Fara í efni

Bæjarráð

881. fundur 05. febrúar 2026 kl. 08:00 - 10:08 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir formaður
  • Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir varaformaður
  • Friðrik Sigurbjörnsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Pétur G. Markan bæjarstjóri
  • Steinunn Erla Kolbeinsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Steinunn Erla Kolbeinsdóttir bæjarritari
Dagskrá
Formaður bæjarráðs, Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir, setti fund og stjórnaði. Leitaði hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.

1.Bréf frá nefnda- og greiningasviði Alþingis

2601116

Lagt er fram bréf frá nefnda- og greiningasviði Alþingis, dags. 29. janúar 2026, þar sem tilkynnt er um að velferðarnefnd Alþingis hafi sent 305. mál til umsagnar í umsagnargátt Alþingis. Málið varðar framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn. Umsagnarfrestur er til og með 11. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

2.Bréf frá nefnda- og greiningasviði Alþingis

2601116

Lagt er fram bréf frá nefnda- og greiningasviði Alþingis, dags. 29. janúar 2026, þar sem tilkynnt er um að velferðarnefnd Alþingis hafi sent 311. mál til umsagnar í umsagnargátt Alþingis. Málið varðar réttindavernd fatlaðs fólks. Umsagnarfrestur er til og með 11. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

3.Bréf frá nefnda- og greiningasviði Alþingis

2601116

Lagt er fram bréf frá nefnda- og greiningasviði Alþingis, dags. 29. janúar 2026, þar sem tilkynnt er um að velferðarnefnd Alþingis hafi sent 312. mál til umsagnar í umsagnargátt Alþingis. Málið varðar atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir m.a. styttingu bótatímabils o.fl. Umsagnarfrestur er til og með 11. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

4.Bréf frá nefnda- og greiningasviði Alþingis

2601116

Lagt er fram bréf frá nefnda- og greiningasviði Alþingis, dags. 21. janúar 2026, þar sem tilkynnt er um að umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hafi sent 322. mál til umsagnar í umsagnargátt Alþingis. Málið varðar samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030. Umsagnarfrestur er til og með 9. febrúar 2026.



Einnig er lagt fram minnisblað Péturs G. Markan, bæjarstjóra, dags. 4. febrúar 2026, með tillögu að umsögn um samgönguáætlun fyrir árin 2026-2030.
Bæjarráð vísar til eftirfarandi bókunar sem lögð var fram á bæjarráðsfundi þann 4. desember 2025:

"Bæjarráð Hveragerðisbæjar lýsir yfir gríðarlegum vonbrigðum yfir nýkynntri samgönguáætlun þar sem færslu þjóðvegarins, fyrir neðan Hveragerði frá Kömbum að Varmá, er frestað enn á ný. Í áætluninni er ekki gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist fyrr en í fyrsta lagi árið 2029.

Færslan á þjóðveginum er mikið hagsmunamál fyrir Hvergerðinga og framtíðarþróun bæjarins með tilliti til umferðaröryggis og framtíðaruppbyggingar. Aðalskipulagi Hveragerðisbæjar var breytt að beiðni Vegagerðarinnar á sínum tíma og miðar skipulag bæjarins og uppbygging undanfarinna ára við að núverandi þjóðvegur verði stofnbraut innan bæjarmarka.

Bæjarráð Hveragerðisbæjar skorar á þingmenn Suðurkjördæmis að beita sér í málinu og fyrir því að staðið verði við gefin loforð."

Bæjarráð samþykkir framlagt minnisblað bæjarstjóra sem umsögn Hveragerðisbæjar um Samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaráætlun fyrir árin 2026-2030, þar sem lögð er áhersla á mikilvægi framkvæmdarinnar á færslu þjóðvegs 1, frá Kömbum að Varmá, og nauðsyn þess að framkvæmdinni verði flýtt en einnig að óska eftir fundi með umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis.

5.Bréf frá nefnda- og greiningasviði Alþingis

2601116

Lagt er fram bréf frá nefnda- og greiningasviði Alþingis, dags. 29. janúar 2026, þar sem tilkynnt er um að umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hafi sent 307. mál til umsagnar í umsagnargátt Alþingis. Málið varðar breytingu á þingsályktun nr. 24/152 um áætlun og vernd og orkunýtingu landssvæða. Umsagnarfrestur er til og með 11. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

6.Bréf frá Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu

2601145

Lagt er fram bréf frá Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, dags. 26. janúar 2026, þar sem tilkynnt er um að drög að frumvarpi vegna flutnings eftirlits á sviði hollustuhátta og mengunarvarna hafi verið birt í samráðsgátt stjórnvalda.
Lagt fram til kynningar.

7.Bréf frá Innviðaráðuneytinu

2601146

Lagt er fram bréf frá Innviðaráðuneytinu, móttekið 29. janúar 2026, þar sem tilkynnt er um að drög að frumvarpi til laga um leiðarmerki og öryggi siglinga sé komið í samráðsgátt stjórnvalda, mál nr. 15/2026. Umsagnarfrestur er til og með 8. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

8.Bréf frá Umhverfis- og orkustofnun

2602005

Lagt er fram bréf frá Umhverfis- og orkustofnun, dags. 12. janúar 2026, þar sem tilkynnt er um tvö mál til kynningar, annars vegar bráðabirgðayfirlit vatnaáætlunar 2028-2033 og hins vegar uppfærslu á 9. kafla vatnaáætlunar 2022-2027.
Lagt fram til kynningar.

9.Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga

2601147

Lagt er fram bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, móttekið 2. desember 2025, vegna þátttöku í stafrænu samstarfi ásamt fjárhagsáætlun og upplýsingum um kostnaðarskiptingu milli sveitarfélaga.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja greiðslu að fjárhæð kr. 1.028.943.- til Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna þátttöku Hveragerðisbæjar í stafrænum samstarfsverkefnum.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að boða sviðsstjóra þróunarsviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga til að kynna stafræn verkefni fyrir bæjarráði.

10.Úttekt á starfsemi Brunavarna Árnessýslu bs.

2601125

Lögð er fram skýrsla vegna úttektar sem gerð var af Húsnæðis- og mannvirkjastofnun á starfsemi Brunavarna Árnessýslu bs. þann 21. október 2025.
Lagt fram til kynningar.

11.Bréf Styrktarsjóðs Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélags Íslands

2601126

Lagt er fram bréf frá Styrktarsjóði Eignarhaldsfélagsins Brunabótafélags Íslands, dags. 27. janúar 2026, auk reglna fyrir styrktarsjóðinn. Í bréfinu er minnt á að aðildarsveitarfélög EBÍ geti sótt um styrki úr sjóðnum og að umsóknarfrestur sé til 27. febrúar 2026.
Hveragerðisbær hefur sótt um og fengið styrki frá styrktarsjóði EBÍ og hafa styrkir t.a.m. verið nýttir til þess að setja upp skilti um sögu bæjarins.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að sjá um að umsókn verði send í sjóðinn fyrir hönd Hveragerðisbæjar.

12.Beiðni um styrk frá ME félagi Íslands, móttekin 7. janúar 2026

2601142

Lögð er fram beiðni frá ME félagi Íslands um styrk vegna verkefnis sem snýr að börnum með ME. Óskað er eftir styrk til þess að fjármagna umbrot, hönnun og prentun á bæklingi, gerð fræðslumyndbands, fyrirlestra og dreifingu á fræðslumyndbandi.
Því miður sér bæjarráð sér ekki fært á árinu að veita styrk til ME félags Íslands vegna þessa metnaðarfulla og mikilvæga verkefnis.

13.Bréf frá Veitum ohf. vegna hækkunar á gjaldskrá vegna hitaveitu

2602001

Lagt er fram bréf frá Veitum ohf. vegna hækkunar á gjaldskrá vegna hitaveitu, móttekið 21. janúar 2026.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að boða framkvæmdastjóra Veitna ohf., sem undirritar bréfið, á næsta bæjarráðsfund.

14.Beiðni frá Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings um samstarf í barnavernd

2510067

Lögð er fram beiðni frá Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs.(SVÁ), dags. 19. september 2025, þar sem stjórn SVÁ óskar eftir því að barnaverndarþjónusta SVÁ fái að gerast hluti af sameiginlegri barnaverndarþjónustu Hveragerðisbæjar og Sveitarfélagsins Ölfus. Þá er lagt fram minnisblað Ernu Harðar Sólveigardóttur, deildarstjóra velferðarþjónustu Hveragerðisbæjar, dags. 13. október 2025.



Erindi SVÁ var tekið fyrir í velferðar- og fræðslunefnd þann 4. nóvember 2025 þar sem afgreiðslu málsins var frestað. Erindið var tekið fyrir að nýju í velferðar- og fræðslunefnd þann 4. janúar 2026 þar sem erindinu var vísað til frekari skoðunar og afgreiðslu hjá bæjarráði.

Bæjarráð þakkar fyrir erindið og sýndan áhuga Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs. á sameiginlegri barnaverndarþjónustu. Það hefur reynst Hveragerðisbæ mikil áskorun að byggja upp málaflokk velferðarmála og þar með talið barnaverndarmála eftir að Hveragerðisbær dró sig út úr Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs.

Að svo stöddu telur bæjarráð ekki unnt að verða við beiðni Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs. um að gerast hluti af sameiginlegri barnaverndarþjónustu Hveragerðisbæjar og Sveitarfélagsins Ölfus. Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara erindinu með formlegum hætti.

15.Þjónustukönnun sveitarfélaga

2601099

Árleg þjónustukönnun var gerð af hálfu Gallup á tímabilinu 17. nóvember 2025 - 13. janúar 2026. Könnunin náði til íbúa 18 ára og eldri og var fjöldi svarenda í Hveragerði 135.

Niðurstöður könnunarinnar eru lagðar fram.



Pétur G. Markan, bæjarstjóri, kynnir niðurstöður þjónustukönnunarinnar.
Meirihluti Okkar Hveragerðis og Framsóknar leggur fram eftirfarandi bókun:
Niðurstaða þjónustukönnunarinnar sýnir að allflestir flokkar þjónustu eru rísandi milli ára sem gefur okkur glögga vísbendingu um að bærinn sé á réttri leið. Sambærileg könnun sem gerð var á síðasta ári kom vel út en niðurstöður þessarar könnunar sýna bætta niðurstöðu sem eru mikil gleðitíðindi.

Nú þegar bærinn er á miðju framkvæmdatímabili mestu uppbyggingu íþróttamannvirkja í sögu Hveragerðisbæjar eru allar líkur á því að ánægja bæjarbúa með þjónustuna skili bænum meðal efstu sveitarfélaga í þjónustukönnunni á allra næstu árum.

Unnið er markvisst að því að gera þjónustu Hveragerðisbæjar enn betri og m.a. er fyrirhugað að bærinn setji sér formlega þjónustustefnu sbr. fundarlið nr. 17.

16.Dómur Héraðsdóms Suðurlands í máli E-44/2025

2601068

Lagður er fram dómur Héraðsdóms Suðurlands í máli E-44/2025 sem kveðinn var upp 14. janúar 2026 þar sem Hveragerðisbær var sýknaður af fjárkröfum stefnenda.
Lagt fram til kynningar.

17.Þjónustustefna Hveragerðisbæjar

2504138

Lögð er fram tillaga að þjónustustefnu Hveragerðisbæjar.

Steinunn Erla Kolbeinsdóttir, bæjarritari, kynnir tillöguna.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja þjónustustefnu Hveragerðisbæjar.

18.Tillaga að breytingum á skipuriti Hveragerðisbæjar

2601108

Lagt er fram minnisblað Péturs G. Markan, bæjarstjóra, dags. 4. febrúar 2026, ásamt drögum að nýju skipuriti.

Í minnisblaðinu er gerð tillaga að breytingum á skipuriti Hveragerðisbæjar.



Pétur G. Markan, bæjarstjóri, kynnir tillögu að breytingum á skipuriti Hveragerðisbæjar.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytingar á skipuriti Hveragerðisbæjar með þeim breytingum sem ræddar voru.

19.Ráðgjöf vegna upplýsingatækniumhverfis Hveragerðisbæjar og mat á öryggisþáttum

2601153

Lagt er fram minnisblað Steinunnar Erlu Kolbeinsdóttur, bæjarritara, dags. 2. febrúar 2026, þar sem gerð er tillaga að kaupum á ráðgjöf vegna upplýsingatækniumhverfis Hveragerðibæjar og mats á öryggisþáttum.



Steinunn Erla Kolbeinsdóttir, bæjarritari, kynnir tillögu um að gera samning við Trigger ráðgjöf ehf.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að gera samning um ráðgjöf við Trigger ráðgjöf ehf. vegna upplýsingatækniumhverfis Hveragerðisbæjar, með áherslu á öryggisþætti. Verkefnið er hluti af stafrænni stefnu og fjármagnað í fjárhagsáætlun 2026.

20.Afmælisdagskrá Hveragerðisbæjar

2412055

Hveragerðisbær er 80 ára á árinu 2026 og af því tilefni er fyrirhugað að viðburðir verði allt árið sem tileinkaðir eru þessum tímamótum.

Drög að dagskrá vegna afmælis Hveragerðisbæjar eru lögð fram.
Lagt fram til kynningar.

21.Framlenging á yfirdráttarheimild

2602006

Lagt er fram minnisblaði frá Helgu Kristjánsdóttur, skrifstofustjóra, þar sem lagt er til að heimild verði veitt til þess að óska eftir framlengingu yfirdráttarheimild á innlánsreikningi Hveragerðisbæjar nr. 0314-22-506.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framlengingu á yfirdráttarheimild á innlánsreikningi Hveragerðisbæjar nr. 0314-22-506, að fjárhæð kr. 130.000.000.-

22.Útboð vegna byggingar íþróttahúss

2512061

Lagt er fram minnisblað Jóns Friðriks Matthíassonar, byggingar- og mannvirkjafulltrúa, dags. 30. janúar 2026, þar sem lagt er til að samið verði við lægstbjóðanda, Húsameistara ehf., vegna byggingar á íþróttahúsi upp að fokheldi enda uppfyllir félagið kröfur útboðsgagna. Tilboð Húsameistara ehf. var 80% af kostnaðaráætlun verksins.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tilboð Húsameistara ehf. í byggingu íþróttahúss upp að fokheldi að fjárhæð kr. 599.502.898.- m. vsk.

23.Verkfundagerð- Hrauntunga - Tröllahraun frá 8. janúar 2026

2601141

Verkfundargerðin er lögð fram.
Lagt fram til kynningar.

24.Fundargerð Heilbrigðisnefndar Suðurlands frá 28. janúar 2026

2601129

Eftirfarandi skjöl eru lögð fram:

Fundargerð Heilbrigðisnefndar Suðurlands vegna 251. fundar, dags. 28. janúar 2026.

Bókun Sigrúnar Guðmundsdóttur framkvæmdastjóra f.h. Heilbrigðisnefndar Suðurlands, dags. 29. janúar 2026.

Afrit af sameiginlegri grein framkvæmdastjóra heilbrigðiseftirlita landsins sem er birt á www.visir.is



Lagt fram til kynningar.

25.Fundargerð aukaaðalfundar Sorpstöðvar Suðurlands bs. frá 16. janúar 2026

2512060

Eftirtalin skjöl eru lögð fram:

Fundargerð aukaaðalfundar Sorpstöðvar Suðurlands bs., dags. 16. janúar 2026.

Fundargerð stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands bs. vegna fundar nr. 343, dags. 16. janúar 2026

Kostnaðargreining vegna breytinga á starfsemi Sorpstöðvar Suðurlands bs., ódagsett.

Samantekt vegna tillögu að breytingum á samþykktum Sorpstöðvar Suðurlands bs., ódagsett.

Tillaga að samþykkt fyrir byggðasamlagið Sorpstöð Suðurlands bs. með merktum breytingum, samþykkt á aðalfundi byggðasamlagsins 16. janúar 2026.

Tillaga að samþykkt fyrir byggðasamlagið Sorpstöð Suðurlands bs. með breytingum, samþykkt á aðalfundi byggðasamlagsins 16. janúar 2026.

Óundirritaður þjónustusamningur milli Sorpstöðvar Suðurlands bs. og Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga.

Starfslýsing og hæfnikröfur starfsmanns, ódagsett.

Tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun Sorpstöðvar Suðurlands bs., ódagsett.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að afgreiða sérstaklega fundarliði 5.a. og 5.c. í fundargerð aukaaðalfundar Sorpstöðvar Suðurlands bs. er varða breytingu á samþykktum byggðasamlagsins og viðauka við fjárhagsáætlun byggðasamlagsins. Bæjarráð leggur til að bæjarstjórn samþykki tillögur aukaaðalfundarins.

26.Fundargerð stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitafélaga frá 9. janúar 2026

2601140

Fundargerðin stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, dags. 9. janúar 2026, er lögð fram.
Lagt fram til kynningar.

27.Fundargerð stjórnar Listasafns Árnesinga bs. frá 27. janúar 2026

2602002

Fundargerð stjórnar Listasafns Árnesinga bs., dags. 27. janúar 2026, er lögð fram.
Lagt fram til kynningar.

28.Fundargerð stjórnar Byggðasafns Árnesinga bs. frá 28. janúar 2026

2602003

Fundargerð stjórnar Byggðasafns Árnesinga bs., dags. 28. janúar 2026, er lögð fram.
Lagt fram til kynningar.
Fundargerðin upp lesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 10:08.

Getum við bætt efni síðunnar?