Fara í efni

Bæjarráð

882. fundur 19. febrúar 2026 kl. 08:00 - 09:27 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir formaður
  • Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir varaformaður
  • Friðrik Sigurbjörnsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Pétur G. Markan bæjarstjóri
  • Steinunn Erla Kolbeinsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Steinunn Erla Kolbeinsdóttir bæjarritari
Dagskrá
Formaður bæjarráðs, Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, setti fund og stjórnaði. Leitaði hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.

1.Bréf frá Atlantsflugi ehf.

2602013

Lagt var fram bréf frá Atlantsflugi ehf., móttekið þann 2. febrúar 2026, þar sem vakin var athygli á þingsályktunartillögu nr. 16 sem liggur nú fyrir Alþingi og hvatt var til þess umsögn væri lögð fram af hálfu Hveragerðisbæjar.

Lagt fram til kynningar.

2.Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga

2602016

Lagt var fram bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, móttekið 3. febrúar 2026, þar sem tilkynnt var um landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga á Akureyri dagana 23.-25. september 2026.
Lagt fram til kynningar.

3.Bréf frá Innviðaráðuneytinu

2601146

Lagt var fram bréf frá Innviðaráðuneytinu, móttekið þann 3. febrúar 2026, þar sem vakin er athygli á vefkönnun ráðuneytisins. Í vefkönnuninni er óskað eftir tillögum um hvernig megi einfalda regluverk um verkefni sveitarfélaga. Frestur til þátttöku er til og með 10. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.

4.Bréf frá Bergrisanum bs.

2602015

Lagt var fram bréf frá Bergrisanum bs., dags. 3. febrúar 2026, þar sem minnt var á bréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, dags. 9. apríl 2025, um framlög ríkisins til úrbóta í aðgengismálum fatlaðs fólks. Bréf Jöfnunarsjóðs var jafnframt lagt fram ásamt skjali með kostnaðarskiptingu framlaga fyrir Suðurland.
Hveragerðisbær sótti um styrk til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til þess að fjármagna verkefni til að bæta aðgengi fatlaðs fólks á árinu 2025. Samþykkt framlag Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga til Hveragerðisbæjar er hins vegar ekki fullnýtt og lagði bæjarráð fyrir bæjarstjóra að láta auglýsa eftir ábendingum frá íbúum um verkefni sem lúta að því að bæta aðgengi fatlaðs fólks.

5.Bréf frá Sambandi íslenska sveitarfélaga

2602023

Lagt var fram bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, móttekið 5. febrúar 2026, þar sem vakin var athygli á átaki sem miðar að því að styrkja lýðræðið á sveitarstjórnarstigi.
Lagt fram til kynningar.

6.Bréf frá Tónlistaskóla Árnesinga bs.

2602047

Lagt var fram bréf frá Tónlistarskóla Árnesinga bs., dags. 10. febrúar 2026, og skjal með uppfærðri kostnaðarskiptingu aðildarsveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.
Í fjárhagsáætlun Hveragerðisbæjar fyrir árið 2026 var gert ráð fyrir þeim kostnaði sem fram kemur í framlögðum gögnum frá Tónlistarskóla Árnesinga bs.

7.Bréf frá Lánasjóði sveitarfélaga.

2602054

Lagt var fram bréf frá Lánasjóði sveitarfélaga, dags. 12. febrúar 2026, þar sem kynnt var að tilnefningarnefnd hefði verið kosin vegna kjörs stjórnar og varastjórnar sjóðsins. Framboð skulu send tilnefningarnefnd í síðasta lagi kl. 12:00, föstudaginn 27. febrúar 2026. Aðalfundur er fyrirhugaður 20. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.

8.Aðalfundur Veiðifélags Varmár og Þorleifslækjar

2602067

Lagt var fram fundarboð á aðalfund Veiðifélags Varmár og Þorleifslækjar sem haldinn verður þann 26. febrúar 2026.
Bæjarráð samþykkti að fulltrúi frá Hveragerðisbæ muni sækja aðalfundinn fyrir hönd Hveragerðisbæjar.

9.Umsögn um frumvarp til laga vegna flutnings eftirlits á sviði hollustuhátta og mengunarvarna

2601145

Lagt var fram bréf frá Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, dags. 26. janúar 2026, vegna frumvarps til laga vegna flutnings eftirlits á sviði hollustuhátta og mengunarvarna.
Bæjarstjóri lagði fram og kynnti minnisblað, dags. 18. febrúar 2026, með tillögu að umsögn Hveragerðisbæjar um frumvarpið.
Bæjarráð samþykkti minnisblaðið sem umsögn Hveragerðisbæjar um frumvarpið.

10.Kynning á stafrænum samstarfsverkefnum

2601147

Þórdís Sveinsdóttir, sviðsstjóri þróunarsviðs, og Dagný Edda Þórisdóttir, sérfræðingur í stafrænni þróun, hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, kynna stafræn samstarfsverkefni sveitarfélaga.
Bæjarráð þakkaði fulltrúum á þróunarsviði Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir góða kynningu.

11.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

2512001F

Lögð er fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa frá 12. desember 2026.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

12.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

2601014F

Lögð er fram fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa frá 30. janúar 2026.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

13.Verkfundagerð - Hrauntunga-Tröllahraun

2602049

Lögð var fram verkfundargerð vegna gatnagerðar í Hrauntungu og Tröllahrauni frá 29. janúar 2026.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

14.Fundagerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

2602011

Lögð var fram fundargerð 992. fundar stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 23. janúar 2026.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

15.Fundagerð stjórnar Bergrisans bs.

2602060

Lögð er fram fundargerð stjórnar Bergrisans bs. frá 3. febrúar 2026.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

16.Fundargerð stjórnar Arnardrangs hses.

2602059

Lögð var fram fundargerð stjórnar Arnardrangs hses. frá 3. febrúar 2026.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

17.Fundargerð stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga bs.

2602044

Lögð var fram fundargerð stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga bs. frá 10. febrúar 2026.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
Fundargerðin var upp lesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 09:27.

Getum við bætt efni síðunnar?