Fara í efni

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

11. fundur 28. janúar 2026 kl. 17:00 - 19:15 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Valkyrja Sigrún Sigurðardóttir formaður
  • Harpa Björnsdóttir varaformaður
  • Brynja Sif Sigurjónsdóttir aðalmaður
  • Sigurður Bjarni Jónsson aðalmaður
  • Sveinn Friðriksson aðalmaður
Starfsmenn
  • Nína Kjartansdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði: Nína Kjartansdóttir Ráðgjafaþroskaþjálfi
Dagskrá
Margrét Svanborg Árnadóttir boðaði forföll. Ekki náðist að boða varamann í hennar stað.
Sandra Sigurðardóttir boðaði forföll á fundinn. Í hennar stað mætti Dagný Sif Sigurbjörsdóttir, fulltrúi bæjarstjórnar mætti í hennar stað.

1.Kynning - Byggðasamlagið Bergrisinn bs.

2511118

Tilgangur dagskrárliðarins er að Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks í Hveragerði fái gagnsæja og upplýsandi kynningu á byggðasamlaginu Bergrisinn bs. og að notendasamráð eigi sér stað um þjónustuúrræði á þjónustusvæðinu. Með það a leiðarljósi að efla sameiginlega sýn, miðla upplýsingum og skapa rými fyrir ábendingar og sjónarmið sem styðja áframhaldandi þróun og umbætur í málaflokki fatlaðs fólks í sveitarfélaginu.



Gestir undir dagsskrárliðnum eru Íris Ellertsdóttir, verkefnastjóri í málefnum fatlaðs fólks hjá Bergrisanum bs. og Jóhanna Margrét Einarsdóttir, ráðgjafarþroskaþjálfi í fagteymi Bergrisans bs. Þær munu halda kynningu um starfsemi Bergrisans bs. og veita svör við fyrirspurnum. Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir, fulltrúi Okkar Hveragerði í bæjarstjórn Hveragerðisbæjar mætti fyrir hönd Söndru Sigurðardóttur fulltrúa Hveragerðisbæjar í stjórn Bergrisans bs.
Íris og Jóhanna sögðu frá starfssemi og þjónustuúrræðum byggðarsamlagsins Bergrisans bs. Þær fjölluðu m.a. um stjórnskipurit þ.e. fagteymi, þjónusturáð og stjórn. Þær kynntu einnig þjónustueiningar á þjónustuvæðinu, rekstur byggðarsamlagsins, framlög Jöfnunrsjóðs og SIS mat.

Samráðshópur þakkar Írisi, Jóhönnu og Dagnýju kærlega fyrir komuna, upplýsandi kynningu og mikilvægt samtal. Samráðshópur óskar eftir áframhaldandi góðu samtali og samráði varðandi uppbyggingu á sértækum þjónustuúrræðum fyrir fatlað fólk í Hveragerði.

Samráðshópur leggur einnig til við bæjarstjórn að til að mæta þjónustuþörf öryrkja og fatlaðs fólks í bæjarfélaginu verði gert ráð fyrir fjölgun þjónustuúrræða sem flokkast undir lög um félagsþjónustu sveitarfélaga í fjárhagsáætlunargerð næstu ára. Má þá benda á til dæmis þjónustuúrræði fyrir einstaklinga sem hafa stuðningsþarfir en fá ekki að gangast undir SIS mat.

Samráðshópur vill einnig hvetja bæjarstjórn til að beita sér með virkum hætti á vettvangi Bergrisans bs. fyrir fjölgun sértækra þjónustuúrræða í Hveragerði.

2.Kynning á Reglum um ritun fundargerða og birtingu gagna með fundargerðum

2601098

Farið yfir reglur um ritun fundargerða og birtingu gagna með þeim, með það að markmiði að tryggja sameiginlegan skilning allra fulltrúa á gildandi verklagi.
Reglur lagðar fram til kynningar.

3.Breytingar í starfsáætlun Samráðshóps um málefni fatlaðs fólks í Hveragerði 2025-2026

2601096

Vegna þess að fundur Samráðshóps um málefni fatlaðs fólks í Hveragerði féll niður í nóvember 2025, af óviðráðanlegum ástæðum, mun formaður leggja fram tillögur um breytingar á starfsáætlun fyrir þá fundi sem eftir standa á tímabilinu 2025?2026 og óska eftir ábendingum og samþykki allra fulltrúa.
Fulltrúar fundarins samþykktu breytta starfsáætlun.

Fundi slitið - kl. 19:15.

Getum við bætt efni síðunnar?