Fara í efni

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

12. fundur 18. febrúar 2026 kl. 18:00 - 19:57 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Valkyrja Sigrún Sigurðardóttir formaður
  • Harpa Björnsdóttir varaformaður
  • Sigurður Bjarni Jónsson aðalmaður
  • Sveinn Friðriksson aðalmaður
  • Margrét Svanborg Árnadóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Nína Kjartansdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði: Nína Kjartansdóttir Ráðgjafaþroskaþjálfi
Dagskrá
Brynja Sif Sigurjónsdóttir, aðalmaður í samráðshópi um málefni fatlaðs fólks forfallaðist á fundinn. Varamaður mætti ekki í hennar stað.

Formaður samráðshóps leitaði eftir athugasemdum um fundarboð. Sigurður Bjarni Jónsson gerði athugasemd við að dagsetning fundarboðs í fundargátt var röng. Fundarboð var hins vegar sent til fundarmanna með tölvupósti þar sem rétt dagsetning var tilgreind og fundurinn fór því fram samkvæmt fundarboði sem sent var með tölvupósti.

Sameiginlegur fundur fulltrúa Samráðshóps um málefni fatlaðs fólks í Hveragerði og fulltrúa Velferðar- og fræðslunefndar Hveragerðisbæjar, skv. 6. gr. erindisbréfs samráðshóps, en þar segir m.a.: "Gert er ráð fyrir að velferðar- og fræðslunefnd eigi einn fund með samráðshópnum árlega. Þá skal samráðshópurinn leggja fram skýrslu um starfsemi sína árlega og kynna fyrir bæjarráði."

Fulltrúar samráðshóps um málefni fatlaðs fólks þakka kærlega fyrir sameiginlegan fund með fulltrúum velferðar- og fræðslunefndar, Söndru Sigurðardóttur, Sæbjörgu Láru Másdóttur, Margréti Hörpu Garðarsdóttur, Kristni Ólafssyni, Viðari Pétri Styrkárssyni og starfsmanni nefndarinnar Ernu Harðar Solveigardóttur.

1.Kynning á skýrslu um starfsemi Samráðshóps um málefni fatlaðs fólks í Hveragerði

2602052

Valkyrja Sigrún Sigurðardóttir, formaður samráðshóps um málefni fatlaðs fólks í Hveragerði, sagði frá starfsemi samráðshópsins frá því að samráðshópurinn tók til starfa haustið 2024.
Fulltrúar fundarins þakka Valkyrju Sigrúnu Sigurðardóttur, formanni samráðshóps, kærlega fyrir góða kynningu á starfsemi samráðshópsins og upplýsingum um þau mikilvægu málefni sem samráðshópurinn hefur tekið fyrir á fundum sínum frá því að hann tók til starfa haustið 2024.

2.Mat á stoð og stuðningsþjónstu

2505022

Elfa Birkisdóttir, sviðsstjóri mennta-, menningar- og lýðheilsusviðs Hveragerðis kynnti niðurstöður úttektar á stoð- og stuðningsþjónustu í Hveragerði sem var framkvæmd árið 2025.
Í kynningunni var farið yfir markmið og umfang úttektarinnar, helstu niðurstöður, greint frá styrkleika- og umbótatækifærum sem og tillögum að næstu skrefum. Sérstök áhersla var lögð á samræmi þjónustunnar við lögbundnar skyldur sveitarfélagsins og gæði þjónustu.

Það er sameiginleg skoðun fulltrúa fundarins að mikilvægt var að framkvæma slíka úttekt sem gefur raunsæja sýn á núverandi stöðu sveitarfélagsins hvað varðar stoð- og stuðningsþjónustu stofnanna Hveragerðisbæjar. Fulltrúar samráðshóps leggja áherslu á að niðurstöður úttektarinnar verði nýttar markvisst til umbóta, með skýrum aðgerðaáætlunum, tímasettum markmiðum og reglulegri eftirfylgd. Samráðshópur bendir á mikilvægi þess að í kjölfarið verði hugað að samtali við hagaðila.

Fulltrúar fundarins þakka Elfu kærlega fyrir upplýsandi og gagnlega kynningu á úttekt stoð- og stuðningsþjónustu Hveragerðisbæjar.

Sandra Sigurðardóttir vék af fundinum klukkan 19:10.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 19:57.

Getum við bætt efni síðunnar?