Fara í efni

Bæjarráð

890. fundur 16. júlí 2026 kl. 08:30 - 10:35 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Birgitta Ragnarsdóttir formaður
  • Sigmar Karlsson varaformaður
  • Lárus Jónsson aðalmaður
  • Marta Rut Ólafsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Steinunn Erla Kolbeinsdóttir bæjarritari
  • Ingimar Guðmundsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Steinunn Erla Kolbeinsdóttir bæjarritari
Dagskrá
Formaður bæjarráðs, Birgitta Ragnarsdóttir, settur fundinn og stjórnar honum. Hún leitar eftir athugasemdum við fundarboð en engar koma fram.

1.Bréf frá Innviðarráðuneytinu

2601146

Lagt er fram bréf frá Innviðaráðuneytinu, móttekið 6. júlí 2026, þar sem tilkynnt er um að verið sé að vinna í endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga. Óskað er eftir upplýsingum frá Hveragerðisbæ fyrir 21. september 2026.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að fela bæjarstjóra og sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að koma umbeðnum upplýsingum til Innviðaráðuneytisins.

2.Beiðni um frest til þess að hefja framkvæmdir á lóðinni Vorsabæ 4

2602040

Eftirtalin skjöl eru lögð fram:

Bréf Hveragerðisbæjar til Húsmóta ehf., dags. 17. maí 2021.

Bréf Hveragerðisbæjar til Húsmóta ehf., dags. 11. febrúar 2026.

Bréf Húsmóta ehf. til Hveragerðisbæjar, dags. 25. febrúar 2026.

Minnisblað Jóns Friðriks Matthíassonar, byggingarfulltrúa, dags. 2. mars 2026.

Bréf Hveragerðisbæjar til Húsmóta ehf., dags. 6. mars 2026.

Bréf Húsmóta ehf. til Hveragerðisbæjar, dags. 7. júlí 2026.

Upplýsingar frá Jóni Friðriki Matthíassyni, sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs, dags. 10. júlí 2026.



Þann 5. mars 2026 var Húsmótum ehf. veittur 4 mánaða frestur til þess að hefja framkvæmdir og ná byggingastigi 2 á lóðinni Vorsabæ 4. Fresturinn er nú liðinn og hefur lóðarhafi óskað eftir framlengingu á frestinum.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að veita tveggja mánaða frest í samræmi við tillögu sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs.

3.Erindi vegna Hólmabrúnar 2

2606140

Lagt er fram erindi frá Kolbrúnu Vignisdóttur og Úlfari Bjarka Stefánssyni vegna Hólmabrúnar 2, móttekið 19. júní 2026.
Bæjarráð þakkar fyrir sýndan áhuga á lóðinni Hólmabrún 2 en hafnar fyrirliggjandi tilboði upp á kr. 20.000.000.-

Bæjarráð telur mikilvægt að við ráðstöfun lóða sé gætt jafnræðis og gagnsæis og að öllum gefist kostur á að sækjast eftir sambærilegum lóðum á sömu forsendum. Bæjarstjóra er falið að leggja fram tillögu um áframhaldandi söluferli lóðaréttinda Hólmabrúnar 2 og annarra óúthlutaðra lóða á svæðinu, þar á meðal hvort tilefni sé til endurskoðunar á verðlagningu lóðaréttindanna.

4.Breytingar á þjónustu landsbyggðarvagna á Suðurlandi

2606090

Eftirtalin skjöl eru lögð fram:

Bréf Vegagerðarinnar til Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, dags. 12. júní 2026.

Bréf Hveragerðisbæjar til Vegagerðarinnar, dags. 23. júní 2026.



Vegagerðin hefur tilkynnt um að skerðing verði á þjónustu landsbyggðarvagna haustið 2026 en vagnarnir sinna almenningssamgöngum á Suðurlandi.



Málið var tekið fyrir í bæjarráði þann 18. júní s.l. þar sem eftirfarandi var bókað: Bæjarráð lýsir yfir verulegum áhyggjum af fyrirhuguðum skerðingum á þjónustu við almenning, enda munu þær hafa neikvæð áhrif á íbúa Hveragerðisbæjar, atvinnutækifæri, skólasókn, aðgengi að þjónustu og almenningssamgöngum á svæðinu. Bæjarráð felur bæjarstjóra að koma afstöðu Hveragerðisbæjar á framfæri við Vegagerðina og óska eftir fundi þar sem fyrirhugaðar breytingar verði skýrðar nánar, áhrif þeirra á íbúa Hveragerðisbæjar metin og mögulegar mótvægisaðgerðir ræddar. Afrit af bréfinu verði sent til Innviðaráðuneytis.



Hulda Rós Bjarnadóttir, starfsmaður Vegagerðarinnar, kemur á fund bæjarráðs í gegnum fjarfundabúnað og kynnir fyrirhugaðar breytingar.
Bæjarráð þakkar fulltrúa Vegagerðarinnar fyrir gagnlega yfirferð.

Bæjarráð lýsir yfir miklum áhyggjum af fyrirhuguðum skerðingum á akstri landsbyggðarstrætó. Hveragerðarbær hefur komið á framfæri athugasemdum við fyrirhugaðar breytingar til Vegagerðarinnar og leggur áherslu á mikilvægi þess að viðhalda öflugum almenningssamgöngum fyrir íbúa sveitarfélagsins og Suðurlands í heild.
Við kynningu Vegagerðarinnar kom fram að fyrirhugaðar skerðingar byggi á ákvörðun Innviðaráðuneytisins en ekki Vegagerðarinnar. Bæjarráð beinir því eindregnum tilmælum til Innviðaráðuneytisins um að endurskoða ákvörðunina og tryggja að ekki verði dregið úr þeirri mikilvægu þjónustu sem landsbyggðarstrætó veitir íbúum, atvinnulífi og gestum svæðisins.

Bæjarráð hefur óskað eftir frekari gögnum sem stuðst var við í ákvörðunartöku og mun fjalla um þau gögn við fyrsta tækifæri.

5.Beiðni um aukið stöðugildi hjá Bungubrekku

2606068

Lagt er fram minnisblað frá Liljari Mar Péturssyni, forstöðumanni frístundarmála, dags. 23. júní 2026, þar sem óskað er eftir heimild til þess að auka stöðugildi í starfseminni um eitt þ.e. úr 10,7 og upp í 11,7. Gert er ráð fyrir því að aukningin rúmist innan fjárhagsáætlunar.
Bæjarráð samþykkir samhljóða fjölgun stöðugilda við Frístundamiðstöðina Bungubrekku á grundvelli þeirra forsenda sem fram koma í minnisblaði forstöðumanns. Þar kemur fram að börnum sem þurfa sérstakan stuðning í frístunda- og tómstundastarfi hafi fjölgað og að svigrúm sé innan gildandi fjárhagsáætlunar til að mæta launakostnaði vegna breytinga. Jafnframt er óskað eftir samantekt um þróun stöðugilda, verkefni og hlutverk innan Frístundamiðstöðvarinnar Bungubrekku sem lögð verði fram við undirbúning fjárhagsáætlunar næsta árs.

6.Samþykktir Héraðsnefndar Árnesinga bs. - seinni umræða

2606145

Lögð er fram tillaga að samþykkt fyrir byggðasamlagið Héraðsnefnd Árnesinga bs. sem samþykkt var á aðalfundi byggðasamlagsins þann 27. apríl 2026 og vísað var til staðfestingar sveitarstjórna aðildarsveitarfélaga.



Á fundi bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar þann 2. júlí 2026, var málið tekið fyrir og samþykktum vísað til síðari umræðu.
Bæjarráð, í umboði bæjarstjórnar, samþykkir samhljóða fyrirliggjandi samþykkt fyrir Héraðsnefnd Árnesinga bs.

7.Mannauðsmál - næstu skref

2606043

Eftirtalin skjöl eru lögð fram:

Drög að EKKO stefnu og viðbragðsáætlun.

Drög að viðverustefnu.

Drög að samskiptasáttmála.

Dagskrá fræðsludags Hveragerðisbæjar þann 14. ágúst 2026.



Kolbrún Tanja Eggertsdóttir, mannauðsfulltrúi, kynnir framlögð skjöl og næstu skref í mannauðsmálum hjá Hveragerðisbæ.
Bæjarráð þakkar mannauðsfulltrúa fyrir yfirferðina og felur mannauðsfulltrúa að fullvinna fyrirliggjandi skjöl og leggja til samþykktar fyrir bæjarstjórn.

8.Styrkur til tölvukaupa fyrir bæjarfulltrúa kjörtímabilið 2026-2030

2607021

Lagt er fram minnisblað Steinunn Erlu Kolbeinsdóttur, bæjarritara/sviðsstjóra stjórnsýslusviðs, dags. 13. júlí 2026, þar sem gerð er tillaga um fyrirkomulag kaupa á spjaldtölvu eða greiðslu styrks til tölvukaupa fyrir aðalmenn í bæjarstjórn á yfirstandandi kjörtímabili.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að veita bæjarfulltrúum styrk til tölvukaupa á kjörtímabilinu 2026-2030 samkvæmt framlagðri tillögu í minnisblaði bæjarritara/sviðsstjóra stjórnsýslusviðs. Jafnframt felur bæjarráð sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að endurskoða og gera tillögu að heildstæðum reglum um kjör kjörinna fulltrúa sem birtar skuli meðal opinberra gagna sveitarfélagsins.

9.Upplýsingar um stöðu fráveitumála í Hveragerðisbæ

2601129

Lagt er fram minnisblað Höskuldar Þorbjarnarsonar, dags. 3. júlí 2026, þar sem farið er yfir stöðu fráveitumála hjá Hveragerðisbæ.



Höskuldur Þorbjarnarson, umhverfisfulltrúi, kemur á fund bæjarráðs og kynnir minnisblaðið.
Bæjarráð þakkar umhverfisfulltrúa fyrir erindið og þær upplýsingar sem þar koma fram um stöðu fráveitumála í Hveragerðisbæ. Jafnframt er sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs og umhverfisfulltrúa falið að boða til kynningarfundar með COWI í ágúst fyrir bæjarfulltrúa og varabæjarfulltrúa þar sem farið verður yfir stöðu mála.

10.Aukaaðalfundur Héraðsnefndar Árnesinga bs.

2607033

Lögð er fram fundargerð aukaaðalfundar Héraðsnefndar Árnesinga bs., dags. 29. júní 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

11.Aukaaðalfundur Brunavarna Árnessýslu bs.

2607034

Lögð er fram fundargerð aukaaðalfundar Brunavarna Árnessýslu bs., dags. 29. júní 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

12.Aukaaðalfundur Byggðasafns Árnesinga bs.

2607035

Lögð er fram fundargerð aukaaðalfundar Byggðasafns Árnesinga bs., dags. 29. júní 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

13.Aukaaðalfundur Héraðsskjalasafns Árnesinga bs.

2607036

Lögð er fram fundargerð aukaaðalfundar Héraðsskjalasafns Árnesinga bs., dags. 29. júní 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

14.Aukaaðalfundur Listasafns Árnesinga bs.

2607037

Lögð er fram fundargerð aukaaðalfundar Listasafns Árnesinga bs., dags. 29. júní 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

15.Aukaaðalfundur Tónlistarskóla Árnesinga bs.

2607038

Lögð er fram fundargerð aukaaðalfundar Tónlistarskóla Árnesinga bs., dags. 29. júní 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

16.Aukaaðalfundur Bergrisans bs. 15. júní 2026

2606013

Lögð er fram fundargerð aukaaðalfundar Bergrisans bs., dags. 15. júní 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
Fundargerðin upp lesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 10:35.

Getum við bætt efni síðunnar?