Fara í efni

Menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd

22. fundur 24. september 2026 kl. 17:00 - 18:42 á Listasafni Árnesinga
Nefndarmenn
  • Sigmar Karlsson formaður
  • Kristín Lilja Thorlacius varaformaður
  • Íris Brá Svavarsdóttir aðalmaður
  • Thelma Rún Runólfsdóttir aðalmaður
  • Guðjón Óskar Kristjánsson varamaður
Starfsmenn
  • Elfa Birkisdóttir sviðstjóri mennta, - menningar- og lýðheilsusviðs
Fundargerð ritaði: Elfa Birkisdóttir Sviðstjóri mennta-menningar og lýðheilsusviðs
Dagskrá
Formaður nefndarinnar, Sigmar Karlson, setur fundinn og stjórnar honum. Hann leitar eftir athugasemdum við fundarboð en engar koma fram.
Kristín Scheving safnstjóri Listasafns Árnesinga hitti nefndina fyrir fund og kynnti starf listasafnsins. Nefndin þakkar Kristínu fyrir góða kynningu á starfsemi Listasafns Árnesinga.

1.Tónlistarhátíðin Hverafugl

2509009

Lögð er fram greinargerð um tónlistarhátíðina Hverafugl sem fram fór sumarið 2026. Halldór Smárason umsjónaraðili tónlistarhátíðarinnar Hverafugls kynnir afrakstur og framtíðarsýn verkefnisins.
Menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd þakkar Halldóri Smárasyni, umsjónaraðila verkefnisins Hverafugls, fyrir kynninguna og fagnar jafnframt þessu góða framtaki, sem er frábær viðbót við menningarlíf bæjarins. Nefndin leiðbeinir umsjónaraðila verkefnisins að ef óskað er eftir áfram haldnandi fjárstuðningi eða öðrum stuðningi í verkefnið að senda erindi til bæjarráðs fyrir komandi fjárhagsáætlunarvinnu.
Fylgiskjöl:

2.Starfsáætlun MAM nefndar 2026-2027

2609145

Formaður MAM nefndar leggur fram starfsáætlun nefndarinnar fyrir starfsárið 2026-2027.
Starfsáætlun Menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar er lögð fram til kynningar með fyrirvara um breytingar

3.Íþróttavika Evrópu 2026

2606134

Elfa Birkisdóttir, sviðstjóri mennta-, menningar- og lýðheilsusviðs kynnir dagskrá íþróttaviku Evrópu 2026 í fjarveru framkvæmdastjóra íþróttafélagsins Hamars.
Menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd þakkar Elfu Birkisdóttur, sviðstjóra, fyrir kynningu á metnaðarfullri og fjölbreyttri dagskrá Íþróttaviku Evrópu árið 2026. Nefndin fagnar framtakinu, samstarfinu við íþróttafélagið Hamar og því að verkefnið hafi hlotið styrk á þessu ári. Lagt er til að gert sé mat að verkefni loknu til að geta haft til hliðsjónar við undirbúning í framtíðinni. Matið sé unnið í samstarfi íþróttafélagsins og Hveragerðisbæjar og mun berast nefndinni til umfjöllunar í kjölfarið.

4.Verkefnið Allir með - Hvatning til sveitarfélaga á sambandssvæði HSK

2609072

Verkefnið Allir með - hvatning til sveitarfélaga kynnt. Vefslóð á verkefnið: https://allirmed.com/
Bréf HSK til sveitarfélaga er lagt fram til kynningar. Menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd hvetur íþróttafélögin í Hveragerði til að leggja sitt af mörkum til þess að fjölga tækifærum fyrir fötluð börn innan íþróttahreyfingarinnar til dæmis með því að skoða samstarf við nágrannasveitafélög. Þá leggur nefndin til að Hveragerðisbær hugi að því að fjölga tækifærum fyrir fötluð börn við vinnslu þjónustusamninga vegna íþrótta- og tómstundastarfs.

5.Opnunartími sundlaugar

2609118

Elfa Birkisdóttir sviðstjóri mennta-, menningar- og lýðheilsusviðs kynnir minnisblað forstöðumanns sundlaugarinnar í Laugaskarði vegna opnunartíma sundlaugarinnar í Laugaskarði. Málið var tekið fyrir í bæjarráði þann 17. september með eftirfarandi bókun: Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu forstöðumanns Sundlaugarinnar í Laugaskarði sem fram kemur í framlögðu minnisblaði um breyttan opnunartíma sundlaugarinnar. Jafnframt verði opnunartími sundlaugarinnar tekinn til faglegar umfjöllunar í viðeigandi nefndum og ráðum sveitarfélagsins. Forstöðumanni sundlaugarinnar verði falið að vinna málið áfram með hliðsjón af áætlanagerð fyrir árið 2027. Í þeirri vinnu leggur bæjarráð til að skoðað verði hvort forsendur séu til staðar að endurskoða opnunartímann fyrir næsta ár.
Menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd tekur undir afgreiðslu bæjarráðs og leggur jafnframt til að málið fái frekari umfjöllun í ungmennaráði. Þá leggur nefndin til að forstöðumaður sundlaugarinnar leiti leiða til að koma til móts við sjónarmið ungmenna að því marki sem þau rúmast innan fjárheimilda sundlaugarinnar og hafi slík sjónarmið í huga við áframhaldandi fjárhagsáætlanagerð. Þá telur nefndin mikilvægt að forstöðumaður hafi eftir atvikum frumkvæði af því að leggja til við nefndina breytingar á opnunartíma ef honum þykir tilefni til, með það að markmiði að þjónusta sundlaugar komi til móts við sem flesta hópa samfélagsins.

6.Vinnuhópur Öruggara Suðurlands

2608113

Skýrsla sprettshóps vegna úti- og bæjarhátíða á Suðurlandi lögð fram til kynningar.
Menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd tekur undir bókun skólanefndar um skýrslu vinnuhóps Öruggara Suðurlands og mikilvægi þess að efla forvarnir og stuðla að öruggari bæjarhátíðum. Nefndin tekur undir að við skipulag bæjarhátíða á vegum Hveragerðisbæjar verði horft til þeirra verkferla og tillagna sem fram koma í skýrslu vinnuhópsins og að unnið verði markvisst að innleiðingu þeirra. Nefndin lýsir jafnframt yfir vilja til að koma að áframhaldandi vinnu og samstarfi um þetta mikilvæga forvarnarstarf. Nefndin leggur til að starfsmaður menninga-, atvinnu og markaðsnefndar vinni almenna verkferla vegna bæjarhátíð og kynni nefndinni og bæjarráði. Leitast verði eftir samráði ungmennaráðs og skólanefndar sem nú þegar hafa fjallað um skýrslu öruggara Suðurlands.

7.Uppbyggingarsjóður Suðurlands

2609148

Umsóknarfrestur um styrki í uppbyggingarsjóð Suðurlands og upplýsingar um sjóðinn lagðar fram til kynningar. Sjá nánar um verkefnið hér: https://www.sass.is/um-sass/soknaraaetlun-sudurlands/uppbyggingarsjodur-sudurlands



Hvatningarverðlaun á sviði menningarmála, sjá nánar um verkefnið hér: https://www.sass.is/hvatningarverdlaun-a-svidi-menningarmala
Menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd hvetur áhugasama aðila til að sækja um styrk í Uppbyggingarsjóð Suðurlands fyrir 21. október næstkomandi. Nefndin leggur áherslu á að fyrir næstu úthlutun sjóðsins verði hugað að kynningu fyrir íbúa og atvinnurekendur í sveitarfélaginu.
Nefndin vill jafnframt tilnefna verkefnið Hverafugl til Hvatningarverðlauna á sviði menningarmála og felur sviðsstjóra mennta-, menningar- og lýðheilsusviðs að skila inn tilnefningu fyrir hönd nefndarinnar fyrir 7. október næstkomandi.

8.Umsókn í Afreks- og styrktarsjóð

2608019

Sótt er um styrk í Afrekst- og styrktarsjóð fyrir Önnu Guðrúnu Halldórsdóttur afreksmanns í ólympískum lyftingum.
Nefndin samþykkir að veita Önnu Guðrúnu Halldórsdóttur styrk að upphæð 100.000 kr. skv. vinnureglum Afreks- og styrktarsjóðs. A-styrkur er fyrir umsækjendur sem ekki einungis eru í fremstu röð í sinni grein hér á landi heldur hafa einnig staðið sig vel á ýmsum alþjóðlegum mótum ss. Ólympíuleikum, heimsmeistaramótum eða norðurlandamótum.

9.Umsókn í Afreks- og styrktarsjóð

2609045

Sótt er um styrk í Afrekst- og styrktarsjóð fyrir Júlíu Rós Birgisdóttur, íþróttamanni sem æfir listskauta.
Íþróttamaður uppfyllir ekki skilyrði reglna til að hljóta styrk. Miðað við fyrirliggjandi gögn getur nefndin því miður ekki orðið við beiðni um styrk í Afreks- og styrktarsjóð Hveragerðis og bendir umsækjanda á frístundastyrk sveitarfélagsins.

10.Umsókn í Afreks- og styrktarsjóð

2609033

Sótt er um styrk í Afrekst- og styrktarsjóð fyrir Eric Mána Guðmundsson íslandsmeistara í motorcross.
Nefndin samþykkir að veita Eric Mána Guðmundssyni styrk að upphæð 100.000 kr. skv. vinnureglum Afreks- og styrktarsjóðs. A-styrkur er fyrir umsækjendur sem ekki einungis eru í fremstu röð í sinni grein hér á landi heldur hafa einnig staðið sig vel á ýmsum alþjóðlegum mótum ss. Ólympíuleikum, heimsmeistaramótum eða norðurlandamótum.

11.Umsókn í Afreks- og styrktarsjóð

2606130

Sótt er um styrk í Afrekst- og styrktarsjóð fyrir Lúkas Aron Stefánsson landsliðsmanns í U20 ára liði í körfubolta.
Nefndin samþykkir að veita Lúkasi Aron Stefánssyni styrk að upphæð 100.000 kr. skv. vinnureglum Afreks- og styrktarsjóðs. A-styrkur er fyrir umsækjendur sem ekki einungis eru í fremstu röð í sinni grein hér á landi heldur hafa einnig staðið sig vel á ýmsum alþjóðlegum mótum ss. Ólympíuleikum, heimsmeistaramótum eða norðurlandamótum.

12.Umsókn í Afreks- og styrktarsjóð

2605077

Sótt er um styrk í Afrekst- og styrktarsjóð fyrir Friðný Fjólu Jónsdóttur vegna þátttöku á heimsmeistaramóti í ólympískum lyftingum.
Óskað hefur verið eftir frekari gögnum með umsókn. Afgreiðslu frestað fram á næsta fund nefndarinnar.

13.Umsókn í Afreks- og styrktarsjóð

2605058

Sótt er um styrk í Afrekst- og styrktarsjóð fyrir blaklið meistaraflokks Hamars.
Nefndin samþykkir að veita Blakliði Hamars A-styrk að upphæð 100.000 kr. skv. vinnureglum Afreks- og styrktarsjóðs.
Fundargerðin upplesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 18:42.

Getum við bætt efni síðunnar?