Bæjarráð
Dagskrá
1.Bréf frá Íþrótta- og olympíusambandi Íslands frá 3. júní 2025
2506074
Í bréfinu er kynnt Íþróttavika Evrópu sem haldin er árlega frá 23. - 30. september í yfir 30 Evrópulöndum. Eru sveitarfélög um allt land hvött til að bjóða upp á fjölbreytta dagskrá. Einnig er bent á að sveitarfélög geti sótt um fjárstyrk til ÍSÍ vegna útfærslu á þátttöku í íþróttavikunni.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og felur bæjarstjóra nánari útfærslu á því ásamt því að vísa erindinu til Menningar, atvinnu og markaðsnefndar.
2.Bréf frá Tónlistarskóla Árnesinga frá 6. júní 2025
2506073
Í bréfinu er óskað eftir 10. klst. aukningu til tónlistarkennslu í Hveragerði frá 1. ágúst 2025.
Bæjarráð fagnar auknum áhuga á tónlistarnámi og felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.
3.Bréf frá Félagi atvinnurekanda frá 10. júní 2025
2506072
Erindi frá Félagi atvinnurekenda til sveitarstjórna vegna álagningu fasteignagjalda.
Fulltrúi D-listans lagði fram eftirfarandi tillögu.
Bæjarfulltrúi D-listans leggur til að álagningarhlutfall fasteignagjalda á íbúða- og atvinnuhúsnæði fyrir árið 2026 verði lækkað við gerð fjárhagsáætlunar næsta árs til að koma til móts við hækkandi fasteignamat í bæjarfélaginu og að jafnframt verði gjalddögum fasteignagjalda að nýju fækkað úr 11 í 10 gjalddaga.
Greinagerð
Samkvæmt fasteignamati ársins 2026 sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun birti í lok maí er hækkun á fasteignamati íbúða í Hveragerði um 10,1% á milli ára og fyrir atvinnueignir er hækkunin um 11,7%. Þetta er því enn eitt árið þar sem að fasteignamat í Hveragerði hækkar mikið á milli ára og mikilvægt er að koma til móts við íbúa og fyrirtæki í bænum.
Friðrik Sigurbjörnsson
Tillagan borin upp. Fulltrúar meirihlutans sátu hjá en fulltrúi D-listans með og er því tillagan felld.
Meirihluti bæjarráðs fagnar tillögu D-listans sem mikilvægu innleggi inn í fjárhagsáætlunarvinnu fyrir árið 2026 og þakkar Félagi atvinnurekenda fyrir gott erindi og vísar því til skoðunar við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2026.

4.Bréf frá Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra 3. júní 2025
2506082
Í bréfinu er boð á árlega ráðstefnu Almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra sem haldin verður á Hilton Reykjavík Nordica þann 16. október 2025.
Lagt fram til kynningar.
5.Bréf frá Veitum frá 4. júní 2025
2506069
Í bréfinu er sótt um framkvæmdaleyfi vegna borunar á hitaveitu Vinnsluholu HS-10 við varmastöð Bláskóga í Hveragerði.
Bæjarráð samþykkir að fresta erindinu til næsta bæjarráðsfundar.
6.Bréf frá Eydísi Björk Guðmundsdóttur frá 13. júní 2025
2506088
Í bréfinu er óskað eftir stuðningi og aðstoð Hveragerðisbæjar vegna málunar Regnbogafánans á götu bæjarins.
Bæjarráð þakkar fyrir bréf Eydísar, tekur heilshugar undir erindið þess. Bæjarráð samþykkir að staðsetning regnbogans verði á sama stað í Breiðumörk og Skólamörk, eins og hann hefur verið undanfarið ár og greiði jafnframt efniskostnað.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að útfæra regnbogann í samráði við Eydísi og mögulega stækka hann ef kostur er til spyrna kröftulega á móti því bakslagi í mannréttindabaráttu hinseginleika, sem vart hefur orðið við undanfarið í orðum og verki.

7.Bréf frá Grundarheimilum frá 8. janúar 2025
2506090
Erindi frá Grundarheimilunum vegna niðurfellingar gatnagerðargjalda á nýtt hjúkrunarheimili og úthlutun lóða.
Í samkomulagi milli ríkis og sveitarfélaga um breytta ábyrðaskiptinu í málefnum uppbyggingar hjúkrunarheimila, sem undirritað var 19. mars 2025, fellst að sveitarfélög bera ekki lengur 15% af stofnkostnaði við uppbyggingu hjúkrunarheimila. Einnig er samkvæmt samkomulaginu sveitarfélögum heimilt að innheimta gatnagerðargjöld af hjúkrunarheimilum. Samkomulagið var staðfest í lögum 18. júní.
Þar sem lóðir eru komnar undir nýja hjúkrunarheimilið telur bæjarráð ekki lengur laganlegan grundvöll fyrir að útvega aðrar lóðir undir verkefnið.
Bæjarráð samþykkir að Grundarheimilin þurfi ekki að greiða gatnagerðargjöld vegna byggingar á nýju hjúkrunarheimili.

8.Tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun 2025 vegna Héraðsskjalasafns Árnesinga og Heilbrigðiseftirlits Suðurlands
2506084
Lögð fram tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun ársins 2025 vegna hækkunar framlaga til Héraðsskjalasafns Árnesinga og Heilbrigðiseftirlits Suðurlands.
Bæjarráð samþykkir viðauka upp á kr 1.500.000.- vegna Héraðsskjalasafns Árnesinga og kr. 850.000.- vegna Heilbrigðiseftirlits Suðurlands alls kr. 2.350.000- sem mótbókist af handbæru fé.
9.Íbúaþing 60 plús
2410060
Niðurstöður frá íbúaþingi 60 plús sem haldið var á Hótel Örk laugardaginn 22. mars 2025 kynntar. Öldungaráð Hveragerðisbæjar stóð fyrir þinginu.
Bæjarráð tekur undir að niðurstöður íbúaþingsins veiti dýrmætar vísbendingar um þarfir og óskir eldri íbúa í Hveragerði og verði nýttar við áframhaldandi þróun á þjónustu við málaflokk eldri íbúa samhliða stefnu í málefnum eldri íbúa í Hveragerði.
10.Minnisblað frá garðyrkjustjóra vegna leiksvæða í Hveragerði
2406061
Lagt fram minnisblað frá garðyrkjustjóra vegna framkvæmda á leiksvæðum í Hveragerði sumarið 2025.
Árný Guðfinnsdóttir, garðyrkjustjóri mætti á fundinn.
Árný Guðfinnsdóttir, garðyrkjustjóri mætti á fundinn.
Lagt fram til kynningar.
11.Afnot af kjallara íþróttahúss að Skólamörk
2506091
Bæjarstjóri fór yfir stöðu mála um afnot Hamars Sport af kjallara íþróttahússins Skólamörk.
Bæjarstjóra falið að halda áfram viðræðum við Hamar Sport.
12.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 8
2504004F
Jón Friðrik Matthiasson, byggingafulltrúi mætti á fundinn.
Fundargerðin er staðfest.
13.Verkfundargerð - Gervigrasvöllur - yfirborð og lagnir frá 4. júní
2506087
Fundargerðin er staðfest.
14.Fundargerð byggingarnefndar um viðbyggingu við íþróttahús frá 11. júní 2025
2412011
Fundargerðin er staðfest.
15.Fundargerð Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 27. maí 2025
2506081
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
16.Fundargerð vorfundar Héraðsnefndar Árnesinga frá 28. apríl 2025
2506079
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
17.Fundargerð Heilbrigðiseftirlit Suðurlands frá 2. maí 2025
2506083
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Fundargerðin upplesin og samþykkt.
Fundi slitið.
Getum við bætt efni síðunnar?
Í upphafi fundar lagði bæjarráð fram eftirfarandi bókun.
Í dag er kvenréttindadagurinn sem markar upphaf kosningaréttar kvenna fyrir 110 árum. Dagurinn er áminning um að jafnrétti og mannréttindi er sístæð vinna sem aldrei má gefa eftir. Bæjarráð fagnar 110 ára afmæli kvenréttindadagsins.