Fara í efni

Bæjarráð

865. fundur 15. maí 2025 kl. 08:00 - 09:25 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir formaður
  • Halldór Benjamín Hreinsson varaformaður
  • Friðrik Sigurbjörnsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Pétur G. Markan bæjarstjóri
  • Helga Kristjánsdóttir skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Íris Bjargmundsdóttir bæjarritari
Dagskrá
Formaður bæjarráðs, Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir, setti fund og stjórnaði. Leitaði hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram. Í upphafi fundar lagði formaður til breytingu á dagskrá fundarins. Lagt var til að eitt mál yrði tekið á dagskrá sem ekki er tilgreint í dagskrá fundarins, Samningur um eignarnám - Hrauntunga 20 sem verður 12. mál á dagskrá fundarins og breytist röðun dagskrárliða eftir það til samræmis. Dagskrárbreytingin var samþykkt samhljóða.

1.Bréf frá nefnda- og greiningarsviði Alþingis frá 29. apríl 2025

2505033

Í bréfinu óskar umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis eftir umsögn um frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga, 270. mál.
Lagt fram til kynningar.

2.Bréf frá innviðaráðuneytinu frá 9. apríl 2025

2505065

Í bréfinu er fjallað um framlög til úrbóta í aðgengismálum fatlaðs fólks 2025-2026.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til deildarstjóra velferðarsviðs og fasteignafulltrúa Hveragerðisbæjar til skoðunar.

3.Bréf frá Samgöngustofu frá 6. maí 2025

2505039

Í bréfinu er fjallað um öryggi í flugþjónustu og mikilvægi starfsleyfa.
Lagt fram til kynningar.

4.Bréf frá Sigurhæðum frá 10. desember 2024

2412074

Í bréfinu er sótt um styrk frá Hveragerðisbæjar til Sigurhæða að upphæð kr. 1.643.424,-.



Á fundi bæjarráðs Hveragerðisbæjar 19. desember 2024 samþykkti bæjarráð að fresta afgreiðslu erindisins þar til ljóst væri hvort Sigurhæðir fengi enn óbreytt framlag fyrir árið 2025 frá Sóknaráætlun Suðurlands.



Hveragerðisbæ barst tölvupóstur frá SASS 25. apríl 2025 þar sem staðfest var að Sigurhæðir myndu fá óbreytt fjármagn frá SASS á árinu 2025 að upphæð 5 milljónir kr.
Bæjarráð fagnar góðu starfi Sigurhæða og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja sömu fjárhæð og á síðasta ári í styrk kr. 1.345.437,-.

5.Ársreikningur Bergrisans 2024

2503180

Lagður fram undirrituð ársreikningur Bergrisans 2024 ásamt fundargerð stjórnar Bergrisans frá 24. apríl 2025.
Lagt fram til kynningar.

6.Bréf frá stjórn Héraðssambandsins Skarphéðins frá 30. apríl 2025

2504092

Í bréfinu þakkar héraðsþing Héraðssambandsins Skarphéðins fyrir mikilvægan stuðning á árinu.
Lagt fram til kynningar.

7.Bréf frá Heilsustofnun NLFÍ frá 29. apríl 2025

2505058

Í bréfinu er fjallað um ýmis mál tengd starfsemi heilsustofnunarinnar.
Bókun færð til bókar sem trúnaðarmál.

8.Bréf frá Rótarýklúbbi Rangæinga frá 29. apríl 2025.

2505031

Í bréfinu er óskað eftir styrk frá Hveragerðisbæ til uppgerðar á fyrstu rútu Austurleiðar hf. að upphæð kr. 180.000,-
Því miður sér bæjarráð sér ekki fært að verða við erindinu.

9.Opnun tilboða í verkið aðveitulögn vatnsveitu að Árhólma

2505038

Opnun tilboða í verkið aðveitulögn vatnsveitu að Árhólma fór fram 2. maí 2025.

Kostnaðaráætlun verksins er kr. 27.530.000,-.



Fimm tilboð bárust í verkið frá fimm aðilum.

Gröfutækni ehf., kr. 29.939.000,- sem er 108,8% af kostnaðaráætlun verksins.

Sportþjónustan ehf., kr. 39.831.500,- sem er 144,7% af kostnaðaráætlun verksins.

Hverafell ehf., kr. 26.942.000,- sem er 97,9% af kostnaðaráætlun verksins.

Aðalleið ehf., kr. 24.631.000,- sem er 89,5% af kostnaðaráætlun verksins.

Auðverk ehf., kr. 31.165.000,- sem er 113,2% af kostnaðaráætlun verksins.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að taka tilboði lægstbjóðanda Aðalleiðar ehf. sem er 89,5% af kostnaðaráætlun verksins enda uppfylli bjóðandi öll skilyrði útboðsgagna.

10.Yfirlit yfir rekstur Hveragerðisbæjar janúar - mars 2025

2505063

Lagt fram yfirlit yfir rekstur Hveragerðisbæjar á tímabilinu janúar - mars 2025.
Lagt fram til kynningar.

11.Tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun 2025

2503091

Lögð fram tillaga að viðauka við fjárhagsáætlun vegna sundlaugarinnar Laugarskarði ásamt minnisblaði skrifstofustjóra Hvergerðisbæjar auk yfirlits rekstraráætlunar og yfirlit um sjóðstreymi.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja viðauka að upphæð kr. 4.000.000,- við fjárhagsáætlun Hveragerðisbæjar 2025 vegna launa hjá Sundlauginni Laugaskarði og verði fjármagnaður af handbæru fé.

12.Samningur um eignarnám - Hrauntunga 20

2505071

Lagður fram samningur um eignarnám að Hrauntungu 20.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja samning um eignarnám.

13.Persónuverndarstefna Hveragerðisbæjar

2505064

Lögð fram tillaga að nýrri Persónuverndarstefnu Hveragerðisbæjar.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja nýja Persónuverndarstefnu Hveragerðisbæjar.

14.Frágangur lands Hveragerðisbæjar í Kambalandi

2407085

Lagt fram minnisblað umhverfisfulltrúa Hveragerðisbæjar er varðar frágang lands Hveragerðisbæjar í Kambalandi ásamt yfirliti yfir frágang í Kambalandi sem lagt var fram á fundi bæjarráðs 8. ágúst 2024.
Bæjarráð samþykkir að hefja frágang á svæði við Búðarhaun 2 og Dalahraun 2-8 sbr. yfirlit yfir frágang í Kambalandi og minnisblað umhverfisfulltrúa.

15.Styrkur frá framkvæmdasjóði ferðamannastaða til Reykjadals gönguleiðar

2409201

Reykjadals gönguleiðin hlaut styrk að upphæð kr. 31.147.914,- frá framkvæmdasjóði ferðamannastaða sem úthlutað var úr sjóðnum til Ragnars Atla Guðmundssonar þann 30. apríl 2025.

Styrkurinn felst í hönnun annars vegar og bráðaðagerðum vegna gróðurverndar og merkinga hins vegar. Hönnun lýtur að áningarstöðum, fljótandi stígum og varanlegum stígum.

Lagt fram til kynningar.

16.Fundargerð aðalskipulagsnefndar frá 15. apríl 2025 og framhaldsfundar 22. apríl 2025

2505055

Fundargerð staðfest.

17.Verkfundargerð - Leikskólinn Óskaland frá 7. apríl 2025

2505057

Fundargerðin er staðfest.

18.Verkfundargerð - Leikskólinn Óskaland - lóðarfrágangur frá 8. maí 2025

2505056

Fundargerðin er staðfest.

19.Verkfundargerð - Grunnskólinn í Hveragerði frá 29. apríl 2025

2505059

Fundargerðin er staðfest.

20.Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 11. apríl 2025

2505032

Lagt fram til kynningar.

21.Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 30. apríl 2025

2505029

Lagt fram til kynningar.

22.Fundargerð stjórnar SASS frá 4. apríl 2025

2505060

Lagt fram til kynningar.

23.Fundargerð Brunavarna Árnessýslu frá 23. apríl 2025

2505034

Lagt fram til kynningar.
Fundargerðin upplesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 09:25.

Getum við bætt efni síðunnar?