Menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd
Dagskrá
Formaður menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar, Marta Rut Ólafsdóttir, setti fund og stjórnaði. Leitaði hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.
1.Áskorun ungmennaráðs vegna opnunartíma í sundlauginni Laugaskarði
2511111
Á fundi sínum þann 25. nóvember sl. lagði ungmennaráð fram eftirfarandi bókun: „Ungmennaráð Hveragerðisbæjar skorar á bæjarstjórn að lengja opnunartíma sundlaugarinnar Laugarskarði yfir vetrartímann.Okkur langar til þess að kanna möguleika á því að lengja vetraropnunartíma sundlaugarinnar Laugaskarði til 21:00 eða 21:30. Við höldum að með þessu væri fólk líklegra til að fara í sund á kvöldin þar sem það hefur meiri tíma til þess að fara í sund eftir vinnu eða æfingar t.d. Orðið á götunni er þannig að fólk myndi vilja hafa opið lengur. Einnig eru margar aðrar sundlaugar með opið lengur en til 20:30 á kvöldin. Þetta gæti verið heilsueflandi og á bæði félagslegan, andlegan og líkamlegan hátt og einnig góður vettvangur til þess að koma og spjalla við fólk og mynda tengsl eða komast aðeins frá áreiti og slaka á. Ræddar voru hugmyndir af því að hafa meiri dagskrá og viðburði í sundlaugunni.“
Nefndin fagnar framtaki ungmennaráðs og leggur til við bæjarstjórn að opnunartíma sundlaugar verði breytt yfir vetrartímann með eftirfarandi hætti:
Mánudagar til föstudagar kl. 6:30 til 21:00
Laugardagar til sunnudagar kl. 9:00 til 17:30
Mánudagar til föstudagar kl. 6:30 til 21:00
Laugardagar til sunnudagar kl. 9:00 til 17:30
2.Skilti
2403774
Farið yfir stöðuna á uppsetningu skilta við bæjarmörk. Komnar eru tillögur að útliti og uppistöðum frá verkfræðistofunni Eflu og umsókn liggur inni hjá Vegagerðinni varðandi staðsetningar. Búið er að panta timbur frá Snæfoksstöðum í skiltið. Áhersla er lögð á að skiltið verði komið upp fyrir afmæli Hveragerðisbæjar þann 29. apríl nk.
Lagt fram til kynningar
3.Nýsköpunarstefna Suðurlands
2601149
Háskólafélag Suðurlands leiðir áhersluverkefnið „Nýsköpunarstefna fyrir Suðurland“. Verkefnið er styrkt er af Sóknaráætlun Suðurlands og felur í sér að Háskólafélagið leiði mótun heildstæðrar stefnu til að samræma og efla nýsköpunarstarf í landshlutanum. Óskað er eftir fulltrúa frá Hveragerðisbæ til þátttöku í gerð stefnunnar.
Nefndin leggur til að menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúi verði fulltrúi Hveragerðisbæjar í verkefninu.
4.Barnamenningarhátíð á Suðurlandi
2601148
Samtök sveitarfélaga á Suðurlandi leggur til að sveitarfélögin í landshlutanum haldi sameiginlega barnamenningarhátíð í kringum sumardaginn fyrsta í vor. Hugmyndin er að hvert sveitarfélag fyrir sig skipuleggi sína dagskrá en samnýting verði á hugmyndum og ákveðnum viðburðum milli sveitarfélaga. Þegar hefur verið haldinn einn fundur og er mikill áhugi meðal sveitarfélaga á Suðurlandi.
Nefndin fagnar framtakinu og þiggur boð um þátttöku í sameiginlegri barnamenningarhátíð á Suðurlandi. Menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúa er falið að vera fulltrúi Hveragerðisbæjar í sameiginlegri umræðu/vinnuhópi um framhaldið og fara með utanumhald um verkefnið. Nefndin óskar eftir þátttöku ungmennaráðs í undirbúningi barnamenningarhátíðar.
5.Tónlistarhátíðin Hverafugl
2509009
Kynnt eru ný drög að dagskrá tónlistarhátíðarinnar Hverafugls. Óskað er eftir endurgjaldslausum afnotum af Sundlauginni Laugaskarði og hátíðarsal Grunnskólans í Hveragerði til tónleikahalds. Einnig er lögð fram beiðni um að þeir sem eiga helgarpassa á hátíðina fái ókeypis aðgang að Sundlauginni Laugaskarði alla helgina. Þá er óskað eftir fjárstuðningi við hátíðina.
Nefndin leggur til að veittur verði ókeypis aðgangur í Sundlaugina Laugaskarði þegar tónleikar Strokkvartettsins Sigga verða haldnir í lauginni sunnudaginn 28. júní 2026 fyrir þá sem hafa helgarpassa á hátíðina. Einnig að veitt verði endurgjaldslaus afnot af hátíðarsal grunnskólans og sundlauginni í samráði við stjórnendur. Jafnframt leggur nefndin til að hátíðin verði styrkt um kr. 1.000.000.
6.Afmæli Hveragerðis 2026
2412055
Menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúi fer yfir drög að dagskrá ársins í tilefni af 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar. Einnig eru lögð fram drög að dagskrá afmælisdagsins, 29. apríl, en þá heimsækir forseti Íslands Hveragerði í tilefni dagsins.
Lagt fram til kynningar
7.Tillaga að húsverndarsjóði
2503046
Lögð var fram tillaga í bæjarráði þann 15. janúar sl. um húsverndarsjóð sem hefði að markmiði að varðveita og viðhalda mannvirkjum í Hveragerðisbæ sem hefðu menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi. Meirihluti bæjarráðs vísaði málinu til umsagnar í menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd.
Meirihluti nefndarinnar telur mikilvægt að styrkfjárhæðir séu tilgreindar í reglunum og séu þess eðlis að þær séu raunveruleg hvatning til umsækjenda til varðveislu og viðhalds mannvirkja. Einnig að tilgangur með sjóðnum og viðmið fyrir styrkúthlutanir séu með skýrari hætti.
Fulltrúi D-lista vísar í bókun frá síðasta bæjarráðsfundi, 15. janúar sl. „Fulltrúi D-listans telur að það sé ekki hlutverk sveitarfélaga að halda úti sérstökum húsverndunarsjóði og veita styrki til einkaaðila vegna fasteigna þeirra. Fyrir er sambærilegur sjóður á landsvísu, Húsafriðunarsjóður, sem Minjastofnun Íslands úthlutar úr að fenginni tillögu húsafriðunarnefndar. Samkvæmt reglum sjóðsins er hlutverk hans að stuðla að varðveislu og viðhaldi friðlýstra og friðaðra húsa og mannvirkja, auk annarra mannvirkja með menningarsögulegt, vísindalegt eða listrænt gildi.Drög að reglum um styrki til húsverndar í Hveragerði er í meginatriðum með sama markmið og sömu skilgreiningar og reglur Húsafriðunarsjóðs, það er því spurning um hvaða viðbótarhlutverki sveitarfélagið eigi að gegna í veitingu slíkra styrkja. Þá vantar í drögin atriði á borð við hámarksstyrk, skýran umsóknarfrest og fastar tímasetningar úthlutunar, líkt og kveðið er á um í reglum Húsafriðunarsjóðs.Það verður einnig að horfa til þess að byggð í Hveragerði hófst ekki fyrr en upp úr 1929, á meðan aldursfriðun í lögum nær einungis til húsa byggðra 1925 eða fyrr. Þannig eru í raun engin friðuð eða friðlýst hús í bænum, sem gerir það að verkum að reglurnar hafa takmarkaðan tilgang. Friðrik Sigurbjörnsson“

Fundargerð lesin upp og samþykkt.
Fundi slitið - kl. 18:53.
Getum við bætt efni síðunnar?