Menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd
Dagskrá
Formaður menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar, Marta Rut Ólafsdóttir, setti fund og stjórnaði. Leitaði hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.
Pétur G. Markan bæjarstjóri og Steinunn Erla Kolbeinsdóttir bæjarritari koma inn á fundinn undir þessum lið.
1.Bílastæði við Árhólma
2501115
Nú eru liðnir um átta mánuðir frá því skipt var um umsjónaraðila með innheimtu bílastæðagjalda á Árhólmasvæðinu uppi í Dal. Á sama tíma var gjaldskráin uppfærð. Nefndin fer yfir breytingarnar. Bæjarstjóri og bæjarritari komu inn á fundinn og kynntu frekari áætlanir varðandi bílastæðamálin uppi í Dal.
Lagt fram til kynningar.
2.Fjölgreinaverkefni Hamars 2026
2604139
Íþróttafélagið Hamar óskar eftir styrk vegna fjölgreinaverkefnis fyrir árið 2026. Fjölgreinastyrkurinn hefur verið greiddur síðan 2022 og óskar félagið eftir greiðslu vegna verkefnisins fyrir árið 2026 að fjárhæð kr. 3.193.000-
Nefndin leggur til að bæjarstjórn verði við beiðni Hamars.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.
Fundi slitið - kl. 17:58.
Getum við bætt efni síðunnar?