Bæjarráð
Dagskrá
1.Bréf frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis frá 14. maí 2025
2505143
Í bréfinu óskar atvinnuveganefnd Alþingis eftir umsögn um frumvarp til laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu), 298. mál.
Lagt fram til kynningar.
2.Bréf frá innviðaráðuneytinu frá 14. maí 2025
2505141
Í bréfinu er vakin athygli á áformum um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélagsins (skattlagning orkumannvirkja) og sveitarstjórnarlögum (endurskoðun sveitarstjórnarlaga) sem hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda.
Lagt fram til kynningar.
Hveragerðisbær leggur áherslu á mikilvægi þess að nærsamfélög orkumannvirkja njóti hlutdeildar í ávinningi af orkuframleiðslu. Þetta á sérstaklega við um áhrifasvæði Hellisheiðarvirkjunar sem nær yfir tvö sveitarfélög. Þrátt fyrir að virkjunin sé staðsett í Sveitarfélaginu Ölfusi, má færa sterk rök fyrir því að hún hafi haft mest áhrif á nærsamfélagið í Hveragerði.
Á undanförnum árum hafa íbúar Hveragerðis og nágrennis orðið fyrir nokkrum áhrifum vegna starfsemi Hellisheiðarvirkjunar, þar á meðal vegna manngerðra jarðskjálfta, loftmengunar og hávaðamengunar frá blásandi borholum.
Hveragerðisbær telur því eðlilegt og nauðsynlegt að íbúar nærsamfélagsins njóti einnig ávinnings af starfsemi virkjunarinnar. Þá leggur Hveragerðisbær jafnframt áherslu á að tryggja þurfi að nærsamfélög virkjana hafi raunverulegt aðkomuvald þegar ákvörðun er tekin um hvort og hvernig slíkar virkjanir verði byggðar.
Í þessu samhengi vill Hveragerðisbær sérstaklega benda á áætlanir Orkuveitu Reykjavíkur, Sveitarfélagsins Ölfuss og orkufyrirtækisins Títan um að reisa virkjun í landi Sveitarfélagsins Ölfuss, í aðeins tveggja kílómetra fjarlægð frá þéttbýli í Hveragerði. Þær áætlanir voru kynntar án aðkomu Hveragerðisbæjar, sem undirstrikar nauðsyn þess að tryggja lýðræðislega þátttöku nærsamfélaga í slíkum ákvörðunum.

3.Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga frá 30. maí 2025
2506006
Með bréfinu er boðið á afmælisráðstefnu 11. júní á Parliament hótelinu í Reykjavík í tilefni þess að 80 ár eru liðin frá stofnfundi Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.
4.Bréf frá Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga (SASS) frá 20. maí 2025
2505148
Í bréfinu er boðað til fundar og vinnustofu um endurskoðun á 9. kafla sveitarstjórnarlaga þann 6. júní í Hvolnum í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Bæjarráð samþykkir að formaður bæjarráðs, Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir, sæki fund og vinnustofu fyrir hönd Hveragerðisbæjar.
5.Bréf frá Landskerfi bókasafna hf. frá 14. maí 2025
2505144
Í bréfinu er fjallað- um skýrslu stjórnar Landskerfis bókasafna vegna ársins 2024 og breytingu á samþykkt félagsins.
Lagt fram til kynningar.
6.Fjárhagsáætlun Brunavarna Árnessýslu 2025 með viðauka
2505172
Lögð fram fjárhagsáætlun Brunavarna Árnessýslu 2025 með viðauka sem samþykkt var á vorfundi Héraðsnefndar Árnesinga þann 28. apríl sl.
Lagt fram til kynningar.
7.Ársreikningur Arnardrangs hses. 2024
2505149
Lagður fram ársreikningur Arnardrangs hses. fyrir árið 2024.
Lagt fram til kynningar.
8.Gott að eldast - samningur Hveragerðisbæjar við Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Ás hjúkrunarheimili
2505158
Lagður fram samningur Hveragerðisbæjar, Heilbrigðisstofnunar Suðurlands og Áss hjúkrunarheimilis um heimastuðning við íbúa 60 plús í Hveragerði.
Forstöðumaður stuðningsþjónustu hjá Hveragerðisbæ kom inn á fundinn og kynnti samninginn.
Forstöðumaður stuðningsþjónustu hjá Hveragerðisbæ kom inn á fundinn og kynnti samninginn.
Bæjarráð fagnar að kominn sé á samningur milli Hveragerðisbæjar, Heilbrigðisstofnun Suðurlands og Ás hjúkrunarheimilis um samþættingu öldrunarþjónustu í bæjarfélaginu. Markmið samkomulagsins er að efla þjónustu, fagstyrkja utanumhald og matskerfi og einfalda allt aðgengi þjónustuþega að þessari grunnþjónustu.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.
9.Fyrirspurn frá fulltrúa D-lista um fjölda barna á biðlistum eftir leikskólaplássi í Hveragerði
2506008
Óskað er eftir upplýsingum um hversu mörg börn séu á biðlista eftir leikskólaplássum í Hveragerði. Óskað er eftir upplýsingum um hvernig aldursdreifing barna á biðlistum sé og hvernig skiptingin á biðlista er milli leikskólanna Óskalands og Undralands og þeirra sem sækja um á báðum leikskólum?
Friðrik Sigurbjörnsson
Friðrik Sigurbjörnsson
Eftirfarandi eru svör við fyrirspurn frá fulltrúa D-listans.
Eins og áður hefur komið fram fengu öll börn fædd árið 2024 og fyrr boð um leikskólapláss nú á vormánuðum 2025 og voru þannig biðlistar barna 12 mánaða og eldri tæmdir. Frá því tímamarki hafa til viðbótar borist umsóknir vegna 4 barna fæddra árið 2021 og 3 barna fæddra árið 2024 og er þess vænst að þau börn fái boð um leikskólavistun í haust.
Alls eru 22 börn á biðlista eftir leikskólaplássi í leikskólum Hveragerðis.
- 1 umsókn er á biðlista, barn fædd 2020, foreldrar hafa afþakkað leikskólapláss.
- 5 umsóknir eru á biðlista, börn fædd 2021, þar af 4 sem bárust eftir að úthlutun leikskólaplássa lauk. Reikna má með að þeim verði boðin vistun í haust. Ein umsókn er frá barni sem ekki er kominn með lögheimili í Hveragerði.
- 2 umsóknir eru á biðlista, börn fædd 2023. Önnur er ósk um flutning á milli leikskóla. Hin umsóknin er þar eftir afþökkun á boði um leikskólavist.
- 4 umsóknir eru biðlista, börn fædd 2024. Ein er flutningur á milli leikskóla og 3 umsóknir bárust eftir að úthlutun leikskólaplássa lauk. Reikna má með að þeim verði boðin vistun í haust.
- Alls eru 7 umsóknir á leikskólann Undraland, 9 umsóknir á leikskólann Óskaland og 5 umsóknir þar sem óskað er eftir leikskólavist óháð vali á leikskóla.

10.Verðkönnun í malbiksvinnu fyrir Hveragerðisbæ
2505159
Lagt fram minnisblað umhverfisfulltrúa um verðkönnun vegna malbiksyfirlagningar í Hveragerði sumarið 2025.
Umhverfisfulltrúi kom inn á fundinn og kynnti áætlun um malbiksvinnu í Hveragerði sumarið 2025.
Umhverfisfulltrúi kom inn á fundinn og kynnti áætlun um malbiksvinnu í Hveragerði sumarið 2025.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samið verði við lægstbjóðanda Malbiksstöðina ehf. en fyrirtækið bauð kr. 14.435.000,- í verkið.
11.Skólphreinsistöð - Forhönnun - fráveituráðgjöf
2506004
Lögð fram verkbeiðni er varðar forhönnun á uppfærslu á skólphreinsistöð í Hveragerði.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja verkbeiðni COWI er varðar forhönnun á uppfærslu á skólphreinsistöð Hveragerðis.
12.Samningur um eignarnám - Hrauntunga 20 í Hveragerði
2505071
Lagður fram undirritaður samningur um eignarnám vegna Hrauntungu 20 í Hveragerði en óska þarf eftir umsögn Skipulagsstofnunar um eignarnám á grundvelli framkvæmdar á gildandi deiliskipulagi sbr. 2. mgr. 50. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Með vísan til fyrirliggjandi samnings um eignarnám og 2. mgr. 50. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 samþykkir bæjarráð að óska eftir umsögn Skipulagsstofnunar vegna ákvörðunar um eignarnám lóðarinnar að Hrauntungu 20, fnr. 2343286, lnr. 200257, vegna framkvæmdar gildandi deiliskipulags á svæðinu.
13.Kauptilboð Hrauntunga 13-13B í Hveragerði
2506005
Lögð fram drög að kauptilboði vegna Hrauntungu 13-13B í Hveragerði.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi kauptilboð. Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita kauptilboðið f.h. Hveragerðisbæjar með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar.
14.Afsal vegna lóðar að Breiðumörk 26 í Hveragerði
2505130
Lagt fram afsal vegna lóðar að Breiðumörk 26 í Hveragerði ásamt fylgigögnum en hluti lóðarinnar tekur breytingum vegna viðbyggingar við íþróttahús og vegna skólalóðar.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja afsal lóðarinnar að Breiðumörk 26 í Hveragerði. Bæjarráð felur bæjarstjóra að undirrita afsalið f.h. Hveragerðisbæjar með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar.
15.Atvinnumálastefna neðri hluta Árnessýslu 2025-2029
2409014
Lögð fram atvinnumálastefna neðri hluta Árnessýslu 2025-2029 sem er sameiginleg atvinnustefna Hveragerðisbæjar, Sveitarfélagsins Árborgar og Flóahrepps. Stefnan var unnin í virku samráði við íbúa og atvinnulíf í samvinnu við SASS og byggðaþróunarfulltrúa svæðisins. Stefnan var samþykkt í sveitarstjórn Flóahrepps 6. maí 2025 og bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar 14. maí 2025.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja atvinnumálastefnu neðri hluta Árnessýslu 2025-2029.
16.Bílastæði við Árhólma
2501115
Lagt fram minnisblað skrifstofustjóra Hveragerðisbæjar um breytingu á gjaldskrá bílastæða við Árhólma.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja hækkun gjaldskrár í samræmi við tillögu í minnisblaði skrifstofustjóra með eftirfarandi hætti:
Tími
0-30 mín - 0 kr.
30-60 mín - 300 kr.
Umfram 60 mín - 1000 kr.
Tími
0-30 mín - 0 kr.
30-60 mín - 300 kr.
Umfram 60 mín - 1000 kr.
17.Af leiksvæðum í Hveragerði
2406061
Lögð fram beiðni um minnisblað vegna stöðu leiksvæða í Hveragerði.
Á vegum Hveragerðisbæjar hefur verið unnið að mögulegum útfærslum á leiksvæðum innan bæjarmarka Hveragerðisbæjar, í samræmi við ríkar áherslur á fjölskylduvænt samfélag, með það m.a. að markmiði að komið verði upp leikvöllum víðar um bæinn. Á grundvelli þeirrar vinnu var ákveðið á fundi bæjarstjórnar þann 13. júní 2024 að blása til sóknar í leiksvæðum bæjarins og var bæjarstjóra falið að vinna ýmist að hönnun, uppbyggingu eða úrbótum á samtals sex slíkum svæðum. Í framhaldinu var m.a. komið upp tímabundnu leiksvæði í Kambalandi, unnið að undirbúningi vegna uppbyggingar leiksvæða á varanlegri staðsetningu í Kambalandi skv. gildandi deiliskipulagi ásamt undirbúningi uppbyggingar leiksvæðis við Heiðmörk og „Leynilundar“ á milli Dynskóga og Laufskóga. Jafnframt var ákveðið að efna til hugmyndasamkeppni um nöfn á ónefnd leiksvæði bæjarins ásamt því að komið yrði upp skiltum við hvert og eitt leiksvæði bæjarins með heiti þess o.fl.
Bæjarráð óskar eftir því að lagt verði fram minnisblað á næsta fundi bæjarráðs þar sem farið verði yfir stöðu mála varðandi leiksvæði bæjarins skv. framangreindu og þar verði m.a. teknar saman tillögur um næstu skref í áframhaldandi uppbyggingu leiksvæða innan bæjarmarka.

18.Samantekt á stöðu lóðarmála hjá Hveragerðisbæ
2506015
Lögð fram beiðni um samantekt á stöðu lóðarmála hjá Hveragerðisbæ.
Bæjarráð óskar eftir því að lagt verði fram minnisblað á fundi bæjarráðs í ágúst nk. með samantekt varðandi tómar lóðir staðsettar á þegar byggðum svæðum í bæjarfélaginu og eignaréttarlega stöðu þeirra. Jafnframt verði tilteknar eftir atvikum fyrirliggjandi upplýsingar um áform um uppbyggingu eða nýtingu á þeim ásamt upplýsingum um byggingarhæfi þeirra eftir því sem tilefni er til.
19.Frágangur í Kambalandi
2407085
Lagt fram minnisblað vegna frágangs í Kambalandi auk fylgigagna.
Bæjarráð samþykkti á síðasta fundi sínum þann 15. maí sl. að hefja frágang á svæði við Búðarhraun 2 og Dalahraun 2-8 í samræmi við yfirlit yfir frágang í fyrsta áfanga Kambalands og minnisblað umhverfisfulltrúa.
Bæjarráð óskar eftir því að lagt verði fyrir á fyrsta fundi bæjarráðs í júlí minnisblað með stuttri samantekt á því hvaða hluta frágangs svæðisins skv. fyrirliggjandi yfirliti er áætlað að unnt verði að ljúka á yfirstandandi ári m.a. með tilliti til kostnaðaráætlunar, fjárhagsáætlunar ársins 2025 og mats á forgangsröðun verkefna.

20.Umsagnarbeiðni tækifærisleyfi til áfengisveitinga
2506038
Með bréfi dags. 4. júní 2025 óskar Sýslumaðurinn á Suðurlandi eftir umsögn Hveragerðisbæjar um umsókn Tónræktarinnar ehf., Dynskógum 18, Hveragerði, um tækifærisleyfi til áfengisveitinga vegna tónleika þann 7. júní 2025 í íþróttahúsinu Hveragerði, Skólamörk 2 í Hveragerði.
Bæjarráð samþykkir að gera ekki athugasemd við að leyfið verði veitt.
21.Verkfundargerð - Hrauntunga frá 8. maí 2025
2505157
Fundargerðin er staðfest.
22.Verkfundargerð - Hrauntunga frá 22. maí 2025
2505164
Fundargerðin er staðfest.
23.Verkfundargerð - gervigrasvöllur - yfirborð og lagnir frá 19. maí 2025
2505163
Fundargerðin er staðfest.
24.Verkfundargerð - gervigrasvöllur - tæknirými bygging frá 19. maí 2025
2505169
Fundargerðin er staðfest.
25.Verkfundargerð - gervigrasvöllur - tæknirými lagnir frá 19. maí 2025
2505168
Fundargerðin er staðfest.
26.Verkfundargerð - Grunnskólinn í Hveragerði frá 20. maí 2025
2506002
Fundargerðin er staðfest.
27.Verkfundargerð - íþróttahús jarðvinna frá 21. maí 2025
2505167
Fundargerðin er staðfest.
28.Verkfundargerð - Leikskólinn Óskaland - lóðarfrágangur frá 22. maí 2025
2506003
Fundargerðin er staðfest.
29.Fundargerð Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 16. maí 2025
2505145
Til kynningar.
30.Fundargerð stjórnar Arnardrangs hses. frá 7. apríl 2025
2505142
Til kynningar.
31.Fundargerð stjórnar Arnardrangs hses. frá 19. maí 2025
2505150
Til kynningar.
32.Fundargerð stjórnar Bergrisans bs. frá 19. maí 2025
2505156
Til kynningar.
33.Fundargerð Tónlistarskóla Árnesinga frá 23. maí 2025
2505170
Til kynningar.
Fundargerðin upplesin og samþykkt.
Fundi slitið - kl. 09:46.
Getum við bætt efni síðunnar?
Á fundinum lagði formaður til breytingu á dagskrá fundarins. Lagt var til að eitt mál yrði tekið á dagskrá sem ekki er tilgreint í dagskrá fundarins, beiðni um umsögn frá Sýslumanninum á Suðurlandi um tækifærisleyfi til áfengisveitinga, sem verður 20. mál á dagskrá fundarins og breytist röðun dagskrárliða eftir það til samræmis. Dagskrárbreytingin var samþykkt samhljóða.