Fara í efni

Fasteignafélag Hveragerðis ehf

13. ágúst 2026 kl. 11:46 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • María Rún Þorsteinsdóttir
  • Sigmar Karlsson
  • Lárus Jónsson
Starfsmenn
  • Helga Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri
  • Ingimar Guðmundsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Helga Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri
Dagskrá
María Rún Þorsteinsdóttir formaður stjórnar, setti fund og stjórnaði. Leitaði hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.

1.Skýrsla stjórnar fyrir árið 2025

2508051

Á árinu 2025 voru haldnir tveir stjórnarfundir ásamt aðalfundi.
Á byrjun árs var samþykktur leigusamningur við Hveragerðisbæ um atvinnuhúsnæði Vorsabæjarvöllum-gervigrasvöllur.
Í lok árs var samþykktur leigusamningur við Hveragerðisbæ um atvinnuhúsnæði Skólamörk 2b, íþróttahús.

2.Ársreikningur Fasteignafélagsins 2025

2608055

Lagður fram ársreikningur félagsins fyrir árið 2025.
Stjórn samþykkir ársreikninginn og undirritar hann.

3.Kosning í stjórn og kosning endurskoðanda

2508102

Í stjórn voru kosnir eftirfarandi: María Rún Þorsteinsdóttir, formaður, Sigmar Karlsson og Lárus Jónsson. Varamenn voru kosnir Ingimar Guðmundsson, Hjalti Helgason og Jónas Guðnason. Endurskoðandi verði KPMG endurskoðun.

4.Ákvörðun um hvernig skal farið með tap félagsins

2508103

Stjórn samþykkir að tap ársins verði flutt til næsta árs.

5.Greiðslur til stjórnar

2508104

Stjórn samþykkir að greiðslur til stjórnarmanna verði þær sömu og greitt er fyrir nefndasetu hjá Hveragerðisbæ.

6.Staða framkvæmda hjá Fasteignafélagi Hveragerðis

2508111

Rætt um stöðu framkvæmda við gervigrasvöll og íþróttahús.
Fundargerð upplesin og samþykkt.

Fundi slitið.

Getum við bætt efni síðunnar?