Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
Dagskrá
Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir varamaður Okkar Hveragerði mætti í stað aðalmanns, Hörpu Björnsdóttir.
1.Farið yfir málefni funda samráðshóps liðinn vetur 2025-2026
2604131
Farið var yfir málefni funda Samráðshóps síðastliðinn vetur.
Með vísan til bókunar á fundi samráðshópsins þann 25. mars síðastliðinn leggur samráðshópurinn til við bæjarstjórn að skipaður verði starfshópur til mótunar skýrrar og heildstæðrar framtíðarstefnu í sveitarfélaginu í atvinnumálum fatlaðs fólks og einstaklinga með skerta starfsgetu. Brýnt er að unnið verði markvisst að því að styrkja atvinnuþátttöku fatlaðs fólks og einstaklinga með skerta starfsgetu í nærsamfélaginu, meðal annars með fjölgun hlutastarfa í sveitarfélaginu.

2.Fundardagatal samráðshóps fyrir starfsárið 2026-2027
2604132
Samráðshópur skoðaði í sameiningu hvernig mögulegt væri að raða niður fundum í fundardagatal fyrir starfsárið 2026-2027. Samráðshópur telur gagnlegt að eftirstandandi tveimur fundum árið 2026 verði stillt upp í september og október svo hægt verði að fjalla þar um tillögur samráðshóps vegna fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2027.
3.Óskir og tillögur um málefni til umfjöllunar næsta starfsár.
2604133
Í ljósi þess að yfirstandandi fundur samráðshópsins er síðasti fundurinn á kjörtímabilinu vill samráðshópurinn þakka fyrir tækifærið til aðkomu að málefnum bæjarins á þessum vettvangi. Þessi vettvangur hefur verið mikilvægur til hagsmunagæslu fyrir málefni fatlaðs fólks í bæjarfélaginu og árangursríkur í framþróun á því sviði. Fulltrúar samráðshópsins hvetja eindregið til þess að þessi vettvangur samráðs og samvinnu fulltrúa fatlaðs fólks verði nýttur með virkum hætti á komandi árum.
Samráðshópurinn vill koma sérstökum þökkum á framfæri til starfsmanns nefndarinnar, Nínu Kjartansdóttur, ráðgjafarþroskaþjálfa velferðarsviðs Hveragerðisbæjar. Jafnframt vill samráðshópurinn þakka öðru starfsfólki og gestum sem komið hafa að fundum hópsins og góðar undirtektir Hveragerðisbæjar með þeim áherslumálum sem samráðshópurinn hefur sett á dagskrá.

Fundi slitið - kl. 19:00.
Getum við bætt efni síðunnar?