Menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd
Dagskrá
Formaður menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar, Marta Rut Ólafsdóttir, setti fund og stjórnaði. Leitaði hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.
1.Faghópur í ferðamálum á Suðurlandi
2602038
Faghópur í ferðamálum á Suðurlandi hittist annan hvern mánuð yfir vetrartímann til að ræða sameiginleg málefni varðandi skipulag og uppbyggingu áfangastaða, hagsmunagæslu og fleira í samstarfi við Markaðsstofu Suðurlands
Lagt fram til kynningar.
2.Hengill Ultra 2026
2511028
Lögð eru fram drög að þriggja ára samningi við Tailwind ehf. vegna utanvegahlaupsins Hengils Ultra. Í samningnum er gert ráð fyrir að Hveragerðisbær styrki hlaupið með þeim hætti að greiða Íþróttafélaginu Hamri, Hjálparsveit skáta í Hveragerði og Skátafélaginu Stróki í Hveragerði fyrir þjónustu þeirra við Hengil Ultra hlaupið.
Nefndin leggur til að bæjarstjórn samþykki samninginn.
3.Þjónustusamningur við Hestamannafélagið Ljúf
2602096
Lögð eru fram drög að þjónustusamningi við Hestamannafélagið Ljúf til næstu þriggja ára. Samningurinn er keimlíkur fyrri samningum milli aðila en lagt er til að nú bætist við sérstakur styrkur til viðhalds og uppbyggingar á reiðvegum.
Nefndin leggur til að samningurinn verði samþykktur með þeirri breytingu að sett verði inn ákvæði um tryggingar iðkenda, sambærilegt við þjónustusamninginn við íþróttafélagið Hamar. Lagt er til við bæjarstjórn að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun sem nemur upphæðinni vegna reiðvegastyrks.
4.Heiðursborgari Hveragerðisbæjar
2511015
Lögð eru fram drög að reglum um útnefningu heiðursborgara Hveragerðisbæjar.
Nefndin leggur til að bæjarstjórn samþykki reglurnar.
5.Breyting á sumaropnun Sundlaugarinnar Laugaskarði
2602111
Lagt er til að breyting verði gerð á sumaropnun Sundlaugarinnar Laugaskarði þannig að hún verði opnuð virka daga kl. 6.30 í stað kl. 6.45 líkt og verið hefur.
Nefndin leggur til að breytingin verði samþykkt.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.
Fundi slitið - kl. 17:47.
Getum við bætt efni síðunnar?