Fara í efni

Bæjarráð

884. fundur 19. mars 2026 kl. 08:00 - 09:21 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir formaður
  • Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir varaformaður
  • Friðrik Sigurbjörnsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Pétur G. Markan bæjarstjóri
  • Steinunn Erla Kolbeinsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Steinunn Erla Kolbeinsdóttir bæjarritari
Dagskrá
Formaður bæjarráðs, Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, setti fund og stjórnaði. Leitaði hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.

1.Bréf frá nefnda- og greiningasviði Alþingis

2601116

Lagt var fram bréf frá nefnda- og greiningasviði Alþingis, dags. 5. mars 2026, þar sem tilkynnt er um að umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hafi sent 499. mál til umsagnar í umsagnargátt Alþingis. Málið varðar varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum. Umsagnarfrestur er til og með 19. mars 2026.
Bréfið var lagt fram til kynningar.

2.Bréf frá Heilbrigðisráðuneytinu

2603042

Lagt var fram bréf frá Heilbrigðisráðuneytinu sem móttekið var þann 5. mars 2026. Í bréfinu er vakin var athygli á því að Alþingi hafi samþykkt frumvarp sem fellir brott lög um Heyrnar- og talmeinastöð og verður stofnunin því lögð niður. Öll heilbrigðisþjónusta sem stofnunin hefur veitt verður færð til Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins nema útvegun búnaðar. Sveitarfélög munu því þurfa að leita annarra leiða til þess að verða sér út um búnað fyrir heyrnaskert börn í grunnskólum.
Bæjarráð fól bæjarstjóra að sjá um að erindið verði kynnt á velferðarsviði.

3.Frumvarp til heildarlaga um sveitarstjórnir

2601116

Eftirfarandi skjöl voru lögð fram:

Bréf frá nefnda- og greiningasviði Alþingis, dags. 6. mars 2026.

Frumvarp til nýrra heildarlaga um sveitarstjórnir.

Bréf frá Innviðaráðuneytinu, dags. 11. mars 2026.

Skýrsla Innviðaráðuneytis um samráð, dags. mars 2026.



Í bréfum frá nefnda- og greiningasviði Alþingis og Innviðaráðuneytinu er tilkynnt um að umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hafi sent 505. mál til umsagnar í umsagnargátt Alþingis. Málið varðar setningu nýrra heildarlaga um sveitarstjórnir. Umsagnarfrestur er til og með 20. mars 2026.
Bæjarráð fól bæjarstjóra að skila inn umsögn um frumvarpið.

4.Heimsókn frá verkefnastjóra úrgangsmála hjá SASS

2603097

Árni Magnússon, verkefnastjóri hjá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga, kom á fund bæjarráðs til þess að kynna það verkefni sem hann sinnir á sviði úrgangsmála fyrir sveitarfélög á Suðurlandi og til þess að afla upplýsinga um núverandi innviði, lausnir og áætlanir Hveragerðisbæjar á sviði úrgangsmála.

Viðstaddir umræðu undir þessum fundarlið voru: Jón Friðrik Matthíasson, sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs og Höskuldur Þorbjarnarson, umhverfisfulltrúi.
Farið var yfir stöðu úrgangsmála hjá Hveragerðisbæ og möguleika á samvinnu sveitarfélaga á Suðurlandi í þeim málaflokki. Bæjarráð þakkaði gestum fyrir gagnlegar umræður um úrgangsmál.

5.Stjórnsýsluskoðun Hveragerðisbæjar

2601074

Lögð var fram skýrsla KPMG, dags. 9. mars 2026, vegna stjórnsýsluskoðunar Hveragerðisbæjar á árinu 2025 sem unnin var samhliða endurskoðun ársreiknings.
Skýrslan var lögð fram til kynningar.

6.Bílastæði á Árhólmasvæðinu

2508321

Í uppbyggingarsamningi um Árhólmasvæðið var ekki tekin endanleg ákvörðun um fyrirkomulag bílastæðamála og hafa samningaviðræður staðið yfir vegna þess.
Bæjarstjóri upplýsti um að unnið sé að samningagerð við aðila sem standa að uppbyggingu á Árhólmasvæðinu um framtíðarfyrirkomulag bílastæðamála.

7.Fundarboð vorfundar Héraðsnefndar Árnesinga bs.

2603098

Lagt var fram fundarboð á vorfund Héraðsnefndar Árnesinga bs. og tengdra stofnanna sem haldinn verður 14. apríl 2026.
Fundarboðið var lagt fram til kynningar.

8.Ráðgjöf og umsjón með útboði á tryggingum

2603099

Lagt var fram tilboð frá Consello ehf., dags. 5. mars 2026, í ráðgjöf og umsjón með útboði á tryggingum fyrir Hveragerðisbæ.

Helga Kristjánsdóttir, skrifstofustjóri, var viðstödd umræðu undir þessum fundarlið.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tilboð Consello ehf. í ráðgjöf og umsjón með útboði á tryggingum samkvæmt fyrirliggjandi tilboði og að fela bæjarstjóra að ganga til samninga á grundvelli tilboðsins.

9.Kynning á starfsemi Innviðafélags Íslands slhf.

2603096

Upplýsingar um starfsemi Innviðafélags Íslands slhf. voru lagðar fram en félagið er samstarfsvettvangur lífeyrissjóða vegna fjármögnunar á innviðauppbyggingarverkefnum opinberra aðila.
Lagt fram til kynningar.

10.Þjónustusamningur við foreldrafélag Grunnskólans í Hveragerði

2603100

Lagður var fram þjónustusamningur við foreldrafélag Grunnskólans í Hveragerði.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja þjónustusamning við foreldrafélag Grunnskólans í Hveragerði og fela bæjarstjóra að undirrita samninginn.

11.Verkfundagerð - Hrauntunga - Tröllahraun

2602049

Lögð var fram verkfundargerð frá 12. febrúar 2026 vegna gatnagerðar í Hrauntungu og Tröllahrauni.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

12.Verkfundagerðir - Reykjadalur - Veitulagnir

2603026

Lagðar voru fram verkfundargerðir frá 18. febrúar 2026 og 4. mars 2026 vegna lagningar veitulagna í Reykjadal.
Fundargerðirnar voru lagðar fram til kynningar.

13.Verkfundargerð - Íþróttahús við Skólamörk 2 - 1. áfangi

2603009

Lögð var fram verkfundargerð frá 5. mars 2026 vegna byggingar 1. áfanga íþróttahúss.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

14.Fundargerð aðalfundar Félags eldri borgara í Hveragerði 2026

2603088

Lögð var fram fundargerð aðalfundar Félags eldri borgara í Hveragerði frá 21. febrúar 2026 ásamt ársreikningi og skýrslu formanns.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar ásamt fylgigögnum.

15.Fundagerð stjórnar Tónlistaskóla Árnesinga bs.

2603035

Lögð var fram fundargerð stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga bs. frá 26. febrúar 2026.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

16.Fundagerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

2602011

Lögð var fram fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 3. mars 2026.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
Fundargerðin var upp lesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 09:21.

Getum við bætt efni síðunnar?