Bæjarráð
Dagskrá
Varaformaður bæjarráðs, Sigmar Karlsson, settur fundinn og stjórnar honum. Hann leitar eftir athugasemdum við fundarboð en engar koma fram.
1.Bréf frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands bs.
2606117
Eftirtalin skjöl eru lögð fram:
Bréf frá Heilbrigðiseftirlits Suðurlands bs., dags. 18. júní 2026.
Minnisblað frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands bs., dags. 18. júní 2026.
Bráðabirgðasamantekt á verkefnum sem verða hjá sveitarfélögum eftir breytingar áramótin 2026-2027.
Með bréfinu er vakin athygli á þeirri stöðu sem byggðasamlagið stendur frammi fyrir með þeirri breytingu sem er fyrirhuguð um næstu áramót þegar stofnun Atvinnuveganna tekur við stórum hluta verkefna Heilbrigðiseftirlits Suðurlands bs. Í gögnunum eru ábendingar um atriði sem heilbrigðisnefnd og aðildarsveitarfélög þurfa að huga að þar til breytingarnar taka gildi.

Skjölin eru lögð fram til kynningar.
Bæjarráð leggur til að Hveragerðibær þiggi boð um að fá kynningu frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands bs. vegna fyrirhugaðra breytinga. Þá er sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs og umhverfisfulltrúa falið að hefja undirbúning með því að gera samantekt um áhrif breytinganna á Hveragerðisbæ og eiga viðræður við nágrannasveitarfélög varðandi hugsanlegt samstarf.

2.Bréf frá Klöppum og Podium vegna kynningar á heildarlausn fyrir sjálfbærni sveitarfélaga
2606142
Lagt er fram bréf frá Klöppum og Podium, móttekið 23. júní 2026, sem hafa sameiginlega þróað lausn fyrir sveitarfélög á sviði sjálfbærni, loftlagsmála og lögbundinnar skýrslugjafar.
Bréfið er lagt fram til kynningar. Bæjarráð felur umhverfisfulltrúa að taka erindið til skoðunar.
3.Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga
2606147
Lagt er fram bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, móttekið 23. júní 2026, þar sem vakin er athygli á reglugerð nr. 700/2026 um málsmeðferð vegna vistunar barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins, sem að mati Sambands íslenskra sveitarfélaga, gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga sem gert var 19. mars 2025.
Bréfið er lagt fram til kynningar.
Bæjarráð tekur undir áhyggjur Sambands íslenskra sveitarfélaga og felur sviðsstjóra velferðarsviðs að meta áhrif reglugerðarinnar á málaflokkinn innan Hveragerðisbæjar og hvort nauðsynlegt sé að grípa til aðgerða. Þá er málinu vísað til fræðslu- og velferðarnefndar.

4.Bréf frá Atvinnuvegaráðuneytinu vegna búfjárbeitar og ágangs búfjár
2606148
Lagt er fram bréf frá Atvinnuvegaráðuneytinu, dags 24. júní 2026, ásamt bréfi ráðuneytisins dags. í febrúar 2024, þar sem ráðuneytið kemur ábendingum til sveitarfélaga vegna búfjárbeitar og ágangs búfjár.
Bréfið er lagt fram til kynningar. Bæjarráð felur umhverfisfulltrúa að taka erindið til skoðunar.
5.Bréf frá Landsambandi eldri borgara vegna öldungaráða og virks samráðs við eldra fólk
2606149
Lagt er fram bréf frá Landssambandi eldri borgara, dags. 23. júní 2026, þar sem minnt er á að í lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999 sé skylda til skipunar öldungaráða og lögð áhersla á að styðja við starfsemi öldungaráða.
Bréfið er lagt fram til kynningar.
6.Beiðni frá Golfklúbbi Hveragerðis um sorphirðu
2606044
Lagt er fram bréf frá Golfklúbbi Hveragerðis, móttekið. 4. júní 2026, þar sem óskað er eftir því að Hveragerðisbær sinni sorphirðu fyrir félagið.
Málið var tekið fyrir í skipulags- og umhverfisnefnd þann 23. júní s.l. sem gerði eftirfarandi tillögu:
Nefndin leggur til að bæjarráð vísi beiðninni til skoðunar við gerð þjónustusamnings við Golfklúbb Hveragerðis.

Bæjarráð vísar erindinu til vinnslu í tengslum við endurnýjun á þjónustusamningi við Golfklúbb Hveragerðis.
7.Bréf frá Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands vegna íþróttaviku Evrópu 2026
2606134
Lagt er fram bréf frá Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands þar sem vakin er athygli á íþróttaviku Evrópu er haldin er ár hvert. Í ár verður vikan haldin dagana 23.-30. september 2026. Markmið verkefnisins er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu og sporna gegn auknu hreyfingarleyfis meðal almennings. Unnt er að sækja um styrk vegna verkefna sem tengjast íþróttaviku og þurfa umsóknir að berast í síðasta lagi 21. ágúst 2026.
Bæjarráð fagnar framtakinu og felur sviðsstjóra mennta-, menningar- og lýðheilsusviðs og menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúa að ræða við hagaðila, móta drög að dagskrá og eftir atvikum sækja um styrk. Óskað er eftir drögum að dagskrá á fundi bæjarráðs þann 13. ágúst n.k.
8.Tillaga um varðveislu gróðurhúsaarfleiðar
2604008
Á fundi bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar þann 9. apríl 2026 var samþykkt tillaga um stofnun hóps sem falið var að vinna stefnu um varðveislu sögu og ásýndar gróðurhúsarfleiðar í Hveragerðisbæ en á fundi bæjarstjórnar þann 12. maí 2026 var samþykkt að vísa málinu til frekari vinnslu til næstu bæjarstjórnar.
Bæjarráð tekur jákvætt í það markmið að varðveita og efla sýnileika gróðurhúsaarfleifðar Hveragerðisbæjar enda er hún órjúfanlegur hluti af sögu, sérstöðu og ásýnd bæjarins.
Bæjarráð telur þó ekki að á þessu stigi sé tilefni til að skipa sérstakan starfshóp um verkefnið. Þess í stað er skipulagsfulltrúa og menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúa falið að taka saman minnisblað um þau tækifæri sem eru fyrir hendi innan skipulagsmála, uppbyggingar og hönnunar umhverfis til að stuðla að varðveislu og sýnileika gróðurhúsaarfleifðar bæjarins. Þar verði jafnframt dregin fram möguleg markmið, leiðir og áherslur sem sveitarfélagið geti haft til hliðsjónar við framtíðarskipulag og þróun byggðar.
Að þeirri vinnu lokinni skulu gögn og upplýsingar lögð fyrir bæjarráð sem tekur afstöðu til þess hvort þörf sé á frekari stefnumótun eða skipun sérstaks starfshóps með skýrt skilgreint hlutverk, markmið og verkefni.

9.Umsögn - Drög að reglugerð um aðstoðarmannakort fatlaðs fólks
2606115
Lögð eru fram drög að reglugerð um aðstoðarmannakort fatlaðs fólk sem birt er í samráðsgátt stjórnvalda, mál nr. S-63/2026 og drög að umsögn Hveragerðisbæjar um reglugerðina, dags. 18. júní 2026.
Bæjarráð þakkar starfsfólki velferðarsviðs fyrir metnaðarfulla vinnu í tengslum við umrædda umsögn og tekur undir þau sjónarmið sem þar koma fram. Bæjarráð samþykkir umsögnina sem umsögn Hveragerðisbæjar um reglugerðina og felur sviðsstjóra velferðarsviðs að sjá um að senda umsögnina í samráðsgátt stjórnvalda.
10.Afmælisgjöf til Hveragerðisbæjar frá Handverki og hugviti undir Hamri
2606184
Handverk og hugvit undir Hamri færði Hveragerðibæ, í tilefni af 80 ára afmæli bæjarins, listmun sem unninn var af Hrönn Waltersdóttur. Lagt er fram bréf sem fylgdi muninum.
Bæjarráð þakkar fyrir veglega gjöf til Hveragerðisbæjar og felur menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúa að finna listmuninum viðeigandi stað þar sem hægt verður að virða hann fyrir sér.
11.Gjaldskrá fyrir auglýsingaskilti við Breiðumörk
2606110
Lagt er fram minnisblað umhverfisfulltrúa, dags. 18. júní 2026, með tillögu að gjaldskrá vegna skiltis fyrir starfsemi sem er við innkomu í Hveragerðisbæ.
Málið var tekið fyrir í skipulags- og umhverfisnefnd þann 23. júní s.l. sem gerði eftirfarandi tillögu: Nefndin leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu að gjaldskrá eins og hún er lögð fram í minnisblaði umhverfisfulltrúa dags. 18. júní 2026.

Bæjarráð samþykkir tillögu að gjaldskrá og leggur til að komið verði á formlegu verklagi um reglubundna uppfærslu á skiltinu, að lágmarki einu sinni á ári. Með því verði tryggt að ný fyrirtæki, stofnanir og önnur starfsemi í bænum fái tækifæri til að kynna starfsemi sína á skiltinu. Bæjarráð felur menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúa að annast reglubundna uppfærslu skiltisins og að leggja mál vegna upplýsinga á skiltinu fyrir menningar-, atvinnu- og markaðsnefnd með reglubundnum hætti eða að jafnaði einu sinni á ári.
12.Yfirdráttur hjá Arion banka
2607019
Lagt er fram minnisblað Helgu Kristjánsdóttur, skrifstofustjóra, dags. 6. júlí 2026, þar sem lagt er til að yfirdráttarheimild Hveragerðisbæjar verði aukin um 90 milljónir króna.
Helga Kristjánsdóttir, skrifstofustjóri, kemur á fund bæjarráðs og kynnir tillöguna.
Helga Kristjánsdóttir, skrifstofustjóri, kemur á fund bæjarráðs og kynnir tillöguna.
Bæjarráð samþykkir að yfirdráttarheimild Hveragerðisbæjar hjá Arion banka á bankareikningi nr. 314-22-506 verði aukin um kr. 90.000.000.- í samræmi við framlagt minnisblað skrifstofustjóra.
Bæjarráð bendir á að tímabundin lausafjárþörf sveitarfélagsins skýrist að verulegu leyti af því að tekjur af gatnagerðargjöldum og sölu byggingarréttar hafi verið verulega undir þeim forsendum sem lagðar voru til grundvallar í fjárhagsáætlun. Ljóst er að endurskoða þurfi forsendur áætlana og leggja raunhæft mat á þróun tekna og framkvæmda á næstu misserum.
Bæjarráð bendir á að fjárhagsstaða sveitarfélagsins sé nú til heildstæðrar endurskoðunar. Unnið er að gerð milliuppgjörs og nánari greiningu á rekstri og fjárhag sveitarfélagsins, í samræmi við það sem fram kom á síðasta fundi bæjarstjórnar. Niðurstöður þeirrar vinnu munu liggja til grundvallar frekari ákvörðunum um fjárhagsáætlanir, rekstrarumhverfi og forgangsröðun verkefna á komandi misserum.

13.Hrauntunga 20 - úrskurður matsnefndar eignarnámsbóta
2505071
Lagður er fram úrskurður matsnefndar eignarnámsbóta, dags. 16. júní 2026, vegna Hrauntungu 20.
Úrskurðurinn er lagður fram til kynningar.
14.Flugeldasýning á Blómstrandi dögum
2605105
Lagt er fram minnisblað Steinunn Erlu Kolbeinsdóttur, bæjarritara, dags. 6. júlí 2026, þar sem lagt er til að bæjarráð veiti, í umboði bæjarstjórnar, heimild fyrir flugeldasýningu og að jákvæð umsögn verði veitt vegna útgáfu leyfis fyrir sýningunni.
Bæjarráð samþykkir samhljóða framlagða tillögu um að veita heimild fyrir flugeldasýningu og jákvæða umsögn vegna útgáfu leyfis fyrir sýningunni.
15.Fundargerð yfirkjörstjórnar frá 30. júní 2026
2512087
Fundargerðin er lögð fram.
Bæjarráð staðfestir fundargerðina samhljóða.
16.Verkfundargerð - Reykjadalur - Veitulagnir
2603026
Lögð er fram verkfundargerð frá 11. júní 2026 vegna lagningar veitulagna að fyrirhuguðu baðlóni í Reykjadal.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
17.Verkfundargerð - Íþróttahús við Skólamörk 2 - 1. áfangi
2603009
Lögð er fram verkfundagerð frá 25. júní 2026, vegna byggingar 1. áfanga íþróttahúss.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
18.Fundargerð stjórnar Bergrisans bs.
2602060
Lögð er fram fundargerð stjórnar Bergrisans bs., dags. 15. júní 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
Fundargerðin upp lesin og samþykkt.
Fundi slitið - kl. 10:08.
Getum við bætt efni síðunnar?