Bæjarráð
Dagskrá
Formaður bæjarráðs, Birgitta Ragnarsdóttir, setur fundinn og stjórnar honum. Hún leitar eftir athugasemdum við fundarboð en engar koma fram.
1.Beiðni um styrk o.fl. vegna Bjórhátíðar Ölverks brugghúss 2.-3. október 2026
2609090
Lagt er fram bréf frá Einfalt ehf., móttekið 10. september 2026, þar sem óskað er eftir styrk að fjárhæð kr. 700.000.- frá bæjarráði Hveragerðisbæjar fyrir því að halda Bjórhátíð Ölverks helgina 2.-3. október 2026 auk aðstoðar í formi götulokana o.fl.
Bæjarráð lýsir yfir ánægju með hátíðina og fagnar framtakinu. Umhverfisdeild er falið að aðstoða við vegmerkingar og lokun gatna eins og verið hefur undanfarin ár. Í ljósi lausafjárvanda sveitarfélagsins sér bæjarráð sér ekki fært að verða við styrkbeiðni að þessu sinni.
Bæjarráð harmar að ekki sé unnt að koma til móts við styrkbeiðnina á þessu ári, enda er hátíðin mikilvægur þáttur í menningar- og samfélagslífi Hveragerðisbæjar og hefur skapað sér fastan sess. Bæjarráð telur mikilvægt að styðja við áframhaldandi þróun og framkvæmd hátíðarinnar og hvetur því skipuleggjendur til að sækja um styrk á næsta ári. Jafnframt væri æskilegt að kostnaðaráætlun fylgdi styrkumsókn svo betur megi leggja mat á umfang verkefnisins og fjárþörf.

2.Beiðni um styrk vegna afmælistónleika Kirkjukór Hveragerðis- og Kotstrandarsókna 22. nóvember 2026
2609108
Lagt er fram bréf frá Kirkjukór Hveragerðis- og Kotstrandarsókna, móttekið 14. september 2026, þar sem óskað er eftir styrk vegna fyrirhugaðra tónleika þann 22. nóvember 2026 sem haldnir verða í tilefni af 80 ára afmæli kórsins.
Bæjarráð óskar Kirkjukór Hveragerðis- og Kotstandasókna til hamingju með 80 ára afmælið og fagnar um leið framtakinu. Sökum lausafjárstöðu hefur sveitarfélagið almennt hafnað styrkumsóknum undanfarið. Óskað er eftir nánari útlistun á umbeðinni fjárhæð styrksins svo unnt sé að taka skýra afstöðu til málsins.
3.Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga vegna notendaráða sveitarfélaga
2609079
Lagt er fram bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 8. september 2026, þar sem bent er á lögbundna skyldu sveitarfélaga til að skipa í notendaráð.
Erindið er lagt fram til kynningar en bæjarstjórn Hveragerðisbæjar hefur þegar skipað í þau notendaráð sem eru lögbundin.
Birgitta Ragnarsdóttir víkur af fundi kl. 8:38 og Sigmar Karlsson tekur við fundarstjórn.
4.Erindi frá formönnum stéttarfélaga vegna kjarasamninga
2609117
Lagt er fram bréf frá formönnum VR stéttarfélags, Landssambands íslenzkra verzlunarmanna og Rafiðnaðarsambandsins f.h. fagfélaga, dags. 14. september 2026, þar sem óskað er eftir upplýsingum frá Hveragerðisbæ vegna forsendna kjarasamninga.
Bæjarráð Hveragerðisbæjar tekur undir mikilvægi þess að sveitarfélög leggi sitt af mörkum til að draga úr kostnaðarálagi á heimilum og styðja við markmið um verðstöðugleika. Í því samhengi vill bæjarráð sérstaklega benda á að Hveragerðisbær hefur á undanförnum árum tekið markviss skref í þágu barnafjölskyldna og til að stuðla að uppbyggingu í sveitarfélaginu.
Hveragerðisbær hefur lækkað leikskólagjöld verulega og eru leikskólagjöld í bænum í dag með þeim lægstu á landinu. Jafnframt hefur sveitarfélagið komið á heimgreiðslum fyrir fjölskyldur þegar börn komast ekki að í leikskóla. Þörfin fyrir slíkar greiðslur hefur þó minnkað verulega þar sem biðtími eftir leikskólaplássi er í dag lítill eða enginn. Þessar aðgerðir endurspegla þá áherslu Hveragerðisbæjar að tryggja barnafjölskyldum góða þjónustu og halda kostnaði þeirra í hóflegu horfi.
Hvað varðar uppbyggingu íbúðarhúsnæðis vill bæjarráð benda á að Hveragerðisbær er land lítið sveitarfélag en þrátt fyrir það eru nú þrjú byggingarsvæði í skipulagsvinnu. Sveitarfélagið hefur þannig lagt grunn að áframhaldandi uppbyggingu íbúðarhúsnæðis og mun áfram vinna að því að tryggja nægilegt framboð lóða til framtíðar, með hliðsjón af eftirspurn, innviðum og fjárhagslegri getu sveitarfélagsins.
Jafnframt er mikilvægt að horfa til raunverulegrar stöðu húsnæðismála í Hveragerði. Samkvæmt nýlegu yfirliti Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar hefur íbúðauppbygging í sveitarfélaginu verið umfram þá nýju íbúðaþörf sem myndaðist á árinu 2025. Á árunum 2023-2025 voru byggðar 148 íbúðir í Hveragerði, en samkvæmt mati HMS myndaðist á sama tímabili þörf fyrir um 84 íbúðir. Hveragerðisbær er þó sveitarfélag í vexti og aðflutningur hefur verið verulega umfram brottflutning síðustu ár. Því er mikilvægt að áfram verði fylgst náið með þróun íbúafjölda og eftirspurnar og uppbyggingu stýrt með ábyrgum hætti þannig að innviðir fylgi þróun bæjarins.
Hvað varðar gjaldskrár sveitarfélagsins fyrir komandi ár mun endanleg afstaða mótast við gerð fjárhagsáætlunar. Hveragerðisbær stendur nú frammi fyrir krefjandi fjárhagslegum aðstæðum, meðal annars þar sem tekjuáætlanir sveitarfélagsins hafa ekki staðist sem skyldi. Þrátt fyrir það verður við fjárhagsáætlunargerð leitast við að halda gjaldskrárhækkunum í lágmarki og taka sérstaklega mið af áhrifum þeirra á heimili og barnafjölskyldur.
Bæjarráð telur mikilvægt að horft sé til þeirra aðgerða sem Hveragerðisbær hefur þegar ráðist í og þess árangurs sem náðst hefur. Sveitarfélagið hefur lagt áherslu á að lækka kostnað barnafjölskyldna, tryggja aðgengi að leikskóla og skapa skilyrði fyrir áframhaldandi uppbyggingu húsnæðis, jafnframt því sem gætt er að ábyrgum rekstri og uppbyggingu innviða.
Hveragerðisbær mun áfram leggja áherslu á ábyrgan rekstur, góða þjónustu og markvissa uppbyggingu og leita leiða til að draga úr kostnaðarálagi á íbúa eftir því sem fjárhagslegar forsendur sveitarfélagsins leyfa.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela bæjarstjóra að svara fyrirspurninni.

Birgitta Ragnarsdóttir kemur aftur inn á fundinn kl. 8:44 og tekur við fundarstjórn að nýju.
5.Tillaga frá D-lista og S-lista um samtal og forvinnu vegna tilfærslu Suðurlandsvegar
2609057
Lögð er fram eftirfarandi tillaga frá D-lista og S-lista, móttekin 8. september 2026.
Tillaga um samtal og forvinnu vegna tilfærslu Suðurlandsvegar í Hveragerði
Fulltrúar meirihluta bæjarstjórnar leggja til að hafin verði vinna við að kanna forsendur og möguleika á tilfærslu Suðurlandsvegar í og við Hveragerði.
Lagt er til að bæjarstjóra verði falið að eiga viðræður við Vegagerðina, viðeigandi stjórnvöld og aðra hagsmunaaðila um framtíðarsýn, valkosti og forsendur varðandi legu Suðurlandsvegar og áhrif hennar á framtíðarþróun sveitarfélagsins.
Jafnframt verði bæjarstjóra falið að leggja fram minnisblað fyrir bæjarráð með samantekt á niðurstöðum viðræðna og mati á næstu skrefum eigi síðar en í desember.
Greinargerð
Lega Suðurlandsvegar hefur veruleg áhrif á þróun Hveragerðisbæjar, þar á meðal byggðaþróun, samgöngur, umferðaröryggi og framtíðarmöguleika sveitarfélagsins til uppbyggingar.
Við mat á möguleikum sveitarfélagsins er sérstaklega mikilvægt að skoða hvort breyttar forsendur, meðal annars vegna fyrirhugaðrar lagningar raflína í jörðu, geti kallað á endurmat á tilfærslu Suðurlandsvegar og skapað ný tækifæri til samfelldrar og sjálfbærrar byggðarþróunar í Hveragerði.
Mikilvægt er að sveitarfélagið hafi skýra mynd af þeim valkostum og forsendum sem kunna að liggja fyrir varðandi framtíðarskipan samgangna í og við bæinn áður en tekin er afstaða til mögulegra breytinga á skipulagsáætlunum sveitarfélagsins.
Markmið tillögunnar er því fyrst og fremst að afla upplýsinga og skapa grundvöll fyrir upplýsta umræðu og ákvarðanatöku. Með niðurstöðum þeirrar vinnu verður unnt að meta hvort tilefni sé til frekari skoðunar á skipulagsmálum sveitarfélagsins, þar á meðal einstökum þáttum aðalskipulags.
Fyrir hönd meirihlutans
Ingimar Guðmundsson
María Rún Þorsteinsdóttir
Sigmar Karlsson
Birgitta Ragnarsdóttir

Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela bæjarstjóra að eiga viðræður við Vegagerðina, viðeigandi stjórnvöld og aðra hagsmunaaðila um framtíðarsýn, valkosti og forsendur varðandi legu Suðurlandsvegar og áhrif hennar á framtíðarþróun sveitarfélagsins. Þá er bæjarstjóra falið að leggja fram minnisblað fyrir bæjarráð með samantekt á niðurstöðum viðræðna og mati á næstu skrefum eigi síðar en í desember.
6.Tillaga frá Okkar Hveragerði varðandi endurskoðun á greiðslufyrirkomulagi gjalda sveitarfélagsins
2609103
Lögð er fram eftirfarandi tillaga frá Okkar Hveragerði, móttekin 14. september 2026.
Tillaga fulltrúa Okkar Hveragerðis varðandi endurskoðun á greiðslufyrirkomulagi gjalda sveitarfélagsins.
Fulltrúi Okkar Hveragerðis leggur til að bæjarráð feli stjórnsýslunni að taka greiðslufyrirkomulag fasteignagjalda og annarra reglulegra gjalda sveitarfélagsins til heildstæðrar endurskoðunar. Markmiðið er að lágmarka óþarfan milliliða- og færslukostnað bæjarsjóðs, bæta sjóðsstreymi og stuðla að hagkvæmari rekstri án þess að skerða þjónustu við íbúa.
Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofustjóra nýta um 50 aðilar í dag boðgreiðslusamninga á kreditkortum við greiðslu fasteignagjalda. Hver slík kortafærsla kostar bæjarsjóð um 650 krónur í þóknunargjöld til færsluhirða, sem nemur um 50 þúsund krónum á mánuði eða um 600 þúsund krónum á ári í beinan kostnað. Til viðbótar hefur þetta fyrirkomulag neikvæð áhrif á sjóðsstreymi bæjarins, þar sem kreditkortafyrirtæki halda fjármununum í tiltekinn tíma áður en þeir skila sér inn á reikning sveitarfélagsins. Til samanburðar kosta hefðbundnar netbankakröfur og beingreiðslusamningar af bankareikningi aðeins brot af þessum kostnaði og skila sér tafarlaust inn á reikning bæjarsjóðs á eindaga.
Fordæmi ríkisins og annarra sveitarfélaga, líkt og Árborgar, sýna að afnám á kortagreiðslum fyrir opinberar álögur hefur gengið áfallalaust fyrir sig þegar íbúum eru kynntar hagkvæmar, sjálfvirkar og jafn þægilegar greiðsluleiðir í gegnum beingreiðslur eða netbanka.
Lagt er til að bæjarráð samþykki eftirfarandi fyrirmæli til stjórnsýslunnar:
1. Skrifstofustjóra verði falið að móta tímasetta aðgerðaáætlun um afnám boðgreiðslusamninga á kreditkortum vegna fasteignagjalda tímanlega fyrir álagningu ársins 2027, og aðstoða þá aðila sem málið snertir við að færa greiðslur yfir á beingreiðslur eða hefðbundnar netbankakröfur.
2. Kannað verði samtímis hvort sambærilegir boðgreiðslusamningar séu við lýði við innheimtu annarra reglubundinna þjónustugjalda bæjarins (t.d. dvalar- eða leikskólagjalda) og lagt mat á hvort rétt sé að samræma þá innheimtu við sama verklag.
Lárus Jónsson

Bæjarráðsfulltrúar meirihluta S-lista og D-listans, ásamt bæjarstjóra, leggja sameiginlega fram eftirfarandi breytingatillögu:
Meirihluti bæjarráðs tekur undir að tilefni sé til að skoða kostnað sem fylgir núverandi greiðslufyrirkomulagi fasteignagjalda og annarra reglulegra gjalda sveitarfélagsins. Jafnframt er mikilvægt að horft sé til þeirra kosta sem fylgja núverandi fyrirkomulagi fyrir íbúa, svo sem þæginda og sjálfvirkni í greiðslum.
Meirihluti bæjarráðs leggur til að skrifstofustjóra verði falið að taka saman minnisblað um núverandi greiðslufyrirkomulag og kanna leiðir til að draga úr þeim kostnaði sem fylgir greiðslum með kreditkortum og öðrum greiðsluleiðum, án þess að skerða að óþörfu þá þjónustu og þægindi sem íbúar njóta í dag. Í minnisblaðinu verði m.a. gerð grein fyrir kostnaði við mismunandi greiðsluleiðir, umfangi notkunar þeirra, áhrifum þeirra á sjóðsstreymi og mögulegum leiðum til að lækka kostnað, svo sem með breyttum samningum, öðrum útfærslum greiðslulausna eða með því að beina íbúum að hagkvæmari greiðsluleiðum þar sem það á við. Jafnframt verði skoðað hvort sambærilegt fyrirkomulag sé við lýði vegna annarra reglulegra gjalda sveitarfélagsins og hvort þar séu tækifæri til hagræðingar. Minnisblaðið verði lagt fyrir bæjarráð þegar það liggur fyrir.
Birgitta Ragnarsdóttir
Sigmar Karlsson
Ingimar Guðmundson
Bæjarráð samþykkir samhljóða framangreinda breytingatillögu.

7.Fyrirspurn frá Okkar Hveragerði um fund með Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga
2609102
Lögð er fram eftirfarandi fyrirspurn frá Okkar Hveragerði, móttekin 14. september 2026.
Dagskrárliður: Upplýsingar og stöðuskýrsla vegna fundar með Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga þann 9. september 2026.
Greinargerð: Óskað er eftir stöðuskýrslu frá bæjarstjóra um fundinn með Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga sem fram fór þann 9. september sl. samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar, þar sem farið verði yfir helstu umræðuefni og niðurstöður fundarins.

Bæjarstjóri gerir grein fyrir umræðum á fundi með eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga og leggur fram minnisblað dags. 16. september 2026 þar sem nánar er gerð grein fyrir fundinum.
Bæjarráðsfulltrúi Okkar Hveragerðis leggur fram eftirfarandi bókun:
Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar samþykkti á fundi sínum þann 3. september sl. að senda fulltrúa á fund Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga sem fram fór miðvikudaginn 9. september sl.
Sérstaklega er ánægjulegt að fram hafi komið á fundinum með eftirlitsnefndinni að grunnrekstur Hveragerðisbæjar stendur vel undir sér. Þetta staðfestir það sem fulltrúar minnihlutans hafa margítrekað bent á: Vandamál bæjarsjóðs er ekki rekstrarlegur halli eða ósjálfbær grunnþjónusta, heldur tímabundinn lausafjárþrýstingur.
Sá lausafjárþrýstingur stafar fyrst og fremst af miklum fjárfestingum, töfum á framkvæmdum og ákvörðunum um frestun á tekjuöflun í gegnum gatnagerðargjöld og sölu byggingarréttar. Í ljósi skýrra skilaboða Eftirlitsnefndarinnar um traustan grunnrekstur á megináhersla bæjarráðs og bæjarstjórnar að vera á vandaðri fjárfestingarstýringu, forgangsröðun stærri verkefna og tafarlausu samtali um markvissa tekjuöflun.
Lárus Jónsson
Bæjarráðsfulltrúar meirihluta S-lista og D-listans, ásamt bæjarstjóra, leggja sameiginlega fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúar meirihlutans taka undir mikilvægi þess að tryggja ábyrga og vandaða fjárfestingarstýringu í rekstri sveitarfélagsins. Jafnframt er mikilvægt að fjárfestingar og uppbyggingarverkefni byggi á raunhæfum langtímaáætlunum þar sem tekið er mið af fjárhagslegu svigrúmi bæjarins, framkvæmdagetu og framtíðartekjum.
Meirihlutinn fagnar því góða samstarfi sem ríkt hefur um þessa nálgun innan bæjarstjórnar á undanförnum vikum, á meðan unnið hefur verið að því að bregðast við lausafjárstöðu sveitarfélagsins og þeim skilyrðum sem sett hafa verið af Lánasjóði sveitarfélaga. Mikilvægt er að sú samstaða haldi áfram við forgangsröðun verkefna, fjárfestinga og tekjuaflandi aðgerða til að tryggja trausta og sjálfbæra fjárhagsstöðu Hveragerðisbæjar til framtíðar.

8.Viðbygging Óskalands hlýtur verðlaun
2609065
Viðbyggingin við leikskólann Óskaland vann nýlega til verðlaunanna: The Prefab House of the Year 2026. Verðlaunin voru veitt fyrir besta verksmiðjuframleidda timburhúsið í flokknum besta opinbera byggingin.
Nánar er fjallað um þær byggingar sem hlutu verðlaun á slóðinni: https://woodhouse.ee/the-best-prefab-house-of-the-year-is-loodusmaja-taru-timber-facade/

Bæjarráð óskar öllum þeim sem komu að verkefninu til hamingju með þennan glæsilega árangur. Verðlaunin eru mikil viðurkenning fyrir hönnun og framkvæmd verkefnisins og ánægjulegt að sjá byggingu í Hveragerði hljóta slíka alþjóðlega athygli.
9.Drög að uppfærðri fjárfestingaáætlun fyrir árið 2026
2608143
Lögð eru fram drög að uppfærðri fjárfestingaráætlun fyrir árið 2026.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framlögð drög að uppfærðri fjárfestingaáætlun fyrir árið 2026 og að fela bæjarstjóra að senda samþykkt drög til Lánasjóðs sveitarfélaga.
10.Drög að uppfærðri þriggja ára rekstrar- og fjárfestingaáætlun
2608143
Lögð eru fram drög að uppfærðri þriggja ára rekstrar- og fjárfestingaáætlun, 2026-2029.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja drög að uppfærðri þriggja ára rekstrar- og fjárfestingaáætlun, 2026-2029, og að fela bæjarstjóra að senda samþykkt drög til Lánasjóðs sveitarfélaga.
11.Tillaga um aukafund bæjarstjórnar 22. september 2026
2609116
Lagt er fram minnisblað Ingimars Guðmundssonar, bæjarstjóra, dags. 14. september 2026, þar sem gerð er tillaga um aukafund bæjarstjórnar þann 22. september n.k.
Bæjarráð fagnar góðri samvinnu á vinnufundum bæjarstjórnar og starfsfólks undanfarið. Bæjarráð telur afrakstur vinnunnar vera mjög góðan sem skili sér í góðum rekstri sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að boða til aukafundar bæjarstjórnar þann 22. september n.k. og felur bæjarstjóra að boða fundinn.

12.Tillaga að breytingum á gjaldskrá fyrir byggingarréttargjöld
2609053
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að lækka byggingarréttargjöld á einbýlishúsalóðum í Hrauntungu niður í 20% af gatnagerðargjöldum og af óúthlutuðum lóðum í Hólmabrún niður í 15% af gatnagerðargjöldum.
13.Tillaga vegna úthlutunar á lóðum
2609119
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að úthluta eftirtöldum lóðum:
Einbýlishúsalóðir:
Tröllahraun 50, Tröllahraun 52, Tröllahraun 57, Tröllahraun 59, Tröllahraun 61, Tröllahraun 63, Tröllahraun 65, Tröllahraun 66, Tröllahraun 67, Tröllahraun 68, Tröllahraun 70, Tröllahraun 72, Tröllahraun 74, Tröllahraun 76 og Tröllahraun 78.
Parhúsalóðir:
Tröllahraun 21-23, Tröllahraun 25-27, Tröllahraun 26-28 og Tröllahraun 30-32.
Raðhúsalóðir:
Tröllahraun 1-7 og Tröllahraun 2-8.

14.Opnunartími Sundlaugarinnar Laugaskarði
2609118
Lagt er fram minnisblað Þorsteins Más Ragnarssonar, forstöðumanns Sundlaugarinnar Laugaskarði, dags. 14. september 2026, þar sem gerð er grein fyrir kostnaðarauka vegna aukins opnunartíma sundlaugarinnar sem ákveðinn var á fundi bæjarstjórnar þann 12. febrúar 2026 í kjölfar áskorunar frá ungmennaráði. Í ljósi fjárhagsstöðu Hvergerðisbæjar er ekki farið fram á gerð viðauka við fjárhagsáætlun vegna kostnaðaraukans heldur gerð tillaga um breytingar á opnunartíma.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu forstöðumanns Sundlaugarinnar í Laugaskarði sem fram kemur í framlögðu minnisblaði um breyttan opnunartíma sundlaugarinnar. Jafnframt verði opnunartími sundlaugarinnar tekinn til faglegar umfjöllunar í viðeigandi nefndum og ráðum sveitarfélagsins. Forstöðumanni sundlaugarinnar verði falið að vinna málið áfram með hliðsjón af áætlanagerð fyrir árið 2027. Í þeirri vinnu leggur bæjarráð til að skoðað verði hvort forsendur séu til staðar að endurskoða opnunartímann fyrir næsta ár.
15.Ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga
2608132
Lagt er fram minnisblað Ingimars Guðmundssonar, bæjarstjóra, dags. 14. september 2026, þar sem, í ljósi athugasemda við afgreiðslu bæjarráðs á fundi þann 10. september 2026 um að Hveragerðisbær myndi ekki greiða fyrir gistingu fulltrúa á fundinum, er lagt er til að bæjarráð endurskoði þá afstöðu.
Bæjarráð tekur undir það sem fram kemur í minnisblaði bæjarstjóra um að þátttaka kjörinna fulltrúa fyrir hönd sveitarfélagsins á vettvangi á borð við ársþing SASS sé frábrugðin mörgum öðrum fundum og ráðstefnum og að eðlilegt sé að sveitarfélagið standi undir nauðsynlegum gistikostnaði í slíkum tilvikum. Nú þegar hefur verið tekin afstaða til þess að greiða ekki fyrir gistingu fulltrúa á fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga í október n.k. í ljósi fjárhagsstöðu sveitarfélagsins nú. Bæjarráð samþykkir að Hveragerðisbær greiði fyrir gistingu þeirra fulltrúa sem sækja ársþing SASS af hálfu sveitarfélagsins.
16.Fundagerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
2602011
Lögð er fram fundargerð 1001. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 28. ágúst 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
Fundargerðin upp lesin og samþykkt.
Fundi slitið - kl. 10:34.
Getum við bætt efni síðunnar?