Bæjarráð
Dagskrá
1.Bréf frá Tónræktinni ehf. vegna tónlistarhátíðar í Lystigarðinum
2605009
Lagt var fram erindi frá Tónræktinni ehf., dags. 5. mars 2026, vegna tónlistarhátíðar í Lystigarðinum dagana 4.-5. júlí 2026, þar sem óskað er eftir styrk frá Hveragerðisbæ að fjárhæð kr. 2.900.000.-
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja styrk til Tónræktarinnar ehf. vegna tónlistarhátíðarinnar Allt í blóma sem fram fer í Lystigarðinum í Hveragerði dagana 4.-5. júlí 2026, að fjárhæð kr. 2.000.000.- að því tilskyldu að viðeigandi leyfi fáist fyrir hátíðinni. Styrkurinn er hækkaður um kr. 1.000.000.- frá því á árinu 2025 í tilefni að 80 ára afmæli bæjarins.
2.Umsókn um styrk til húsverndar
2603129
Lögð var fram umsókn Jónasar Sigurðssonar, dags. 20. mars 2026, um styrk til húsverndar vegna Breiðumarkar 14 í Hveragerði, ásamt fylgiskjölum.
Umsóknin var tekin fyrir í skipulags- og umhverfisnefnd þann 21. apríl 2026 þar sem lagt var til við bæjarstjórn að samþykkja að veita umsækjanda styrk til húsverndar í samræmi við umsókn um að færa skilti í upprunalegt horf.

Meirihluti bæjarráðs leggur til við bæjarstjórn að samþykkja umsóknina og veita umsækjanda kr. 1.000.000.- í styrk í því skyni að breyta skilti á framhlið Beiðumarkar 14 til samræmis við upprunalegt horf. Samkvæmt reglum um styrki til húsverndar er styrkur greiddur út þegar framkvæmdum er lokið og umsækjandi hefur skilað lokaskýrslu/áfangaskýrslu sem byggingarfulltrúi Hveragerðisbæjar hefur staðfest með áritun að framkvæmdum sé lokið í samræmi við kröfur og umsókn. Nýti styrkþegi ekki úthlutaðan styrk á sama ári og honum er úthlutað fellur styrkurinn niður.
Fulltrúi minnishluta D-lista sat hjá við atkvæðagreiðslu og lagði fram eftirfarandi bókun:
Þar sem að fulltrúar D-listans greiddu atkvæði gegn því að reglur um styrki til húsverndunar í Hveragerði tækju gildi situr fulltrúi D-listans hjá við afgreiðslu þessa umsóknar.

3.Bréf frá umboðsmanni barna vegna krakkakosninga
2604069
Lagt var fram erindi frá Salvöru Nordal, umboðsmanni barna, dags. 13. apríl 2026, þar sem var kynnt að umboðsmaður hafi, í samstarfi við KrakkaRÚV, staðið fyrir Krakkakosningum sem hefur verið mikilvægur vettvangur til að efla þátttöku barna í lýðræðislegu ferli, í samræmi við 12. gr. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Umboðsmaður barna hvetur sveitarfélög til að stuðla að aukinni þátttöku barna með því að koma á umræðufundum milli framboða og grunnskólanemenda, sem og að kanna möguleika á að halda Krakkakosningar í samstarfi við grunnskóla og ungmennaráð sveitarfélagsins.
Bæjarráð fagnar erindi umboðsmanns barna enda þarft að vekja athygli barna á mikilvægi kosninga í lýðræðislegu samfélagi. Nú þegar hefur ungmennaráð fengið frambjóðendur á fund til sín en að öðru leyti vísar bæjarráð erindinu til ungmennaráðs til umræðu og eftir atvikum framkvæmdar.
4.Reglugerð um flutning sauð- og geitfjár yfir varnalínur
2604079
Lagt var fram erindi frá Matvælastofnun, móttekið 14. apríl 2026, þar sem vakin er athygli á nýrri reglugerð um flutning sauð- og geitfjár yfir varnarlínur nr. 253/2026.
Erindið var lagt fram til kynningar.
5.Fundarboð á aðalfund Landskerfis bókasafna hf.
2604085
Eftirtalin skjöl voru lögð fram:
Fundarboð á aðalfund Landskerfis bókasafna hf.
Samþykktir Landskerfis bókasafna hf.
Ársreikningur Landskerfis bókasafna hf.
Í fundarboðinu er Hveragerðisbær sem hluthafi í Landskerfi bókasafna hf. boðaður á aðalfund sem haldinn verður þann 12. maí 2026, kl. 14:00.

Bæjarráð samþykkti samhljóða að fela bæjarstjóra að tilnefna starfsmann til þess að sækja aðalfund Landskerfis bókasafna fyrir hönd Hveragerðisbæjar.
6.Bréf frá Félagi heyrnarlausra
2604149
Lagt var fram erindi frá Félagi heyrnarlausra, móttekið 22. apríl 2026, þar sem óskað er eftir styrk vegna Norrænnar menningarhátíðar heyrnarlausra sem haldin verður dagana 29. júlí til 2. ágúst 2026 á Selfossi.
Því miður sér bæjarráð sér ekki fært að veita styrk í verkefnið en fagnar framtakinu.
7.Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga
2605011
Lagt var fram bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 28. apríl 2026, þar sem minnt er á átak sem miðar að því að auka þátttöku almennings um land allt í sveitarstjórnarkosningunum og styrkja lýðræðislega þátttöku á sveitarstjórnarstiginu.
Bæjarráð samþykkti samhljóða að fela bæjarstjóra að deila efni sem miðar að því að auka kosningaþátttöku á heimasíðu og samfélagsmiðla.
8.Fundarboð á ársfund Náttúruhamfaratryggingar Íslands
2605015
Lagt var fram erindi frá Náttúruhamfaratryggingum Íslands, dags. 28. apríl 2026, þar sem sveitarstjórnarmönnum er boðið að sækja ársfund sem haldinn verður þann 21. maí 2026.
Bæjarráð samþykkti samhljóða að fela bæjarstjóra að kynna fundarboðið fyrir bæjarfulltrúum.
9.Bréf til bæjarstjórnar vegna fasteignagjalda
2605019
Lagt var fram bréf til bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar, dags. 30. apríl 2026, frá Lindu Sif Brynjarsdóttur og Einari Sigurðssyni, þar sem lögð er fram beiðni um niðurfellingu fasteignagjalda vegna eignarinnar Laufskóga 19 þar sem jarðhiti hefur valdið skemmdum á fasteigninni.
Bæjarráð telur skilgreiningu náttúruhamfara í 2. gr. reglugerðar um Náttúruhamfaratryggingu Íslands nr. 770/2023 vera ófullnægjandi þar sem jarðhiti virðist ekki falla undir skilgreininguna og felur bæjarstjóra að senda Sambandi íslenskra sveitarfélaga og fjármála- og efnahagsráðherra erindi vegna þessa. Þá leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að fela bæjarstjóra að afla upplýsinga um hvort lagaheimildir séu til staðar fyrir niðurfellingar á fasteignagjöldum.
10.Bréf frá nefnda- og greiningasviði Alþingis
2601116
Lagt var fram bréf frá nefnda- og greiningasviði Alþingis, dags. 24. apríl 2026, þar sem tilkynnt var um að umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hafi sent 595. mál til umsagnar í umsagnargátt Alþingis. Málið varðar frumvarp til loftslagslaga. Umsagnarfrestur er til og með 8. maí 2026.
Bréfið var lagt fram til kynningar.
11.Skýrsla starfshóps um félags- og þjónustukjarna fyrir 60 plús í Hveragerði
2604093
Lögð var fram skýrsla starfshóps um félags- og þjónustukjarna fyrir 60 plús í Hveragerði, dags. 14. apríl 2026.
Bæjarráð fagnar og þakkar fyrir vel unna og efnismikla þarfagreiningar- og staðarvalsskýrslu þjónustukjarna fyrir 60 plús í Hveragerði. Ljóst er að næsti kafli í verkefninu verður unninn á skipulagsstigi.
Bæjarráð vísar skýrslunni til umræðu og vinnslu í skipulags- og umhverfisnefnd.
Bæjarráð vísar skýrslunni til umræðu og vinnslu í skipulags- og umhverfisnefnd.
12.Stofnframlag vegna kaupa á þremur íbúðum í Hveragerði
2603052
Lagt var fram bréf frá Brynju leigufélagi ses., dags. 6. mars 2026, þar sem upplýst er um að félagið hafi lagt fram umsókn til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um stofnframlag til kaupa á þremur íbúðum í Hveragerðisbæ á árinu 2026. Stofnframlag sveitarfélaga í slíkum íbúðum er 12%.
Þá er lagt fram minnisblað frá samráðshópi um málefni fatlaðs fólks í Hveragerði, dags. 28. apríl 2026, þar sem fram kemur að þörf sé á húsnæði í Hveragerði fyrir þann hóp sem uppfyllir skilyrði Brynju leigufélags ses. til úthlutunar húsnæðis.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að leggja til 12% stofnframlag til Brynju leigufélags ses. vegna kaupa á þremur íbúðum í Hveragerðisbæ með þeim fyrirvara að framlagið sé innan þeirra marka sem ætlað er til félagslegs leiguhúsnæðis í fjárfestingaráætlun Hveragerðisbæjar á árinu 2026.
13.Framlög frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna úrbóta á aðgengi fyrir fatlað fólk
2602015
Bæjarráð bókaði eftirfarandi á fundi sínum vegna framlaga vegna aðgengsimála þann 19. febrúar 2026: "Hveragerðisbær sótti um styrk til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til þess að fjármagna verkefni til að bæta aðgengi fatlaðs fólks á árinu 2025. Samþykkt framlag Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til Hveragerðisbæjar er hins vegar ekki fullnýtt og lagði bæjarráð fyrir bæjarstjóra að láta auglýsa eftir ábendingum frá íbúum um verkefni sem lúta að því að bæta aðgengi fatlaðs fólks."
Eftirtalin erindi hafa borist Hveragerðisbæ vegna auglýsingarinnar og voru þau lögð fram:
Minnisblað frá samráðshópi um málefni fatlaðs fólks, dags. 28. apríl 2026.
Ábending um aðgengi að húsnæði Leikfélags Hveragerðis, dags. 25. febrúar 2026.
Ábending um aðgengi að Sundlauginni í Laugarskarði, dags. 23. febrúar 2026.

Bæjarráð samþykkti samhljóða að fela bæjarstjóra að láta vinna úr tillögum samráðshóps um málefni fatlaðs fólks og annarra sem sendu ábendingar.
Friðrik Sigurbjörnsson víkur af fundi undir þessum fundarlið kl. 8:48.
14.Samningur milli Hveragerðisbæjar og Veiðifélags Varmár og Þorleifslækjar
2512076
Lögð voru fram drög að samningi milli Hveragerðisbæjar og Veiðifélags Varmár og Þorleifslækjar um greiðslur vegna veiðibanns í Varmá á árunum 2026 og 2027.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.
Friðrik Sigurbjörnsson kemur inn á fundinn aftur kl. 8:50.
15.Skýrslur Veðurstofu Íslands um hraunvá
2604099
Eftirtalin skjöl eru lögð fram:
Skýrsla Veðurstofu Íslands um hraunvá á Reykjanesskaga - Langtímahættumat, dags. apríl 2026.
Skýrsla Veðurstofu Íslands um hraunvá á höfuðborgarsvæðinu - Langtímahættumat, dags. apríl 2026.
Skýrsla Veðurstofunnar um hraunavá á Reykjanesskaga er vel unnin og fagleg. Niðurstöður hennar eru bæði gagnlegar og mikilvægar fyrir Hveragerði til að dýpka og auka á þekkingu á mögulegu hraunrennsli. Þannig er unnt að uppfæra og efla viðbragðsáætlanir bæjarins og auka enn á öryggi bæjarbúa. Niðurstöðurnar eru ekki spá um aukna áhættu eða aukið hættustig í Hveragerði af völdum hraunflæðis. Seinna á árinu verður gefin út sérstök skýrsla um vesturhluta Árnessýslu. Sú skýrsla mun vonandi gefa enn betri upplýsingar til þessa að byggja uppfærða viðbragðsáætlun á.

Bæjarráð þakkar Veðurstofu Íslands fyrir vandaða vinnu og gott innlegg í uppfærslu viðbragðsáætlunar í samstarfi Hveragerðisbæjar og Almannavarna. Bæjarráð felur bæjarstjóra að hefja undirbúning á uppfærslu viðbragðsáætlunar Hveragerðisbæjar í kjölfarið af því að skýrsla um vesturhluta Árnessýslu kemur út.
16.Viðauki nr. 3 við fjárhagsáætlun 2026 vegna launa á bæjarskrifstofu
2604097
Lagt var fram minnisblað Helgu Kristjánsdóttur, skrifstofustjóra, dags. 20. apríl 2026, ásamt fylgiskjali, þar sem gerð er tillaga að viðauka 3 við fjárhagsáætlun 2026 vegna veikinda starfsmanns á bæjarskrifstofu, að fjárhæð kr. 3.000.000.- af liðnum annar kostnaður bæjarstjórnar vegna launa nr. 21010-9980.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka nr. 3 við fjárhagáætlun ársins 2026 að fjárhæð kr. 3.000.000.- af liðnum annar kostnaður bæjarstjórnar vegna launa nr. 21010-9980.
17.Viðauki nr. 4 við fjárhagsáætlun 2026 vegna mannauðsmála
2604102
Lagt er fram minnisblað Steinunnar Erlu Kolbeinsdóttur, bæjarritara, dags. 4. maí 2026, ásamt fylgiskjali, þar sem gerð er tillaga að viðauka 4 við fjárhagsáætlun 2026, að fjárhæð kr. 9.800.000.- vegna tilfærslu á kostnaði vegna launa og launatengdra gjalda af lið nr. 02430 stuðningsþjónusta og á lið nr. 21400 bæjarskrifstofa vegna vinnslu mannauðsmála.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka nr. 4 við fjárhagáætlun ársins 2026 að fjárhæð kr. 9.800.000.- vegna tilfærslu á kostnaði vegna launa og launatengdra gjalda af lið nr. 02430 stuðningsþjónusta og á lið nr. 21400 bæjarskrifstofa, vegna vinnslu mannauðsmála.
18.Heilsuefling 60 plús
2511163
Lagt er fram minnisblað Guðjónu Bjarkar Sigurðardóttur, framkvæmdastjóra Íþróttafélagsins Hamars, og Kolbrúnar Tönju Eggertsdóttur, forstöðumanns stuðningsþjónustu og málefna eldri borgara, þar sem gerð er tillaga um að samþykkja að hækka greiðslur vegna námskeiðsins Heilsuefling 60 plús á vegum Íþróttafélagsins Hamars um kr. 1.300.000.- þar sem þörf er á aðstoðarþjálfara vegna ásóknar í námskeiðið.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að hækka greiðslur til Íþróttafélagsins Hamars vegna aukningu á kostnaði vegna námskeiðsins Heilsuefling 60 plús á árinu 2026 að fjárhæð kr. 1.300.000.- Um greiðslur fer eins og um aðrar greiðslur vegna verkefnisins.
19.Viðauki nr. 5 við fjárhagsáætlun 2026 vegna heilsueflingar 60 plús
2605021
Lagt er fram minnisblað Steinunnar Erlu Kolbeinsdóttur, bæjarritara, dags. 6. maí 2026, ásamt fylgiskjali, þar sem gerð er tillaga að viðauka 5 við fjárhagsáætlun 2026, að fjárhæð kr. 1.300.000.- vegna kostnaðarauka við heilsueflingu 60 plús og er kostnaðurinn tekinn af handbæru fé.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka nr. 5 við fjárhagáætlun ársins 2026 að fjárhæð kr. 1.300.000.- á lið nr. 02480-9990 tómstundastörf aldraðra - annar rekstrarkostnaður. Kostnaðurinn er tekinn af handbæru fé.
20.Ársreikningur Bergrisans bs. 2025
2603227
Lagður var fram ársreikningur 2025 fyrir Bergrisann bs.
Ársreikningur Bergrisans bs. 2025 er lagður fram til kynningar.
21.Hækkun á fjárhæðum fjárhagsaðstoðar til framfærslu
2604108
Lagt er fram minnisblað Snjólaugar Sigurjónsdóttur, félagsráðgjafa á velferðarsviði, dags. 13. apríl 2026, þar sem gerð er tillaga um að fjárhagsaðstoð til framfærslu hjá Hveragerðisbæ verði hækkuð frá og með 1. maí 2026, miðað við tilgreiningu í minnisblaðinu.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu í framlögðu minnisblaði um hækkun fjárhagsaðstoðar til framfærslu hjá Hveragerðisbæ frá og með 1. maí 2026.
22.Styrkur vegna fjölgreina verkefnis Íþróttafélagsins Hamars á árinu 2026
2604139
Lagt er fram minnisblað Guðjónu Bjarkar Sigurðardóttur, framkvæmdastjóra Íþróttafélagsins Hamars, og Elfu Birkisdóttur, sviðsstjóra mennta-, menningar- og lýðheilsusviðs, dags. 27. apríl 2026, þar sem óskað er eftir styrk vegna fjölgreinaverkefnis fyrir börn í 1. og 2. bekk vegna ársins 2026 að fjárhæð kr. 3.190.000.-
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja greiðslur til Íþróttafélagsins Hamars vegna fjölgreinaverkefnis fyrir nemendur í 1. og 2. bekk á árinu 2026 að fjárhæð kr. 3.190.000.-
23.Viðauki nr. 6 við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna fjölgreinaverkefnis
2605022
Lagt er fram minnisblað Steinunnar Erlu Kolbeinsdóttur, bæjarritara, dags. 4. maí 2026, ásamt fylgiskjali, þar sem gerð er tillaga að viðauka 6 við fjárhagsáætlun 2026, að fjárhæð kr. 3.190.000.- vegna áframhaldandi samstarfs um fjölgreinaverkefni iðkenda í 1. og 2. bekk grunnskóla og er kostnaðurinn tekinn af handbæru fé.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka nr. 6 við fjárhagáætlun ársins 2026 að fjárhæð kr. 3.190.000.- á lið nr. 06810-9420 framlag til íþróttastarfs. Kostnaðurinn er tekinn af handbæru fé.
24.Kaup og uppsetning á ærslabelg
2604172
Lagt er fram minnisblað Árnýjar G. Guðfinnsdóttur, garðyrkjustjóra, dags. 17. mars 2026, vegna kaupa og uppsetningar á ærslabelg í Hveragerðisbæ.
Minnisblaðið er lagt fram til kynningar.
25.Afmælisgjöf frá Kvenfélagi Hveragerðis til Hveragerðisbæjar
2605016
Lagt er fram erindi frá Kvenfélagi Hvergerðis, dags. 4. maí 2026, þar sem tilkynnt er um gjöf til Hveragerðisbæjar í tilefni af 80 ára afmæli Hveragerðisbæjar og 75 ára afmæli Kvenfélagsins.
Bæjarráð þakkar Kvenfélagi Hveragerðis fyrir veglega og glæsilega afmælisgjöf og felur bæjarstjóra að finna bekknum framtíðarstaðsetningu í bænum. Bæjarstjóri mun boða fulltrúa Kvenfélags Hveragerðis til fundar.
26.Útboð vegna sorphirðu fyrir Hveragerðisbæ
2601033
Lögð voru fram drög að útboðsgögnum vegna sorphirðu fyrir Hveragerðisbæ 2026-2029.
Drög að útboðsgögnum eru lögð fram til kynningar.
27.Viðauki við fjárhagsáætlun Brunavarna Árnessýslu bs.
2605024
Lagður var fram viðauki við fjárhagsáætlun Brunavarna Árnessýslu bs. sem samþykktur var á aukaaðalfundi byggðasamlagsins þann 14.10.2025.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka við fjárhagsáætlun Brunavarna Árnessýslu bs. Viðaukinn hefur ekki áhrif á fjárhagsáætlun Hveragerðisbæjar.
28.Yfirlit yfir rekstur Hveragerðisbæjar janúar til mars 2026
2605020
Lagt var fram yfirlit reksturs til þriggja mánaða úr bókhaldi Hveragerðisbæjar vegna janúar til mars 2026.
Helga Kristjánsdóttir, skrifstofustjóri, kom inn á fundinn undir þessum fundarlið og kynnti framlagðar upplýsingar.
Helga Kristjánsdóttir, skrifstofustjóri, kom inn á fundinn undir þessum fundarlið og kynnti framlagðar upplýsingar.
Bæjarráð þakkar skrifstofustjóra fyrir kynninguna.
29.Staða fjárfestinga Hveragerðisbæjar í apríl 2026
2605023
Lagt var fram yfirlit um stöðu fjárfestinga Hveragerðisbæjar í apríl 2026.
Helga Kristjánsdóttir, skrifstofustjóri, kom inn á fundinn undir þessum fundarlið og kynnti framlagðar upplýsingar.
Helga Kristjánsdóttir, skrifstofustjóri, kom inn á fundinn undir þessum fundarlið og kynnti framlagðar upplýsingar.
Bæjarráð þakkar skrifstofustjóra fyrir kynninguna.
30.Verkfundagerð - Hrauntunga - Tröllahraun
2602049
Lögð var fram verkfundargerð frá 10. apríl 2026 vegna gatnagerðar í Hrauntungu og Tröllahrauni.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
31.Verkfundagerð - Hrauntunga - Tröllahraun
2602049
Lögð var fram verkfundargerð frá 27. mars 2026 vegna gatnagerðar í Hrauntungu og Tröllahrauni.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
32.Verkfundargerð vegna veitulagna á íþróttasvæði í Reykjadal
2604067
Lögð var fram verkfundargerð frá 27. mars 2026 vegna veitulagna á íþróttasvæði í Reykjadal.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
33.Verkfundargerð - Reykjadalur - Veitulagnir
2603026
Lögð var fram verkfundargerð frá 8. apríl 2026 vegna lagningar veitulagna að fyrirhuguðu baðlóni í Reykjadal.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
34.Verkfundargerð vegna veitulagna á íþróttasvæði í Reykjadal
2604067
Lögð var fram verkfundargerð frá 10. apríl 2026 vegna veitulagna á íþróttasvæði í Reykjadal.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
35.Verkfundargerð - Íþróttahús við Skólamörk 2 - 1. áfangi
2603009
Lögð var fram verkfundargerð frá 30. apríl 2026 vegna byggingar 1. áfanga íþróttahúss.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
36.Verkfundargerð - Íþróttahús við Skólamörk 2 - 1. áfangi
2603009
Lögð var fram verkfundargerð frá 16. apríl 2026 vegna byggingar 1. áfanga íþróttahúss.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
37.Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
2602011
Lögð var fram fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 10. apríl 2026.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
38.Fundargerð stjórnar Brunavarna Árnessýslu bs.
2604017
Lögð var fram fundargerð stjórnar Brunavarna Árnessýslu frá 7. apríl 2026.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
39.Fundargerð aukaaðalfundar Tónlistarskóla Árnesinga bs.
2604138
Lögð var fram fundargerð aukaaðalfundar Tónlistarskóla Árnesinga bs. frá 14. apríl 2026.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
40.Fundargerð aukaaðalfundar Listasafns Árnesinga bs.
2602002
Lögð var fram fundargerð aukaaðalfundar Listasafns Árnesinga bs. frá 14. apríl 2026.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
41.Fundargerð aukaaðalfundar Héraðsskjalasafns Árnesinga bs.
2604137
Lögð var fram fundargerð aukaaðalfundar Héraðsskjalasafns Árnesinga bs. frá 14. apríl 2026.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
42.Fundargerð aukaaðalfundar Byggðasafns Árnesinga bs.
2602003
Lögð var fram fundargerð aukaaðalfundar Byggðasafns Árnesinga bs. frá 14. apríl 2026.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
43.Fundargerð aukaaðalfundar Brunavarna Árnessýslu bs.
2604136
Lögð var fram fundargerð aukaaðalfundar Brunavarna Árnessýslu bs. frá 14. apríl 2026.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
44.Fundargerð vorfundar Héraðsnefndar Árnesinga bs.
2604135
Lögð var fram fundargerð vorfundar Héraðsnefndar Árnesinga bs. frá 14. apríl 2026.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
45.Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
2602011
Lögð var fram fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 17. apríl 2026.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
46.Fundargerð stjórnar Bergrisans bs.
2602060
Lögð var fram fundargerð stjórnar Bergrisans bs. frá 23. mars 2026.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
47.Fundagerð Heilbrigðisnefndar Suðurlands
2601129
Lögð voru fram eftirtalin skjöl:
Fundargerð Heilbrigðisnefndar Suðurlands, dags. 28. apríl 2026.
T-póstur frá framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Suðurlands bs., dags. 30. apríl 2026, þar sem vakin er athygli á bókun Heilbrigðisnefndar Suðurlands vegna tilfærslu eftirlits til ríkisins.
Yfirlit yfir framlög sveitarfélaga á Suðurlandi til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands bs.
T-póstur frá framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Suðurlands bs., dags. 30. apríl 2026, vegna bókunar Heilbrigðisnefndar Suðurlands á fundi þann 28. apríl 2026 vegna fráveitu í Hveragerði.

Bæjarráð samþykkti samhljóða að fela bæjarstjóra að senda Heilbrigðisnefnd Suðurlands umbeðnar upplýsingar sbr. bókun nefndarinnar.
48.Fundargerð stjórnar Brunavarna Árnessýslu bs.
2604017
Lögð var fram fundargerð stjórnar Brunavarna Árnessýslu bs. frá 30. apríl 2026.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórnar að samþykkja einfalda ábyrgð Hveragerðisbæjar vegna lántöku Brunavarna Árnessýslu bs. í samræmi við bókun stjórnar Brunavarna Árnessýslu bs.
49.Fundargerð stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga
2601140
Lögð var fram fundargerð stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga frá 10. apríl 2026.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
50.Fundarboð á aðalfund Eignarhaldsfélags Suðurlands hf.
2605046
Eftirtalin skjöl voru lögð fram:
Fundarboð á aðalfund Eignarhaldsfélags Suðurlands.
Dagskrá aðalfundar Eignarhalds Suðurlands.
Samþykktir Eignarhaldsfélags Suðurlands.
Hluthafaskrá Eignarhaldsfélags Suðurlands.
Í fundarboðinu er Hveragerðisbær sem hluthafi í Eignarhaldsfélags Suðurlands boðað á aðalfund sem haldinn verður þann 27. maí nk. kl. 13:00.

Bæjarráð samþykkti samhljóða að fela bæjarstjóra að tilnefna fulltrúa Hveragerðisbæjar á aðalfund Eignarhaldsfélags Suðurlands hf. og gefa út umboð til viðkomandi fulltrúa til setu á fundinum fyrir hönd Hveragerðisbæjar.
Fundargerðin var upp lesin og samþykkt.
Fundi slitið - kl. 10:15.
Getum við bætt efni síðunnar?
Bæjarráð samþykkti samhljóða að taka fundarlið nr. 50 inn á dagskrá bæjarráðs, með afbrigðum.