Fara í efni

Menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd

19. fundur 14. apríl 2026 kl. 17:00 - 17:43 í fundarherbergi Fljótsmörk 2
Nefndarmenn
  • Marta Rut Ólafsdóttir formaður
  • Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir varamaður
  • Sigurður Markússon varamaður
  • Atli Örn Egilsson aðalmaður
  • Ingibjörg Zoëga Björnsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Sigríður Hjálmarsdóttir Menningar, - atvinnu- og markaðsfulltrúi
Fundargerð ritaði: Sigríður Hjálmarsdóttir menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúi
Dagskrá
Formaður menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar, Marta Rut Ólafsdóttir, setti fund og stjórnaði. Leitaði hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.

1.Umsókn í Afreks- og styrktarsjóð

2603071

Sótt er um styrk í Afreks- og styrktarsjóð fyrir Ástu Petreu Hannesdóttur keppanda í mótókrossi.
Menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd ákveður að veita Ástu Petreu styrk að fjárhæð kr. 50.000,-. Fellur sú upphæð undir C-styrk sem samkvæmt vinnureglum sjóðsins er aðallega fyrir unga og efnilega íþróttamenn sem standa framarlega í sinni íþróttagrein, eru í úrvalshópum sinna sérsambanda eða í unglingalandsliðum.

2.Umsókn í Afreks- og styrktarsjóð

2602082

Sótt er um styrk í Afreks- og styrktarsjóð fyrir Dagbjart Finnsson kraftlyftingamann.
Nefndin samþykkir að veita Dagbjarti styrk að upphæð 75.000 kr., eða B-styrk skv. vinnureglum Afreks- og styrktarsjóðs. B-styrk fá umsækjendur sem eru í fremstu röð í sinni grein hér á landi.

3.Umsókn í Afreks- og styrktarsjóð

2601052

Guðbjörg Valdimarsdóttir sækir um styrk í Afreks- og styrktarsjóð vegna æfinga og keppni í „crossfit“.
Menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd sammælist um að veita Guðbjörgu B-styrk sem hljóðar upp á kr. 75.000,-. B-styrkur er samkvæmt vinnureglum sjóðsins hugsaður fyrir íþróttafólk sem er í fremstu röð í sinni grein hér á landi.

4.Reglur um íþróttamann Hveragerðis

2604054

Lögð er fyrir nefndina tillaga að uppfærðum reglum um kjör íþróttamanns Hveragerðis.
Nefndin leggur til að tillaga að uppfærðum reglum verði samþykkt og birt á vef bæjarins.

5.Styrktarsjóður EBÍ 2026

2601126

Hveragerðisbær fékk styrk úr Styrktarsjóði EBÍ til að útbúa og setja upp skilti til minningar um kanadíska hermenn sem dvöldu í Hveragerði árið 1940.
Lagt fram til kynningar

6.Afmæli Hveragerðis 2026

2412055

Menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúi fer yfir dagskrána framundan vegna afmælis Hveragerðisbæjar.
Lagt fram til kynningar

7.Barnamenningardagar á Suðurlandi

2601148

Menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúi kynnir fyrir nefndinni dagskrá Barnamenningardaga sem haldnir verða dagana 23.-26. apríl nk. í Hveragerði.
Nefndin fagnar framtakinu og hvetur börn og ungmenni bæjarins til þátttöku.

8.Skilti

2403774

Verið er að steypa undirstöður fyrir nýtt bæjarskilti í Kömbunum og vonast er til að það verði komið upp fyrir afmælisdag bæjarins í lok apríl.
Lagt fram til kynningar.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 17:43.

Getum við bætt efni síðunnar?