Fara í efni

Bæjarráð

886. fundur 16. apríl 2026 kl. 08:00 - 09:13 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir formaður
  • Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir varaformaður
  • Friðrik Sigurbjörnsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Pétur G. Markan bæjarstjóri
  • Steinunn Erla Kolbeinsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Steinunn Erla Kolbeinsdóttir bæjarritari
Dagskrá
Pétur G. Markan, bæjarstjóri, sat fundinn í gegnum fjarfundarbúnað.

Formaður bæjarráðs, Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, setti fund og stjórnaði. Leitaði hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.

1.Bréf frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis frá 27. mars 2026

2601116

Lagt var fram bréf frá nefnda- og greiningasviði Alþingis, dags. 27. mars 2026, þar sem tilkynnt er um að atvinnuveganefnd Alþingis hafi sent 568. mál til umsagnar í umsagnargátt Alþingis. Málið varðar lagafrumvarp um stofnun atvinnuveganna. Umsagnarfrestur er til og með 15. apríl 2026.
Bréfið var lagt fram til kynningar.

2.Bréf frá Skógræktarfélagi Íslands

2603228

Lagt var fram bréf, dags. 28. mars 2026, frá Skógræktarfélagi Íslands með ályktun fulltrúafundar Skógræktarfélags Íslands vegna breytingartillögu meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis við frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar og samræmingar leyfisferla (157. löggjafarþing, mál 265, þskj. 949).
Bréfið var lagt fram til kynningar.

3.Boðun á aðalfund Háskólafélags Suðurlands

2604025

Lögð er fram dagskrá aðalfundar Háskólafélags Suðurlands sem haldinn verður þann 4. maí n.k.
Bæjarráð samþykkti samhljóða að fulltrúi Hveragerðisbæjar á fundinum verði Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir.

4.Bréf frá íbúðaeigendum við Reykjamörk 4 og 6 í Hveragerði

2604064

Lagt var fram bréf frá átta íbúðaeigendum við Reykjamörk 4 og 6 þar sem ítrekuð er krafa um að gengið verði frá svæði milli Reykjamarkar 4 og 6 og Garðyrkjustöðvarinnar Borg.
Bæjarráð samþykkti samhljóða að fela bæjarstjóra að fara yfir stöðu málsins með starfsfólki tækni- og umhverfissviðs og upplýsa bæjarráð.

5.Bréf frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands

2601126

Lagt var fram bréf, dags. 31. mars 2026, frá EBÍ þar sem tilkynnt var um að Hveragerðisbær hefði fengið styrk að fjárhæð kr. 250.000.- vegna verkefnisins "Söguskilti um kanadíska hermenn".
Bréfið var lagt fram til kynningar.

6.Samningur um spjallmenni og leitarvél á heimasíðu

2601020

Eftirtalin skjöl voru lögð fram:

Drög að samningi við Advania Ísland ehf.

Minnisblað Röðuls Reys Kárasonar, stafræns leiðtoga, dags. 13. apríl 2026.



Samningurinn gerir ráð fyrir kaupum Hveragerðisbæjar á hugbúnaðarleyfum vegna leitarvélar og spjallmennis til þess að bæta við heimasíðu Hveragerðisbæjar.



Röðull Reyr Kárason, stafrænn leiðtogi, kom inn á fundinn og kynnti hugbúnaðarlausnina.



Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn um kaup á hugbúnaðarleyfum vegna leitarvélar og spjallmennis og að fela bæjarstjóra að undirrita samninginn.

7.Samningur um Icepets gæludýraskráningarkerfið

2603079

Eftirtalin skjöl voru lögð fram:

Kynning á Icepets gæludýraskráningarkerfinu.

Drög að þjónustusamningi við Nexum ehf.

Drög að vinnslusamningi um meðferð persónuupplýsinga.

Tilboð í QR merki fyrir gæludýr.

Minnisblað Röðuls Reys Kárasonar, stafræns leiðtoga, dags. 8. apríl 2026.



Samningurinn við Nexum ehf. gerir ráð fyrir kaupum Hveragerðisbæjar á hugbúnaðarleyfum vegna Icepets sem er rafrænt skráningarkerfi fyrir gæludýr.



Röðull Reyr Kárason, stafrænn leiðtogi, kom inn á fundinn og kynnti hugbúnaðinn.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi samning um Icepets gæludýraskráningakerfið og að fela bæjarstjóra að undirrita samninginn.

8.Styrkur vegna hreinsunar á orgeli í Hveragerðiskirkju

2604061

Lagt var fram minnisblað Péturs G. Markan, bæjarstjóra, dags. 13. apríl 2026, þar sem gerð er tillaga um að veita styrk vegna hreinsunar á orgeli Hveragerðiskirkju.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að veita Hveragerðiskirkju kr. 100.000.- í styrk vegna hreinsunar á orgeli.

9.Tillaga frá Okkar Hveragerði og Framsókn um varðveislu gróðurhúsaarfleiðar frá bæjarstjórn 9. apríl 2026

2604008

Lagt fram minnisblað frá Pétri G. Markan, bæjarstjóra, dags. 13. apríl 2026, vegna stofnunar hóps sem falið er að vinna stefnu um varðveislu sögu og ásýndar gróðurhúsarfleiðar í Hveragerði.

Í tillögu bæjarstjóra er mælt með að skipað verði í hópinn á fyrstu fundum nýrrar bæjarstjórnar þannig tryggt verði að það mikilvæga verkefni sem hópnum er ætlað að vinna raskist ekki vegna fyrirséðra mannabreytingar í bæjarstjórn, í kjölfar sveitarstjórnarkosninga 16.maí. Þá verði einnig lagt fram á sama fundi verklýsing í erindisbréfi sem hópnum er ætlað að vinna eftir.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að skipað verði í hóp sem ætlað er að vinna stefnu um varðveislu sögu og ásýndar gróðurhúsaarfleiðar í Hveragerðisbæ á fyrsta fundi eftir sveitarstjórnarkosningar til þess að tryggja samfellu í vinnu hópsins.

10.Tilboð vegna öryggisvörslu

2604063

Lagt var fram minnisblað Jóns Friðriks Matthíassonar, sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs, dags. 13. apríl 2026 vegna opnunar tilboða í öryggisvörslu fyrir Hveragerðisbæ til næstu fjögurra ára.



Eftirtalin tilboð bárust í þjónustu vegna öryggisvörslu:

Securitas, tilboð að fjárhæð kr. 15.570.568.-

Öryggismiðstöðin, tilboð að fjárhæð kr 18.346.200.-
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tilboð Securitas að fjárhæð kr. 15.570.568.- í þjónustu vegna öryggisvörslu fyrir Hveragerðisbæ og fela bæjarstjóra að ganga til samninga á grundvelli tilboðsins.

11.Samningur við Veiðifélag Varmár og Þorleifslækjar

2512076

Lagður er fram samningur Hveragerðisbæjar við Veiðifélag Varmár og Þorleifslækjar, dags. 21. desember 2023.
Bæjarráð samþykkti samhljóða að fela bæjarstjóra að gera drög að nýjum samningi við Veiðifélag Varmár og Þorleifslækjar í samræmi við umræður á fundinum og leggja fram á næsta fundi bæjarráðs.

12.Fyrirspurn fulltrúa D-lista um uppbyggingu íþróttamannvirkja

2604004

Á fundi bæjarráðs þann 9. apríl s.l. var lögð fram fyrirspurn frá fulltrúa D-lista um uppbyggingu íþróttamannvirkja og upplýsti bæjarstjóri að unnið væri að því að taka saman upplýsingarnar.
Lagt var fram minnisblað Jóns Friðriks Matthíassonar, sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs, dags. 13. apríl 2026, með umbeðnum upplýsingum.

13.Umræða um samning vegna bílastæða við Árhólma

2508321

Helga Kristjánsdóttir, skrifstofustjóri, kom inn á fund bæjarráðs undir þessum fundarlið.
Bæjarráð samþykkti að fela bæjarstjóra að gera drög að samningi vegna bílastæða við Árhólma, í samræmi við umræður á fundinum, og leggja fram á næsta fundi bæjarráðs.

14.Mannauðsmál

2604065

Lagt er fram minnisblað Péturs. G. Markan, bæjarstjóra, dags. 14. apríl 2026, þar sem gerð er tillaga um að bæjarráð samþykki tilfærslu stöðugildis af velferðarsviði yfir á stjórnsýslusvið. Hlutverki forstöðumanns stuðningsþjónustu hefur verið breytt og starfsmanni því boðin ný staða á stjórnsýslusviði m.a. vegna vinnslu mannauðsmála.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að breytingu á hlutverki forstöðumanns stuðningsþjónustu á velferðarsviði og bjóða starfsmanni nýja stöðu á stjórnsýslusviði m.a. vegna vinnslu mannauðsmála.

15.Verkfundargerð Reykjadalur - Veitulagnir

2603026

Lögð var fram verkfundargerð frá 18. mars 2026 vegna lagningar veitulagna í Reykjadal.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

16.Fundagerð stjórnar Brunavarna Árnessýslu bs.

2604017

Lögð var fram fundargerð stjórnar Brunavarna Árnessýslu bs., dags. 20. mars 2026.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
Pétur G. Markan, bæjarstjóri, vék af fundi kl. 8:40.

Fundargerðin var upp lesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 09:13.

Getum við bætt efni síðunnar?