Fara í efni

Bæjarráð

802. fundur 02. febrúar 2023 kl. 08:00 - 08:33 í fundarsal Breiðumörk 20
Nefndarmenn
  • Sandra Sigurðardóttir formaður
  • Halldór Benjamín Hreinsson
  • Friðrik Sigurbjörnsson
Starfsmenn
  • Geir Sveinsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Geir Sveinsson bæjarstjóri
Dagskrá
Sandra Sigurðardóttir, formaður, setti fund og stjórnaði. Leitaði hún eftir athugasemdum við fundarboð en engar komu fram

1.Bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga frá 26. janúar 2023

2301072

Í bréfinu er boðað til XXXVIII. landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldið verður á Grand hótel þann 31. mars 2023.
Lagt fram til kynningar. Fulltrúar Hveragerðisbæjar eru Jóhanna Ýr Jóhannasdóttir og Alda Pálsdóttir.

2.Bréf frá Kambagil ehf frá 26. janúar 2023

2301071

Í bréfinu óskar Kambagil eftir því að hefja viðræður við Hveragerðisbæ um uppsetningu á „Sleðabraut“ (á ensku: Alpine Coaster) í landi Hveragerðis, nánar tiltekið austan við Svartagljúfur við Árhólma í Ölfusdal en vestan við núverandi skógræktarsvæði.
Bæjarráð tekur vel í erindið og felur bæjarstjóra að vinna málið frekar.

3.Bréf frá Myndlistarfélagi Árnessýslu ódagsett.

2301093

Í bréfinu óska félagsmenn í Myndlistarfélagi Árnessýslu eftir fundi með bæjarstjóra og fulltrúum úr bæjarstjórn til að ræða húsnæðismál félagsmanna Myndlistarfélags Árnessýslu í Hveragerði.
Starf Myndlistarfélags Árnessýslu er samfélaginu í Hveragerði mikilvægt. Í ljósi framkvæmda við grunnskólann sem hefjast á vormánuðum verður ekki hægt að nýta aðstöðu sem félagsmenn Myndlistarfélags Árnessýslu hafa haft til afnota í Egilsstöðum. Bæjarstjóra er falið að ræða við forsvarsmenn félagsins.

4.Fyrirspurn frá fulltrúa D-lista - Snjómokstur

2301094

Fulltrúi D-listans lagði fram eftirfarandi fyrirspurn.
Óskað er eftir upplýsingum um heildarkostnað sem fallið hefur til, þ.m.t. útlagða vinnu Áhaldahúss, við snjómokstur í Hveragerði í desember 2022 og janúar 2023. Þá er einnig óskað eftir upplýsingum um hversu mörg tæki hafa verið að sinna snjómokstri, bæði fjölda tækja í eigu sveitarfélagsins og fjöldi tækja á vegum verktaka.

Friðrik Sigurbjörnsson
Samkvæmt umhverfisfulltrúa Hveragerðisbæjar eru 5 - 6 vélar í gangi í „venjulegum“ mokstri; 3 vélar frá Hveragerðisbæ og 2-3 vélar frá verktökum. Þegar opna þarf allar stofngötur bæjarins á skömmum tíma hafa 8-9 vélar farið af stað á sama tíma til að allt gangi hratt og vel fyrir sig. Alls hafa um 13 vélar í heild komið að mokstri, 3 vélar í eigu Hveragerðisbæjar og 10 vélar frá verktökum.
Ekki var unnt að taka saman það sem til féll í janúarmánuði, þar sem allir reikningar hafa ekki borist. Fyrir desember mánuð var kostnaðurinn eftirfarandi, samkvæmt upplýsingum frá umhverfisfulltrúa:

Verktakar: 12.163.000kr
Vinna áhaldahúss: 24.000kr
Vélavinna áhaldahúss: 1.764.000kr

5.Fyrirspurn frá fulltrúa D-lista - Leikskólapláss

2301097

Fulltrúi D-listans lagði fram eftirfarandi fyrirspurnir
Óskað er eftir upplýsingum um hversu mörg börn séu á biðlista eftir leikskólaplássum í Hveragerði. Óskað er eftir upplýsingum um hvernig aldursdreifing barna á biðlistum sé og hvernig skiptingin á biðlista er milli leikskólanna Óskalands og Undralands og þeirra sem sækja um á báðum leikskólum? Þá óskar fulltrúi D-listans eftir upplýsingum um hversu margir hafi sótt um og nýtt sér foreldragreiðslur sem samþykktar voru á bæjarstjórnarfundi í september?
Óskað er eftir skriflegum svörum.

Friðrik Sigurbjörnsson
Alls eru 26 börn sem eru með lögheimili í Hveragerði og hafa náð 12 mánaða aldri á biðlista eftir leikskólaplássi og 7 börn sem eru með lögheimili í öðru sveitarfélagi eru á biðlista eftir leikskólaplássi. Tvö börn eru fædd 2018, 4 börn fædd 2019, 3 börn fædd 2020, 14 börn fædd 2021, 40 börn fædd 2022 og 1 barn fætt 2023.
Af þeim er óskað eftir plássi á Undralandi fyrir 40 þeirra, 11 á Óskalandi og sótt er um hvorn leikskólann sem er fyrir 13 börn.
Alls eiga foreldrar 13 barna rétt á foreldragreiðslum, þar af hafa 12 nýtt sér greiðslurnar.



6.Fyrirspurn frá fulltrúa D-lista - Árhólmar

2301095

Fyrirspurn frá fulltrúa D-listans
Hverjar voru tekjur af innheimtu bílastæðagjalda við Árhólma á árinu 2022?
Friðrik Sigurbjörnsson
Tekjur af innheimtu bílastæðisgjalda við Árhólma, áður en tillit er tekið til kostnaðar, fyrir árið 2022 voru rúmar 39 milljónir.

7.Fyrirspurn frá fulltrúa D-lista - Færanleg kennslustofa

2301096

Fulltrúi D-listans lagði fram eftirfarandi fyrirspurn.
Óskað er eftir upplýsingum um heildarkostnað sem féll til, þ.m.t. útlagða vinnu Áhaldahúss, við færsluna og viðgerðir á kennslustofunni sem sett hefur verið niður fyrir aftan Kaupfélagshúsið(handmenntastofuna).
Friðrik Sigurbjörnsson
Vísað er í svar í fundargerð bæjarráðs þann 3. 11.2022 við sömu fyrirspurn, en þar kemur fram að kostnaður við færanlegu kennslustofuna væri alls um 6 milljónir. Samkvæmt upplýsingum frá fasteignafulltrúa bættist kostnaður upp á samtals 600.000 kr. við eftir að uppsetningu var lokið; ganga þurfti frá og loka undir húsinu að framan, laga þurfti gólfdúk auk rafmagns- og netlagna.



8.Verkfundargerð - Hólmabrún frá 17. janúar 2023

2301065

Fundargerðin samþykkt samhljóða.

9.Verkfundargerð - Austurmörk og Grænamörk færsla gatnamóta frá 17. janúar 2023

10.Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 20. janúar 2023

2301069

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

11.Fundargerð Bergrisans frá 5. janúar 2023

2301100

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

12.Fundargerð Bergrisans frá 13. janúar 2023

2301101

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

13.Fundargerð Arnardrangs 5. janúar 2023

2301098

Fundagerðin lögð fram til kynningar

14.Fundargerð Arnardrangs 13. janúar 2023

2301099

Fundargerðin lögð fram til kynningar.

15.Fundargerð Almannavarna Árnessýslu frá 17. janúar 2023

2301067

fundargerðin lögð fram til kynningar

16.Fundargerð Heilbrigðisnefndar Suðurlands 20. janúar 2023

2301068

Fundargerðin lögð fram til kynningar.
Fundargerðin upplesin og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 08:33.

Getum við bætt efni síðunnar?