Fara í efni

Bæjarráð

888. fundur 18. júní 2026 kl. 08:30 - 11:35 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Birgitta Ragnarsdóttir formaður
  • Sigmar Karlsson varaformaður
  • Jónas Guðnason varamaður
  • Marta Rut Ólafsdóttir áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
  • Steinunn Erla Kolbeinsdóttir bæjarritari
  • Ingimar Guðmundsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Steinunn Erla Kolbeinsdóttir bæjarritari
Dagskrá
Formaður bæjarráðs, Birgitta Ragnarsdóttir, settur fundinn og stjórnar honum. Hún leitar eftir athugasemdum við fundarboð en engar koma fram.

Jónas Guðnason óskar eftir því að tillaga Okkar Hveragerði er varðaði fulltrúa Okkar Hveragerði á aukaaðalfund Héraðsnefndar Árnesinga verði tekin af dagskrá enda hafa orðið breytingar á fundartímanum. Bæjarráð samþykkir samhljóða að taka fundarliðinn af dagskrá.

1.Umsagnarbeiðni veitingaleyfi - Yuzu

2604154

Lögð er fram beiðni sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 13. febrúar 2026, ásamt fylgigögnum, þar sem óskað er eftir umsögn Hveragerðisbæjar vegna umsóknar AE Chefs ehf. um veitingaleyfi vegna veitingarstaðarins Yuzu Hveragerði að Austurmörk 6.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að gera ekki athugasemdir við útgáfu veitingaleyfis til umsækjanda vegna veitingarstaðarins Yuzu að Austurmörk 6 í Hveragerði og veita jákvæða umsögn.

2.Bréf frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands

2605164

Lagt er fram bréf frá Eignarhaldsfélaginu Brunabótafélagi Íslands, dags 2. apríl 2025, þar upplýst var um helstu breytingar á samþykktum fyrir félagið eftir heildarendurskoðun. Eftir breytingarnar eiga öll sveitarfélög að kjósa fulltrúa í fulltrúaráð.
Aðalfulltrúi Hveragerðisbæjar í fulltrúaráð Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélags Íslands er Hjalti Helgason og varafulltrúi Birgitta Ragnarsdóttir.

3.Bréf frá Hugarafli

2606088

Lagt er fram bréf frá Hugarafli, móttekið 23. apríl 2026, þar sem óskað er eftir styrk vegna fundar í Hveragerði dagana 26.-30. ágúst n.k. Yfirskrift fundarins er: „Open Dialogue“ international meeting in dialogical and reflective approaches in treatment of psychosis.
Bæjarráð fagnar framtaki félagsins með að halda fyrirhugaðan fund. Því miður sér bæjarráð sér ekki fært að verða við styrkbeiðni að þessu sinni en bæjarstjóra er falið að setja sig í samband við Hugarafl og kanna hvort sveitarfélagið geti komið til móts við samtökin með öðrum hætti.

4.Bréf Sambands sunnlenskra kvenna um styrk til reksturs

2605083

Lagt er fram bréf frá Sambandi sunnlenskra kvenna, dags. 4. maí 2026, til Héraðsnefndar Árnesinga þar sem óskað er eftir fjárstyrk til reksturs sambandsins.
Bréfið er lagt fram til kynningar.

5.Boð á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga

2605078

Lagt er fram bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 11. maí 2026, þar sem óskað er eftir því að sveitarfélög kjósi fulltrúa á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga sem fram fer á Akureyri dagana 23.-25. september 2026.
Fulltrúar Hveragerðisbæjar á landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga verða eftirtaldir:

Aðalmenn:
María Rún Þorsteinsdóttir
Birgitta Ragnarsdóttir
Lárus Jónsson

Varamenn:
Sigmar Karlsson
Þorsteinn Hjartarson
Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir

6.Bréf frá ungmennaráði Ungmennafélags Íslands

2605102

Lagt er fram bréf frá ungmennaráði Ungmennafélags Íslands, dags. 11. maí 2026, þar sem kynnt er ráðstefna sem verður haldin að Reykjum í Hrútafirði fyrir ungt fólk á aldrinum 15-25 ára, dagana 18.- 20. september 2026. Skráning stendur til 8. september 2026.
Bæjarráð felur sviðsstjóra mennta-, menningar- og lýðheilsusviðs í samvinnu við starfsmann ungmennaráðs að kynna verkefnið fyrir ungmennum í Hveragerði.

7.Bréf frá stjórn Héraðssambandsins Skarphéðins

2605093

Eftirtalin skjöl eru lögð fram:

Bréf frá stjórn HSK, dags. 12. maí 2026.

Fundargerð Héraðsþings HSK nr. 104 þann 26. mars s.l.

Ársskýrsla HSK vegna ársins 2025.



Í bréfi stjórnar HSK er hvatt til virkrar þátttöku í verkefninu "Allir með".

Skjölin eru lögð fram til kynningar. Bæjarráð vísar þeim hluta erindis stjórnar HSK er varðar verkefnið "Allir með" til umræðu og skipulags á þátttöku af hálfu Hveragerðisbæjar til samráðshóps um málefni fatlaðs fólks og menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar.

8.Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga vegna söfnunar ársreikninga sveitarfélaga fyrir árið 2025

2605084

Lagt er fram bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 12. maí 2026, þar sem kynnt er að unnið sé að endurhönnun Upplýsingaveitu sveitarfélaga með það að markmiði að einfalda skil fjárhagsupplýsinga og bæta gæði þeirra. Í bréfinu kemur fram að sveitarfélög skuli skila ársreikningum fyrir árið 2025 bæði til Hagstofu Íslands og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Bæjarráð fagnar þessu verkefni hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og felur sviðsstjóra stjórnsýslusviðs að fylgja því eftir að ársreikningur Hveragerðisbæjar verði sendur til Sambands íslenskra sveitarfélaga.

9.Bréf frá Klúbbnum Stróki

2605088

Lagt er fram bréf, móttekið 13. maí 2026, frá Klúbbnum Stróki sem er virknimiðstöð staðsett á Selfossi og er opin öllum íbúum á Suðurlandi. Í bréfinu er óskað er eftir stuðningi við kaup á nýjum skrifborðsstólum til að nýta í þjónustunni.

Því miður sér bæjarráð sér ekki fært að verða við beiðninni að þessu sinni.

10.Bréf frá Félagi heyrnarlausra

2605090

Lagt er fram bréf frá Félagi heyrnarlausra, móttekið 13. maí 2026, þar sem óskað er eftir styrk vegna útgáfu Döffblaðsins.

Því miður sér bæjarráð sér ekki fært að verða við beiðninni að þessu sinni.

11.Bréf frá Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytinu vegna samgönguviku

2605110

Lagt er fram bréf frá Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, móttekið 20. maí 2026, þar sem kynnt er evrópsk samgönguvika sem haldin verður dagana 16.-22. september 2026. Markmið vikunnar er að kynna fyrir íbúum í þéttbýli fjölbreytta samgöngumáta sem eru vistvænir, hagkvæmir og bæta heilsu fólks um leið og þeir hafa jákvæð áhrif á umhverfið.
Bréfið er lagt fram til kynningar. Sviðstjórum tækni- og umhverfissviðs og mennta-, menningar- og lýðheilsusviðs er falið að koma erindinu áfram og skoða mögulega útfærslu á þátttöku Hveragerðisbæjar í samgönguviku.

12.Bréf frá Innviðaráðuneytinu

2605171

Lagt er fram bréf frá Innviðaráðuneytinu, móttekið 22. maí 2026, þar sem kynnt er frumvarp til breytinga á hafnarlögum sbr. mál nr. 93/2026 í samráðsgátt stjórnvalda. Málið varðar breytingar á gjaldaákvæði núgildandi hafnarlaga þannig að höfnum verði auðveldað að innheimta réttmætt gjald fyrir þá þjónustu sem þær veita.
Bréfið er lagt fram til kynningar.

13.Bréf frá eigendum í Réttarheiði 3 í Hveragerði vegna ágangs katta

2606022

Lagt er fram bréf til bæjarstjórnar frá íbúum í Réttarheiði 3, móttekið 1. júní 2026, þar sem kvartað er yfir ágangi katta.
Bæjarráð felur sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs að taka erindið til frekari meðferðar og koma því í viðeigandi farveg ásamt því að tryggja að íbúar séu upplýstir um farveg málsins.

14.Bréf frá Vegagerðinni vegna breytinga á þjónustu landsbyggðarvagna

2606090

Lagt er fram bréf frá Vegagerðinni, dags. 12. júní 2026, þar sem tilkynnt er um fyrirhugaðar breytingar á þjónustu landsbyggðarvagna haustið 2026 en vagnarnir sinna almenningssamgöngum á Suðurlandi.
Bæjarráð lýsir yfir verulegum áhyggjum af fyrirhuguðum skerðingum á þjónustu við almenning, enda munu þær hafa neikvæð áhrif á íbúa Hveragerðisbæjar, atvinnutækifæri, skólasókn, aðgengi að þjónustu og almenningssamgöngum á svæðinu.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að koma afstöðu Hveragerðisbæjar á framfæri við Vegagerðina og óska eftir fundi þar sem fyrirhugaðar breytingar verði skýrðar nánar, áhrif þeirra á íbúa Hveragerðisbæjar metin og mögulegar mótvægisaðgerðir ræddar. Afrit af bréfinu verði sent til Innviðaráðuneytis.

15.Fundarboð aukaaðalfundar Eignarhaldsfélags Suðurlands hf.

2606045

Eftirtalin skjöl eru lögð fram:

Boð á aukaaðalfund Eignarhaldsfélags Suðurlands hf., dags. 2. júní 2026.

Fundargerð aðalfundar Eignarhaldsfélags Suðurlands hf., dags. 27. maí 2026.

Hluthafaskrá

Samþykktir Eignarhaldsfélags Suðurlands hf.



Boðað er til aukaaðalfundar Eignarhaldsfélags Suðurlands hf., þann 25. júní n.k. í Versölum í ráðhúsinu í Þorlákshöfn.
Aðalfulltrúi Hveragerðisbæjar á aukaaðalfund Eignarhaldsfélags Suðurlands hf. er Ingimar Guðmundsson og varafulltrúi Birgitta Ragnarsdóttir.

16.Boð á aðalfund Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga

2605147

Lagt er fram bréf frá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, dags. 21. maí s.l., þar sem boðað er til aðalfundar sem haldinn verður í Versölum í Þorlákshöfn þann 25.júní 2026.
Fulltrúar Hveragerðisbæjar á aðalfund Sambands sunnlenskra sveitarfélaga verða eftirtaldir:

Aðalmenn:
María Rún Þorsteinsdóttir
Sigmar Karlsson
Birgitta Ragnarsdóttir
Lárus Jónsson
Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir
Marta Rut Ólafsdóttir

Varamenn:
Hjalti Helgason
Karitas Róbertsdóttir
Maria Araceli
Jónas Guðnason
Sandra Lind Brynjarsdóttir
Einar Alexander Haraldsson

17.Ársreikningur Orlofs húsmæðra fyrir árið 2025

2605028

Lagður er fram ársreikningur fyrir Orlof húsmæðra, kt. 590706-1590, fyrir árið 2025.
Ársreikningur er lagður fram til kynningar.

18.Yfirlit frá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun vegna stöðu húsnæðisuppbyggingar

2605097

Lagt er fram erindi frá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, dags. 15. maí 2026, ásamt yfirliti vegna stöðu húsnæðisuppbyggingar í Hveragerðisbæ og verkefna sveitarstjórnar á sviði húsnæðis- og skipulagsmála.
Fulltrúar D-lista og S-lista í bæjarráði leggja sameiginlega fram eftirfarandi bókun:

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) er þakkað fyrir erindið og yfirlitið en samkvæmt því metur HMS að íbúðauppbygging í Hveragerðisbæ hafi verið meiri en ný íbúðaþörf sem myndaðist árið 2025. Ef litið er til áranna 2023-2025 hafa 148 íbúðir verið byggðar í sveitarfélaginu á meðan þörf ætti að hafa myndast fyrir um 84 íbúðir ef tekið er tillit til fjölskyldustærðar sem verið hefur í sveitarfélaginu og fólksfjölgunar sem orðið hefur á tímabilinu. HMS metur því út frá þeim forsendum að byggt hafi verið umfram nýja íbúðaþörf á árunum 2023-2025.

Hins vegar er Hveragerðisbær sveitarfélag í vexti og hafa aðfluttir verið verulega umfram brottflutta síðustu ár og íbúðaframboð því haft áhrif og mun hafa áhrif á aðflutning til næstu ára.

Fulltrúar meirihlutans leggja áherslu á að íbúðauppbyggingu í Hveragerðisbæ verði stýrt með ábyrgum hætti. Tryggja þarf jafnvægi milli uppbyggingar, innviða og fjárhagslegrar getu sveitarfélagsins og gæta þess að ekki sé treyst um of á áframhaldandi uppbyggingu ef eftirspurn stendur ekki undir henni. Hveragerði þarf áfram að vera eftirsóknarverður búsetukostur þar sem innviðir fylgja þróun bæjarins.

Eins og kemur fram í erindi HMS ber sveitarstjórn að loknum sveitarstjórnarkosningum að meta hvort ástæða sé til að endurskoða aðalskipulag sveitarfélagsins. Bæjarfulltrúar telja rétt að taka aðalskipulag Hveragerðisbæjar til skoðunar m.a. í því ljósi. Margt er gott í núverandi aðalskipulagi en samtal við íbúa sýnir jafnframt að tilefni er til að endurskoða ákveðin atriði með áherslu á ábyrga uppbyggingu, innviði og lífsgæði.

Birgitta Ragnarsdóttir
Sigmar Karlsson

Fulltrúi Okkar Hveragerði og áheyrnarfulltrúi Framsóknar leggja sameiginlega fram eftirfarandi bókun:

Fulltrúar Okkar Hveragerði og Framsóknar þakka fyrir framlagða samantekt frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun en telja mikilvægt að niðurstöður hennar séu settar í rétt samhengi.
Uppbygging í Hveragerðisbæ á árunum 2023-2025 var ekki tilkomin án tilefnis heldur var hún að verulegu leyti viðbragð við óvenjumikilli íbúafjölgun árin þar á undan. Á því tímabili fjölgaði íbúum sveitarfélagsins um um 7,5%, á sama tíma og miðspár gerðu ráð fyrir 2-3% fjölgun. Til samanburðar var íbúafjölgun á Suðurlandi um 4,2% og á landinu öllu um 3,1%. Ljóst er því að sveitarfélagið stóð frammi fyrir raunverulegri og hraðri aukningu í eftirspurn eftir húsnæði og þjónustu.

Minnihlutinn tekur undir mikilvægi ábyrgrar uppbyggingar og þess að innviðir fylgi þróun sveitarfélagsins. Hins vegar telur minnihlutinn mikilvægt að greina á milli stefnumótunar og framkvæmdar þegar rætt er um aðalskipulag. Aðalskipulag er langtíma stefnumótunarplagg sem markar framtíðarsýn og landnotkun en ákveður ekki tímalínu eða hraða uppbyggingar.
Unnt er að vinna áfram innan gildandi aðalskipulags og stýra hraða uppbyggingar með ákvörðunum um deiliskipulag, framkvæmdatíma og forgangsröðun verkefna eftir þörfum sveitarfélagsins hverju sinni. Minnihlutinn sér því ekki að framlagðar upplýsingar einar og sér leiði til þess að þörf sé á efnislegri endurskoðun aðalskipulags á þessum tímapunkti, heldur fremur að áfram verði unnið af ábyrgð og með reglulegu mati á þróun íbúafjölda, innviða og þjónustuþarfa.

Jónas Guðnason
Marta Rut Ólafsdóttir

Bæjarráð samþykkir samhljóða að vísa erindinu til umfjöllunar í skipulags- og umhverfisnefnd.

19.Skýrsla Tónlistarskóla Árnesinga bs. til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga

2605094

Lögð er fram skýrsla Tónlistarskóla Árnesinga bs. til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga vegna nemenda Hveragerðisbæjar í tónlistarskólanum.
Skýrslan er lögð fram til kynningar.

20.Umsókn um afnot af bæjarlandi fyrir gusu

2604011

Lögð er fram umsókn Ingibjargar Sigurðardóttur, Guðmundar Vignis Sigurðssonar, Freyju Rutar Magnúsdóttur, Ólafs Jósefs Ólafssonar, Rakelar Magnúsdóttur og Sigurðar Einars Guðjónssonar, móttekin 3. júní 2026, þar sem gerð er grein fyrir áformum um uppbyggingu gusu við Baulu við Varmá og ósk um leyfi til afnota á bæjarlandi undir starfsemina.
Bæjarráð fagnar framtakinu og felur bæjarstjóra að boða umsækjendur til fundar og frekari samningsviðræðna um afnot af bæjarlandi.

21.Ósk um aukið fjármagn til ungmennaráðs

2603201

Lögð er fram ósk frá ungmennaráði sem samþykkt var á fundi ungmennaráðs þann 9. apríl 2026, um aukið fjármagn til starfsemi ungmennaráðs. Málið var tekið fyrir í bæjarstjórn þann 12. maí s.l. þar sem samþykkt var að vísa óskinni ti nýrrar bæjarstjórnar.
Bæjarráð felur sviðsstjóra mennta-, menningar- og lýðheilsusviðs í samstarfi við starfsmann ungmennaráðs að vinna tillöguna frekar og skila inn við fjárhagsáætlunargerð.

22.Seta fulltrúa ungmennaráðs í fastanefndum Hveragerðisbæjar

2603199

Lögð er fram áskorun frá ungmennaráði sem samþykkt var á fundi ungmennaráðs þann 9. apríl 2026 um að fulltrúar ungmennaráðs fái tækifæri til þess að sitja í fastanefndum bæjarins í samræmi við íþrótta- og frístundastefnu Hveragerðisbæjar. Málið var tekið fyrir í bæjarstjórn þann 12. maí s.l. þar sem samþykkt var að vísa áskoruninni til nýrrar bæjarstjórnar.
Bæjarráð fagnar áhuga ungmennaráðs á að taka virkari þátt í stjórnsýslu Hveragerðisbæjar. Stefnt er að því að endurskoða starfsemi, hlutverk og verkferla nefnda Hveragerðisbæjar samhliða endurskoðun samþykkta um stjórn og fundarsköp. Bæjarráð leggur til að, í þeirri vinnu, verði meðal annars horft til þess að ungmennaráð geti tilnefnt áheyrnarfulltrúa í tilteknum nefndum sveitarfélagsins.

23.Tillaga samráðshóps um málefni fatlaðs fólks um skipun starfshóps

2604131

Lögð er fram tillaga frá samráðshópi um málefni fatlaðs fólks sem samþykkt var á fundi samráðshópsins þann 30. apríl 2026 þar sem lagt er til við bæjarstjórn að skipaður verði starfshópur til mótunar skýrrar og heildstæðrar framtíðarstefnu í sveitarfélaginu í atvinnumálum fatlaðs fólks og einstaklinga með skerta starfsgetu. Málið var tekið fyrir í bæjarstjórn þann 12. maí s.l. þar sem samþykkt var að vísa því til nýrrar bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir samhljóða að vísa tillögunni um stofnun starfshópsins aftur til samráðshóps um málefni fatlaðs fólks til frekari útfærslu þar sem markmið, framkvæmd og ábyrgð er skilgreind með skýrum hætti. Óskað er eftir því að samráðshópurinn meti hvort hann geti tekið að sér það hlutverk sem ætlað var starfshópi, í samvinnu við starfsmann samráðshópsins.

24.Niðurstaða útboðs á sorphirðu fyrir Hveragerðibæ

2601033

Lagt er fram minnisblað Jóns Friðriks Matthíassonar, sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs, dags. 15. júní 2026, með upplýsingum um tilboð sem bárust í sorphirðu fyrir Hveragerðisbæ 2026-2029.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að taka tilboði lægstbjóðanda í útboðsverkið og fela bæjarstjóra að undirrita verksamning og önnur skjöl vegna kaupa á þjónustunni. Bæjarráð felur sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs jafnframt að kanna útfærslu á kaupum á sorpílátum sem eru í eigu þess verktaka sem hefur sinnt sorphirðu hingað til og leggja fyrir bæjarstjórn.

25.Nytjaleyfis- og þjónustusamningur um leikskólakerfið Völu

2605089

Lögð eru fram drög að nytjaleyfis- og þjónustusamningi um leikskólakerfið Völu, leiðbeiningar um innleiðingu kerfis og minnisblað Röðuls Reys Kárasonar, stafræns leiðtoga, dags. 15. júní 2026.



Röðull Reyr Kárason, stafrænn leiðtogi, kemur inn á fund bæjarráðs og kynnir hugbúnaðarlausnina Völu.
Bæjarráð þakkar stafrænum leiðtoga fyrir kynninguna og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja nytjaleyfis- og þjónustusamning um leikskólakerfið Völu og fela bæjarstjóra undirritun samningsins.

26.Aðal- og varafulltrúar á aðalfundi og aukaaðalfundi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands bs.

2606004

Bæjarráð samþykkir að eftirtaldir verði fulltrúar Hveragerðisbæjar á aðalfundi og aukaaðalfundi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands bs.

Aðalmenn:
María Rún Þorsteinsdóttir
Sigmar Karlsson
Birgitta Ragnarsdóttir
Lárus Jónsson
Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir
Marta Rut Ólafsdóttir

Varamenn:
Hjalti Helgason
Karitas Róbertsdóttir
Maria Araceli
Jónas Guðnason
Sandra Lind Brynjarsdóttir
Einar Alexander Haraldsson

27.Aðal- og varafulltrúar á aðalfundi og aukaaðalfundi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga

2606004

Bæjarráð samþykkir að eftirtaldir verði fulltrúar Hveragerðisbæjar á aðalfundi og aukaaðalfundi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga.

Aðalmenn:
María Rún Þorsteinsdóttir
Sigmar Karlsson
Birgitta Ragnarsdóttir
Lárus Jónsson
Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir
Marta Rut Ólafsdóttir

Varamenn:
Hjalti Helgason
Karitas Róbertsdóttir
Maria Araceli
Jónas Guðnason
Sandra Lind Brynjarsdóttir
Einar Alexander Haraldsson

28.Aðal- og varafulltrúar á aðalfundi og aukaaðalfundi Bergrisans bs.

2606004

Bæjarráð samþykkir að eftirtaldir verði fulltrúar Hveragerðisbæjar á aðalfundi og aukaaðalfundi Bergrisans bs.

Aðalmenn:
María Rún Þorsteinsdóttir
Sigmar Karlsson
Birgitta Ragnarsdóttir
Þorsteinn Hjartarson
Lárus Jónsson
Marta Rut Ólafsdóttir

Varamenn:
Hjalti Helgason
Karitas Róbertsdóttir
Maria Araceli
Guðmundur Benóný Baldvinsson
Jónas Guðnason
Einar Alexander Haraldsson

29.Tillaga Okkar Hveragerði um samning við Hestamannafélagið Ljúf vegna uppbyggingar reiðhallar

2606096

Lögð er fram tillaga frá Okkar Hveragerði, móttekin 15. júní 2026, um gerð samnings við Hestamannafélagið Ljúf vegna uppbyggingar reiðhallar.



Tillagan er eftirfarandi:

Tillaga um samning við Hestamannafélagið Ljúf vegna uppbyggingar reiðhallar



Okkar Hveragerði leggur til að bæjarstjóra verði falið að leggja drög að samstarfssamningi fyrir fund bæjarstjórnar í september við Hestamannafélagið Ljúf vegna uppbyggingar reiðhallar í samræmi við nýtt deiliskipulag.



Greinargerð

Í fjárhagsáætlun næstu þriggja ára er gert ráð fyrir fjárfestingu upp á 100 milljónir króna sem framlag til uppbyggingar reiðhallar fyrir hestamannafélagið Ljúf skv. nýju deiliskipulagi á svæðinu. Lagt er til að bæjarstjóra verði falið að undirbúa drög að samstarfssamningi vegna verkefnisins við Hestamannafélagið Ljúf fram á fundi bæjarstjórnar í haust svo hestamannafélagið geti skrefað verkefnið áfram.



Fulltrúar D-lista og S-lista í bæjarráði leggja fram eftirfarandi breytingatillögu:

Hugmyndir Hestamannafélagsins Ljúfs eru áhugaverðar og mikilvægt er að Hveragerðisbær styðji við verkefnið. Um þessar mundir stendur yfir greiningarvinna á fjárhagsstöðu sveitarfélagsins og getu þess til frekari fjárfestinga. Jafnframt eru nokkur umfangsmikil og fjárfrek verkefni í gangi sem mikilvægt er að ljúka og tryggja fjárhagslegan grundvöll fyrir áður en ráðist er í nýjar framkvæmdir.

Lagt er til að bæjarstjóra verði falið að eiga formlegt samtal við hagaðila, Hestamannafélagið Ljúf og Sveitarfélagið Ölfus, um uppbyggingu reiðhallar þar sem stór hluti félagsmanna er búsettur í Ölfusi. Markmið samtalsins verði að fara yfir stöðu verkefnisins, meta næstu skref og kanna forsendur samstarfs.

Birgitta Ragnarsdóttir
Sigmar Karlsson

Bæjarráð samþykkir breytingatillöguna samhljóða.

30.Tillaga frá Okkar Hveragerði - Jákvæð hvatning til bæjarbúa um snyrtilegt umhverfi og græna ásýnd

2606097

Lögð er fram tillaga frá Okkar Hveragerði, móttekin 15. júní 2026, um könnun á grundvelli samstarfs við skógræktarfélagið og aðra áhugasama aðila um fræðslu til íbúa til að auka græna ásýnd og snyrtilegt umhverfi í Hveragerði.



Tillagan er eftirfarandi:

Jákvæð hvatning til bæjarbúa um snyrtilegt umhverfi og græna ásýnd



Okkar Hveragerði leggur til að bæjarstjóra verði falið að kanna grundvöll samstarfs við skógræktarfélagið og aðra áhugasama aðila um fræðslu til íbúa til að auka græna ásýnd og snyrtilegt umhverfi í Hveragerði.



Greinargerð

Hluti af sérkennum Hveragerðis er græn, falleg og ævintýraleg ásýnd bæjarins. Okkar Hveragerði leggur til að kannaður verði grundvöllur samstarfs við skógræktarfélagið og aðra áhugasama aðila um fræðslu til íbúa til að auka græna ásýnd og snyrtilegt umhverfi í Hveragerði með jákvæðri hvatningu og fræðslu til íbúa.
Fulltrúar D-lista og S-lista í bæjarráði leggja fram eftirfarandi breytingatillögu:

Líkt og fram kemur í málefnasamningi D og S lista stendur til að hefja fegrunarátak í samstarfi við íbúa nú í upphafi kjörtímabilsins. Tillaga Okkar Hveragerðis fellur vel að þeim áherslum og því er bæjarstjóra falið, í samstarfi við tækni- og umhverfissvið, að undirbúa tillögur að fegrunarátaki í samstarfi við íbúa. Í tillögunum verði gerð grein fyrir mögulegum útfærslum, með hliðsjón af fjárhagslegu svigrúmi sveitarfélagsins og tiltækum mannauði starfsmanna. Stefnt verði að því að tillögurnar verði lagðar fyrir bæjarstjórn í júlí.

Birgitta Ragnarsdóttir
Sigmar Karlsson

Bæjarráð samþykkir breytingatillöguna samhljóða.

31.Tillaga frá Okkar Hveragerði - Auglýst eftir samstarfsaðila um uppbyggingu Hveragarðs

2606098

Lögð er fram tillaga frá Okkar Hveragerði, móttekin 15. júní 2026, um að auglýst verði eftir samstarfsaðila um uppbyggingu Hveragarðsins.



Tillagan er eftirfarandi:



Auglýst eftir samstarfsaðila um uppbyggingu Hveragarðs



Okkar Hveragerði leggur til að auglýst verði eftir samstarfsaðila um uppbyggingu Hveragarðsins. Bæjarstjóra verði falið að leggja drög að auglýsingu eftir samstarfsaðila um uppbyggingu Hveragarðsins fyrir bæjarstjórnarfund í september.



Greinargerð

Á síðasta kjörtímabili hefur verið unnið að mögulegum útfærslum á uppbyggingu Hveragarðsins i miðju bæjarins. Heimamenn gera sér mögulega ekki grein fyrir því hve mikil hveravirkni er þar í raun, en þar má finna eldri ummerki jarðhita í hverahrúðri, leirhveri, og svo gýs þar reglulega vatn fjölda metra í loft upp. Að slíkar náttúruperlur séu staðsettar með þessum hætti, þekkist ekki víða og felur í sér stórkostleg tækifæri. Straumur ferðamanna inn á svæðið telur í hundruðum þúsunda og fer stigvaxandi á ári hverju. Þrátt fyrir að svæðinu hafi ekki verið búin sæmandi umgjörð um lengri tíma.



Tækifæri felast í sérstöðu hverasvæðisins og þeim möguleikum sem hún veitir t.d. í samstarfi bæjar og einkaaðila til sóknar í alþjóðlega sjóði sem veita styrki til uppbyggingar slíkra verkefna. Þar vinna saman mannlíf, náttúra og frumkvæði. Hægt væri í slíku verkefni að stíla inn á gróðurhúsa- og jarðhitaarfleiðina, bæði í byggingarstíl og öðru. Hægt væri að skapa aðstöðu til rannsókna og nýsköpunar samhliða áherslu á upplifun gesta og heimamanna af hverasvæðinu - sannkallaðaðri perlu í miðri byggð bæjarins með gríðarmikið aðdráttarafl.



Áríðandi er í þessu tilliti að gámasvæðið sem blasir við af Hverasvæðinu og önnur slík starfsemi verði færð af svæðinu og tryggð farsæl umgjörð á nýjum stað í samræmi við aðalskipulag.



Okkar Hveragerði leggur til að bæjarstjóra verði falið að leggja drög að auglýsingu eftir samstarfsaðila um uppbyggingu Hveragarðsins fyrir bæjarstjórnarfund í september.
Fulltrúar D-lista og S-lista í bæjarráði leggja fram eftirfarandi bókun:
Ljóst er að mikil tækifæri felast í umræddu svæði og sveitarfélagið þarf að skoða vel hvaða skref verða tekin. Meirihlutinn telur mikilvægt að hefja vinnu með virku samtali við forstöðumenn og starfsfólk svæðisins. Huga þarf að heildstæðri þróun á starfsemi upplýsingamiðstöðvar og Hveragarðsins. Auglýsing eftir samstarfsaðila er ótímabær á þessum tímapunkti. Bent er á að í málefnasamningi meirihlutans er tekið fram að koma á uppbyggingu nýs gámasvæðis í formlegt ferli og vinna markvisst að því að færa starfsemina úr íbúabyggð.

Birgitta Ragnarsdóttir
Sigmar Karlsson

Fulltrúi Okkar Hveragerði í bæjarráði leggur fram eftirfarandi bókun:
Okkar Hveragerði telur mjög mikilvægt að bæjarstjórn Hveragerðisbæjar hugi að uppbyggingu Hveragarðsins.

Jónas Guðnason

Fulltrúi Okkar Hveragerði samþykkir tillöguna. Fulltrúar D-lista og S-lista greiða atkvæði gegn tillögunni.
Tillagan er felld.

32.Verkfundagerð - Hrauntunga - Tröllahraun

2602049

Lögð var fram verkfundargerð frá 6. apríl 2026 vegna gatnagerðar í Hrauntungu og Tröllahrauni.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

33.Verkfundargerð - Reykjadalur - Veitulagnir

2603026

Lögð er fram verkfundargerð frá 21. apríl 2026 vegna lagningar veitulagna að fyrirhuguðu baðlóni í Reykjadal.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

34.Verkfundargerð - Reykjadalur - Veitulagnir

2603026

Lögð er fram verkfundargerð frá 6. maí 2026 vegna lagningar veitulagna að fyrirhuguðu baðlóni í Reykjadal.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

35.Verkfundargerð - Íþróttahús við Skólamörk 2 - 1. áfangi

2603009

Lögð er fram verkfundargerð frá 13. maí 2026 vegna byggingar 1. áfanga íþróttahúss.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

36.Verkfundargerð - Reykjadalur - Veitulagnir

2603026

Lögð er fram verkfundargerð frá 20. maí 2026 vegna lagningar veitulagna að fyrirhuguðu baðlóni í Reykjadal.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

37.Verkfundargerð - Íþróttahús við Skólamörk 2 - 1. áfangi

2603009

Lögð er fram verkfundargerð frá 28. maí 2026 vegna byggingar 1. áfanga íþróttahúss.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

38.Verkfundargerð - Reykjadalur - Veitulagnir

2603026

Lögð er fram verkfundargerð frá 3. júní 2026 vegna lagningar veitulagna að fyrirhuguðu baðlóni í Reykjadal.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

39.Upplýsingar vegna uppbyggingar á gervigrasvelli

2606091

Lagðir eru fram fundarpunktar vegna eftirlitsaðila með uppbyggingu á gervigrasvelli, dags. 4. júní 2026.
Fulltrúi Okkar Hveragerði og áheyrnarfulltrúi Framsóknar leggja fram sameiginlega bókun:

Fram kemur í fundarpunktum að verki við upphitun vallarins sé lokið og að verkliðnum lýsingu sé að ljúka. Þannig er tryggt að völlurinn verði nýtanlegur yfir vetrartímann.

Jónas Guðnason
Marta Rut Ólafsdóttir

Fundarpunktarnir eru lagðir fram til kynningar.

40.Fundagerð stjórnar Tónlistaskóla Árnesinga bs.

2605075

Lögð var fram fundagerð stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga dags. 5. maí 2026.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

41.Fundagerð stjórnar Tónlistaskóla Árnesinga bs.

2605076

Lögð er fram fundagerð stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga bs., rangt dagsett þann 5. maí 2026 en fundurinn var haldinn þann 8. maí 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

42.Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

2602011

Lögð er fram fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 8. maí 2026.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

43.Fundagerðir stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga

2601140

Lagðar eru fram fundargerðir stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, dags. 8. maí 2026 og 5. júní 2026.
Fundargerðirnar eru lagðar fram til kynningar.

44.Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

2602011

Lögð er fram fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 28. maí 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

45.Fundagerð heilbrigðisnefndar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands bs.

2601129

Lögð er fram fundargerð heilbrigðisnefndar, dags 4. júní 2026, ásamt bókun nefndarinnar vegna stöðu fráveitumála í Hveragerði.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
Bæjarráð felur umhverfisfulltrúa að taka saman minnisblað um stöðu mála og skila til sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs og bæjarstjóra.

46.Fundargerð stjórnar Listasafns Árnesinga bs.

2602002

Lögð er fram fundagerð stjórnar Listasafns Árnesinga bs., dags. 8. júní 2026.
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.

47.Fundagerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

2602011

Lögð er fram fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 9. júní 2026.
Bæjarráð tekur undir kröfu stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga sbr. fundarlið 9 í fundargerðinni, um að fallið verði frá fyrirhugaðri birtingu reglugerðar um málsmeðferð vegna ákvörðunar um vistun barna með fjölþættar stuðningsþarfir í sérhæfð vistunarúrræði á vegum ríkisins, sbr.mál nr. S-74-2026 í samráðsgátt.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
Fundargerðin var upp lesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 11:35.

Getum við bætt efni síðunnar?