Öldungaráð
Dagskrá
1.Þjónustukjarni 60
2604093
Uppbygging þjónustu- og íbúðakjarna fyrir eldra fólk tekin til umræðu, með hliðsjón af framtíðarþörfum og þróun aldurssamsetningu íbúa sveitarfélagsins.
Samkvæmt fundarboði var fyrirhugað að skipulagsfulltrúi kæmi inn á fundinn til þátttöku í umræðu undir þessum lið en hann forfallaðist.

Daði Ingimundarson, fulltrúi öldungaráðs, tók að sér að kynna skýrslu verkefnahóps fyrir ráðinu.
Ráðið leggur áherslu á mikilvægi þess að unnið verði áfram að uppbyggingu þjónustukjarna og íbúða fyrir eldra fólk í Hveragerði, með hliðsjón af framtíðarþörfum íbúa sveitarfélagsins.
Jafnframt telur ráðið mikilvægt að skoðaðar verði nánar mismunandi útfærslur verkefnisins, meðal annars hvað varðar staðsetningu, fyrirkomulag og samþættingu búsetu, félagsstarfs og þjónustu.
Öldungaráð óskar eftir því að bæjarráð skipi áframhaldandi starfshóp sem falið er að taka skýrslu starfshóps um þjónustukjarna og íbúðir 60 ára og eldri til endurskoðunar, með það að markmiði að leggja fram tillögur um mögulega útfærslu verkefnisins.

2.Íbúaþing 60
2410060
Lagt fram til umræðu möguleika á að halda íbúaþing fyrir íbúa Hveragerðisbæjar 60 ára og eldri á komandi vetri.
Til umfjöllunar er hvort stefnt skuli að því að halda slíkt þing, hver markmið þess og áherslur yrðu, ásamt mögulegum undirbúningi og fyrirkomulagi.
Málið lagt fram til umræðu og afstöðu ráðsins.

Öldungaráð leggur til að haldið verði annað íbúaþing fyrir íbúa Hveragerðisbæjar 60 ára og eldri á komandi ári.
Ráðið telur mikilvægt að skapa áfram vettvang fyrir samtal og samráð við eldra fólk um málefni sem það varðar, meðal annars þjónustu, búsetu, félagslega þátttöku og framtíðarþróun málefna eldra fólks í sveitarfélaginu.
Öldungaráð leggur til við bæjarráð að haldið verði íbúaþing fyrir 60 ára og eldri árið 2027 og að öldungaráði verði falið umsjón og undirbúningur þess.

Fundargerðin upp lesin og samþykkt.
Fundi slitið - kl. 15:00.
Getum við bætt efni síðunnar?
Hann leitar eftir athugasemdum við fundarboð en engar koma fram.
Berglind R. Ragnarsdóttir, fulltrúi heilsugæslu boðaði forföll.