Fara í efni

Bæjarráð

808. fundur 04. maí 2023 kl. 08:00 - 09:00 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Sandra Sigurðardóttir formaður
  • Halldór Benjamín Hreinsson
  • Alda Pálsdóttir
Starfsmenn
  • Geir Sveinsson bæjarstjóri
  • Helga Kristjánsdóttir skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Helga Kristjánsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Sandra Sigurðardóttir, formaður, setti fund og stjórnaði. Leitaði hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram.

1.Bréf frá nefndasviði Alþingis frá 26. apríl 2023

2304087

Í bréfinu óskar Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis eftir umsögn um frumvarp til laga um kosningalög o.fl. (ýmsar breytingar), 945. mál.
Lagt fram til kynningar.

2.Bréf frá nefndasviði Alþingis frá 26. apríl 2023

2304088

Í bréfinu óskar Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis eftir umsögn um frumvarp til laga um Mennta- og skólaþjónustustofu, 956. mál.
Lagt fram til kynningar.

3.Bréf frá nefndasviði Alþingis frá 28. apríl 2023

2305003

Í bréfinu óskar Atvinnuveganefnd Alþingis eftir umsögn um tillögu til þingsályktunar um aðgerðaráætlun í málefnum hönnunar og arkitektúrs fyrir árin 2023-2026, 978. mál.
Lagt fram til kynningar.

4.Bréf frá nefndasviði Alþingis frá 28. apríl 2023

2305004

Í bréfinu óskar Atvinnuveganefnd Alþingis eftir umsögn um frumvarp til laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða (veiðistjórn grásleppu), 976. mál.
Lagt fram til kynningar.

5.Bréf frá Innviðaráðuneytinu frá 28. apríl 2023

2305008

Í bréfinu vekur Innviðaráðuneytið athygli á því að frumvarp um breytingar á kosningalögum er nú til meðferðar hjá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis. Í frumvarpinu eru lagðar til frekari breytingar á 133. gr. sveitarstjórnarlaga sem fjallar um íbúakosningar sveitarfélaga en regluverk þar að lútandi var einfaldað með lagabreytingu á síðasta ári. Allir hafa tækifæri til að veita stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis umsögn um frumvarpið en ráðuneytið hvetur sveitarfélögin sérstaklega til að skoða málið og veita umsögn. Frestur er til 10. maí nk.
Lagt fram til kynningar.

6.Yfirlit um rekstur Hveragerðisbæjar janúar-mars 2023, fjárfestingar og greidda staðgreiðslu

2305005

Lagt fram rekstraryfirlit fyrir janúar til mars ásamt yfirliti um fjárfestingar og greidda staðgreiðslu.
Lagt fram til kynningar.

7.Minnisblað frá bæjarstjóra - vegna ráðningar starfsfólks á bæjarskrifstofu

2305012

Lagt fram minnisblað frá bæjarstjóra frá 2. maí 2023 vegna ráðningar menningar- atvinnu og markaðsfulltrúa Hveragerðis og bæjarritara Hveragerðis.
Meirihluti bæjarráðs samþykkir að fela bæjarstjóra að hefja ráðningaferli í þessi störf.
Fulltrúi D-listans sat hjá.

8.Samkomulag um samstarf um bakvaktir barnaverndar

2304089

Lagt fram samkomulag Hveragerðisbæjar, sveitarfélagsins Ölfus,og Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs. um samstarf um bakvaktir barnaverndar.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja samninginn.

9.Umsókn um leikskólavist utan lögheimilissveitarfélags

2304093

Óskað eftir því að barn með lögheimili í Hveragerði fái leikskólavist í leikskóla utan Hveragerði á meðan beðið er eftir plássi í Hveragerði.
Bæjarráð samþykkir umsóknina þar til barnið fær pláss á leikskólum Hveragerðis.

10.Umsókn um leikskóladvöl barns í öðru sveitarfélagi

2304094

Óskað er eftir að barn með lögheimili í Hveragerði fái framlengingu á leikskóladvöl í öðru sveitarfélagi á meðan beðið er eftir leikskólavist í Hveragerði.
Bæjarráð samþykkir umsóknina þar til barnið fær pláss á leikskólum Hveragerðis.

11.Umsókn um leikskóladvöl fyrir barn úr öðru sveitarfélagi

2305011

Óskað er eftir að barn með lögheimili í öðru sveitarfélagi fái leikskólapláss í Hveragerði meðan beðið er eftir leikskólaplássi í sínu sveitarfélagi.
Bæjarráð getur ekki orðið við þessari beiðni þar sem biðslisti er eftir leikskólaplássi hjá börnum með lögheimili í Hveragerði.

12.Fundargerð Samband íslenskra sveitarfélaga frá 31. mars 2023

2304092

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

13.Fundargerð Samband íslenskra sveitarfélaga frá 5. apríl 2023

2305006

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

14.Fundargerð Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 17. apríl 2023

2305007

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

15.Fundargerð Héraðsnefndar Árnesinga frá 24. mars 2023

2304095

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

16.Fundargerð Héraðsnefndar Árnesinga frá 14. apríl 2023

2304096

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

17.Fundargerð Byggðasafn Árnesinga frá 17. apríl 2023

2305009

Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Fundargerðin upplesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 09:00.

Getum við bætt efni síðunnar?