Fara í efni

Bæjarráð

897. fundur 12. nóvember 2026 kl. 08:30 - 11:33 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Birgitta Ragnarsdóttir formaður
  • Sigmar Karlsson varaformaður
  • Lárus Jónsson aðalmaður
  • Marta Rut Ólafsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Steinunn Erla Kolbeinsdóttir bæjarritari
  • Ingimar Guðmundsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Steinunn Erla Kolbeinsdóttir bæjarritari
Dagskrá
Formaður bæjarráðs, Birgitta Ragnarsdóttir, setur fundinn og stjórnar honum. Hún leitar eftir athugasemdum við fundarboð en engar koma fram.

1.Beiðni um styrk frá Samtökum um karlaathvarf

2610137

Lagt er fram erindi frá Samtökum um karlaathvarf, móttekið 15. október 2026, þar sem óskað er eftir fjárstyrk til samtakanna vegna opnunar hjálparsíma fyrir karlmenn og aðra þjónustu. Þjónustan er ætluð karlmönnum sem búa við líkamlegt, andlegt, fjárhagslegt eða kynferðislegt ofbeldi í nánu sambandi, sem fá ekki að hitta börnin sín eða umgengni er tálmuð, sem hafa verið bornir röngum sökum og vita ekki hvert þeir eiga að snúa sér eða til að rjúfa félagslega einangrun.
Bæjarráð þakkar Samtökum um karlaathvarf fyrir erindið. Bæjarráð telur mikilvægt að umsóknin fái efnislega umfjöllun og vísar henni því til umsagnar og umfjöllunar í velferðarnefnd áður en endanleg afgreiðsla fer fram.

2.Erindi frá UNICEF um barnvæn sveitarfélög

2610145

Eftirtalin skjöl eru lögð fram:

Kynningarbréf frá UNICEF um Barnvæn sveitarfélög, dags. 24. september 2026.

Yfirlit yfir hlutverk umsjónarmanns og stýrihóps.

Handbók um barnvæn sveitarfélög fyrir umsjónarmenn.

Minnisblað bæjarstjóra dags. 9. nóvember 2026.



Í erindi UNICEF er Hveragerðisbæ boðin þátttaka í verkefninu barnvæn sveitarfélög, sem byggir á innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í starfsemi sveitarfélaga.
Bæjarráð tekur kynningu á verkefninu Barnvæn sveitarfélög til umræðu. Bæjarráð felur sviðsstjóra menntunar-, menningar- og lýðheilsusviðs að taka málið til frekari skoðunar og kynningar innan viðeigandi nefnda og ráða sveitarfélagsins á árinu 2027 og leggja fyrir bæjarráð mat á verkefninu og mögulegri þátttöku Hveragerðisbæjar haustið 2027.

3.Erindi frá nefnda- og greiningasviði Alþingis

2601116

Lagt er fram erindi frá nefnda- og greiningasviði Alþingis, dags. 15. október 2026, þar sem tilkynnt er um að umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hafi sent 202. mál til umsagnar á umsagnagátt Alþingis. Skyldur sveitarfélaga skv. frumvarpinu er að setja loftlagsstefnu, innleiða aðgerðir skv. henni og meta árlega ávinning af aðgerðum.
Bæjarráð tekur erindið til umræðu og telur mikilvægt að markmið frumvarpsins taki mið af getu sveitarfélaga til framkvæmda. Bæjarráð tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í umsögnum Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga og Sambands íslenskra sveitarfélaga, einkum um að auknar lögbundnar skyldur sveitarfélaga verði kostnaðarmetnar með fullnægjandi hætti og að tryggð verði fjármögnun þeirra verkefna sem af þeim leiða. Jafnframt telur bæjarráð mikilvægt að sveitarfélögum verði tryggður aðgangur að samræmdum gögnum, leiðbeiningum og öðrum þeim verkfærum sem nauðsynleg eru til að uppfylla kröfur laganna. Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs og bæjarstjóra að skila umsögn til umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis á grundvelli framangreindra sjónarmiða.

4.Erindi frá nefnda- og greiningasviði Alþingis

2601116

Lagt er fram erindi frá nefnda- og greiningasviði Alþingis, dags. 13. október 2026, þar sem tilkynnt er um að umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hafi sent 59. mál til umsagnar í umsagnargátt Alþingis. Málið varðar frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011 (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn). Umsagnafrestur er til og með 27. október nk.
Erindið er lagt fram til kynningar.

5.Erindi frá Innviðaráðuneytinu

2601146

Lagt er fram erindi frá Innviðaráðuneytinu, móttekið 12. október 2026, þar sem fram kemur að ráðuneytið hafi birt tillögur um viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Umsagnarfrestur er til og með 13. nóvember 2026.

Í tillögunum eru settir fram 30 mælikvarðar og skilgreind viðmið sem gefa til kynna hvort sveitarfélög hafi nauðsynlegar forsendur til að þróast með sjálfbærum hætti til lengri tíma. Vonir standa til að viðmiðin og mælaborðið nýtist sem leiðsögn og tæki fyrir gagnadrifna stefnumótun og ákvarðanatöku fyrir sveitarfélög til langs tíma.
Bæjarráð tekur erindið til umræðu og fagnar þeirri vinnu sem unnin hefur verið við mótun viðmiða um sjálfbæra þróun sveitarfélaga. Bæjarráð telur að samræmdir mælikvarðar og gagnadrifin greining geti verið mikilvægt tæki við stefnumótun, áætlanagerð og ákvarðanatöku sveitarfélaga. Jafnframt leggur bæjarráð áherslu á að viðmiðin taki mið af ólíkum aðstæðum sveitarfélaga og að framkvæmd þeirra byggi, eins og unnt er, á fyrirliggjandi gögnum og samræmdum skilgreiningum. Bæjarráð telur mikilvægt að innleiðing viðmiðanna leiði hvorki til aukinnar stjórnsýslubyrði né viðbótarkostnaðar fyrir sveitarfélög nema viðeigandi fjármagn fylgi.

6.Beiðni um styrk vegna útgáfu UMFÍ á jólablaði Skinfaxa

2610221

Lagt er fram erindi frá Ungmennafélagi Íslands, móttekið 28. október 2026, þar sem óskað er eftir styrk vegna útgáfu jólablaðs Skinfaxa.
Bæjarráð þakkar Ungmennafélagi Íslands fyrir erindið vegna útgáfu jólablaðsins. Vegna fjárhagsstöðu sveitarfélagsins og þeirrar vinnureglu sem bæjarráð hefur viðhaft á árinu 2026 um að halda styrkveitingum í lágmarki sér bæjarráð ekki fært að verða við erindinu að þessu sinni. Umsækjanda er jafnframt bent á að sækja um styrk, á ný, á næsta ári ef um útgáfu jólablaðs verður að ræða.

7.Erindi frá Eignarhaldsfélaginu Brunabótafélagi Íslands vegna ágóðahlutagreiðslu 2026

2611011

Lagt er fram erindi frá Eignarhaldsfélaginu Brunabótafélag Íslands, dags. 28. október 2026, vegna ágóðahlutagreiðslu 2026.
Erindið er lagt fram til kynningar.

8.Erindi frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra

2611078

Lagt er fram bréf frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, móttekið 3. nóvember 2026, þar sem upplýst er um útgáfu bæklings sem gefinn er út með það að markmiði að efla viðbúnað almennings og styrkja seiglu samfélagsins.
Bæjarráð tekur erindið til kynningar og fagnar framtaki almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra í því skyni að efla viðbúnað almennings og að styrkja seiglu samfélagsins. Upplýsingar um útgáfu bæklingsins hafa þegar verið birtar á vefsíðu sveitarfélagsins. Bæjarráð felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að vinna málið áfram og tryggja að upplýsingar og leiðbeiningar sem tengjast viðbúnaði almennings séu aðgengilegar á vefsíðu sveitarfélagsins. Jafnframt verði skoðað með hvaða hætti unnt sé að gera upplýsingar um almannavarnir, viðbragðsáætlanir og viðbúnað auðfundnari og sýnilegri á vef sveitarfélagsins.

9.Beiðni um styrk frá starfshópi Sjóðsins góða

2611077

Lögð er fram beiðni um styrk frá starfshópi Sjóðsins góða, dags. 2. nóvember 2026, en sjóðurinn er samstarfsverkefni ýmissa aðila sem snýr að því að styrkja einstaklinga og fjölskyldur sem eiga ekki fyrir nauðþurftum um jól og á vormánuðum í tengslum við fermingar.
Bæjarráð þakkar fyrir erindið og fagnar því mikilvæga samstarfsverkefni sem Sjóðurinn góði er. Verkefnið hefur um árabil veitt einstaklingum og fjölskyldum á Suðurlandi mikilvægan stuðning þegar mest á reynir. Bæjarráð frestar afgreiðslu erindisins til næsta fundar bæjarráðs þann 19. nóvember n.k. og felur sviðsstjórum stjórnsýslusviðs og velferðarsviðs að gera tillögu um fyrirkomulag styrks.
Fylgiskjöl:

10.Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga vegna rammasamnings við STEF og SFH vegna opinbers tónflutnings

2611212

Lagt er fram erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 5. nóvember 2026, þar sem kynntur er rammasamningur sem stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur samþykkt við STEF og SFH vegna opinbers tónflutnings á vegum sveitarfélaga. Hvert sveitarfélag fyrir sig tekur sjálfstæða ákvörðun um samningagerð við STEF og SFH á grundvelli rammasamningsins.
Bæjarráð tekur erindið til kynningar og vísar því til umfjöllunar í menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd. Nefndinni er falið að taka rammasamninginn til umfjöllunar, óska eftir kynningu frá STEF og SFH, og meta hagsmuni sveitarfélagsins með tilliti til þess.

11.Innköllun lóða - Breiðamörk 50 og 52

2603036

Eftirtalin skjöl eru lögð fram:

Bréf Hveragerðisbæjar til Varmár ehf., dags. 16. október 2026.

Bréf Varmár ehf. til Hveragerðisbæjar, dags. 5. nóvember 2026, ásamt fylgiskjölum.



Í samræmi við reglur Hveragerðisbæjar um úthlutun lóða var erindi sent til lóðarhafa Beiðumerkur 50 og 52 þar sem veittur var andmælaréttur vegna fyrirhugaðrar ákvörðunar um að innkalla lóðirnar enda væri veittur frestur til þess að leggja fram aðaluppdrætti liðinn og uppsteypa sökkla ekki hafin. Erindi með andmælum barst frá lóðarhafa umræddra lóða.

Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins. Bæjarstjóra er falið að boða forsvarsmenn Varmár ehf. til fundar með fulltrúum Hveragerðisbæjar til frekara samtals áður en málið verður tekið til endanlegrar afgreiðslu.

12.Beiðni frá Skógræktarfélagi Íslands vegna útgáfu Skógræktarritsins

2611223

Lagt er fram erindi frá Skógræktarfélagi Íslands, móttekið 9. nóvember 2026, þar sem óskað er eftir styrk vegna útgáfu Skógræktarritsins.
Bæjarráð þakkar Skógræktarfélagi Íslands fyrir erindið vegna útgáfu Skógræktarritsins. Vegna fjárhagsstöðu sveitarfélagsins og þeirrar vinnureglu sem bæjarráð hefur viðhaft á árinu 2026 um að halda styrkveitingum í lágmarki sér bæjarráð ekki fært að verða við erindinu að þessu sinni. Umsækjanda er jafnframt bent á að sækja á ný um styrk á næsta ári verði Skógræktarritið gefið út.

13.Erindi frá Tónlistarskóla Árnesinga bs. vegna leiðréttrar kostnaðarskiptingar

2611233

Lagt er fram erindi frá Tónlistarskóla Árnesinga bs., móttekið 9. nóvember 2026, er varðar leiðrétta kostnaðarskiptingu milli sveitarfélaga.
Bæjarráð tekur erindið til kynningar. Bæjarráð felur skrifstofustjóra að gera viðeigandi ráðstafanir vegna leiðréttrar kostnaðarskiptingar sveitarfélaganna hjá Tónlistarskóla Árnesinga bs. Bæjarráð felur sviðsstjóra menntunar-, menningar- og lýðheilsusviðs að fylgja málinu eftir og greina hækkað framlag og rýna nemendalista meðal annars með tilliti til lögheimilisskráningar.

14.Erindi frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands bs. vegna stöðu fráveitumála í Hveragerði

2610142

Eftirtalin skjöl eru lögð fram:

Erindi frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands bs., móttekið 16. október 2026.

Fundargerð heilbrigðisnefndar Suðurlands frá 18. september 2026.

Minnisblað Höskuldar Þorbjarnarsonar, umhverfisfulltrúa Hveragerðisbæjar um stöðu fráveitumála í Hveragerði, dags. 3. júlí 2026, sent Heilbrigðiseftirliti Suðurlands bs. þann 16. júlí 2026.



Í erindi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands bs. er vísað til bókunar heilbrigðisnefndar á 257. fundi varðandi málefni fráveitu í Hveragerði. Heilbrigðisnefnd óskar eftir upplýsingum um stöðuna og tímasetta áætlun vegna úrbóta í fráveitumálum.
Bæjarráð tekur erindið til umræðu. Bæjarráð vísar til minnisblaðs umhverfisfulltrúa frá 3. júlí 2026 um stöðu fráveitumála í Hveragerði og telur að staða málsins sé að meginstefnu óbreytt frá því sem þar kemur fram. Fyrir liggur að unnið hefur verið að undirbúningi stækkunar og endurbótum á skólphreinsistöð sveitarfélagsins og að framkvæmdin er hluti af þeim fjárfestingaráformum sem nú eru til umfjöllunar hjá sveitarfélaginu.

Bæjarráð tekur jafnframt fram að bæjarstjóri hafi þegar óskað eftir því að umhverfisfulltrúi eigi samtal við Heilbrigðiseftirlit Suðurlands bs. um stöðu verkefnisins og mögulega miðlun upplýsinga til eftirlitsins. Bæjarráð leggur áherslu á að upplýsingar um umfang, kostnað og tímasetningar framkvæmda kunni að vera viðkvæmar á þessu stigi með hliðsjón af komandi útboðs- og innkaupaferlum og mikilvægt sé að miðlun slíkra upplýsinga raski ekki stöðu sveitarfélagsins við undirbúning framkvæmdarinnar. Bæjarráð áréttar að sveitarfélagið stendur ekki fyrir og hefur ekki fyrirhugað að standa fyrir rekstri baðstaðar í Varmá í atvinnuskyni.

15.Arfur til Listasafns Árnesinga bs.

2610225

Lögð er fram fundargerð aðalfundar Listasafns Árnesinga bs. frá 29. september 2026 og áskorunarbréf frá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu, dags. 28. október 2026.



Með erfðaskrá arfleiddi Frosti Fjalar Jónsson Listasafn Árnesinga bs. að öllum sínum eignum og fól safninu þar með ábyrgð á að varðveita og ráðstafa arfleið sinni í samræmi við þau markmið og fyrirmæli sem fram koma í erfðaskránni. Á aðalfundi Listasafns Árnesinga bs. var eftirfarandi fært til bókar: Fundurinn samþykkir samhljóða að veita arfi Frosta Fjalars Jónssonar, kt. 291236-3169, móttöku með þeim skilyrðum eða kvöðum sem settar eru fram í erfðaskránni í þágu markmiðs arfleiðslunnar og að færa málefni búsins í farveg opinberra skipta skv. ákvæðum laga nr. 20/1991 um skipti á dánarbúum o.fl. Jafnframt verði óskað eftir því við Héraðsdóm Reykjavíkur að tiltekinn aðili verði skipaður skiptastjóri yfir dánarbúinu með hliðsjón af tillögum stjórnar þar um.



Fundurinn samþykkir samhljóða eftirfarandi bókun vegna málsins:

Fundarmenn vilja nýta tækifærið og votta aðstandendum Frosta Fjalars samúð sína. Samþykkt er að arfurinn verði þeginn enda eru þær óskir sem fylgja arfleiðinni þess eðlis að þær munu nýtast til eflingar faglegu starfi safnsins um ókomna tíð.
Bæjarráð vottar aðstandendum Frosta Fjalars Jónssonar samúð sína vegna fráfalls hans. Bæjarráð samþykkir að Listasafn Árnesinga bs. veiti arfi Frosta Fjalars Jónssonar, kt. 291236-3169, móttöku með þeim skilyrðum og kvöðum sem fram koma í erfðaskrá hans í þágu markmiðs arfleiðslunnar og að málefni búsins verði færð í farveg opinberra skipta samkvæmt ákvæðum laga nr. 20/1991 um skipti á dánarbúum o.fl. Jafnframt verði óskað eftir því við Héraðsdóm Reykjavíkur að tiltekinn aðili verði skipaður skiptastjóri yfir dánarbúinu með hliðsjón af tillögum stjórnar þar um. Bæjarráð lýsir jafnframt ánægju með þá rausnarlegu arfleiðslu sem safninu er færð og telur hana munu styrkja starfsemi og þróun safnsins til framtíðar.

16.Kynning frá verkefnastjóra almannavarna á Suðurlandi

2611229

Á fund bæjarráðs kemur Bjarki Oddsson, verkefnastjóri almannavarna á Suðurlandi til þess að kynna starfsemi almannavarna og viðbrögð við skýrslum Veðurstofu Íslands sem komu út á vormánuðum vegna hraunvár og viðbrögð við væntanlegri skýrslu um sprunguvá.
Bæjarráð þakkar verkefnastjóra almannavarna á Suðurlandi fyrir kynninguna og þær upplýsingar sem fram komu á fundinum um stöðu almannavarnamála á Suðurlandi, þar á meðal vegna hraunvár og sprunguvár. Bæjarráð felur bæjarstjóra og sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að fylgja málinu eftir.

17.Úthlutun lóða í Hveragerði

2611224

Lagðar eru fram upplýsingar um umsóknir sem bárust í lóðir sem eru til lausar úthlutunar hjá Hveragerðisbæ.

Alls bárust 221 umsóknir um 11 lóðir í Tröllahrauni, 5 einbýlishúsalóðir, 4 parhúsalóðir (8 íbúðir) og 2 raðhúsalóðir (8 íbúðir), samtals 22 íbúðir sem auglýstar voru í 6 vikur á vefsíðu Hveragerðisbæjar.

Að auki barst ein umsókn um Hólmabrún 15.

Aðstoðamaður í tæknideild hefur yfirfarið öll gögn umsækjenda vegna framangreindra lóða.

Á fund bæjarráðs kemur fulltrúi sýslumannsins á Suðurlandi, Ingibjörg Austmann Ingadóttir, og framkvæmir útdrátt gildra umsókna sem bárust vegna lóðanna. Þar sem fleiri en ein umsókn bárust voru þrír aðilar dregnir út til vara.
Bæjarráð fagnar miklum áhuga og fjölda umsókna um lóðir.

Eftirtaldir aðilar fengu úthlutað raðhúsalóð í samræmi við reglur um úthlutun lóða.
Tröllahraun 1-7
Size umboðs- og heildverslun ehf., kt. 500500-2040
Til vara:
Stoðverk byggingaverktakar ehf., kt. 7007070-0320
Svört föt ehf., kt. 690102-4550
Andrea Ösp Viðarsdóttir, kt. 140492-2569

Tröllahraun 2-8
Size umboðs- og heildverslun ehf., kt. 500500-2040
Til vara:
Svört föt ehf., kt. 690102-4550
Snorri Þór Árnason, kt. 301290-2849
Þorbjörg Anna Steinarsdóttir, kt. 030991-2499

Eftirtaldir aðilar fengu úthlutað parhúsalóð í samræmi við reglur um úthlutun lóða.
Tröllahraun 21-23
Jóhann Viðarsson, kt. 290690-2699
Til vara:
Sigurður Dagur Hjaltason, kt. 160602-2520
Anders Hansen, kt. 070152-6499
Þorbjörg Anna Steinarsdóttir, kt. 030991-2499

Tröllahraun 25-27
Daníel Örn Þorbjörnsson, kt. 100202-2630
Til vara:
Jóhann Viðarsson, kt. 290690-2699
Anders Hansen, kt. 070152-6499
Aníta Sif Brynjarsdóttir, kt. 140701-2970

Tröllahraun 26-28
Þorsteinn Óli Brynjarsson, kt. 050589-2189
Til vara:
Þorbjörg Anna Steinarsdóttir, kt. 030991-2499
Jón Daði Böðvarsson, kt. 250592-3029
Katrín Viðarsdóttir, kt. 160694-3789

Tröllahraun 30-32
Jakob Fannar Hansen, kt. 171290-3419
Til vara:
Daníel Örn Þorbjörnsson, kt. 100202-2630
Þorsteinn Hansen, kt. 210361-3599
Aníta Sif Brynjarsdóttir, kt. 140701-2970

Eftirtaldir aðilar fengu úthlutað einbýlishúsalóð í samræmi við reglur um úthlutun lóða.
Tröllahraun 78
Sandra Sigurðardóttir, kt. 060283-4949
Til vara:
Sævar Þór Sævarsson, kt. 290288-2319
Kristófer Liszt Auðunsson, kt. 170397-2079
Ingólfur Árnason, kt. 180594-2569

Tröllahraun 67
Stefán Úlfarsson, kt. 200767-3659
Til vara:
Birgir Þór Stefánsson, kt. 030691-2109
Kolbrún Vignisdóttir, kt. 070395-2589
Birkir Fannar Bragason, kt. 040288-2799

Tröllahraun 76
Birkir Fannar Bragason, kt. 040288-2799
Til vara:
Sævar Þór Sævarsson, kt. 290288-2319
Úlfar Bjarki Stefánsson, kt. 030988-3379
Aron Steinn Guðmundsson, kt. 090893-2549

Tröllahraun 74
Úlfar Bjarki Stefánsson, kt. 030988-3379
Til vara:
Jónas Gunnþór Jónsson, kt. 120274-3179
Árni Steindór Sveinsson, kt. 300869-2979
Birkir Fannar Bragason, kt. 040288-2799

Tröllahraun 50
Anna María Ögmundsdóttir, kt. 120956-2729
Til vara:
Birkir Fannar Bragason, kt. 040288-2799
Úlfar Bjarki Stefánsson, kt. 030988-3379

Hólmabrún 15
Körrent ehf., kt. 690126-1920

18.Tillaga frá samráðshópi um málefni fatlaðs fólks

2610139

Lagður er fram tölvupóstur starfsmanns samráðshóps um málefni fatlaðs fólks til forstöðumanna, deildarstjóra og sviðsstjóra Hveragerðisbæjar, dags. 6. október 2026, þar sem vakin er athygli á mikilvægi þess að huga að atvinnumöguleikum fyrir fatlað fólk og einstaklinga með skerta starfsgetu innan starfsstöðva sveitarfélagsins.



Málið var tekið fyrir hjá samráðshópi um málefni fatlaðs fólks þann 21. október 2026 þar sem eftirfarandi var bókað: Samráðshópur leggur til við bæjarráð að taka málefnið sérstaklega til skoðunar við undirbúning fjárhagsáætlunar og fylgja erindi starfsmanns samráðshóps eftir við stjórnendur starfsstöðva sveitarfélagsins.
Bæjarráð þakkar fyrir framkomið erindi og tekur undir mikilvægi þess að sveitarfélagið stuðli að auknum atvinnutækifærum fyrir fatlað fólk og einstaklinga með skerta starfsgetu. Bæjarráð hvetur forstöðumenn og stjórnendur starfsstöðva sveitarfélagsins til að horfa sérstaklega til möguleika á sértækum sumarstörfum, störfum með stuðningi og öðrum úrræðum sem geta stuðlað að aukinni atvinnuþátttöku þessa hóps. Jafnframt hvetur bæjarráð stjórnendur til að meta svigrúm innan launaáætlana og fjárheimilda ársins 2027, þegar þær liggja fyrir, til að skapa slík tækifæri þar sem því verður við komið. Sviðsstjóra stjórnsýslusviðs er falið að koma afgreiðslu bæjarráðs á framfæri við stjórnendur sveitarfélagsins.

Bæjarstjóra er falið að hafa framangreind sjónarmið til hliðsjónar við áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.

19.Samningur við nemendur í 7. bekk Grunnskólans í Hveragerði um umhverfishreinsun

2611069

Lagður er fram samningur við nemendur í 7. bekk Grunnskólans í Hveragerði um umhverfishreinsun.
Bæjarráð samþykkir framlagðan samning við nemendur 7. bekkjar Grunnskólans í Hveragerði um umhverfishreinsun. Bæjarráð þakkar nemendum fyrir framlag þeirra til fegrunar og umhirðu bæjarumhverfisins og hvetur þau til dáða í verkefninu. Bæjarráð hlakkar til að fylgjast með þeim jákvæða árangri sem af verkefninu hlýst fyrir nærumhverfi bæjarins.

20.Samningur við nemendur í 10. bekk Grunnskólans í Hveragerði

2611094

Lagður er fram samningur við nemendur í 10. bekk Grunnskólans í Hveragerði um aðstoð nemenda í skólanum.
Bæjarráð samþykkir framlagðan samning við nemendur 10. bekkjar Grunnskólans í Hveragerði um aðstoð við skólastarf. Bæjarráð þakkar nemendum fyrir vilja þeirra til að leggja sitt af mörkum til skólasamfélagsins og hvetur þau til dáða í verkefninu. Bæjarráð hlakkar til að fylgjast með afrakstri starfsins og óskar nemendum velfarnaðar í þeirri fjáröflun sem samningurinn styður.

21.Hagsmunagæsla Hveragerðisbæjar vegna frumvarps til laga um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati

2603013

Eftirtalin skjöl eru lögð fram:

Minnisblað Lárusar Jónssonar, bæjarfulltrúa, og Jónasar Guðnasonar, varabæjarfulltrúa, dags. 28. október 2026.

Minnisblað Ingimars Guðmundssonar, bæjarstjóra, dags. 29. október 2026.
Bæjarráð tekur til umræðu hagsmunagæslu Hveragerðisbæjar vegna frumvarps til laga um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati. Bæjarráð telur mikilvægt að fylgjast náið með framgangi mála sem varða skattlagningu orkumannvirkja og möguleg áhrif þeirra á fjárhag og hagsmuni sveitarfélagsins. Bæjarráð frestar frekari afgreiðslu málsins og felur bæjarstjóra að leggja málið að nýju fyrir bæjarráð.

22.Íbúafundur um fjármál þann 16. nóvember 2026

2611236

Bæjarstjóri kynnir fyrirkomulag og dagskrá íbúafundar sem fyrirhugaður er um stöðu fjármála Hveragerðisbæjar.
Bæjarstjóri fer yfir fyrirkomulag og dagskrá íbúafundar um stöðu fjármála Hveragerðisbæjar sem fram fer 16. nóvember 2026. Bæjarráð tekur kynninguna til umræðu.

23.Verkfundargerð - Íþróttahús við Skólamörk 2 - 1. áfangi

2603009

Lögð er fram verkfundargerð frá 1. október 2026, vegna byggingar 1. áfanga íþróttahúss.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
Fylgiskjöl:

24.Verkfundargerð - Íþróttahús við Skólamörk 2 - 1. áfangi

2603009

Lögð er fram verkfundargerð frá 29. október 2026, vegna byggingar 1. áfanga íþróttahúss.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
Fylgiskjöl:

25.Fundagerðir heilbrigðisnefndar Suðurlands

2601129

Lagðar eru fram fundargerðir heilbrigðisnefndar Suðurlands, dags. 18. september og 22. október 2026, ásamt fylgiskjölum.
Fundargerðirnar eru lagðar fram til kynningar ásamt fylgiskjölum. Bæjarráð tekur undir þau sjónarmið sem fram koma hjá heilbrigðisnefnd Suðurlands um mikilvægi þess að kostnaður vegna yfirfærslu verkefna og slita Heilbrigðiseftirlits Suðurlands bs. verði að fullu fjármagnaður af ríkinu og vísar að öðru leyti til bókunar bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar frá 5. nóvember 2026 um málið.

26.Fundargerð aðalfundar Byggðasafns Árnesinga bs.

2610222

Lögð er fram fundargerð aðalfundar Byggðasafns Árnesinga bs., dags. 29. september 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

27.Fundargerð aðalfundar Listasafns Árnesinga bs.

2602002

Lögð er fram fundargerð aðalfundar Listasafns Árnesinga bs., dags. 29. september 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

28.Fundargerð aðalfundar Brunavarna Árnessýslu bs.

2610226

Lögð er fram fundargerð aðalfundar Brunavarna Árnessýslu bs., dags. 29. september 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

29.Fundargerð aðalfundar Tónlistarskóla Árnesinga bs.

2610227

Lögð er fram fundargerð aðalfundar Tónlistarskóla Árnesinga bs., dags. 29. september 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

30.Fundargerð aðalfundar Héraðsskjalasafns Árnesinga bs.

2611076

Lögð er fram fundargerð aðalfundar Héraðsskjalasafns Árnesinga bs., dags. 29. september 2026, ásamt ársskýrslu 2025.
Fundargerðin og ársskýrslan er lögð fram til kynningar.

31.Fundargerð aðalfundar Bergrisans bs.

2611135

Lögð er fram fundargerð aðalfundar Bergrisans bs., dags. 6. október 2026, ásamt fylgiskjölum.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar auk fylgiskjala. Bæjarráð telur ákvörðun aðalfundar Bergrisans bs. um að endurgreiða viðbótarframlög sveitarfélaganna vegna vanfjármögnunar á árunum 2021-2022 rétta og fagnar þeim árangri sem náðst hefur í rekstri byggðasamlagsins undanfarin ár. Bæjarráð leggur jafnframt áherslu á að sveitarfélagið þurfi áfram að vera undir það búið að leggja fram fjármagn til nauðsynlegrar uppbyggingar þjónustu á starfssvæði Bergrisans þegar þörf krefur. Mikilvægt er þó að byggðasamlög almennt safni ekki upp miklum fjármunum eða sjóðum sem byggðir eru á viðbótarframlögum sveitarfélaganna. Bæjarráð fagnar á sama tíma húsnæðisuppbyggingu Bergrisans bs. sem gerir ráð fyrir uppbyggingu 42 nýrra íbúða á tímabilinu 2025-2035.

32.Fundagerð stjórnar Brunavarna Árnessýslu bs.

2604017

Lögð er fram fundargerð stjórnar Brunavarna Árnessýslu bs. frá 25. september 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

33.Fundagerð stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga

2601140

Lögð er fram fundargerð stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga frá 2. október 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

34.Fundagerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

2602011

Lögð er fram fundargerð 1004. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 8. október 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

35.Fundagerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

2602011

Lögð er fram fundargerð 1005. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 30. október 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar. Bæjarráð tekur undir bókun stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga undir lið 4 um mikilvægi virks samráðs ríkis og sveitarfélaga og að verkefni sveitarfélaga séu fjármögnuð með fullnægjandi hætti. Jafnframt tekur bæjarráð undir bókun stjórnar Sambandsins undir lið 33 vegna þeirrar óvissu sem enn ríkir um yfirfærslu verkefna heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga og vísar að öðru leyti til fyrri bókunar bæjarstjórnar um málið.
Fundargerðin upp lesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 11:33.

Getum við bætt efni síðunnar?