Fara í efni

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

13. fundur 25. mars 2026 kl. 17:00 - 20:00 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Valkyrja Sigrún Sigurðardóttir formaður
  • Brynja Sif Sigurjónsdóttir aðalmaður
  • Sigurður Bjarni Jónsson aðalmaður
  • Sveinn Friðriksson aðalmaður
  • Margrét Svanborg Árnadóttir aðalmaður
  • Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir varamaður
    Aðalmaður: Harpa Björnsdóttir
Starfsmenn
  • Nína Kjartansdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði: Nína Kjartansdóttir Ráðgjafaþroskaþjálfi
Dagskrá

1.Kynning frá Vinnumálastofnun vegna atvinnumála fólks með skerta starfsgetu

2603105

Eftirfarandi skjöl voru lögð fram:



Glærukynning Vinnumálastofnunar um Unndís, ódagsett



Handbók á vegum Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, Vinnumálastofnunar, Fjölmenntar og Símenntunarmiðstöðvar: Færni á vinnumarkaði, ódagsett



Tilgangur dagskrárliðarins er að fá kynningu á þjónustu Vinnumálastofnunar á Suðurlandi fyrir fólk með skerta starfsgetu og eiga uppbyggilegt samtal um þau úrræði og tækifæri sem geta stutt við aukna atvinnuþátttöku fatlaðs fólks og einstaklinga með skerta starfsgetu í Hveragerði. Eftirtaldir gestir undir dagsskrárliðnum voru starfsmenn Vinnumálastofnunar á Suðurlandi, Guðlaug Margrét Dagbjartsdóttir, María Rún Þorsteinsdóttir og Kristín Arna Hauksdóttir.
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks í Hveragerði þakkar fulltrúum Vinnumálastofnunar á Suðurlandi, Guðlaugu Margréti Dagbjartsdóttur, Kristínu Örnu Hauksdóttur og Maríu Rún Þorsteinsdóttur, fyrir greinargóða og upplýsandi kynningu á þjónustu stofnunarinnar við fólk með skerta starfsgetu.

Í kynningunni var farið yfir helstu úrræði og þjónustuleiðir sem standa til boða, með áherslu á einstaklingsmiðaða ráðgjöf, atvinnuúrræði, virknisamninga, stuðning til þátttöku á almennum vinnumarkaði, breytingar á örorku- og endurhæfingarkerfi Tryggingastofnunnar ríkisins og Unndis samstarfsverkefni VMST og ÖBÍ.

Samráðshópurinn vill hvetja bæjarstjórn til að móta skýra og heildstæða framtíðarstefnu í sveitarfélaginu í atvinnumálum fatlaðs fólks og einstaklinga með skerta starfsgetu. Brýnt er að unnið verði markvisst að því að styrkja atvinnuþátttöku fatlaðs fólks og einstaklinga með skerta starfsgetu í nærsamfélaginu, meðal annars með fjölgun hlutastarfa í sveitarfélaginu.

Einnig leggur samráðshópurinn til að bæjarráð fái kynningu á Unndis verkefninu og að sveitarfélagið skrái laus störf á ráðningavef Vinnumálastofnunar.

2.Framlög til úrbóta á aðgengismálum

2602015

Eftirfarandi skjöl voru lögð fram:



Áminning frá Bergrisanum um framlög til úrbóta í aðgengismálum fatlaðs fólks, dags. 3. febrúar 2026.



Bréf um framlög til úrbóta á aðgengismálum fatlaðs fólks 2025-2026, dags. 9. apríl 2025.



Tilgangur dagskrárliðarins er að fjalla um erindi frá Bergrisanum bs., dags. 3. febrúar 2026, þar sem vakin er athygli á bréfi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, dags. 9. apríl 2025, um framlög ríkisins til úrbóta í aðgengismálum fatlaðs fólks. Í erindinu kemur fram að Hveragerðisbær hafi sótt um styrk til Jöfnunarsjóðs til að fjármagna verkefni sem miða að því að bæta aðgengi fatlaðs fólks á árinu 2025, en að samþykkt framlag sjóðsins hafi ekki verið fullnýtt. Bæjarráð hefur óskað eftir ábendingum frá íbúum um verkefni sem geta stuðlað að bættum aðgengismálum í sveitarfélaginu.



Til að fá gagnsæja og upplýsandi kynningu á núverandi stöðu og áform um úrbætur í aðgengismálum Hvergerðisbæjar verða eftirtaldir starfsmenn Hveragerðisbæjar gestir undir dagsskrárliðnum, Höskuldur Þorbjarnarson umhverfisfulltrúi og aðgengisfulltrúi, Jón Friðrik Matthíasson byggingafulltrúi og Runólfur Þór Jónsson fasteignafulltrúi.



Röðull Reyr Kárason stafrænn leiðtogi Hveragerðisbæjar fékk einnig boð á fundinn en hafði ekki tök á því að mæta.
Fjallað var um málefnið og vill Samráðshópurinn þakka Höskuldi Þorbjarnarsyni, umhverfis- og aðgengisfulltrúa, og Runólfi Þóri Jónssyni, fasteignafulltrúa, fyrir gagnlegt og upplýsandi samtal um stöðu aðgengismála innan sveitarfélagsins, nýtingu styrkja og þau verkefni sem þegar hafa verið unnin eða eru fyrirhuguð.

Samráðshópurinn fagnar því að bæjarráð hafi óskað eftir ábendingum frá íbúum og telur mikilvægt að tryggja virkt samráð við fatlað fólk og hagsmunaaðila við forgangsröðun verkefna, í samræmi við meginreglur um notendasamráð.

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks í Hveragerði vill hvetja bæjarstjórn til að móta skýra og samræmda framtíðarstefnu í aðgengismálum innan sveitarfélagsins og leggur áherslu á að markviss stefnumótun sé nauðsynleg til að tryggja jafnt aðgengi allra íbúa að umhverfi, þjónustu og upplýsingum, í samræmi við meginreglur um algilda hönnun og réttindi fatlaðs fólks.

Samráðshópur leggur til við bæjarstjórn að farið verði í eftirtalin verkefni og sótt verði um úthlutun frá Jöfnunarsjóði vegna framlaga ríksins til úrbóta í aðgengismálum fatlaðs fólks til Bergrisans vegna þeirra:

Að farið verði í átak í að taka niður gangstéttarkanta í eldri hverfum til að bæta aðgengi.
Að útbúinn verði rampur við færanlega skólastofu við Grunnskólann

Samráðshópur leggur einnig til við bæjarstjórn að sótt verði um slíka úthlutun vegna uppbyggingar leiksvæðis með aðgengi sem er í undirbúningi að Heiðmörk 66.

Samráðshópur felur starfsmanni nefndarinnar að útbúa í samvinnu með aðgengisfulltrúa og fasteignafulltrúa minnisblað vegna framangreindra verkefna og kostnaðar við þau til að leggja fyrir bæjarstjórn við fyrirtöku málsins.

Jafnframt hvetur samráðshópur til þess að hafin verði heildarhönnun á sundlaugarsvæðinu með það í huga að hægt sé að fara af stað í skrefum í að bæta aðgengismál á sundlaugarsvæðinu og tryggt verði að á nýju gervigrasvallarsvæði uppi í dal verði aðgengi með fullnægjandi hætti.

Lagt er til við bæjarstjórn að samþykkt verði að fela aðgengisfulltrúa að framkvæma úttekt á aðgengismálum innan bæjarfélagsins í samráði við hagsmunaaðila.

Samráðshópur felur starfsmanni samráðshóps að útbúa drög að minnisblað með umsögn og tillögum til bæjarstjórnar varðandi stafræn aðgengismál Hveragerðisbæjar.

3.Stofnframlag vegna kaupa á þremur íbúðum í Hveragerði

2603052

Eftirfarandi skjal var lagt fram:



Bréf frá Brynju leigufélagi ses, dags. 6. mars 2026.



Pétur G. Markan, bæjarstjóri, hefur óskað eftir að Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks taki til umræðu erindi er varðar umsókn Brynju leigufélags um stofnframlög Hveragerðisbæjar fyrir árið 2026. Jafnframt er óskað eftir að samráðshópurinn veiti álit á því hvernig fyrirhugað íbúðaform og uppbygging húsnæðis geti best mætt þörfum þeirra einstaklinga sem eru með örorkumat og í þörf fyrir leiguhúsnæði, þar á meðal þeirra sem eru á biðlistum eftir húsnæði eða búa enn í foreldrahúsum á fullorðinsaldri.
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks í Hveragerði tók erindið til umræðu og fagnar þessu mikilvæga skrefi í átt að frekari uppbygginu búsetukosta sem svara þörfum fatlaðs fólks í Hveragerði.

Samráðshópurinn leggur áherslu á mikilvægi þess að uppbygging leiguhúsnæðis taki mið af fjölbreyttum og einstaklingsbundnum þörfum fatlaðs fólks, þar á meðal þeirra sem eru á biðlistum eftir húsnæði eða búa enn í foreldrahúsum á fullorðinsaldri. Tryggja þarf að húsnæðisúrræði styðji við sjálfstætt líf, félagslega þátttöku og öryggi íbúa.

Miðað við upplýsingar um biðlistastöðu félagslegs leiguhúsnæðis í Hveragerði liggur fyrir að þörf er á húsnæði líkt og því sem Brynja leigufélag hefur hug á að bjóða upp á. Samráðshópurinn felur starfsmanni samráðshópsins að gera minnisblað með umsögn og áliti vegna málsins og skila því til bæjarstjóra.

Fundi slitið - kl. 20:00.

Getum við bætt efni síðunnar?