Bæjarráð
Dagskrá
1.Boð á ársþing Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga
2608132
Lagt er fram bréf frá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, dags. 24. ágúst 2026, þar sem boðað er til ársþings samtakanna sem verður haldið dagana 29. og 30. október 2026 á Hvolsvelli.
Fulltrúar Hveragerðisbæjar á fundinum verða: María Rún Þorsteinsdóttir, Sigmar Karlsson, Birgitta Ragnarsdóttir, Lárus Jónsson, Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir og Marta Rut Ólafsdóttir. Í ljósi fjárhagsstöðu Hveragerðisbæjar mun sveitarfélagið ekki greiða gistingu fyrir fulltrúana.
2.Umsagnarbeiðni um tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna Bjórhátíðar Ölverks
2608138
Lagt er fram erindi frá sýslumanninum á Suðurlandi, dags. 25. ágúst 2026, ásamt fylgiskjölum, þar sem óskað er eftir umsögn um útgáfu tækifærisleyfis til áfengisveitinga vegna Bjórhátíðar Ölverks sem fyrirhugað er að halda að Þelamörk 29, Hveragerði, dagana 2. og 3. október 2026.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að leyfi verði veitt.
3.Umsagnarbeiðni vegna Mosfellsheiðarvirkjana I og II
2608141
Lagt er fram bréf frá faghópi 3 í rammaáætlun, dags. 25. ágúst 2026, þar er óskað eftir almennri umsögn varðandi virkjunarhugmyndirnar Mofellsheiðarvirkjun I og II enda myndi Hveragerðisbær lenda innan áhrifasvæðis virkjananna.
Bæjarráð Hveragerðisbæjar hefur farið yfir erindi faghóps 3 í rammaáætlun, dags. 25. ágúst 2026, þar sem óskað er eftir almennri umsögn sveitarfélagsins um virkjunarhugmyndirnar Mosfellsheiðarvirkjun I og II vegna mats á samfélagsáhrifum þeirra.
Hveragerðisbær gerir athugasemdir við fyrirliggjandi virkjunarhugmyndir. Að mati bæjarins liggur ekki fyrir nægilega skýr mynd af þeim samfélagslegu, sjónrænu og efnahagslegu áhrifum sem umfangsmikil vindorkuver á Mosfellsheiði kunna að hafa á Hveragerði, íbúa sveitarfélagsins og þá ferðaþjónustu og útivist sem byggir á sérstöðu svæðisins.
Bæjarráð bendir á að óljóst sé hvaða beini efnahagslegi ávinningur muni falla til Hveragerðisbæjar vegna framkvæmdarinnar. Á sama tíma geta möguleg áhrif á ásýnd landslags, ímynd svæðisins, ferðaþjónustu og útivist haft áhrif á atvinnulíf og samfélag í sveitarfélaginu. Nauðsynlegt er að þessir þættir verði metnir sérstaklega og með heildstæðum hætti.
Bæjarráð leggur sérstaka áherslu á að við áframhaldandi mat verði farið ítarlega yfir áhrif framkvæmdarinnar á útivistarsvæði, landslag og ferðaþjónustu á Suðurlandi. Hveragerði byggir að verulegu leyti á nálægð við fjölbreytta náttúru og vinsæl útivistarsvæði og telur bæjarráð mikilvægt að varðveita ásýnd heiðalandsins sem eitt af verðmætum svæðisins.
Jafnframt leggur bæjarráð áherslu á að endanleg ákvörðun um framgang verkefnisins byggist á vönduðu og heildstæðu mati á umhverfislegum, samfélagslegum og efnahagslegum áhrifum þess, ásamt virku og gagnsæju samráði við íbúa og sveitarfélög innan áhrifasvæðis virkjunarinnar.
Bæjarráð telur einnig mikilvægt að Hveragerðisbær fái ítarlega kynningu á þeim greiningum og mati sem unnið verður vegna verkefnisins, þar á meðal á mögulegum áhrifum þess á sveitarfélagið, íbúa og atvinnulíf.
Með hliðsjón af framangreindu telur bæjarráð að fyrirliggjandi gögn sýni ekki með fullnægjandi hætti hver áhrif Mosfellsheiðarvirkjana I og II verða á nágrannasveitarfélög. Þá ríkir enn óvissa um mikilvægar forsendur verkefnisins, meðal annars varðandi framtíðarfyrirkomulag tekjuöflunar sveitarfélaga vegna orkumannvirkja og endanlega útfærslu lagaumhverfis. Bæjarráð telur því ekki tímabært að taka afstöðu með eða á móti virkjunarhugmyndinni á þessu stigi en leggur áherslu á að framangreind sjónarmið verði höfð til hliðsjónar við áframhaldandi vinnu og mat verkefnisins.

4.Boð á landsfund um jafnréttismál sveitarfélaga
2608147
Lagt er fram bréf frá Jafnréttisstofu, móttekið 27. ágúst 2026, þar sem er boðað til árlegs fundar um jafnréttismál sveitarfélaga sem haldinn verður þann 17. september 2026 á Múlabergi, Akureyri.
Eftir að fundarboð var sent komu fram upplýsingar um að fundi Jafnréttisstofu hefði verið aflýst.
5.Beiðni um styrk í SÍBS blaðið
2609003
Lagt er fram bréf frá SÍBS, móttekið 1. september 2026, þar sem óskað er eftir styrk til forvarnarstarfs í formi kaupa á auglýsingu í SÍBS-blaðið.
Því miður sér bæjarráð sér ekki fært að verða við beiðninni að þessu sinni.
6.Beiðni um framlag í Vísinda- og rannsóknarsjóð Suðurlands
2608118
Lagt er fram bréf frá Háskólafélagi Suðurlands, dags. 21. ágúst 2026, þar sem óskað er eftir áframhaldandi styrk til Vísinda- og rannsóknarsjóð Suðurlands.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að halda áfram stuðningi við Vísinda- og rannsóknarsjóð Suðurlands í samræmi við fyrirliggjandi beiðni og fela bæjarstjóra að undirrita samning þess efnis.
7.Beiðni til bæjarstjórnar um niðurfellingu fasteignagjalda
2605019
Eftirtalin skjöl eru lögð fram:
Bréf til bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar, dags. 30. apríl 2026, frá Lindu Sif Brynjarsdóttur og Einari Sigurðssyni, þar sem lögð er fram beiðni um niðurfellingu fasteignagjalda vegna eignarinnar Laufskóga 19 þar sem jarðhiti hefur valdið skemmdum á fasteigninni.
Minnisblað Steinunnar Erlu Kolbeinsdóttur, bæjarritara, dags. 7. september 2026.
Málið var tekið fyrir í bæjarráði þann 7. maí s.l. þar sem eftirfarandi var bókað: Bæjarráð telur skilgreiningu náttúruhamfara í 2. gr. reglugerðar um Náttúruhamfaratryggingu Íslands nr. 770/2023 vera ófullnægjandi þar sem jarðhiti virðist ekki falla undir skilgreininguna og felur bæjarstjóra að senda Sambandi íslenskra sveitarfélaga og fjármála- og efnahagsráðherra erindi vegna þessa. Þá leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að fela bæjarstjóra að afla upplýsinga um hvort lagaheimildir séu til staðar fyrir niðurfellingar á fasteignagjöldum.
Málið var tekið fyrir hjá bæjarstjórn þann 12. maí s.l. þar sem eftirfarandi var bókað: Bæjarstjórn samþykkti samhljóða að fela bæjarstjóra að afla upplýsinga um hvort lagaheimildir séu til staðar fyrir niðurfellingar á fasteignagjöldum.

Bæjarráð hefur farið yfir fyrirliggjandi gögn og þær upplýsingar sem aflað hefur verið í samræmi við samþykkt bæjarstjórnar frá 12. maí 2026. Samkvæmt fyrirliggjandi lögfræðilegu mati og ákvæðum laga um tekjustofna sveitarfélaga eru ekki fyrir hendi skýrar lagaheimildir sem gera sveitarfélaginu kleift að fella niður álögð fasteignagjöld í því tilviki sem hér um ræðir.
Bæjarráð lýsir jafnframt skilningi á þeirri erfiðu stöðu sem eigendur fasteignarinnar standa frammi fyrir.
Með vísan til framangreinds leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að beiðni um niðurfellingu fasteignagjalda verði hafnað.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að senda fjármála- og efnahagsráðherra og Sambandi íslenskra sveitarfélaga erindi þar sem vakin er athygli á því að tjón af völdum jarðhita virðist falla utan skilgreiningar náttúruhamfara samkvæmt gildandi regluverki, og óska eftir því að málið verði tekið til skoðunar.

8.Kynning frá Veðurstofu Íslands á skýrslum um hraunvá
2604099
Eftirtalin skjöl eru lögð fram:
Skýrsla Veðurstofu Íslands um hraunvá á Reykjanesskaga - Langtímahættumat, dags. apríl 2026.
Skýrsla Veðurstofu Íslands um hraunvá á höfuðborgarsvæðinu - Langtímahættumat, dags. apríl 2026.
Kynning frá sérfræðingunum Gro Birkefeldt Moller Pedersen, Ástu Rut Hjartardóttur og Bergrúnu Örnu Óladóttur hjá Veðurstofu Íslands á skýrslum um hraunvá.

Bæjarráð þakkar fulltrúum Veðurstofu Íslands fyrir greinargóða kynningu.
9.Upplýsingar um næstu skref vegna stöðu fjármála
2608143
Á fundi bæjarstjórnar 3. september sl. samþykkti bæjarstjórn að fela bæjarstjóra og sviðsstjórum að halda áfram vinnu við endurmat á tekjuforsendum sveitarfélagsins, yfirferð fjárfestingaverkefna og gerð uppfærðrar rekstrar- og fjárfestingaráætlunar sveitarfélagsins. Bæjarráð fær upplýsingar um stöðu vinnunnar og aðgang að þeim vinnugögnum sem liggja fyrir.
Vinnugögn lögð fram til kynningar.
10.Samanburður byggingarréttargjalda
2609053
Lagt er fram minnisblað Jóns Friðriks Matthíassonar, sviðsstjóra tækni-og umhverfissviðs, með samanburði álagðra byggingarréttargjalda í Hveragerði, Árborg, Ölfusi og Mosfellsbæ.
Jón Friðrik Matthíasson, sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs, kemur inn á fundinn og kynnir efni minnisblaðsins.

Bæjarráð þakkar sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs fyrir kynninguna.
11.Verkstaða vegna gatnagerðar í Hrauntungu og Tröllahrauni
2602049
Lagt er fram minnisblað, dags. 1. september 2026, um verkstöðu gatnagerðar í Hrauntungu og Tröllahrauni.
Minnisblaðið er lagt fram til kynningar.
Bæjarráð tekur jákvætt í þær breytingar sem nú eru lagðar til á framkvæmdum við Hrauntungu og Tröllahraun og telur þær til marks um að tekið sé tillit til fjárhagsstöðu sveitarfélagsins. Jákvætt er að leitað sé hagkvæmari lausna og þeim verkþáttum sem ekki eru brýnir frestað þar sem því verður við komið.
Sem dæmi má nefna breytta útfærslu á miðeyju hringtorgsins, sem áætlað er að skili 6,8 m.kr. sparnaði.
Bæjarráð leggur áherslu á að þessi nálgun verði höfð að leiðarljósi áfram og að framkvæmdum verði forgangsraðað með hliðsjón af fjárhagsstöðu sveitarfélagsins.

12.Verkstaða vegna jarðvinnu við íþróttahús
2603009
Lagt er fram minnisblað, dags. 3. september 2026, um verkstöðu jarðvinnuframkvæmda við íþróttahúsið að Skólamörk 2.
Minnisblaðið er lagt fram til kynningar.
Fulltrúar D-listans og S-listans leggja sameiginlega fram eftirfarandi bókun:
Meirihluti bæjarstjórnar lýsir yfir áhyggjum af kostnaðarþróun við jarðvinnu vegna stækkunar íþróttahússins. Upphaflegt tilboð í verkhlutann hljóðaði upp á 77,7 m.kr., en miðað við framlagðar upplýsingar er uppsöfnuð kostnaðarstaða komin í 147,4 m.kr., eða um 90% umfram upphaflegt tilboð. Áætlaður kostnaður við eftirstandandi verk og óvissu nemur þar að auki 24 m.kr.
Eins og kemur fram í minnisblaði Verkís má rekja aukinn kostnað til umfangsmeiri jarðvinnu en gert var ráð fyrir, breytingar á hönnun og forsendum framkvæmda auk viðbótarverka sem bættust við framkvæmdina.
Engu að síður verður ekki horft fram hjá því að kostnaður við verkhlutann hefur aukist verulega frá upphaflegum áætlunum. Meirihlutinn telur mikilvægt að draga lærdóm af þessari reynslu og nýta til að styrkja undirbúning framkvæmda, gera kostnaðaráætlanir raunhæfari og auka fyrirsjáanleika í framkvæmd stórra fjárfestingarverkefna sveitarfélagsins.
Birgitta Ragnarsdóttir
María Rún Þorsteinsdóttir
Ingimar Guðmundsson

13.Verkstaða gervigras - frágangur yfirborðs og lagna
2609054
Lagðar eru fram upplýsingar um verkstöðu á frágangi yfirborðs og lagna á gervigrasvelli, dags. 3. september 2026.
Upplýsingarnar eru lagðar fram til kynningar.
14.Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa
2608004F
Lögð er fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa frá 18. ágúst 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
15.Verkfundargerðir - Íþróttahús við Skólamörk 2 - 1. áfangi
2603009
Lagðar eru fram verkfundargerðir frá 20. ágúst 2026 og 3. september 2026, vegna byggingar 1. áfanga íþróttahúss.
Fundargerðirnar eru lagðar fram til kynningar.
16.Verkfundargerðir Hrauntunga - Tröllahraun
2602049
Lagðar er fram verkfundagerðir frá 20. ágúst 2026 og 3. september 2026 vegna gatnagerðar í Hrauntungu og Tröllahrauni.
Fundargerðirnar eru lagðar fram til kynningar.
17.Fundagerð stjórnar Brunavarna Árnessýslu bs.
2604017
Lögð er fram fundargerð Brunavarna Árnessýslu bs. frá 18. ágúst 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
18.Fundargerð stjórnar Byggðasafns Árnesinga bs.
2602003
Lögð er fram fundargerð stjórnar Byggðasafns Árnesinga bs. frá 20. ágúst 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
19.Fundargerð stjornar Tónlistarskóla Árnesinga bs.
2608139
Lögð er fram fundargerð stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga bs. frá 25. ágúst 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
20.Umsagnarbeiðni vegna veitingaleyfis fyrir Reykjaböðin
2609060
Lögð er fram umsagnarbeiðni sýslumannsins á Suðurlandi vegna útgáfu veitingaleyfis, dags. 7. september 2026, auk fylgigagna (málsnúmer 2026-055349). Sýslumaðurinn á Suðurlandi óskar eftir umsögn Hveragerðisbæjar vegna umsóknar Reykjabaða Hot Springs ehf., kt. 571125-1020, um leyfi til reksturs - Veitingaleyfi í flokki II-C Veitingastofa og greiðasala vegna baðlóns.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að leyfi verði veitt.
Fundi slitið - kl. 11:30.
Getum við bætt efni síðunnar?
Formaður bæjarráðs ber upp tillögu um að taka mál er varðar umsagnarbeiðni frá sýslumanninum á Suðurlandi (málsnr. 2026-055349) á dagskrá fundarins. Bæjarráð samþykkir samhljóða að taka málið á dagskrá (fundarliður 20).