Fara í efni

Menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd

12. fundur 28. maí 2025 kl. 17:00 - 19:22 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Marta Rut Ólafsdóttir formaður
  • Einar Alexander Haraldsson aðalmaður
  • Atli Örn Egilsson aðalmaður
  • Ingibjörg Zoëga Björnsdóttir aðalmaður
  • Sigurður Markússon varamaður
Starfsmenn
  • Pétur G. Markan bæjarstjóri
  • Íris Bjargmundsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Íris Bjargmundsdóttir bæjarritari
Dagskrá
Formaður menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar, Marta Rut Ólafsdóttir, setti fund og stjórnaði. Leitaði hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.

1.Atvinnumálastefna neðri hluta Árnessýslu 2025-2029

2409014

Lögð fram atvinnumálastefna neðri hluta Árnessýslu 2025-2029 sem er sameiginleg atvinnustefna Hveragerðisbæjar, Sveitarfélagsins Árborgar og Flóahrepps. Stefnan var unnin í virku samráði við íbúa og atvinnulíf í samvinnu við SASS og byggðaþróunarfulltrúa svæðisins. Stefnan var samþykkti í sveitarstjórn Flóahrepps 6. maí 2025 og bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar 14. maí 2025.
Menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja atvinnumálastefnu neðri hluta Árnessýslu 2025-2029.

2.Þekkingarsetur - fjarvinnuklasi í Hveragerði

2505102

Lagt fram minnisblað um uppbyggingu á þekkingarsetri - fjarvinnuklasa í Hveragerði.
Menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd telur mikilvægt að unnið sé markvisst að því að setja á fót þekkingarsetur/fjarvinnuklasa í Hveragerði til að stuðla að og efla fjölbreyttara og öflugra atvinnulíf í bænum.

3.Sumarhátíðir Hveragerðisbæjar 2025

2505109

Rakel Magnúsdóttir kom inn á fundinn og fór yfir drög að dagskrá fyrir hátíðarhöldin á 17. júní og Blómstrandi dögum.
Menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd þakkar Rakel fyrir yfirferð á dagskránni.

4.Stafræn stefna Hveragerðisbæjar

2504138

Stafrænn leiðtogi Hveragerðisbæjar kom inn á fundinn og kynnti vinnu við gerð stafrænnar stefnu Hveragerðisbæjar.
Menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd þakkar fyrir kynninguna.

5.Bílastæði við Árhólma

2501115

Framhald umræðu um bílastæði við Árhólma.
Menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd leggur til við bæjarstjórn að strax verði farin leið nr. 1 í skýrslu um bílastæðin við Árhólma þar sem gert er ráð fyrir að gjaldskrá fyrir bílastæðin verði uppfærð auk þess sem skilvirkni innheimtu gjaldanna verði stórbætt. Í framhaldi verði undirbúningur hafinn að útvistun til þjónustuaðila.

6.Afmælisár Hveragerðisbæjar

2505110

Farið yfir starf afmælisnefndar vegna afmælisárs Hveragerðisbæjar 2026. Farið yfir tillögur og hugmyndir að viðburðum tengt afmælisárinu.
Til kynningar.

7.Endurskoðun á stefnu Hveragerðisbæjar 2023-2028

2505118

Lögð fram stefna Hveragerðisbæjar 2023-2028 sem samþykkt var í júní 2023 en í stefnunni er kveðið á um endurskoðun hennar á tveggja ára fresti.
Menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd óskar eftir að unnin verði tillaga að endurskoðun á stefnu Hveragerðisbæjar í samráði við formann nefndarinnar og hún kynnt á fyrsta fundi eftir sumarfrí nefndarinnar.

8.Opnunartími bókasafns Hveragerðis sumarið 2025

2505119

Lagt fram minnisblað forstöðumanns bókasafns Hveragerðis um breytingu á opnunartíma bókasafnsins í sumar.
Menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytingu á opnunartíma bókasafns Hveragerðis í sumar í samræmi við tillögu forstöðumanns bókasafnsins.
Fundargerðin upplesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 19:22.

Getum við bætt efni síðunnar?