Fara í efni

Bæjarráð

891. fundur 13. ágúst 2026 kl. 08:30 - 11:35 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Birgitta Ragnarsdóttir formaður
  • Sigmar Karlsson varaformaður
  • Lárus Jónsson aðalmaður
  • Marta Rut Ólafsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Steinunn Erla Kolbeinsdóttir bæjarritari
  • Ingimar Guðmundsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Steinunn Erla Kolbeinsdóttir bæjarritari
Dagskrá
Formaður bæjarráðs, Birgitta Ragnarsdóttir, setur fundinn og stjórnar honum. Hún leitar eftir athugasemdum við fundarboð en engar koma fram.

Formaður bæjarráðs ber upp tillögu um að taka mál er varðar umsagnarbeiðni frá sýslumanninum á Suðurlandi (málsnr. 2026-048227) á dagskrá fundarins. Bæjarráð samþykkir samhljóða að taka málið á dagskrá (fundarliður 24).

1.Umsagnarbeiðni um tækifærisleyfi til áfengisveitinga á blómaballi

2607081

Lagt er fram erindi frá sýslumanninum á Suðurlandi, dags. 21. júlí 2026, ásamt fylgiskjölum, þar sem óskað er eftir umsögn um útgáfu tækifærisleyfis til áfengisveitinga á blómaballi á bæjarhátíðinni blómstrandi dögum þann 16. ágúst 2026.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins.

2.Umsagnarbeiðni um tækifærisleyfi til áfengisveitinga á tónleikum á Blómstrandi dögum

2607096

Lagt er fram erindi frá sýslumanninum á Suðurlandi, dags. 28. júlí 2026, ásamt fylgiskjölum, þar sem óskað er eftir umsögn um útgáfu tækifærisleyfis til áfengisveitinga á tónleikum á bæjarhátíðinni Blómstrandi dögum þann 15. ágúst 2026.
Bæjarráð gerir eftirfarandi athugasemdir við útgáfu leyfisins:
Um er að ræða tónleika á bæjarhátíð og sú aldursdreifing sem er tilgreind í umsókn gefur ekki rétta mynd af raunverulegri aldursdreifingu á tónleikunum. Tónleikarnir fara fram á opnu svæði og eru tónleikarnir opnir öllum, bæði börnum og fullorðnum. Þá kann að vera að börn verði á tónleikunum án forráðamanna enda fara þeir fram á útivistartíma barna.

3.Bréf frá umboðsmanni barna

2607091

Lagt er fram bréf frá umboðsmanni barna, dags. 3. júlí 2026, þar sem óskað er eftir upplýsingum um biðtíma barna eftir frumgreiningu á ADHD og einhverfu og biðtíma eftir þjónustu hjá Hveragerðisbæ.
Bæjarráð felur sviðsstjóra mennta-, menningar- og lýðheilsusviðs að taka saman umbeðnar upplýsingar og koma til umboðsmanns barna og kynna jafnframt í skólanefnd.

4.Stækkun skólphreinsistöðvar - ákvörðun um matsskyldu

2506004

Lögð er fram ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 30. júlí 2026, um matsskyldu fyrirhugaðrar stækkunar skólphreinsistöðvar Hveragerðisbæjar úr 4.400 í 10.000 persónueiningar. Samkvæmt ákvörðun stofnunarinnar er stækkunin ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar er lögð fram til kynningar.

5.Beiðni um styrk vegna Genuine cup

2607048

Lögð er fram beiðni um styrk frá Stjörnunni og Öspinni vegna farar á Genuine cup í Bandaríkjunum.
Því miður sér bæjarráð sér ekki fært að verða við beiðninni að þessu sinni.

6.Beiðni um niðurfellingu á fasteignaskatti og fráveitugjaldi

2608033

Eftirtalin skjöl eru lögð fram:

Beiðni um niðurfellingu á fasteignaskatti og fráveitugjaldi af eigninni Smyrlaheiði 42.

Yfirlit úr fasteignaskrá fyrir Smyrlaheiði 42.



Í bréfinu óska erfingjar dánarbús eftir því að fasteignaskattur og fráveitugjald verði felldur niður af Smyrlaheiði 42 enda eigi viðkomandi dánarbú sem er skráður eigandi fasteignarinnar ekki fjármuni til þess að standa straum af gjöldunum.

Fasteignaskattur og lögbundin þjónustugjöld leggjast á fasteign óháð því hvort hún er í notkun eða stendur auð og hefur sveitarfélagið enga lagaheimild til þess að verða við beiðninni miðað við þær forsendur sem fram koma í erindinu. Bæjarráð hafnar því beiðninni en bendir á að unnt sé að óska eftir greiðslufresti eða sérstakri greiðslutilhögun hjá fjármáladeild sveitarfélagsins.

7.Relations II Female ósk um samstarf

2608035

Lagt er fram erindi til Hveragerðisbæjar, móttekið 29. júlí 2026, auk fylgiskjala. Erindið varðar alþjóðlega listaverkefnið Relations II Female sem opnað verður í Listasafni Árnesinga í Hveragerði í september n.k.
Bæjarráð tekur vel í erindið og felur menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúa að forma samstarf sem rúmast innan fjárhagsáætlunar. Jafnframt fagnar bæjarráð þessu alþjóðlega listaverkefni og vonast eftir farsælu samstarfi í tengslum við það.

8.Erindi frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands

2608036

Eftirtalin skjöl eru lögð fram:

Erindi frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, dags. 27. júlí 2026.

Drög að breytingu á samþykkt um byggðasamlag um mögulegt framhald samstarfs sveitarfélaga á Suðurlandi eftir 1. janúar 2027.

Drög að uppfærðri samþykkt um vatnsverndarsvæði á Suðurlandi.

Drög að samþykkt um umgengni og þrifnað á lóðum og lendum.

Glærur Umhverfis- og orkustofnunar með yfirliti yfir verkefni sveitarfélaga eftir 1. janúar 2027.

Erindið og fylgiskjöl eru lögð fram til kynningar.

Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar hjá skipulags- og umhverfisnefnd.

Á fundi bæjarráðs, 9. júlí 2026, var sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs og umhverfisfulltrúa falið að hefja undirbúning vegna þeirra breytinga sem taka gildi um næstu áramót þegar Stofnun atvinnuveganna tekur við stórum hluta verkefna Heilbrigðiseftirlits Suðurlands bs. Fela verkefnin í sér að meta áhrif breytinganna á Hveragerðisbæ og eiga viðræður við nágrannasveitarfélög um mögulegt samstarf. Fyrirliggjandi gögn verða hluti af þeirri vinnu og er óskað eftir tillögum að mögulegum útfærslum í október.

9.Ársskýrsla Íþróttafélagsins Hamars

2606128

Lögð er fram ársskýrsla Íþróttafélagsins Hamars vegna ársins 2025. Guðjóna Björk Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri, og Dagrún Ösp Össurardóttir, varaformaður, koma á fund bæjarráðs og kynna ársskýrsluna.

Elfa Birkisdóttir, sviðsstjóri mennta-, menningar og lýðheilsusviðs, kemur inn á fundinn undir þessum fundarlið.
Bæjarráð þakka fulltrúum Íþróttafélagsins Hamars fyrir kynninguna.

10.Minnisblað vegna ástands leikvalla í Hveragerði

2408494

Lagt er fram minnisblað Árnýjar G. Guðfinnsdóttur, garðyrkjustjóra og Höskuldar Þorbjarnarsonar, umhverfisfulltrúa, dags. 15. júlí 2026 vegna ástands leikvalla í Hveragerði.
Bæjarráð þakkar fyrir framlagt minnisblað um stöðu leikvalla Hveragerðisbæjar.
Bæjarráð felur umhverfisfulltrúa og garðyrkjustjóra að vinna minnisblaðið frekar, þarfagreina og kostnaðarmeta einstök verkefni og leggja til forgangsröðun þeirra með hliðsjón af öryggiskröfum, ástandi mannvirkja og þörfum notenda. Markmið vinnunnar er að skapa grundvöll fyrir ákvarðanatöku og forgangsröðun verkefna við gerð fjárhagsáætlunar næstu ára. Þegar framangreint liggur fyrir skulu þær upplýsingar lagðar fyrir bæjarráð og skipulags- og umhverfisnefnd.

11.Tillaga frá Okkar Hveragerði vegna fyrirhugaðra skerðinga á landsbyggðarstrætó

2606090

Lögð er fram eftirfarandi tillaga frá Okkar Hveragerði um gagnaöflun og mótvægisaðgerðir vegna fyrirhugaðra skerðinga á landsbyggðarstrætó.



Efni: Formleg gagnaósk og krafa um mótvægisaðgerðir vegna fyrirhugaðra skerðinga á landsbyggðarstrætó (Leið 51).



Tillaga: Bæjarráð Hveragerðisbæjar samþykkir að fela bæjarstjóra að koma eftirfarandi gagnaóskum og kröfum formlega á framfæri við innviðaráðuneytið og Vegagerðina vegna boðaðra þjónustuskerðinga á landsbyggðarstrætó haustið 2026:



Gagnaósk um sértækan niðurskurð: Kallað verði eftir skriflegum rökstuðningi og gögnum um ákvörðun innviðaráðuneytisins um að beina fyrirhuguðum niðurskurði á landsbyggðarstrætó sértækt að Suðurlandi í stað þess að dreifa honum á landsvísu.



Krafa um beinar ferðir á BSÍ (Leið 51): Þess verði krafist að Vegagerðin greini og meti rekstrarlegan og tæknilegan möguleika þess að ákveðnar ferðir á álagstímum (morgun- og síðdegisferðir) á Leið 51 gangi alla leið á BSÍ í Reykjavík í stað þess að enda í Mjódd, og að miðað verði við að sú breyting geti tekið gildi samhliða upphafi skólaársins í haust.



Samanburður við aðrar landsbyggðarleiðir: Óskað verði eftir samanburðargögnum frá Vegagerðinni á þjónustustigi, kostnaði og tæknilegum forsendum á milli Leiðar 51 (Suðurland) og Leiðar 55 (Reykjanesbraut), sem ekur beint á BSÍ.



Greining á umferðartöfum og ferðatíma: Óskað verði eftir fyrirliggjandi greiningum Vegagerðarinnar á umferðartöfum á Hringbraut á álagstímum, ásamt heildarmati á þjónustustigi þar sem borið er saman tapið á vagnaskiptum í Mjódd á móti nýtanlegum vinnu- og námstíma í beinum vagni sem fer beint á BSÍ.



Greinargerð:

Á fundi bæjarráðs þann 16. júlí síðastliðinn kom fram hjá fulltrúa Vegagerðarinnar að fyrirhugaðar skerðingar á Suðurlandi byggja á ákvörðun innviðaráðuneytisins. Bæjarráð hefur þegar lýst yfir miklum áhyggjum af áhrifum þessara skerðinga á skólasókn, atvinnulíf og aðgengi að heilbrigðisþjónustu.



Til að tryggja að hagsmuna íbúa Hveragerðis sé gætt af fullri festu í viðræðum við stjórnvöld er nauðsynlegt að Hveragerðisbær komi fram með skýrt umboð og krefjist þess að horft verði til mótvægisaðgerða.



Með því að færa ferðir á álagstímum alla leið á BSÍ væri stórbætt aðgengi íbúa að Landspítalanum við Hringbraut, Háskóla Íslands og miðborginni. Fyrir eldri borgara, fólk með skerta hreyfigetu og námsmenn eru flókin vagnaskipti og bið í Mjódd veruleg þjónustuskerðing. Þá sýnir reynslan af Leið 55 frá Reykjanesbæ að beinn akstur á BSÍ er framkvæmanlegur og eykur nýtingu á almenningssamgöngum til muna.



Það er lágmarkskrafa að stjórnvöld leggi fram heildstæð gögn um forsendur þessa niðurskurðar og meti af alvöru þá valkosti sem bæta þjónustuna fyrir íbúa Suðurlands.
Bæjarráð tekur undir mikilvægi þess að fyrir liggi skýrar upplýsingar um áhrif fyrirhugaðra breytinga á almenningssamgöngum fyrir íbúa Hveragerðisbæjar. Bæjarstjóra er falið að koma framangreindum sjónarmiðum og fyrirspurnum fulltrúa Okkar Hveragerðis á framfæri við Vegagerðina og Innviðaráðuneytið og óska eftir þeim upplýsingum sem þegar kunna að liggja fyrir hjá viðkomandi stjórnvöldum.

12.Yfirdráttur hjá Arion banka

2608021

Lagt er fram minnisblað Steinunnar Erlu Kolbeinsdóttur, bæjarritara og sviðsstjóra stjórnsýslusviðs, dags. 10. ágúst 2026, þar sem lagt er til að yfirdráttarheimild Hveragerðisbæjar verði aukin um 200 milljónir króna.
Bæjarráð samþykkir hækkun yfirdráttarheimildar Hveragerðisbæjar um 200 milljónir króna, úr 220 milljónum króna í 420 milljónir króna. Hækkunin er til komin vegna tímabundinnar lausafjárþarfar þar sem tekjur af byggingarrétti og gatnagerðargjöldum, sem gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun ársins, hafa ekki skilað sér samkvæmt áætlun. Bæjarstjóra er falið að ganga frá nauðsynlegum skjölum og samningum vegna málsins.

13.Þróunarverkefni um samþætta heimaþjónustu - "Gott að eldast"

2505158

Lagður er fram samningur Hveragerðibæjar, Heilbrigðisstofnunar Suðurlands og Áss hjúkrunarheimilis um heimastuðning við íbúa 60 plús í Hveragerðibæ.

Kolbrún Tanja Eggertsdóttir, verkefnastjóri og Erna Harðar Solveigardóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs, kynna stöðu verkefnisins.
Bæjarráð þakkar fyrir kynninguna og felur verkefnastjóra og sviðsstjóra velferðarsviðs að gera tillögur um framtíðarskipan verkefnisins og leggja fyrir bæjarstjórn.

14.Tillaga D-lista og S-lista um greiningu á gjaldtöku og skilmálum vegna uppbyggingar

2608032

Lögð er fram eftirfarandi tillaga frá D-lista og S-lista um greiningu á gjaldtöku og skilmálum vegna uppbyggingar.



Tillaga um greiningu á gjaldtöku og skilmálum vegna uppbyggingar

Lagt er til að fram fari heildstæð greining á gjaldtöku Hveragerðisbæjar vegna lóðaúthlutana og byggingarframkvæmda.



Tillagan felur í sér að bæjarstjóra og sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs verði falið að yfirfara kostnað vegna lóðaúthlutana, fyrirkomulag gatnagerðargjalda, byggingarréttargjalda og greiðsluskilmála þeirra vegna íbúðar- og atvinnuhúsnæðis í sveitarfélaginu. Jafnframt verði gerður samanburður við sambærileg sveitarfélög og lagðir fram valkostir sem geta stutt við aukna uppbyggingu og samkeppnishæfni sveitarfélagsins, ásamt mati á áhrifum þeirra á rekstur og fjárhag bæjarins. Niðurstöður greiningarinnar verði lagðar fyrir bæjarráð eigi síðar en í desember 2026.



Greinargerð

Mikilvægt er að Hveragerðisbær búi við gjaldskrá vegna lóða og byggingarframkvæmda sem styður við uppbyggingu, eflir samkeppnishæfni sveitarfélagsins og tekur mið af markaðsaðstæðum og langtímahagsmunum bæjarbúa.



Á síðustu misserum hafa ýmis sveitarfélög endurskoðað gjaldskrár, gjaldtöku og greiðsluskilmála vegna uppbyggingar í því skyni að auðvelda framkvæmdir og skapa hagstæðari skilyrði fyrir fjárfestingu og uppbyggingu. Slíkar breytingar geta haft áhrif á tímasetningar framkvæmda, framboð húsnæðis og nýsköpun í atvinnulífi en jafnframt haft áhrif á tekjur sveitarfélaga og fjármögnun innviða.



Mikilvægt er að ákvarðanir um mögulegar breytingar byggist á faglegri greiningu og samanburði við önnur sveitarfélög. Með þessari tillögu er því kallað eftir heildstæðu mati á því hvort núverandi fyrirkomulag þjóni markmiðum Hveragerðisbæjar um uppbyggingu, fjölgun íbúa, styrkingu atvinnulífs og ábyrga fjármálastjórn. Greiningin mun skapa traustari grundvöll fyrir umræðu og ákvarðanatöku um mögulegar breytingar á gjaldtöku og greiðsluskilmálum á komandi misserum.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela bæjarstjóra og sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs að yfirfara kostnað vegna lóðaúthlutana, fyrirkomulag gatnagerðargjalda, byggingarréttargjalda og greiðsluskilmála þeirra vegna íbúðar- og atvinnuhúsnæðis í sveitarfélaginu. Jafnframt að gerður verði samanburður við sambærileg sveitarfélög og lagðir fram valkostir sem geta stutt við aukna uppbyggingu og samkeppnishæfni sveitarfélagsins, ásamt mati á áhrifum þeirra á rekstur og fjárhag bæjarins. Niðurstöður greiningarinnar skulu lagðar fyrir bæjarráð eins fljótt og verða má, þannig að þær nýtist fyrir fjárhagsáætlunargerð.

15.Tillaga D-lista og S-lista um endurskoðun samþykktar og gjaldskrár um götu- og torgsölu í Hveragerðisbæ

2608031

Lögð er fram eftirfarandi tillaga frá D-lista og S-lista um endurskoðun samþykktar og gjaldskrár um götu- og torgsölu í Hveragerðibæ.



Tillaga um endurskoðun samþykktar og gjaldskrár um götu- og torgsölu í Hveragerðisbæ

Lagt er til að hafin verði endurskoðun samþykktar og gjaldskrár um götu- og torgsölu í Hveragerðisbæ.



Tillagan felur í sér að farið verði yfir ákvæði samþykktarinnar í heild með það að markmiði að tryggja að hún endurspegli núverandi aðstæður, skipulag, starfsemi og stefnu sveitarfélagsins. Sérstaklega verði skoðað hvort skilgreiningar á sölusvæðum, málsmeðferð, heimildir og gjaldtaka samræmist núverandi skipulagi bæjarins og þörfum atvinnulífs, íbúa og gesta.



Lagt er til að bæjarstjóra verði falið, í samstarfi við sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs og viðeigandi starfsmenn stjórnsýslunnar, að vinna málið áfram og leggja fram tillögur að endurskoðaðri samþykkt og gjaldskrá fyrir bæjarráð.



Greinargerð

Samþykkt og gjaldskrá um götu- og torgsölu í Hveragerðisbæ var samþykkt árið 2020 og hefur verið í gildi undanfarin ár. Eðlilegt er að reglur af þessu tagi sæti reglubundinni endurskoðun til að tryggja að þær taki mið af þróun sveitarfélagsins, breyttum aðstæðum og reynslu af framkvæmd þeirra.



Frá gildistöku samþykktarinnar hafa orðið ýmsar breytingar á skipulagi svæða sem þar eru nefnd og á starfsemi bæjarins. Jafnframt hefur reynsla fengist af framkvæmd leyfisveitinga og afgreiðslu mála samkvæmt samþykktinni sem gefur tilefni til að meta hvort einstök ákvæði þurfi að skýrast eða taka breytingum.



Mikilvægt er að regluverk um götu- og torgsölu sé skýrt, einfalt í framkvæmd og styðji við samræmda og gagnsæja afgreiðslu mála. Jafnframt þarf það að skapa skýran grundvöll fyrir ákvarðanatöku stjórnvalda og tryggja jafnræði þeirra sem sækja um leyfi til starfsemi á almannafæri.



Með endurskoðun samþykktarinnar gefst tækifæri til að samræma reglurnar betur núverandi skipulagi sveitarfélagsins, styðja við lifandi bæjarbrag og atvinnustarfsemi og tryggja að stjórnsýsla málaflokksins verði skilvirk og fyrirsjáanleg.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela bæjarstjóra, í samstarfi við sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs og eftir atvikum aðra starfsmenn, að vinna málið áfram og leggja fram tillögur að endurskoðaðri samþykkt og gjaldskrá fyrir bæjarráð.

16.Tillaga D-lista og S-lista um endurvakningu byggingarnefndar vegna uppbyggingar íþróttamannvirkja

2608030

Lögð er fram eftirfarandi tillaga frá D-lista og S-lista um endurvakningu byggingarnefndar vegna uppbyggingar íþróttamannvirkja.



Tillaga um endurvakningu byggingarnefndar vegna uppbyggingar íþróttamannvirkja

Lagt er til að byggingarnefnd vegna uppbyggingar íþróttamannvirkja í Hveragerði verði endurvakin.

Tillagan felur í sér að skipuð verði byggingarnefnd með:



tveimur fulltrúum meirihlutans ásamt varamönnum,

einum fulltrúa minnihlutans ásamt varamanni,

fulltrúum stjórnsýslu Hveragerðisbæjar,

fulltrúum íþróttafélagsins og annara helstu hagsmunaaðila verkefnisins.



Hlutverk nefndarinnar verði að stuðla að virku samráði, miðlun upplýsinga og sameiginlegri yfirferð á framvindu verkefnisins á undirbúnings- og framkvæmdatíma.

Lagt er til að sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs verði falið, í samstarfi við sviðsstjóra stjórnsýslusviðs, að vinna málið áfram og leggja fram tillögu að skipulagi og verklagi byggingarnefndar fyrir bæjarráð. Nefndin þyrfti að vera tilbúin að taka til starfa í september 2026.



Greinargerð

Uppbygging íþróttamannvirkja í Hveragerði er umfangsmikið verkefni sem hefur verulega þýðingu fyrir íþróttastarf, lýðheilsu, þjónustu við íbúa og framtíð sveitarfélagsins. Árið 2023 var sérstök byggingarnefnd sett á laggirnar. Nefndin var samráðsvettvangur verkefnisins þar sem komu saman pólitískir fulltrúar, starfsmenn sveitarfélagsins, fulltrúar Íþróttafélagsins Hamars og aðrir hagaðilar. Markmið nefndarinnar var að stuðla að upplýsingamiðlun, samráði og breiðri aðkomu að verkefninu.



Reynslan af störfum nefndarinnar var jákvæð og sýndi fram á mikilvægi þess að slíkur vettvangur sé til staðar við undirbúning og framkvæmd verkefna af þessari stærðargráðu. Með skipulögðu samráði skapast betri forsendur fyrir faglegri ákvarðanatöku, gagnsæi og breiðri sátt um framgang verkefnisins.



Með endurvakningu byggingarnefndar er leitast við að tryggja áframhaldandi samráð og upplýsingaflæði milli kjörinna fulltrúa, stjórnsýslu sveitarfélagsins og þeirra aðila sem koma að verkefninu. Það styður við vandaðan undirbúning, styrkir sameiginlega sýn um farsæla uppbyggingu íþróttamannvirkja.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela sviðsstjórum tækni- og umhverfissviðs og stjórnsýslusviðs að vinna málið áfram og leggja fram tillögu að skipulagi og verklagi byggingarnefndar.

17.Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa frá 9. júlí 2026

2607002F

Fundargerðin er lögð fram.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

18.Fundargerð yfirkjörstjórnar frá 17. júlí 2026

2607007F

Fundargerðin er lögð fram.
Fundargerðin er staðfest samhljóða.

19.Verkfundargerð - Íþróttahús við Skólamörk 2 - 1. áfangi

2603009

Lögð er fram fundargerð frá 9. júlí 2026, vegna byggingar 1. áfanga íþróttahúss.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
Fylgiskjöl:

20.Verkfundargerð - Íþróttahús við Skólamörk 2 - 1. áfangi

2603009

Lögð er fram verkfundagerð frá 23. júlí 2026, vegna byggingar 1. áfanga íþróttahúss.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
Fylgiskjöl:

21.Verkfundagerð - Hrauntunga - Tröllahraun

2602049

Lögð var fram verkfundargerð frá 30. júlí 2026 vegna gatnagerðar í Hrauntungu og Tröllahrauni.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

22.Fundargerð stjórnar Listasafns Árnesinga bs.

2602002

Lögð er fram fundargerð stjórnar Listasafns Árnesinga bs., dags. 5. ágúst 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

23.Fundargerð heilbrigðisnefndar Suðurlands

2601129

Eftirtalin skjöl eru lögð fram:

Fundargerð heilbrigðisnefndar Suðurlands, dags. 27. júlí 2026

Bókun heilbrigðisnefndar Suðurlands vegna stöðu fráveitumála í Hveragerðisbæ.

Ársskýrsla Heilbrigðiseftirlits Suðurlands vegna ársins 2025.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
Bæjarráð gerir athugasemdir við að minnisblað umhverfisfulltrúa Hveragerðisbæjar sem sent var til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands þann 16. júlí s.l. hafi ekki verið lagt fyrir heilbrigðisnefnd Suðurlands.

24.Umsagnarbeiðni um tækifærisleyfi vegna blómstrandi daga

2608053

Lagt er fram erindi frá sýslumanninum á Suðurlandi, dags. 8. júlí 2026, þar sem óskað er eftir umsögn um útgáfu tækifærisleyfis vegna bæjarhátíðarinnar blómstrandi daga 13.-16. ágúst 2026.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við útgáfu leyfisins.
Fundargerðin upp lesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 11:35.

Getum við bætt efni síðunnar?