Fara í efni

Bæjarráð

883. fundur 05. mars 2026 kl. 08:00 - 10:14 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir formaður
  • Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir varaformaður
  • Friðrik Sigurbjörnsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Pétur G. Markan bæjarstjóri
  • Steinunn Erla Kolbeinsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Steinunn Erla Kolbeinsdóttir bæjarritari
Dagskrá
Formaður bæjarráðs, Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, setti fund og stjórnaði. Leitaði hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.

1.Fundarboð aðalfundar Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.

2603003

Lagt var fram fundarboð vegna aðalfundar Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. sem haldinn verður 20. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.

2.Frumvarp til laga um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati

2603013

Lagt var fram erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga sem sent var til framkvæmdastjóra aðildarsveitarfélaga Samtaka orkusveitarfélaga þar sem vakin var athygli á frumvarpi til laga um rýmiseignir og afnám á undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati. Frumvarpið er til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda, mál nr. S-51/2026. Umsagnarfrestur er til og með 6. mars 2026.
Bæjarráð samþykkti samhljóða að fela bæjarstjóra að skila umsögn um frumvarpið þar sem vakin er athygli á hagsmunum Hveragerðisbæjar.

3.Viljayfirlýsing vegna uppbyggingar á námsmannaíbúðum í Hveragerði

2309078

Lögð voru fram drög að viljayfirlýsingu milli Hveragerðisbæjar og Byggingafélags námsmanna ses. um uppbyggingu námsmannaíbúða við Gróðurmörk í Hveragerði.
Bæjarráð lagði til við bæjarstjórn að samþykkja viljayfirlýsinguna með gildistíma til tveggja ára.

4.Vorsabær 4 - innköllun lóðar

2602040

Lóðinni Vorsabæ 4 var úthlutað til Húsmóta ehf. á fundi bæjarráðs þann 12. maí 2021 og eru frestir liðnir til þess að hefja framkvæmdir skv. reglum um úthlutun lóða.

Eftirtalin skjöl voru lögð fram:

Bréf Hveragerðisbæjar til Húsmóta ehf., dags. 17. maí 2021.

Bréf Hveragerðisbæjar til Húsmóta ehf., dags. 11. febrúar 2026.

Bréf Húsmóta ehf. til Hveragerðisbæjar, dags. 25. febrúar 2026.

Minnisblað Jóns Friðriks Matthíassonar, byggingarfulltrúa, dags. 2. mars 2026.





Bæjarráð samþykkti samhljóða að veita Húsmótum ehf. 4 mánaða frest til þess að hefja framkvæmdir og ná byggingarstigi 2 eða til og með 5. júlí 2026.

5.Samningur um uppbyggingu á Árhólmasvæðinu

2402103

Lagt var fram minnisblað frá Reykjadalsfélaginu ehf., dags. 24. febrúar 2026, og drög að viðauka við uppbyggingarsamning. Reykjadalsfélagið ehf. óskar eftir breytingum á uppbyggingarsamningi um Árhólmasvæðið. Breytingin sem félagið óskar eftir fellst í því að fallið verði frá því að dreifa byggingarréttargjaldi milli lóða á grundvelli lóðarstærðar og að dreifingin miði við heimilt byggingarmagn. Heildarfjárhæð kaupverðs byggingarréttar er óbreytt.
Bæjarráð lagði til við bæjarstjórn að samþykkja beiðni Reykjadalsfélagsins ehf. um breytingu á uppbyggingarsamningi vegna Árhólmasvæðisins og fyrirliggjandi viðauka með þeim breytingum sem voru ræddar.

6.Ráðgjöf vegna útboðs á úrgangsþjónustu fyrir Hveragerðisbæ

2601033

Eftirtalin skjöl voru lögð fram:

Minnisblað Höskuldar Þorbjarnarsonar, umhverfisfulltrúa, dags. 27. febrúar 2026, ásamt greinargerð.

Tilboð frá Consensa ehf.

Tilboð frá Eflu hf.

Tilboð frá Verkís hf.

Tilboð frá Cowi Ísland ehf.
Miðað við þau tilboð sem bárust var tilboð Eflu hf. metið hagstæðast. Bæjarráð lagði til við bæjarstjórn að taka tilboði Eflu hf. í ráðgjöf og umsjón útboðs á úrgangsþjónustu fyrir Hveragerðisbæ og að fela bæjarstjóra að ganga til samninga á grundvelli tilboðsins.

7.Umsókn um byggingarlóð - Öxnalækjarvegur 5

2601138

Þrjár gildar umsóknir bárust um lóðina Öxnalækjarveg 5, en tvær þeirra voru dregnar til baka.

Umsóknin sem eftir stendur var lögð fram.

Aðstoðarmaður í tæknideild hefur yfirfarið umsóknina og öll gögn umsækjanda sem uppfyllir skilyrði til þess að fá lóðinni úthlutað.
Bæjarráð samþykkti samhljóða að úthluta lóðinni Öxnalækjarvegi 5 til umsækjandans Sturlas ehf.

8.Samningur vegna Hengils Ultra trail

2511028

Lögð voru fram drög að samningi við Tailwind ehf. vegna Hengils Ultra trail utanvegahlaupsins ásamt viðaukum.

Sigríður Hjálmarsdóttir, menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúi, kom inn á fundinn og kynnti samninginn.
Samningsdrögin voru lögð fram til kynningar.
Bæjarráð þakkaði menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúa, fyrir kynninguna.

9.Reglur um útnefningu heiðursborgara Hveragerðisbæjar

2511015

Lögð voru fram drög að reglum um val og útnefningu heiðursborgara Hveragerðisbæjar.

Sigríður Hjálmarsdóttir, menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúi, kom inn á fundinn og kynnti reglurnar.
Reglurnar voru lagðar fram til kynningar.
Bæjarráð þakkaði menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúa, fyrir kynninguna.

10.Stöðufundur með fulltrúum Veitna ohf.

2602001

Eftirtaldir starfsmenn Veitna ohf. komu inn á fund bæjarráðs: Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri, Nanna Kristín Tryggvadóttir, Brynja Ragnarsdóttir, Haukur Þorvaldsson, Bjarni Líndal, Jón Tryggvi Guðmundsson og Þráinn Friðriksson.
Bæjarráð þakkaði starfsmönnum Veitna ohf. fyrir gagnlega yfirferð og góðan fund.
Bæjarráð fól bæjarstjóra að boða til fundar með Veitum ohf. í tengslum við vinnslu aðalskipulags og atvinnuuppbyggingu.

11.Leigusamningur Fasteignafélags Hveragerðis ehf. og Hveragerðisbæjar

2603012

Lagður var fram leigusamningur milli Fasteignafélags Hveragerðis ehf. og Hveragerðisbæjar um atvinnuhúsnæðið að Skólamörk 2B.
Bæjarráð lagði til við bæjarstjórn að samþykkja leigusamninginn um Skólamörk 2B og að fela bæjarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd Hveragerðisbæjar.

12.Verkfundargerð vegna uppbyggingar íþróttahúss við Skólamörk 2 - 1. áfangi

2603009

Lögð var fram verkfundargerð frá 18. febrúar 2026 vegna byggingar 1. áfanga íþróttahúss.

Þormóður Þormóðsson, verkefnastjóri verktaka, kom á inn á fundinn og kynnti verkefnið.

Verkfundargerðin var lögð fram til kynningar.
Bæjarráð þakkaði Þormóði Þormóðssyni fyrir kynninguna á verkefninu.

13.Fundargerð Heilbrigðisnefndar Suðurlands

2601129

Lögð var fram fundargerð Heilbrigðisnefndar Suðurlands frá 24. febrúar 2026, ásamt bréfi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands til Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, dags. 15. janúar 2026.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

14.Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

2602011

Lögð var fram fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 18. febrúar 2026.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
Fundargerðin var upp lesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 10:14.

Getum við bætt efni síðunnar?