningar. Starfsáætlunin er til viðmiðunar og getur tekið breytingum eftir þörfum.

3.Erindi sem nefndinni hefur borist - Frekari útfærsla á skipun starfshóps til mótunar framtíðarstefnu í atvinnumálum fatlaðs fólks og einstaklinga með skerta starfsgetu

2609071

Á fundi bæjarráðs 18. júní 2026 var lögð fram tillaga samráðshóps um skipun starfshóps til mótunar skýrrar og heildstæðrar framtíðarstefnu í sveitarfélaginu í atvinnumálum fatlaðs fólks og einstaklinga með skerta starfsgetu. Bæjarráð samþykkti samhljóða að vísa tillögunni um stofnun starfshópsins aftur til samráðshóps um málefni fatlaðs fólks til frekari útfærslu þar sem markmið, framkvæmd og ábyrgð er skilgreind með skýrum hætti. Óskað er eftir því að samráðshópurinn meti hvort hann geti tekið að sér það hlutverk sem ætlað var starfshópi, í samvinnu við starfsmann samráðshópsins.
Eftirfarandi skjöl voru lögð fram:

Tillaga samráðshóps um málefni fatlaðs fólks.pdf, ódagsett

Bæjarráð vísar tillögu aftur til samráðshóps - framtíðarstefna í atvinnumálum.pdf, dags. 18. júní 2026

Samráðshópur er reiðubúinn til þess að taka að sér hlutverk starfshóps á þeim forsendum að veitt verði fjármagn til fjölgunar funda samráðshópsins á næsta ári vegna vinnunnar. Samráðshópur óskar þá eftir því að gert verði ráð fyrir að minnsta kosti fjórum viðbótarfundum vegna verkefnisins á árinu 2027.

4.Verkefnið Allir með - Hvatning til sveitarfélaga á sambandssvæði HSK

2609072

Sveitarfélaginu barst bréf frá Héraðssambandinu Skarphéðinn dags. 12. maí 2026. Í bréfinu eru allar sveitarstjórnir og íþróttafélög á sambandssvæði HSK hvött til að taka virkan þátt í verkefninu Allir með, samstarfsverkefni íþróttahreyfingarinnar (ÍSI, UMFÍ og ÍF). Á fundi bæjarráðs dags. 18. júní var erindið kynnt og vísaði bæjarráð þeim hluta erindis stjórnar HSK er varðar verkefnið "Allir með" til umræðu og skipulags á þátttöku af hálfu Hveragerðisbæjar til samráðshóps um málefni fatlaðs fólks og menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar.



Markmið verkefnisins Allir með er:

- Að fjölga tækifærum fatlaðra til íþróttaiðkunar í samstarfi við íþróttahreyfinguna.

- Að öll börn og ungmenni eigi möguleika á því að taka þátt í íþróttum í sínu nærumhverfi í samræmi við óskir sínar og þarfir með viðeigandi aðlögun.

- Að allir skulu eiga kost á að öðlast reynslu af þátttöku í íþróttum og verða sér úti um leikni til að þróast í öryggi og góðum félagsskap.

- Á heimasíðu verkefnisins: https://allirmed.com/ er hægt að lesa nánar um verkefnið og sækja um styrk vegna verkefna sem fela í sér inngildingu fatlaðra í íþróttastarf hjá íþróttafélögum.
Eftirfarandi skjal var lagt fram:

Bréf til sveitarfélaga eftir héraðsþing HSK 2026.pdf, dags. 12.05.2026

Samráðshópur fagnar verkefninu "Allir með" og hvetur íþróttafélög starfandi innan Hveragerðisbæjar til þess að taka þátt í verkefninu og nýta sér þann möguleika um að sækja styrk í Hvatasjóði verkefnisins. Samráðshópur felur starfsmanni samráðshópsins að vinna áfram tillögur um mögulega aðkomu sveitarfélagsins að skipulagi þátttöku í verkefninu. Við þá vinnu er lagt til að starfsmaður samráðshópsins leitist eftir samvinnu við starfsmann menningar-, atvinnu- og markaðsnefnda. Að þeirri vinnu lokinni mun samráðshópur fjalla um málið að nýju.
Fundargerðin upp lesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 19:00.

Getum við bætt efni síðunnar?