Fara í efni

Menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd

21. fundur 16. júní 2026 kl. 17:00 - 18:03 í fundarherbergi Fljótsmörk 2
Nefndarmenn
  • Sigmar Karlsson formaður
  • Kristín Lilja Thorlacius varaformaður
  • Íris Brá Svavarsdóttir aðalmaður
  • Jónas Guðnason aðalmaður
  • Einar Alexander Haraldsson varamaður
Starfsmenn
  • Sigríður Hjálmarsdóttir Menningar, - atvinnu- og markaðsfulltrúi
Fundargerð ritaði: Sigríður Hjálmarsdóttir menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúi
Dagskrá
Formaður menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar, Sigmar Karlsson, setti fund og stjórnaði. Leitaði hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.

1.Erindisbréf menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar

2606083

Erindisbréf menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar

2.Starfsáætlun

2606084

Menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd setur sér starfsáætlun að hausti sem gildir fram á vor.
Nefndin samþykkir að fela formanni og starfsmanni nefndarinnar að leggja fram starfsáætlun fyrir veturinn 2026-2027 á næsta fundi.

3.Afmæli Hveragerðis 2026

2412055

Afmælisdagur Hveragerðisbæjar er 29. apríl og er þar miðað við fyrsta fund hreppsnefndar bæjarins árið 1946. 80 ára afmæli bæjarins er fagnað allt þetta ár með ýmsum hætti.
Menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúi fer yfir dagskrá afmælisársins og hvað er framundan í hátíðarhöldunum.

4.17. júní 2026

2605104

Rætt um dagskrá þjóðhátíðardagsins í Hveragerði og einstaka liði dagskrárinnar.
Nefndin fagnar því uppbroti sem gert er á dagskrá 17. júní í tilefni af afmæli bæjarins. Einnig kemur nefndin sér saman um hver hlýtur menningarverðlaun Hveragerðisbæjar árið 2026.

5.Blómstrandi dagar 2026

2605105

Undirbúningur er í fullum gangi fyrir bæjarhátíð Hveragerðisbæjar, Blómstrandi daga. Hátíðin verður að mestu með hefðbundnu sniði en vegna 80 ára afmælis bæjarins verður hún með veglegri hætti en síðustu ár.
Lagt fram til kynningar

6.Blómstrandi ruslatunnur

2606106

Erindi barst frá bæjarbúa sem óskar eftir að fá að mála blóm á nokkrar af grænu ruslafötunum í bænum, án endurgjalds.
Nefndin tekur vel í erindið og leggur til að menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúi kanni vettvang til samstarfs.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 18:03.

Getum við bætt efni síðunnar?